Morgunblaðið - 29.10.2006, Side 10

Morgunblaðið - 29.10.2006, Side 10
10 B SUNNUDAGUR 29. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ HB Grandi hf. stundar vei›ar og vinnslu á botnfiski og uppsjávarfiski. Félagi› gerir út 15 skip og er me› starfsemi í Reykjavík, á Akranesi og á Vopnafir›i. Hjá félaginu starfa um 700 starfsmenn til sjós og lands. Afur›irnar eru seldar ví›a en helstu marka›irnir eru í Evrópu, Nor›ur-Ameríku og Asíu. www.hbgrandi.is A›albókari HB Grandi óskar a› rá›a a›albókara. Umsóknir óskast fylltar út á www.hagvangur.is fyrir 10. nóvember nk. Númer starfs er 5929. Uppl‡singar veita fiórir fiorvar›arson og Kristín Gu›mundsdóttir. Netföng: thorir@hagvangur.is, kristin@hagvangur.is Skógarhlí› 12 • 105 Reykjavík • Sími 520 4700 • Bréfasími 520 4701 • www.hagvangur.is Ábyrg›ar- og starfssvi› Umsjón og ábyrg› me› færslu og vinnslu bókhalds Umsjón me› afstemmingum og frágangi prófjöfnu›ar Sk‡rsluger› Sta›gengill yfirmanns reikningshalds Menntun og hæfniskröfur Vi›skiptafræ›imenntun og/e›a gó› starfsreynsla úr bókhaldi fiekking á Navision Financials og gó› almenn tölvuflekking Mikil samskiptahæfni og frumkvæ›i Viltu líflega og gefandi aukavinnu hjá traustu fyrirtæki? SPRON leitar að dugmiklum og traustum einstaklingum til starfa hjá úthringiveri SPRON. Vinnutími er frá kl. 17:30-21:30 og er hægt að vinna 2-4 kvöld í viku – allt eftir því sem hentar hverjum og einum! Frábær vinnuaðstaða, góður starfsandi og frekari atvinnumöguleikar eru í boði hjá SPRON fyrir þá sem standa sig vel! Starfið felst í þátttöku í skemmtilegum átaksverkefnum hjá SPRON þar sem góð laun fást fyrir góðan árangur. Hvetjum fólk á öllum aldri til að sækja um starfið (lágmarksaldur 20 ára). Hæfniskröfur: Reynsla og/eða áhugi á sölu Hæfni í mannlegum samskiptum Umsóknir óskast sendar til starfsmannaþjónustu SPRON á netfangið starfsmannathjonusta@spron.is. Nánari upplýsingar um starfið veitir Jón Óli Sigurðsson, verkefnastjóri úthringivers, á netfanginu jonoli@spron.is. SPRON er handhafi viðurkenningar Jafnréttisráðs 2006. AR G US /0 6- 05 85 „SA sjá enga ástæðu til þess að takmarka aðgang rúmenskra og búlgarskra ríkisborgara að íslenskum vinnumarkaði í kjölfar þess að umrædd ríki gerast aðilar að ESB og EES um næstu áramót.“ Þetta kemur fram á vefsíðu Samtaka atvinnulífsins, www.sa- .is. „Þvert á móti ber okkur að taka vel á móti þessum nýju aðild- arríkjum EES með öllum þeim réttindum og skyldum sem aðild hefur í för með sér. Þenslan á íslenskum vinnumarkaði er lík- lega sú mesta í allri álfunni og greiður aðgangur erlends starfs- fólks hefur verið grundvallarforsenda þess hagvaxtar og þeirra lífskjarabóta sem Íslendingar hafa notið undanfarin ár.“ Samkvæmt vefsíðunni var þetta meðal þess sem fram kom í erindi Ragnars Árnasonar, forstöðumanns vinnumarkaðssviðs SA, á ráðstefnu EES vinnumiðlunar um íslenskan vinnumarkað í kjölfar stækkunar ESB, sem haldinn var 29. september síðast- liðinn. Morgunblaðið/Brynjar Gauti Opið Samtök atvinnulífsins vilja opna íslenskan vinnumarkað fyrir nýjum EES-löndum. Myndin er af St. Alexander Nevskí- kirkjunni í Sofíu. SA vilja opinn vinnumarkað Hagspá Hagdeildar ASÍ fyrir árin 2007 og 2008 gerir ráð fyrir að við lok núverandi stóriðjuframkvæmda nái hagkerfið mjúkri lendingu sem felur í sér að ekki verður harkalegur samdráttur þó verulega hægi á, segir á vefsíðu ASÍ. Aðlögunin að jafnvægi er hins vegar alls ekki sársaukalaus því kaupmáttur margra dregst saman og gjaldþrotum fjölgar. Á árinu 2007 verður hagvöxtur lítill og atvinnuleysi eykst. Þá mun gengið veikjast, stýrivextir lækka samhliða lækkandi verðbólgu og draga úr viðskiptahallanum. Spáin gerir ráð fyrir að hagkerfið verði fljótt að jafna sig. Strax á árinu 2008 verður hagvöxtur ágætur, verðbólga hófleg, stýrivextir lægri og gengið stöðugra. Samkvæmt spánni nær hagkerfið jafnvægi á árinu 2008 eftir mikið ójafnvægi liðinna ára. Hagdeildin hefur einnig skoðað hvaða áhrif það hefði á hag- kerfið að hefja frekari stóriðjuframkvæmdir í beinu framhaldi af núverandi framkvæmdum. Niðurstaðan er sú að fái hag- kerfið ekki að jafna sig áður en ráðist er í nýjar framkvæmdir kalli það á áframhaldandi ójafnvægi næsta áratuginn. Því fylgir mikil verðbólga, háir vextir og miklar gengissveiflur. Við slíkar aðstæður þrengir mjög að launafólki, sprotafyrirtækjum og fyrirtækjum í útflutnings- og samkeppnisgreinunum. Hagkerfið fær mjúka lendingu Morgunblaðið/Ásdís Góð spá Hagdeild ASÍ telur að hagkerfið fái mjúka lendingu. Myndin er frá Kauphöllinni.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.