Morgunblaðið - 09.10.2006, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 09.10.2006, Qupperneq 14
14 MÁNUDAGUR 9. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT BANDARÍSKAR og íraskar hersveitir felldu 30 skæruliða úr röðum sjíta í hörðum átökum í borg- inni Diwaniya um helgina, að sögn talsmanna Bandaríkjahers. Skæruliðar vísuðu þessu á bug og sögðu aðeins þrjá menn sína hafa særst. Á sama tíma var 36 klukkustunda útgöngubanni í Kirkuk aflétt, eftir mikla leit bandarískra her- manna og íraskra lögreglumanna að uppreisnar- mönnum í borginni. Sögðu talsmenn írösku lög- reglunnar 180 manns hafa verið tekna höndum og að lagt hefði verið hald á mikið magn vopna. Repúblikaninn John Warner, sem fer með for- ystu í hermálanefnd öldungadeildar Bandaríkja- þings, hefur skorað á Bandaríkjastjórn að grípa til aðgerða til að stemma stigu við ofbeldinu, með þeim orðum að ef því linni ekki innan þriggja mán- aða þurfi að koma til gagnger endurskoðun á stefnu hersins í Írak. Óöldin hélt áfram í gær þegar lögreglan í Bag- dad fann lík 51 manns en alls er talið að 100 manns láti lífið dag hvern í átökunum í landinu. Dagblaðið Washington Post fjallaði í gær um aukið mannfall í Bandaríkjaher. Þar kom meðal annars fram, að fjöldi særðra bandarískra her- manna í Írak í september hefði verið sá mesti í ein- um mánuði í hátt í tvö ár. Þannig særðust alls 776 hermenn í átökum við skæruliða, sem er það mesta frá hernaðaraðgerðunum í borginni Fall- ujah í nóvembermánuði 2004. Yfir 20.000 hermenn særst í átökunum Í blaðinu segir, að yfir 20.000 bandarískir her- menn hafi særst í árásum í Írak og um helmingur þeirra hefði snúið aftur á vígvöllinn. Um 140.000 bandarískir hermenn eru nú í Írak. Er aukningin í fjölda særðra m.a. rakin til þess, að þúsundir bandarískra hermanna hefðu verið kvaddir til Bagdads síðan í júli, í því skyni að að- stoða íraska her- og lögreglumenn. Tugir uppreisnarmanna teknir höndum í Kirkuk Reuters Eftirlit Hermaður stendur vörð á gatnamótum í olíuframleiðsluborginni Kirkuk um helgina. Tæplega 800 bandarískir hermenn sagðir hafa særst í árásum í Írak í september Pakistan fyrir hönd Rauða kross- ins. Hún segir að fljótlega eftir að skjálftinn reið yfir hafi alls átta fulltrúar frá Íslandi farið til að taka Eftir Baldur Arnarson baldura@mbl.is PERVEZ Musharraf, forseti Pak- istans, lagði í gær blómsveig að minnismerki um fórnarlömb jarð- skjálftans sem reið yfir Pakistan og hluta Indlands og Afganistans í borginni Muzaffarabad í gær, en þá var nákvæmlega ár liðið frá harm- leiknum. Skjálftinn var 7,6 á Richters- kvarða og átti upptök sín í norður- hluta Kasmír-héraðs. Eyðilagði hann alls um 6.000 skólabyggingar, með þeim afleiðingum að 18.000 börn á skólaaldri týndu lífi. Alls er talið, að yfir 73.000 Pakistanar og á annað þúsund Indverja hafi farist í skjálftanum. Í tilkynningu frá Íslandsdeild Rauða krossins segir, að flestar byggðir sem urðu hvað verst úti í skjálftanum hafi verið afskekktar og erfiðar yfirferðar. Þar kemur einnig fram, að 400.000 manna séu enn heimilislaus eftir skjálftann, nú þegar veður fari kólnandi á svæð- inu Tók þátt í hjálparstarfinu Hildur Magnúsdóttir hjúkrunar- fræðingur tók þátt í hjálparstarfi í þátt í hjálparstarfinu. „Starf Rauða krossins fólst líka í því mikilvæga hlutverki að sameina fjölskyldur,“ sagði Hildur í gærkvöldi. „Við starfræktum leitarþjónustu, sem segja má að sé hið klassíska starf Rauða krossins.“ Spurð um starf sitt segist Hildur hafa stýrt uppbyggingu tjald- sjúkrahúss fyrir fórnarlömb skjálftans í borginni Abbottabad. „Ég var þar í þrjá mánuði. Síðan var sjúkrahúsinu lokað í febrúar. Abbottabad er borg í Pakistan sem var í útjaðri skjálftasvæðisins. Mestar skemmdirnar af hans völd- um urðu í pakistanska hluta Kasm- ír-héraðs. Alþjóða Rauði krossinn rak tvö sjúkrahús í Pakistan, eitt í borginni Muzaffarabad, þar sem var einn hjúkrunarfræðingur frá Íslandi, og annað í Abbottabad, þar sem voru þrír íslenskir hjúkrunarfræðingar. Háskólasjúkrahúsið í Abbottabad skemmdist mikið og því var mikil þörf á tjaldsjúkrahúsinu.“ Minnast harmleiksins í Pakistan Fjögur hundruð þúsund manns sagðir heimilislausir ári eftir skjálftann mikla nú þegar vetur nálgast Í HNOTSKURN »Alþjóða Rauði krossinnrak margar heilsugæslu- stöðvar á skjálftasvæðinu og aðstoðaði við endurbyggingu heimila. » Hjálparstarf gekk hægt ífyrstu og telja margir Pakistanar að ríki heims hafi brugðist fórnarlömbunum. AP Söknuður Ungir drengir í indverska hluta Kasmír-héraðs, sem urðu munaðarlausir eftir jarðskjálftann mann- skæða sem reið yfir 8 október sl., komu saman í bæn í gær í skýli fyrir munaðarlausa í Srinagar á Indlandi. Eftir Baldur Arnarson baldura@mbl.is RÚSSNESKA þjóðin syrgir nú fráfall blaðamannsins Önnu Politkovskaya sem var skotin til bana við heimili sitt í Moskvu á laugardag. Anna, sem var 48 ára gömul tveggja barna móðir, þótti einn öfl- ugasti rannsóknarblaðamað- ur Rússlands, en hún var þekkt fyrir harða gagnrýni sína á stefnu stjórnarinnar í málefnum Tétsníu. „Hún var ótrúlega hug- rökk,“ segir í forsíðufrétt sér- stakrar útgáfu dagblaðsins Novaya Gazeta, sem kemur út í dag. „Hún leit á óréttlæti, óháð því hver varð fyrir því, sem persónulegan óvin.“ Dagana áður en hún var myrt lagði Anna lokahönd á grein um pyntingar í Tétsníu sem Ramzan Kadyrov, að- stoðarmaður Vladímírs Pút- íns forseta, var sagður bera persónulega ábyrgð á. Í blaðagreininni „Helvíti“, sem birtist í júlí árið 2000, lýsti hún ástandinu í téts- nesku borginni Grosní þann- ig, að „rústir borgarinnar væru eins og nýr Kákasus- fjallahryggur“ og að hung- ursneiðin væri „afrísk“. Oft borist hótanir Önnu höfðu margsinnis borist líflátshótanir og á leið sinni til bæjarins Beslan, þar sem aðskilnaðarsinnar í Téts- níu frömdu ódæði sitt árið 2004, var eitrað fyrir henni. Þá flúði hún til Vínarborgar árið 2001 eftir að hafa borist viðvörun um að líf hennar væri í hættu. Banamaður Önnu hefur enn ekki fundist, þótt lög- reglan hafi undir höndum óskýra myndbandsupptöku af manni með hafnaboltahúfu sem elti hana inn í íbúða- blokkina þar sem hún bjó. Morðið á Önnu hefur vakið upp umræður um stöðu fjöl- miðlunar í Rússlandi, en að sögn samtakanna CPJ í New York er hún 42. blaðamað- urinn til að falla fyrir hendi morðingja frá því Sovétríkin leystust upp árið 1991 og sá tólfti frá því Pútín varð forseti árið 2000. Þannig var Anna í hópi fárra blaðamanna sem þorðu að gagnrýna stjórn Pútíns op- inberlega og stefnu hennar í stríðinu í Tétsníu, sem hún sagði hafa leitt til þess, að Rússar „hefðu glatað allri sið- ferðiskennd“ sinni. Færði hún rök fyrir þessu í frægri grein árið 2002 um tétsneska konu sem missti fóstur eftir að rússneskir her- menn létu hana standa við vegg tímunum saman. Anna útskrifaðist sem blaðamaður frá ríkisháskól- anum í Moskvu árið 1980 og starfaði að því loknu hjá rík- isdagblaðinu Izvestiya í meira en áratug. Gaf út bók um stjórnina Árið 1999 gekk hún svo til liðs við Novaya Gazeta, eitt fárra dagblaða landsins sem var sjálfstætt í efnistökum. Hún gaf út nokkrar bækur. Meðal þeirra voru „Siðlausa stríðið“, sem fjallaði um Téts- níu og kom út 1999, og bókin „Rússland Pútíns: Líf í göll- uðu lýðræðisríki“, þar sem hún varaði við því að grimmi- legar aðferðir Stalíns hefðu verið teknar upp á nýjan leik í landinu. Anna vissi að skrif hennar væru ekki hættulaus, með þeim orðum að „áhættan væri hluti starfsins“. Rússar syrgja Önnu Politkovskaya, 42. blaðamanninn sem er myrtur í Rússlandi frá falli Sovétríkjanna „Áhættan er hluti starfsins“ Reuters Virðing Rússneskir borgarar leggja blóm og kerti við mynd af blaðakonunni Önnu Politkovskaya í St. Pétursborg í gær. Riga. AFP. | Aig- ars Kalvitis, for- sætisráðherra Lettlands, lýsti því yfir í gær, að hann væri reiðubúinn til að mynda nýja sam- steypustjórn, deginum eftir að flokkur hans, Þjóðarflokkurinn, hlaut flest at- kvæði í þingkosningum um helgina. „Við munum hefja samningavið- ræður við alla flokkana sem eru hægra megin við miðju,“ sagði Kal- vitis, en alls hlaut flokkur hans 23 þingsæti af 100 og 19,3% atkvæða. Næstir komu Bandalag grænna og bænda með 16,6% og 18 sæti og Nýi flokkurinn 16,2% og 18 sæti. Um 2,3 milljónir manna búa í Lettlandi og voru 1,4 milljónir á kjörskrá. Er þetta í fyrsta sinn sem stjórnin heldur velli frá því landið öðlaðist sjálfstæði árið 1991. Lettar kusu sömu stjórn Aigars Kalvitis

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.