Morgunblaðið - 09.10.2006, Blaðsíða 12
12 MÁNUDAGUR 9. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
Síðumúla 13
sími 588 2122
www.eltak.is
VOGIR
Eltak sérhæfir sig í
sölu og þjónustu á
vogum.
Bjóðum mesta úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum
„ÉG HEF heyrt því haldið fram að frá efnahags-
legu sjónarmiði hefði verið betra að gengið hefði
gefið eftir síðar á árinu. Þessu er ég ósammála.
Gengislækkunin hafði fyrir löngu boðað komu
sína, með ýmsum hætti. Óstundvísi hennar var
hins vegar farin að reyna nógsamlega á þolinmæði
okkar og þegar hún loks lét á sér kræla varð hún
mikill aufúsugestur útflutningsgreinunum. Við
hefðum séð á eftir þýðingarmiklum burðarásum í
byggðunum og mikilvægum fyrirtækjum í íslensk-
um sjávarútvegi,“ sagði Einar K. Guðfinnsson
sjávarútvegsráðherra á aðalfundi Samtaka fisk-
vinnslustöðva sem haldinn var á föstudag.
Einar gerði gengismál og umhverfismerkingar
sjávarafurða m.a. að umtalsefni í ræðu sinni. Ein-
ar ræddi um þróun gengis krónunnar undanfarið
ár og hve nauðsynleg lækkun þess var sjávarút-
veginum og öðrum útflutningsgreinum. Í verulegt
óefni hafi stefnt fyrir ári síðan þegar gengi krón-
unnar stóð sem hæst. Sem betur fer hafi menn
ekki látið deigan síga og lækkunin orðið fyrr en
margur hugði. Þróunin undanfarnar vikur og daga
sé greininni þó óhagstæð, en valdi ekki enn telj-
andi búsifjum. Gengisvísitala sem sé innan við 120
endurspegli of sterka krónu.
Móta okkar eigin stefnu
Um umhverfismerkingar sjávarafurða sagðist
Einar verða mjög var við aukinn áhuga erlendra
kaupenda og seljenda íslenskra sjávarafurða á að
geta sýnt fram á það með trúverðugum hætti að ís-
lenskur fiskur sé veiddur úr sjálfbærum stofnum
og uppruna hans getið með skýrum hætti. „Ég tel
að við séum nú við þær aðstæður að okkur beri að
leggja okkur fram um að komast að niðurstöðu.
Tími umræðunnar er brátt á enda. Við eigum að
sjálfsögðu að móta okkar eigin stefnu í þessum
efnum og á okkar eigin forsendum. Við eigum ekki
að lúta yfirþjóðlegu eða fjölþjóðlegu valdi heldur
fremur tryggja að þessi markaðssetning sé gerð á
okkar forsendum og með okkar eigin hagsmuni að
leiðarljósi“. Þá fjallaði ráðherra um starfsemi og
vöxt AVS-sjóðsins frá því honum var komið á lagg-
irnar, nám í Fjöltækniskóla Íslands fyrir milli-
stjórnendur í fiskvinnslu og Matís ohf. nýstofnað
fyrirtæki í eigu ríkisins þar sem sameinaðar eru
þær einingar sem starfa á sviði matvælarann-
sókna á Íslandi.
Óstundvís gengislækkun
MIKLAR sveiflur á verðlagi sjávar-
afurða hafa orðið á tímabilinu frá
september í fyrra til ágúst á þessu ári.
Ef kvarðinn er settur á 100 í íslensk-
um krónum í september 2005, kemur
í ljós að verðlag á landfrystum afurð-
um er 24% hærra og verð á saltfiski
er einnig 24% hærra við lok tímabils-
ins. Verð á skelflettri rækju er nú 4%
hærra en í september í fyrra. Sam-
anvegið verð á mjöl- og lýsisafurðum
var við lok tímabilsins rúmlega 77%
hærra í íslenskum krónum en fyrir ári
samkv. verðvísitölum Hagstofunnar.
Þetta kemur fram í skýrslu Arnars
Sigurmundssonar, formanns Sam-
taka fiskvinnslustöðva, sem hann
flutti á aðalfundi samtakanna.
Hafa ber í huga að lítið framboð er
á mjöli og lýsi á heimsmarkaði og
framleiðslan í lágmarki vegna mun
minni veiði á uppsjávarfiski. Aftur á
móti er verðlag á sjófrystum afurðum
nú 15% hærra í íslenskum krónum en
fyrir réttu ári.
Þessi niðurstaða sýnir að erlendar
verðhækkanir á sjávarafurðum á síð-
ustu tólf mánuðum hafa átt sinn þátt
hækkun skilaverðs, ef frá er talin
rækjuvinnslan. Ef farið er tvö ár aftur
í tímann, og miðað við september
2004, kemur í ljós að skilaverð land-
frystra botnfiskafurða til framleið-
enda hefur hækkað um 17% í íslensk-
um krónum. Loðnumjöl og lýsi hafði
hækkað um tæp 30% í vor, en þá kom
fram gríðarleg hækkun á heimsmark-
aði á sama tíma og mjög lítið er fram-
leitt. Saltfiskur hefur hækkað á þessu
tímabili um 6%, og skilaverð á pillaðri
rækju er 5% lægra í lok tímabilsins,
en hafa verður í huga að verð á rækju-
afurðum hefur verið í lágmarki í mun
lengri tíma en þessi samanburður
nær til. Verðlag á sjófrystum afurð-
um var aftur á móti 28% hærra í ís-
lenskum krónum í ágúst 2006 en í
september 2004. Það eru fyrst og
fremst erlendar hækkanir sem skýra
myndina, en á þessu 2ja ára tímabili
er gengisvísitala krónunnar nær sú
sama í september 2004 og 2006.
Hráefnisverð hækkar
Töluverðar breytingar hafa orðið á
hráefnisverði til fiskvinnslunnar milli
fiskveiðiáranna 2004/2005 og áætlaðs
meðalverðs 2005/2006. Ef tekið er
samanvegið áætlað meðalverð í bein-
um viðskiptum og á fiskmörkuðum
innanlands á nokkrum helstu fiskteg-
undum til loka fiskveiðiársins 31.
ágúst sl., borið saman við meðalverð
árið áður, koma þessar breytingar
berlega í ljós. Hafa verður í huga að
þetta er samanvegið verð bæði árin
og hráefnisverð síðasta fiskveiðiárs,
sérstaklega í þorski og ýsu, hefur
hækkað mun meira í lok tímabilsins.
Vegið meðalhráefnisverð á þorski á
milli fiskveiðiára hafði hækkað um
3%. Ýsan um 24%, ufsinn um 29%,
karfinn um 34% og rækjan hefur
hækkað um 12% á milli tímabila. Síld
innan og utan lögsögu hefur hækkað
að meðaltali um 33% og loðnan um
20% frá meðalverði fiskveiðiársins á
undan. Eins og oftast ráðast verð-
breytingar á hráefni jafnan að mestu
af þróun afurðaverðs og gengis, en
þær koma ekki alltaf fram á sama
tíma.
Minna til vinnslu innan lands
Fyrir um áratug var fjölgun
vinnsluskipa komin fram. Botnfisk-
veiðar utan lögsögunnar voru umtals-
verðar í upphafi tímabilsins og sama
gilti um innflutning á Rússaþorski. Í
sjávarútvegi breytast hlutirnir hratt.
Mikill samdráttur varð í botnfiskveið-
um utan lögsögunnar og vinnsla á
Rússafiski innanlands minnkaði mjög
mikið. Heildarbotnfiskaflinn hefur
aftur á móti lítið breyst milli ára og
verið um og yfir 500 þúsund tonn upp
úr sjó flest árin. Ráðstöfun botnfisk-
afla til vinnslu innanlands var komin
niður í tæp 60% fyrir áratug og hefur
haldist mjög nálægt því hlutfalli síðan.
Fyrstu sjö mánuði þessa árs er áætlað
að 54% af botnfiskaflanum hafi farið
til vinnslu hér á landi og ferskfisk-
vinnsla í flug innifalin í þeim tölum. Er
þetta 4 prósentustigum lægra hlutfall
en á sama tíma á síðasta ári. Nær al-
veg hefur tekið fyrir innflutning á
Rússaþorski til vinnslu innanlands og
var hann aðeins tæplega 900 tonn
fyrstu sjö mánuði ársins. Hlutdeild
vinnsluskipa í botnfiskaflanum hefur
verið að meðaltali um og yfir 30% á
síðustu árum. Fyrstu sjö mánuði
þessa árs er hlutfall vinnsluskipa 31%
og þessu til viðbótar kemur úthafsafli
innlendra vinnsluskipa sem vegur
rúmlega 1% fyrstu sjö mánuði ársins.
Eru þetta heldur hærri hlutfallstölur
en á sama tímabili í fyrra. Hlutfall
gámafisks náði hámarki fyrir tæpum
tveimur áratugum. Síðan tók hlutfall-
ið að lækka og var lengi á bilinu 7–8%.
Fyrstu sjö mánuði þessa árs er hlut-
fall gámafisks áætlað um 13%, en allt
árið í fyrra nam gámafiskur einnig
13%. Aukinn ýsuafli á verulegan þátt í
aukningu gámafisks á síðustu tveim-
ur árum.
Meginniðurstaðan á þessu tíu ára
tímabili er að hlutfall vinnslu í landi
hefur lækkað úr tæpum 60% niður í
55%, hlutfall vinnsluskipa hefur
hækkað úr rúmum 22% í 30%, gáma-
fiskur hefur hækkað úr 8% í 13% og
innflutt hráefni er komið niður í 1%
og úthafsafli vinnsluskipa vegur mjög
lítið.
Sveigjanleiki sjávarútvegsins að
takast á við breyttar aðstæður kemur
þarna berlega fram, því þrátt fyrir að
það virki við fyrstu sýn að lítið hafi
breyst, þá verður einnig að hafa í
huga að flugfiskurinn hefur á seinni
árum skipt miklu máli, en hann flokk-
ast með vinnslu innanlands. En fisk-
vinnslan er ekki eingöngu háð hráefni
af innlendum fiskiskipum. Ef skoðað-
ar eru hlutfallstölur frá fiskveiðiárinu,
sem lauk 31. ágúst sl., kemur í ljós að
89% af hráefni til rækjuvinnslu er
innflutt iðnaðarrækja sem er töluvert
hærra hlutfall en árið áður. Um 13%
af uppsjávarfiski er landað af erlend-
um veiðiskipum, en var 12% árið áður.
Í uppsjávarfiski og innflutningi og
veiðum á rækju var verulegur sam-
dráttur milli ára. Aftur á móti var
sáralítið um innflutt hráefni til botn-
fiskvinnslu innanlands.
! "
Fiskverðið
hækkar mikið
Verð á fiskimjöli og lýsi hefur hækkað
um 77% mælt í íslenzkum krónum
Í HNOTSKURN
»Vegið meðalhráefnisverðá þorski milli fiskveiðiára
hafði hækkað um 3%.
»Hlutfall vinnslu í landi hef-ur lækkað úr tæpum 60%
niður í 55%.
»Um 13% af uppsjávarfiskier landað af erlendum
veiðiskipum en var 12% árið
áður.
Arnar Sigurmundsson, for-maður Samtaka fisk-vinnslustöðva ræddi umþensluna og góðærið sem
hefur haft áhrif á gildismat þjóð-
arinnar á aðalfundi Samtakanna.
Bryggjuspjallari kýs að gefa Arnari
orðið og leggur til að menn hugsi
sig um eftir lesturinn: „Umhverfi
sjávarútvegsins er allt breytingum
undirorpið og það sem gengur vel í
dag, getur orðið snúið á morgun. Ég
minnist þess ekki að öllum vinnslu-
greinum hafi vegnað vel í senn,
hvað þá sjávarútveginum í heild.
Styrkur íslenskra sjávarútvegs-
fyrirtækja og þeirra sem annast
sölu afurðanna hefur ekki síst falist
í því að aðlagast breyttum að-
stæðum á hverjum tíma. Ef við
skoðun þróun samsetningar útflutn-
ings sjávarafurða á undanförnum
árum sjáum við um leið hvað fyrir-
tækin eru fljót að breyta um
vinnsluaðferðir og beina framleiðsl-
unni í nýja markaði. Við lifum nú á
sérstökum tímum hér á landi.
Undanfarin ár hefur ríkt hér
þensluástand einkum á höfuðborg-
arsvæðinu, samhliða miklum verk-
legum framkvæmdum. Fjármála-
fyrirtækin og nokkur stórfyrirtæki
hafa verið í útrásarverkefnum og
náð oft á tíðum góðum árangri. Á
sama tíma þrengdi að útflutnings-
greinum og gengi krónunnar fór
hækkandi. Nú er það svo að við
gerðum okkur grein fyrir því að
gengi krónunnar kynni að hækka á
tímum stórframkvæmda við bygg-
ingu Kárahnjúkavirkjunar og álvers
á Reyðarfirði. Það sem fæstir sáu
fyrir var þenslan á íbúðamarkaði
einkum höfuðborgarsvæðinu og þau
áhrif og það rót sem útlánastefna
bankanna og íbúðarlánasjóðs hafði á
gengi krónunnar og hugsanaháttinn
í landinu. Viðbrögð Seðlabankans
voru að reyna að slá á útlánaþensl-
una með sífelldri hækkun stýrivaxta
urðu til að styrkja gengi krónunnar
og þrengja að útflutningsgreinum.
Nú síðsumars hófst mikil umræða
um framkvæmdir við Kárahnjúka
og lagðar fram tillögur og hug-
myndir að breyta þessari 100 millj-
arða framkvæmd í sýningarmann-
virki fyrir gesti og gangandi. Ofan í
allt, átti síðan að greiða skaðabætur
til eiganda áversins sem nú er að
rísa við Reyðarfjörð, þar sem ekki
væri hægt að útvega álverinu raf-
magn fyrr en eftir a.m.k. fimm ár.
Nú er það svo að umhverfismál og
náttúruvernd taka að sífellt meira
rými í umræðunni og er það mjög
eðlileg þróun.
Ég sagði áðan að framkvæmdin
við Kárahjúkavirkjun sem er sú
stærsta í Íslandssögunni myndi
ekki kosta undir 100 milljörðum
króna, en til samanburðar nam út-
flutningur sjávarafurða frá Íslandi
110 milljörðum á síðasta ári.
Hvar erum við stödd ? – Til þess
að kóróna allt tóku milli 10 – 12 þús-
und manns þátt í mótmælagöngu
niður á Austurvöll til þess að fylgja
þessum kröfum eftir. Það var ekki
spurt um efnahagslegu áhrifin af
því að slá af 100 milljarða fram-
kvæmd og gríðarlegum skaðabótum
sem Íslendingar þyrftu að greiða til
eiganda álversins við Reyðarfjörð.
Verður hægt að magna mál upp
hér á landi í náinni framtíð gegn ís-
lenskum sjávarúvegi og skyn-
samlegri nýtingu fiskmiðanna í nafni
umhverfis- og náttúruverndar? – Ég
vil reyndar ekki trúa því, en maður á
aldrei að segja aldrei.
Ástæðan fyrir því að ég ræði þetta
sérstaklega í ræðu minni, er sú að í
góðærinu í landinu með nær engu
atvinnuleysi hafa margir fjarlægst
þá hugsun að lífskjör á Íslandi hafa í
langan tíma byggst á sjávarútvegi
með sinni gjaldeyrissköpun, síðar
komu iðnfyrirtækin með álverin í
fararbroddi og gríðarleg aukning
hefur orðið í ferðaþjónustu og á síð-
ustu árum hafa fjármálafyrirtækin
bætst í hópinn. Það skiptir máli fyrir
allt þjóðarbúið að sífellt fleiri stoðum
verði komið undir gjaldeyrissköpun
þjóðarinnar, en að sjálfsögðu eigum
við vanda okkur við hverja ákvörðun
hvort sem er við uppbyggingu at-
vinnustarfsemi eða í garðinum
heima.“
Umhverfismál og náttúruvernd
hjgi@mbl.is
» 100 milljarða fram-
kvæmd sem sýning-
armannvirki fyrir gesti
og gangandi?
BRYGGJUSPJALL
Hjörtur Gíslason
ÚR VERINU
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111