Morgunblaðið - 09.10.2006, Page 32

Morgunblaðið - 09.10.2006, Page 32
Lokamynd Alþjóðlegrarkvikmyndahátíðar, For-stjóri heila klabbsins (Di-rektören for det hele) var sýnd á laugardagskvöldið í Há- skólabíói að viðstöddu fjölmenni. Heiðurinn af ræmunni á Lars Von Trier. Því miður sá hinn danski óþekktarangi og snillingur sér ekki fært að mæta á frumsýninguna á Ís- landi þar sem blessaður karlinn þjá- ist af svakalegri flughræðslu en vinur hans og kollegi, Friðrik Þór Frið- riksson kvikmyndagerðarmaður, spjallaði í staðinn við áhorfendur á léttum nótum. Friðrik, sem fer með rullu í myndinni, við- urkenndi að hann væri ansi stressaður, þó ekki vegna frumsýning- arinnar, heldur vegna yfirstandandi fótbolta- leiks Íslendinga og Letta. Kvikmyndamó- gúllinn okkar krúttlegi var flottur í svörtum jakkafötum og æf- ingaskóm og kom saln- um í viðeigandi húm- orgír áður en kómedían hófst. Eðli málsins sam- kvæmt voru fagmenn innan kvikmyndageira landans mættir í stórum stíl auk þess sem hið danska spróg heyrðist ,,snakkað“ víða í salnum. Mætt voru hjónin Sig- urður Pálsson skáld og Kristín Jó- hannesdóttir kvikmyndagerðarkona og myndlistarmennirnir Hrafnkell Sigurðsson og Haraldur Jónsson voru hipp og kúl. Úr röðum íslensks kvikmyndaaðals voru meðal annarra Tinna Gunnlaugsdóttir þjóðleik- hússtjóri, og fyrir hönd Hollywood var vesturfarinn Sigurjón Sig- hvatsson. Birgir Andrésson lista- maður kom sér líka notalega fyrir á fremsta bekk. Það voru brosmildir gestir sem mættu síðan á lokahófið sem fór fram í húsi Landsbankans í Austurstræti og þar var maður manns gaman undir skífuþeytingum DJ Thomas Bangalter. Fluga hitti m.a. þýskan blaðamann í teitinu sem var hugfanginn af fjörugum og létt- lyndum Íslendingum og sagðist hafa lært eina setningu í tungumálinu eða: ,,Þetta reddast“. Hann mun komast langt á því. Það vitum við. Annars er Fluga að spekúlera í hvort einstaklingum sé kleift að leigja marmarahöllina Landsbankann und- ir hina ýmsu atburði? Næsta víst er að það myndi slá í gegn í vinahópn- um að hafa aðgang að slotinu þegar gjöra skal góða veislu. Eða fermingu. Erfidrykkju? Á föstudagseftirmiðdag fór fram styrkjaafhending Myndstefs að Hafnarstræti 16 og forvitin Fluga smeygði sér þar inn á meðal gesta, nartaði í konfekt og dreypti á rauð- bleiku freyðivíni á meðan Knútur Bruun hæstarréttarlögmaður af- henti glöðum myndlistarmönnum styrki. Kannaðist ekki við ýkja mörg andlit en gladdist við að koma auga á hina íðilfögru Steinunni Þórarins- dóttur, ,,skúlptúrista“. Síðar um kvöldið var spretturinn tekinn á Sirkus þar sem Krummi í Mínus var DJ en olli nokkrum vonbrigðum og gerðist sekur um að vera einum of poppaður og ,,meinstrím“. En það stöðvaði ekki stuðið og dansað var á fullu og myndlistarkonan Gabríela Friðriksdóttir lét sig ekki vanta. Nú er hún Nonnabúð stekkur, líkvöku hennar á Klapparstíg er lokið og upprisin í hennar stað er tískubúllan Liborius sem opnuð var nýlega á Mýrargötu. Hugmyndasmiðirnir á þeim bænum eru myndlistarmað- urinn og hönnuðurinn Jón Sæmund- ur Auðarson, eða Nonni Dead, og Hrafnhildur Hólmgeirsdóttir, stíl- isti og fatahönnuður. Nafnið er kom- ið frá prússneskum rótum Jóns Sæ- mundar. Nonni Dead er sem sagt upprisinn og heyrst hefur að vilji nú vera kallaður Liborius greifi … | flugan@mbl.is Flugan Er góða erfidrykkju gjöra skal Steinunn Knútsdóttir, Margrét Rún Guðmundsdóttir og Ilmur Kristjánsdóttir. Ragnheiður Reynisdóttir og Björgvin Halldórsson. Morgunblaðið/Golli Helgi Valur Ásgeirsson og Erpur Eyvindarson. Georg Bjarnason og Auður Zoëga. Ágústa Johnson og Guð- laugur Þór Þórðarson. … kvikmyndamógúllinn okkar krúttlegi var flottur í svörtum jakkafötum og æfingaskóm … Morgunblaðið/Eggert » Í Háskólabíói var Yoko Ono viðstödd sýningumyndarinnar, the US vs. John Lennon, á Alþjóðlegri kvikmyndahátíð í Reykjavík. Jóhann Sigurðsson og Páll Eyjólfsson. Sigríður Inga Sigurjónsdóttir og Valbjörg Þórðardóttir. Dagný Ósk Símonardóttir og Heiðar Logi Jónsson. Morgunblaðið/Eggert Stella Aradóttir, Guðlaug Bergmann, Aðalheiður Mjöll Þórarinsdóttir og Dagrún Fanný Liljarsdóttir. » 20 ára afmælisveisla Stöðvar 2var haldin á Kjarvalsstöðum. Bryndís Björgvinsson og Orri Jökulsson. Erna Guðmundsdóttir, Ingólfur Már Grímsson og Guðjón Rúnar Sveinsson. Helgi Þorsteinsson, Páll Óskar, Ellý, Einar Bárðarson og Helgi Björn Kristinsson. Jafet Ólafsson, Úlfar Steindórsson og Magnús Kristinsson. » Bubbi hélt tón-leika á NASA. |mánudagur|9. 10. 2006| mbl.is Staðurstund Verði Kínverjum að góðu þegar fjórmenningarnir í Austur- landshraðlestinni halda þar tónleika á næstunni. » 35 tónlist Kate Moss telur víst að ein leið- in til að halda kærastanum sín- um frá eiturlyfjum sé að eign- ast með honum barn. » 34 fólk Eyjólfur Eyjólfsson syngur í fyrstu færeysku óperunni sem frumsýnd verður í Þórshöfn á fimmtudaginn. » 34 ópera Listakonan Yoko Ono ætlar að láta 40 ára gamlan draum ræt- ast og reisir friðarsúlu úti í Við- ey, fulla af bænum. » 34 fólk Sæbjörn Valdimarsson gefur kvikmynd Aleksandrs Sokurov, Solntse, fjórar stjörnur af fimm mögulegum. » 41 kvikmynd

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.