Morgunblaðið - 29.10.2006, Síða 4
4 B SUNNUDAGUR 29. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
Smith & Norland, Nóatúni 4, vill sem fyrst ráða tæknimann
til starfa í þjónustudeild fyrirtækisins.
Starfið felur aðallega í sér viðgerðir og þjónustu á tannlæknabúnaði
og öðrum tengdum búnaði, ásamt aðstoð við sölu o. fl.
Leitað er að röskum og sjálfstæðum rafeindavirkja, rafvirkja
eða einstaklingi með sambærilega menntun, sem vill takast á
við áhugavert og krefjandi starf og hefur mikinn áhuga á þjónustu
og mannlegum samskiptum. Góð enskukunnátta er nauðsynleg.
Góð framkoma, snyrtimennska og reglusemi eru skilyrði.
Um er að ræða gott framtíðarstarf hjá traustu og framsæknu
fyrirtæki.
Þeir sem áhuga hafa á þessu starfi eru beðnir að senda umsókn
til Smith & Norland með upplýsingum um aldur, menntun og fyrri
störf fyrir þriðjudag 7. nóvember.
Umsóknareyðublöð fást á skrifstofu Smith & Norland og þau
má einnig nálgast á heimasíðu fyrirtækisins, www.sminor.is.
Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál og öllum
umsóknum svarað.
Nóatúni 4 • Sími 520 3000
www.sminor.is
Grétar Þorsteinsson var sjálfkjörinn í emb-
ætti forseta ASÍ til næstu tveggja ára. Þá var
sjálfkjörið í miðstjórn til tveggja ára.
Miðstjórn
Björn Snæbjörnsson, Einingu-Iðju (SGS),
Finnbjörn A. Hermannsson, Trésmiðafélagi
Reykjavíkur (Samiðn), Örn Friðriksson, VM
(bein aðild), Sigurður Bessason, Eflingu –
stéttarfélagi (SGS), Úlfhildur Rögnvalds-
dóttir, FVSA (LÍV), Stefanía Magnúsdóttir,
VR (LÍV), Ragna Larsen, Bárunni stéttar-
félagi, (SGS); er til ársfundar 2007.
Varamenn:
Georg Páll Skúlason, Félagi bókagerðarmanna (bein aðild),
Guðbrandur Einarsson, Verslunarmannafélagi Suðurnesja
(LÍV), Kolbeinn Gunnarsson, Vlf. Hlíf (SGS), Kristín Björns-
dóttir, Verslunarmannafélagi Austurlands (LÍV), Níels S. Ol-
geirsson, MATVÍS (bein aðild ), Hilmar Harðarson, FIT (Sam-
iðn). Hjördís Þóra Sigurþórsdóttir, Vökull (SGS); er til
ársfundar 2007.
Forseti ASÍ
endurkjörinn
Grétar Þor-
steinsson var
endurkjörinn
forseti ASÍ.
Launavísitala í september 2006 er 298,9 stig og hækkaði um
0,5% frá fyrri mánuði. Síðastliðna tólf mánuði hefur launavísital-
an hækkað um 10,8%.
Launavísitala fyrir helstu launþegahópa á öðrum ársfjórðungi
2006 er 157,8 stig og hækkaði um 3,0% frá fyrri ársfjórðungi.
Sambærileg vísitala fyrir opinbera starfsmenn og bankamenn er
160,1 stig og hækkaði um 1,7%. Vísitala fyrir almennan markað
er 156,2 stig og hækkaði um 3,9%.
Launavísitala sem gildir við útreikning greiðslumarks fast-
eignaveðlána í nóvember 2006 er 6.539 stig.
Launavísitala í
september 2006
Í septembermánuði voru fluttar út vörur fyrir 22,3 milljarða
króna og inn fyrir 29,9 milljarða króna fob (32,4 milljarða króna
cif). Vöruskiptin í september, reiknuð á fob verðmæti, voru því
óhagstæð um 7,6 milljarða króna. Í september 2005 voru vöru-
skiptin óhagstæð um 12,0 milljarða króna á föstu gengi. Þetta
kemur fram í yfirliti Hagstofunnar um utanríkisverslun.
Fyrstu níu mánuði ársins voru fluttar út vörur fyrir 173,2
milljarða króna en inn fyrir 275,4 milljarða króna fob (298,5
milljarð króna cif). Halli var á vöruskiptunum við útlönd, reiknað
á fob verðmæti, sem nam 102,2 milljörðum en á sama tíma árið
áður voru þau óhagstæð um 75,2 milljarða á sama gengi. Vöru-
skiptajöfnuðurinn var því 27,0 milljörðum króna lakari en á
sama tíma árið áður.
Útflutningur
Verðmæti vöruútflutnings fyrstu níu mánuði ársins var 11,1
milljarði eða 6,8% meira á föstu gengi¹ en á sama tíma árið áður.
Sjávarafurðir voru 54,5% alls útflutnings og var verðmæti þeirra
3,4% meira en á sama tíma árið áður. Aukning var í útflutningi á
ferskum fiski, frystum flökum og söltuðum og/eða þurrkuðum
fiski en á móti kom samdráttur í útflutningi á frystri rækju. Út-
fluttar iðnaðarvörur voru 38,4% alls útflutnings og var verðmæti
þeirra 21,7% meira en á sama tíma árið áður, aðallega vegna
hækkunar álverðs. Á móti kom samdráttur í útflutningi á kís-
iljárni. Einnig varð samdráttur í útflutningi skipa og flugvéla.
Innflutningur
Verðmæti vöruinnflutnings fyrstu níu mánuði ársins var 38,0
milljörðum fob eða 16,0% meira á föstu gengi¹ en árið áður.
Rúman helming af þeirri aukningu, eða 21,0 milljarð, má rekja
til aukins innflutnings á fjárfestingarvöru sem jókst um 40,1%.
Innflutningur hrá- og rekstrarvöru jókst um 29,4%, eða um 16,8
milljarða. Verðhækkun á eldneyti og smurolíu leiddi til 14,4%
aukningar, eða um 3,4 milljarða. Innflutningur á neysluvöru,
annarrar en mat- og drykkjarvöru, jókst um 9,2% eða 3,4 millj-
arða en hverfandi aukning varð í innflutningi á mat- og
drykkjarvöru. Aftur á móti dróst innflutningur á flutningatækj-
um saman um 13,7%, eða um 7,0 milljarða, aðallega vegna minni
flugvélainnflutnings.
Óhagstæður vöru-
skiptajöfnuður
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Innflutningur Vöruskiptin í september, reiknuð á fob verð-
mæti, voru óhagstæð um 7,6 milljarða króna.