Morgunblaðið - 09.10.2006, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 09.10.2006, Qupperneq 30
30 MÁNUDAGUR 9. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ Eldri borgarar í Hafnarfirði Föstudaginn 29. sep. var spilað á 12 borðum. Meðalskor var 216. Úr- slit í N/S Rafn Kristjánss. – Oliver Kristóferss. 264 Ragnar Björnsson – Magnús Oddsson 251 Jón Hallgrímss. – Ægir Ferdinandss. 244 A/V Bragi V. Björnsson – Guðrún Gestsd. 267 Björn Björnsson – Haukur Guðm.s. 258 Jón Pálmason – Eyjólfur Ólafsson 241 Á föstudögum er spilað um stig til verðlauna fram að jólum. Staðan í stigakeppninni er þessi. Guðrún Gestsdóttir 60 stig Bragi V. Björnsson 42 stig Oliver Kristófersson 40 stig Rafn Kristjánsson 40 stig Spilað var þriðjudaginn 3. okt á 12 borðum. Úrslit urðu þessi í N/S Ragnar Björnsson – Eysteinn Einarsson 260 Magnús Oddsson – Magnús Halldórss. 251 Rafn Kristjánss. - Oliver Kristóferss. 233 A/V Sigurður Hallgrímsson – Anton Jónsson 249 Jón Ó Bjarnas. – Skarphéðinn Lýðss. 247 Jón Gunnarss. - Sigurður Jóhannss. 243 Þá fer fram stigakeppni á þriðju- dögum og staðan eftir 8 umferðir er þessi: Ragnar Björnsson 62 stig Björn Björnsson 59 stig Ólafur Ingvarsson 56 stig Sigurberg Elentínusson 56 stig Bridsdeild Breiðfirðingafélagsins Sunnudaginn 1/10 var spilaður eins kvölds tvímenningur. Úrslit voru eftirfarandi í Norður-Suður: Lilja Kristjánsd. – Sigríður Gunnarsd. 247 Garðar Jónsson – Guttormur Vik 242 Gunnar Guðmss. – Sveinn Sveinsson 222 Austur-Vestur Þorleifur Þórarins. – Haraldur Sverris. 225 Jórunn Kristinsd. – Stefán Óskarsson 224 Þórir Jóhannss. – Sigurður Sigurðss. 224 Sunnudaginn 8/10 hefst fjögurra kvölda tvímenningskeppni. Spilað er í Breiðfirðingabúð, Faxafeni 14, á sunnudögum kl. 19. Bridsfélag Borgarfjarðar Starfsemi Bridgefélags Borgar- fjarðar hófst í Logalandi mánudag- inn 2. okt. með 16 para tvímenningi. Borgnesingar voru venju fremur áberandi í hópnum og alltaf gaman að fá þá í heimsókn. Hins vegar er nú óþarfi hjá þeim að vera jafnáberandi í efstu sætum eins og þetta kvöld. Úrslit urðu annars þessi í N-S Annar Einarsdóttir – Kristján Axelsson 172 Guðm.Þorsteinsson – Flemming Jessen 156 Guðm. Jónsson – Elín Þórisdóttir 154 A-V Dóra Axelsdóttir – Jón H. Einarsson 144 Eyjólfur Sigurjónss. – Jóhann Oddss. 141 Jón Eyjólfsson – Baldur Björnsson 139 Næst verður spilað mánudaginn 9. október og þá verður einskvöldství- menningur. Bridsspilarar nær og fjær eru velkomnir og sérstaklega tækjum við vel á móti nýliðum. Bridsdeild Félags eldri borgara í Reykjavík Tvímenningskeppni spiluð í Ás- garði, Stangarhyl 4, mánud. 2. okt. Meðalskor 216 stig. Sindrakeppnin 1. umferð af 7. Árangur N-S. Jón Hallgrímss. – Magnús Oddsson 256 Gísli Víglundss. – Olíver Kristófersson 249 Jóna Magnúsd. – Sigrún Pétursd. 224 Árangur A-V. Jóhann Lúthers – Ægir Ferdinands. 279 Albert Þorsteinsson – Bragi Björnsson 246 Magnús Ingólfsson – Ólafur Ingvarsson 243 Tvímenningskeppni spiluð fimm- tud. 5. okt. Meðalskor 216 stig. Árangur N-S. Magnús Halldórss. – Magnús Oddsson 282 Pétur Antonss. – Ragnar Björnss. 244 Gísli Víglundss. – Olíver Kristófersson 243 Árangur A-V. Albert Þorsteinsson – Bragi Björnsson 251 Eggert Þórhallss. – Jón Árnason 242 Friðrik Jónsson – Tómas Sigurjónss. 236 BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson| norir@mbl.is Raðauglýsingar 569 1100 Húsnæði í boði Hólmaslóð – Grandar Vinnustofa/skrifsfofa til leigu Höfum til leigu pláss undir vinnustofu/ skrifstofu við Hólmaslóð sem er um 67 fm. Húsnæði í góðu ástandi. Laust nú þegar. Nánari uppl. veitir: Fasteignamarkaðurinn ehf., Óðinsgötu 4, s. 570 4500. Félagslíf  MÍMIR 6006100919 I Kjör á nýjum Stm.  HEKLA 6006100919 VI  GIMLI 6006100919 III I.O.O.F. 19  1871098  F.L. I.O.O.F. 10  1871098  tréð í skóginum. Auða svæðið er nú stórt. Þetta tré var alltaf í forystu, hafði sterkan bol og lét til sín taka. Þegar vorið endar og sumarið tekur við dökkna og þroskast hin ungu lauf trjánna. Þau safna forða til komandi kynslóða, opna sig betur og láta frjó- korn af sér falla sem eru framtíð skógarins þar sem sterkir einstak- lingar endurnýjast og eiga komandi vor og sumar til vaxtar. En það haustar að á ári hverju og í ævi hvers manns. Laufið tekur á sig liti hausts- ins og flóran skartar sínu fegursta. Að lokum kemur vindurinn og feykir laufinu til jarðar. Moldin tekur við. Hið sterka tré hefur lagt sitt til í líf- ríki jarðar. Það hefur unnið og frjóvgað jarðveginn og gefið kom- andi kynslóðum heilnæmt loft til andardráttar. Ég vil þakka Ingólfi mági mínum fyrir margar góðar stundir sem við höfum átt saman. Þar fór sterkur maður. Ástvinum öllum sendi ég mínar bestu óskir og samúðarkveðjur. Sjöfn Árnadóttir. Sumir menn sem við þekkjum eru svo vel af Guði gerðir að bara það að heyra nafnið þeirra fyllir mann trausti, gleði og væntumþykju. Þetta á við um Ingólf móðurbróður minn Björgvinsson sem við kveðjum í dag með söknuði en þökkum almættinu fyrir að hafa gefið okkur hann. Í mínum bernskuminningum er mikill ljómi yfir heimsóknum þeirra Ingólfs og Önnu með krakkana til okkar í sveitina að Svanavatni, þar sem pabbi og mamma stunduðu bú- skap. Ingólfur og Anna voru búsett í Reykjavík og ferðir milli þessara staða ekki eins tíðar og er í dag. Gjarnan var látið vita með nokkrum fyrirvara um fyrirhugaðar heim- sóknir í sveitina og hófst þá tilhlökk- unartímabil, því öruggt var að nú yrði gaman.Ekki spillti það tilhlökk- uninni að elsta dóttir þeirra hún Þrúður er jafngömul mér og dvaldi hún stundum hjá okkur á sumrin og varð okkur og er enn mjög vel til vina. Það var engin lognmolla í gangi þegar þau voru mætt á svæðið. Ing- ólfur lét til sín taka í orði og verki. Í fermingarveislum okkar systkina stjórnaði hann útileikjum, hann skipulagði Þórsmerkurferðir, var hrókur alls fagnaðar í umræðum við eldhúsborðið um landsins gögn og nauðsynjar og stundum æstist leik- urinn þegar pólitík bar á góma en Ingólfur var mikill framsóknarmað- ur og lét ekki halla á sína menn. Það var einmitt í sambandi við pólitík, sem ég mörgum árum síðar fékk mína einu aðfinnslu frá Ingólfi. Það var þegar ég hafði nýlega hafið minn stutta stjórnmálaferil og gengið í stjórnmálaflokk, ekki þó Framsókn. Hann hringdi og spurði með sín- um þróttmikla málrómi: „Ertu geng- in í Alþýðubandalagið?“ Ég játaði. „Og hvað á það að þýða?“ Við ein- hvern annan viðmælanda hefði ég reynt pólitísk rök eða hækkað róm- inn, – en ekki við hann Ingólf Björg- vinsson – af og frá. Nú er þetta og svo margt, margt fleira dýrmætar minningar um stór- an, sterkan og bráðskemmtilegan mann. Í síðasta samtali okkar Ingólfs sagði hann: „Ég bið að heilsa þínu fólki, það er mitt fólk líka, ekki satt?“ Það er sannarlega hans fólk – sem kveður nú höfðingja sinn með virðingu og hjartans þökkum fyrir allt. Guð blessi Önnu og stóra hópinn þeirra Ingólfs. Ingibjörg Marmundsdóttir. Sumt í lífinu finnst manni ein- hvern veginn bara eiga að vera. Ing- ólfur frændi var þannig í mínum huga. Hann var. Teinréttur og flott- ur kominn á níræðisaldur. Frændi sem stundum gat gustað af á yfir- borðinu en gull af manni og fullur hlýju. Frændi sem átti stóru fjöl- skylduna og þótti ekkert leiðinlegt að eiga almennilegan amerískan bíl í den. Frændi sem var foringi en líka maður samvinnu. Frændi sem hló með öllum líkamanum og var með bumbu sem öll börn vildu kúra við. Frændi sem var gott að vinna með og gaman að vera með. Frændi sem var traustur eins og klettur og með svo stóran faðm að allt virtist geta rúmast þar. Frændi sem blés á kyn- slóðabilið og naut þess að syngja og vera með sínum. Frændi sem nú er saknað. Úr Sigluvogi sendum við Olla og börn, innilegustu samúðarkveðjur Ingólfsfjölskyldunni. Guð blessi ykk- ur öll og minningu um góðan mann. Helgi. Þó að Austur-Landeyjar séu nú búsældarlegar og jarðirnar hentug- ar og þurrlendi mikið og gjöfult hef- ur svo ekki ávallt verið. Landeyjarn- ar voru áður fyrr afar blautlendar og víða erfiðar yfirferðar. Við þær að- stæður fluttu árið 1923 að Voðmúla- staða-Suðurhjáleigu hjónin Jarþrúð- ur Pétursdóttir og Björgvin Filippusson og þetta sama ár fædd- ist þeim sonurinn Ingólfur. Hann var næstelstur þeirra systkina sem ólust upp á Bólstað en það hét bær- inn eftir að nafninu var breytt árið 1941 og bæjarheitið Bólstaður lög- fest. Verkefnin sem blöstu við hinum ungu hjónum voru óþrjótandi. Smám saman voru mýrarnar ræstar fram, landið brotið til túnræktar og byggingar reistar. Þó að flest verk væru unnin með handafli einu saman var hesturinn réttnefndur þarfasti þjónninn sem létti þyngstu byrðun- um af búendum. Börnin léttu undir með foreldrum sínum og lærðu snemma að vinna. Ingólfur var elsti sonurinn og varð fljótlega liðtækur við bústörfin og síðar röskur verk- maður á Bólstað. Ungur gekk hann til flestra útiverka, verklaginn, út- sjónarsamur og glöggur. Vinnusem- in sem Ingólfur tamdi sér í æsku ein- kenndi hann æ síðan. Samheldni og glaðværð fylgja systkinunum frá Bólstað. Þau ólust upp við ástríki og trygglyndi á sveitaheimili þar sem lífsgildin voru samviskusemi, hjálpsemi og heiðar- leiki. Í Voðmúlastaðahverfinu og á næstu bæjum voru barnmargar fjöl- skyldur. Leikfélagar voru á hverju strái og náttúran allsherjar leikvöll- ur með Eyjafjallajökul, Tindfjöll og aðrar rangæskar náttúruperlur í bakgrunni og Vestmannaeyjar í suðri. Á góðum stundum mátti heyra systkinin frá Bólstað minnast æsku- vinanna sem margir reyndust föru- nautar á vegi lífsins síðar meir. Ing- ólfur var trúr sínu æskuhéraði og ræktaði alla tíð sambandið við Rang- árþing og Rangæinga og ekki síður við þá sem fluttir voru brott úr hér- aði. Þeirra vettvangur hefur meðal annars verið Rangæingafélagið í Reykjavík. Án efa hefði Ingólfi búnast vel sem bónda en hann kaus annan starfa. Hann var harðduglegur til allra verka og hlífði sér hvergi, alla tíð dýravinur og hestamaður og mat ávallt einstaka eðliskosti íslenska hestsins og átti margan gæðinginn á langri ævi. Um áratuga skeið átti hann hesthús í Reykjavík. Það má sjá fyrir sér taumatökin traustu þeg- ar Ingólfur tók klárana til kostanna á björtum vorkvöldum eða kyrrum vetrardögum þar sem ísinn brast og kastaðist undan hófaslættinum. Á sumrin tóku við reiðtúrar austur í Rangárþingi. Mér eru einmitt minn- isstæðar slíkar ferðir Ingólfs í góðra vina hópi frá því ég var gutti á Hellu. Hann var þá manna höfðinglegastur í fasi, glaðbeittur vel og hrókur alls fagnaðar. Fyrir allmörgum árum erfðu systkinin frá Bólstað hluta úr föð- urleifðinni, jörðinni Hellum á Landi. Þar fæddist Björgvin faðir þeirra og átti sín æsku- og uppvaxtarár þar til hann fluttist búferlum austur í Landeyjar. Skarðsfjallið rís tignar- legt mót þeim vegfarendum sem leið eiga upp Landsveitina og undir fjall- inu hafa í aldanna rás staðið bæir í skjóli fyrir nöprum austlægum vind- um og norðlægum og þeim eyðing- aröflum náttúrunnar sem leikið hafa Rangárþing grátt. Jörðin Hellar er nú gróin og búsældarleg þó að víða standi grjótið upp úr hraunkápunni sem vitnisburður um þau reginum- brot sem skópu þetta land. Á þess- um slóðum forfeðranna undi Ingólf- ur sér vel. Hann gekk sporléttur um landið og þótt kominn væri af létt- asta skeiði fannst Ingólfi létt verk og gott að ganga á Skarðsfjall til að huga að vatnsbólinu eða skyggnast um. Dóttir og tengdasonur Önnu og Ingólfs hafa byggt sér reisulegt sumarhús í landi Hella þar sem fjöl- skyldan getur komið saman og átt sínar gleðistundir í kyrrð og fegurð sveitarinnar. Ég trúi því að ljóð- skáldið Grétar Fells sem ólst upp í Fellsmúla á Landi hafi átt við Skarðsfjall þar sem hann yrkir í ljóð- inu Fjallið eina: – Einbúinn þögli, ég elska þinn frið, óska mér hjá þér að búa –. Ingólfur var gæfumaður í einkalífi og átti að lífsförunaut þá yndislegu eiginkonu Önnu Tyrfingsdóttur. Í heimsóknum til þeirra hjóna hafa móttökur alla tíð verið afburða hlýj- ar og gestrisni þeirra og vinátta ein- læg. Anna reiðir fram góðgjörðir af bestu sortum og spyr frétta enda annt um hagi og heilsu þeirra sem nærri henni standa. Hún býr yfir ríkri góðvild og manngæsku sem og Ingólfur, en hann var líka ákveðinn og rökfastur þá honum þótti henta og stundum hvatskeyttur og fastur fyrir. Ingólfur var ætíð veitull höfð- ingi heim að sækja, kveðjuhandtakið traust, brosið milt og blikið blítt í auga. Þau hjónin áttu fimm dugmikil mannkostabörn. Samheldni fjöl- skyldunnar er mikil og áhugi Önnu og Ingólfs fyrir velferð afkomend- anna tær og sannur. Það var bjartur og hlýr haustdagur þegar Ingólfur kvaddi þennan heim. Farfuglarnir voru að ferðbúast til fjarlægra slóða og hann lagði sjálfur af stað í sína hinstu för. Það er bjart yfir minning- unni um þennan höfðinglega vin minn og kæran frænda. Hann var hlýr maður og drengur góður. Við Hrafnhildur og börnin okkar vottum Önnu, afkomendum þeirra og öðrum ástvinum dýpstu samúð. Þeirra missir er mikill. Fannar Jónasson Ingólfur Björgvinsson FRÉTTIRMINNINGAR FRAMKVÆMDIR við fyrsta fram- haldsskólann sem Þróunarsam- vinnustofnun byggir í Malaví í sam- vinnu við heimamenn eru hafnar í grennd við fiskimannaþorpið Malambo. Skólinn á að þjóna um það bil fjórtán nærliggjandi þorpum. Stefnt er að því að skólinn verði fok- heldur fyrir upphaf regntímans, um mánaðamótin nóvember og desem- ber, en framkvæmdum á að ljúka um áramót. Skólinn heitir Nankhwali Comm- unity Day Secondary School og hef- ur verið án húsnæðis um hríð. Skól- inn hafði yfir að ráða einni skólastofu en húsnæðið var í eigu klausturs á staðnum. Stella Sam- úelsdóttir, starfsmaður ÞSSÍ, hefur yfirumsjón með byggingafram- kvæmdunum. Í fréttatilkynningu kemur fram að klaustrið vildi end- urheimta aðstöðuna og þar af leið- andi var skólinn orðinn algjörlega húsnæðislaus. Aðrir framhaldsskólar eru í margra kílómetra fjarlægð og vegna skorts á aðstöðu voru nemendur að- eins um eitt hundrað talsins og að- eins kennt í tveimur fyrstu bekkjum framhaldsskólans. Þróunarsam- vinnustofnun er núna að byggja tvær skólablokkir með samtals fjórum kennslustofum, einni stofu fyrir hvern árgang, sem tekur um eða yfir fimmtíu unglinga. Einnig verður að- staða í nýja skólanum fyrir bókasafn, sérstök stjórnunarbygging verður á staðnum, salernisaðstaða, auk þess sem byggð verða tvö kennarahús og grafinn brunnur við skólann. Þá er verið að smíða húsgögn fyrir skól- ann fyrir íslenskt fé. Þróunarsam- vinnustofnun byggir nú í fyrsta sinn með nýrri umhverfisvænni aðferð með svokölluðum „soilblocks“ en það eru kubbar úr sementsblöndu sem látnir eru þorna í sólinni. Þegar skólinn verður fullbúinn verður unnt að bjóða framhalds- skólanemum á þessu svæði í suður- hluta Malaví kennslu á öllum stigum framhaldsmenntunar á grunn- skólastigi. Ljósmynd/Stella Samúelsdóttir. Framkvæmdir Sólþurrkun byggingarefnis í nýja framhaldsskólann sem Þróunarsamvinnustofnun byggir í Malaví. Þróunarsamvinnustofnun byggir framhaldsskóla í Malaví

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.