Morgunblaðið - 22.10.2006, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22. OKTÓBER 2006 B 3
Orkuveita Reykjavíkur óskar eftir starfsfólki
Tæknimál OR óskar eftir starfsfólki
Gagnaveita OR leitar að öflugum stjórnanda
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
L†
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
EH
F.
/S
IA
.I
S
-
O
RK
34
66
2
10
/2
00
6
Orkuveita Reykjavíkur er framsækið
þjónustufyrirtæki sem aflar og dreifir
vistvænni orku á sem hagkvæmastan hátt
og í sátt við umhverfið.
Á þjónustusvæði fyrirtækisins býr meira
en helmingur íslensku þjóðarinnar.
Stefna Orkuveitunnar er að veita viðskipta-
vinum sínum bestu mögulegu þjónustu og
sjá þeim fyrir ódýrri orku sem framleidd er
úr endurnýjanlegum íslenskum orkulindum.
Þannig stuðlar fyrirtækið að aukinni notkun
hreinnar innlendrar orku og leggur um leið
sitt af mörkum til nýsköpunar og framfara
í landinu.
Orkuveitan er fjölbreyttur og lifandi
vinnustaður fólks með mikla þekkingu.
Fyrirtækið leitast við að vera í fremstu röð
hvað snertir öryggi og vinnuumhverfi og
möguleika starfsfólks við að samræma vinnu
og fjölskylduábyrgð eins og kostur er.
Það er stefna Orkuveitu Reykjavíkur
að auka hlut kvenna í stjórnunar- og
ábyrgðarstöðum innan fyrirtækisins.
Fyrirtækið er sveigjanlegt,
það lagar sig að breyttum aðstæðum
Það sýnir frumkvæði og er opið fyrir nýjungum
Það sækir fram af eldmóði
Það er traust og starfar í sátt við umhverfið
Landupplýsingar
Deildin hefur umsjón með landupplýsingakerfi Orkuveitunnar (LUKOR),
í því felst innsetning gagna, umsjón með hugbúnaði LUKOR og
ýmiskonar úrvinnslu gagna.
Starfsmaður í innfærslu
Starfs- og ábyrgðarsvið:
• Afla, teikna og skrá upplýsingar um lagnir OR
í landupplýsingakerfi OR (LUKOR).
Kröfur um menntun og reynslu:
• Tækniteiknun æskileg
Hæfniskröfur:
• Nákvæmni
• Samskiptahæfni og þjónustulund
Upplýsingakerfi
Deildin hefur umsjón með upplýsingakerfum Orkuveitunnar, í því felast
samskipti við starfsmenn OR, birgja og þjónustuaðila á vél- og
hugbúnaðarsviði. Deildin annast daglegan rekstur kerfanna en nýtir og
hefur milligöngu um utanaðkomandi þjónustu þegar þörf krefur. Deildin
er ráðgefandi við val á búnaði sem heyrir undir hennar svið.
Starfsmaður í notendaþjónustu tölvubúnaðar
Starfs- og ábyrgðarsvið:
• Almenn notendaþjónusta vegna tölvukerfa og -búnaðar OR
• Viðhald notendabúnaðar
• Uppsetningar og prófanir á tölvubúnaði
Kröfur um menntun og reynslu:
• Microsoft próf (MCDST eða MCSA/MCSE)
• Reynsla af sambærilegum störfum æskileg
Hæfniskröfur:
• Mjög góð tölvuþekking
• Samskiptahæfni og þjónustulund
• Snerpa, frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð.
Starfsmaður í rekstur hússtjórnar- og símkerfa
Starfs- og ábyrgðarsvið:
• Umsjón með tölvu- og tæknibúnaði í fundarherbergjum
og ráðstefnusölum (tölvu-, hljóð- og myndkerfi)
• Vinna við hússtjórnarkerfi
• Vinna við símkerfi
Kröfur um menntun og reynslu:
• Rafeindavirkjun æskileg
• Reynsla af sambærilegum störfum æskileg
Hæfniskröfur:
• Mjög góð tölvuþekking
• Samskiptahæfni og þjónustulund
• Snerpa, frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð.
Verkfræðideild
Verkfræðideildin hefur umsjón með hönnunarverkefnum og
verkefnastjórn hjá Orkuveitunni, sem og sérfræðiverkefnum á
sviði kerfisrannsókna, hagkvæmniútreikninga o.fl. Óskað er
eftir tveimur verkfræðingum til starfa á deildinni við fjölbreytt
verkefni.
Verkefnisstjóri á sviði fráveitu og vatnsveitu
Starfs- og ábyrgðarsvið:
• Verkefnisstjórn á sviði fráveitu- og vatnsveitumála
• Hönnun fráveitu- og vatnsveitukerfa
• Forathuganir og minni rannsóknir tengdar fráveitum
og vatnsveitum
Menntun og reynsla:
• C.S. eða M.S. gráða í byggingar-, véla- eða
umhverfisverkfræði
• Reynsla af hönnun fráveitu og/eða vatnsveitu æskileg
• Reynsla af verkefnastjórn æskileg
Hæfniskröfur:
• Góðir samstarfs- og skipulagshæfileikar
• Áhugi og metnaður
• Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
Verkefnisstjóri á sviði rafdreifikerfa,
götulýsingar og gagnaveitu
Starfs- og ábyrgðarsvið:
• Verkefnisstjórn og hönnun á sviði rafdreifikerfa,
götulýsingar og gagnaveitu
• Forathuganir og minni rannsóknir tengdar
framangreindum veitum
Menntun og reynsla:
• C.S. eða M.S. gráða í rafmagnsverkfræði
• Reynsla af hönnun rafdreifikerfa æskileg
• Reynsla af verkefnisstjórn æskileg
Hæfniskröfur:
• Góðir samstarfs- og skipulagshæfileikar
• Áhugi og metnaður
• Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
Tæknistjóri Gagnaveitu OR
Leitað er að einstaklingi sem er drífandi, árangursdrifinn,
skipulagður og tilbúinn að taka þátt í mótun þjónustu sem byggir
á nýjustu samskiptatækni. Tæknistjóri er deildarstjóri tæknideildar
Gagnaveitu OR sem sér um uppbyggingu, rekstur og viðhald á
gagnaflutningskerfi OR.
Gagnaveita OR er sjálfstætt starfandi svið innan Orkuveitu Reykjavíkur (OR) sem hefur með höndum uppbyggingu, rekstur og
þjónustu á gagnaflutningskerfi OR. Gagnaveita OR vinnur að því að ljósleiðaravæða heimili á veitusvæðum OR undir vörumerkinu
SAMBAND OR. Gagnaveitan rekur einnig dreifikerfi fyrir Internet-, síma- og sjónvarpsdreifingu, sem byggt er á IP samskiptatækni
yfir ljósleiðara. Sjálfstæðir þjónustuaðilar á markaði nýta sér dreifikerfi OR til miðlunar á efnis- og þjónustuframboði sínu til heimila.
Starfssvið:
• Mótun tæknistefnu
• Stjórnun tæknideildar
• Gerð og eftirfylgni rekstarlýsinga
• Samningagerð við birgja og þjónustuaðila
• Gerð, mælingar og eftirfylgni þjónustusamninga
• Áætlanagerð og kostnaðarstjórnun
Umsjón með starfinu hafa Helga
Jónsdóttir (helga.jonsdottir@capacent.is)
og Sigurður J. Eysteinsson
(sigurdur.eysteinsson@capacent.is)
hjá Capacent Ráðningum.
Umsóknarfrestur er til og með
5. nóvember n.k. Umsækjendur
eru vinsamlega beðnir um að sækja
um starfið á heimasíðu Capacent
Ráðninga, www.capacent.is
Umsjón með störfunum hafa Helga
Jónsdóttir (helga.jonsdottir@capacent.is)
og Hildur Sif Arnardóttir
(hildur.arnardottir@capacent.is)
hjá Capacent Ráðningum.
Umsóknarfrestur er til og með
5. nóvember n.k. Umsækjendur
eru vinsamlega beðnir um að sækja
um starfið á heimasíðu Capacent
Ráðninga, www.capacent.is
Ábyrgðarsvið:
• Rekstur ljósleiðaranets OR
• Uppbygging og rekstur netbúnaðar og
tilheyrandi upplýsingakerfa
• Uppitíma kerfa
Menntunar- og hæfnikröfur:
• Háskólamenntun á sviði verkfræði,
tölvunarfræði eða sambærilegt
• Góð þekking á netkerfum
• Reynsla af rekstri tölvu- eða fjarskiptakerfa æskileg
• Stjórnunarreynsla æskileg
• Samstarfshæfni, metnaður, frumkvæði, agi
og sjálfstæði í vinnubrögðum