Lesbók Morgunblaðsins - 24.02.2007, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. FEBRÚAR 2007 11
Eftir Önnu Sigríði Einarsdóttur
annaei@mbl.is
Hún þykir lofa nokkuð góðu,frumraun Lauren Fox á
skáldskaparsviðinu, þótt bókin sé
langt í frá fullkomin og raunar örlít-
ið klaufaleg á köflum. Fox þykir þó
engu að síður takast einkar vel upp
í bókinni Still Life with Husband
við að draga fram skemmtilega
mynd af hinum fáránlega pastellita
heimi söguhetju sinnar Emily –
konu sem líkir hjónabandi sínu við
það að lesa sömu skáldsöguna aftur
og aftur.
Það getur verið erfitt fyrir höf-unda sem fá mikið hrós fyrir
sína fyrstu bók að fylgja lofinu eftir
með þeirri næstu. Susan Fletcher
virðist þó ekki falla í þessa gryfju,
en nýjasta bók hennar, Oystercatc-
hers, þykir ekki síður lofa góðu en
sú fyrsta, Eve Green, sem Fletcher
hlaut Whitbread-verðlaunin fyrir. Í
Oystercatchers fjallar höfundurinn
um missi, iðrun og þá flóknu og
mótsagnakenndu tilfinningu sem
ástin er, í gegnum sögupersónu sína
Moiru Stone, sem tekst að vera
heillandi en þó um leið fráhrindandi
karakter.
Hún er af öðrum toga, söguhetjaSofka Zinovieff í bókinni Red
Princess: A Revolutionary Life,
þótt dramatíkin
sé ekki minni,
enda um alvöru-
prinsessu að
ræða. Þar rekur
Zinovieff í fyrstu
persónu ævi
ömmu sinnar,
hvítrússneskrar
hefðarkonu sem
lifði fjörlegu ást-
arlífi, og flótta
hennar frá rússnesku byltingunni.
Zinovieff tekst að draga fram lif-
andi mynd af gömlu konunni og
ferð hennar, líkt og svo margra
annarra flóttamanna þess tíma,
fram og til baka um Evrópu.
Hljóðdiskar Normu E. Sam-úelsdóttur Ballynahínch eru
líka eins konar ævisaga, en höfund-
urinn, sem gefur
diskana út sjálf-
ur, lýsir þeim
sem leit að einni
og óskiptri sjálfs-
mynd þrátt fyrir
margþættan upp-
runa sinn. Þessi
skáldkona, sem
er bæði af írsk-
um og skoskum
uppruna, á auk
þess rætur að
rekja til Hnífsdals við Ísafjarð-
ardjúp og fjallar hún m.a. um þetta
ætterni sitt á diskunum.
Evrópumál hafa verið ofarlega ábaugi í umræðu um framtíð
Íslands undanfarnar vikur og ár.
Meðal þeirra sem hafa skoðun í
þeim efnum er
Eiríkur Berg-
mann Einarsson,
dósent í stjórn-
málafræði, en
framlag hans til
þessara mála má
finna í bókinni
Negotiating Eu-
rope, Founda-
tions, Dynamics,
Challanges sem
Háskólinn í
Lundi í Svíþjóð gefur út um þessar
mundir. Í kafla sínum, „Deep Inside
the European Project“, fjallar Ei-
ríkur um stöðu Íslands í Evrópu-
samvinnunni og er það niðurstaða
hans að í gegnum EES-samninginn
og Schengen sé Ísland nú þegar
komið á kaf í Evrópusamrunann.
Ritstjórar bókarinnar eru þau
Anamaria Dutceac Segesten og
Andreas Önnerfors, sem bæði eru
fræðimenn við Evrópufræðasetur
Háskólans í Lundi.
BÆKUR
Sofka Zinovieff
Eiríkur Bergmann
Einarsson
Norma E.
Samúelsdóttir
Eftir Þröst Helgason
throstur@mbl.is
Helgi Hálfdanarson gaf út ritið Mad-daman með kýrhausinn árið 1964 en íþví setur hann fram nýjar skoðanirum form, efnisskipan og upprunalega
gerð elsta bókmenntaverks Íslendinga, Völuspár.
Útgáfa bókarinnar vakti ekki mikla athygli, að
minnsta kosti ekki meðal fræðimanna sem huns-
uðu verkið. Nú, rúmum fjórum áratugum seinna,
hefur Vésteinn Ólason, forstöðumaður Stofnunar
Árna Magnússonar í íslenskum fræðum, skrifað
grein í nýjasta hefti Tímarits Máls og menningar
um bók Helga. Kveikjan að greininni er reyndar
bréf sem Helgi sendi stofnuninni síðastliðið
haust ásamt eintaki af Maddömunni með kýr-
hausinn, sem var endurútgefin árið 2002. Í bréf-
inu fór Helgi fram á að stofnunin léti sér eftir
álit sitt á efni bókarinnar: „Er þá spurt, hvort til-
gátur þær um hið forna skáldverk Völuspá, sem
þar er fram fylgt, megi að líkindum teljast til
bóta.“
Í grein sinni segist Vésteinn hafa lesið bók
Helga þegar hún kom fyrst út en hann segir að
þeir fræðimenn sem voru ungir á sjöunda ára-
tugnum hafi ekki tekið hugmyndir Helga alvar-
lega. Ástæðan sé sú að aðferð Helga var ekki í
tísku. Um það leyti sem Maddaman með kýr-
hausinn kom fyrst út naut stefna Jóns Helgason-
ar, prófessors í íslensku, hylli hjá flestum há-
skólamönnum en hún gekk út á að breyta helst
engu í varðveittum fornum bókmenntatextum
„nema því sem var málfræðilega ótækt og auð-
velt sýndist að færa til betri vegar“. Aðferð
Helga er hins vegar líkari þeirri sem tíðkaðist á
19. öld og nefndist „höhere Textkritik“ eða „æðri
textarýni“. Vésteinn lýsir henni svo: „Þeir sem
ástunduðu hana beittu rökum og lærdómi til að
finna upprunalegri gerð fornra kvæða en þá sem
birtist í handritum, einkum með því að greina
yngri vísur eða vísuorð frá upphaflegum eða leið-
rétta sum vísuorðin.“
Bók Helga hefur með öðrum orðum þótt gam-
aldags þegar hún kom fyrst fyrir sjónir manna á
sjöunda áratugnum. Vésteinn segir að end-
ursköpun Helga á Völuspá sé þó að mörgu leyti
glæsileg, og hann sé sjálfum sér samkvæmur í
vinnubrögðum.
Þessi skýring á áhugaleysinu sem bók Helga
mætti er sennileg. Þetta er alltaf að gerast.
Fræðimenn verja sína aðferðafræði. Ein leiðin til
þess er að hunsa framlag þeirra sem beita ann-
arri aðferð. Þetta hefur stundum verið kallað
þöggun. En auðvitað er líka hægt að kenna
áhugaleysi um. Rannsóknir byggðar á gömlum
aðferðum vekja einfaldlega ekki áhuga.
Það er engu að síður heldur hart að Helgi
skuli hafa þurft að bíða í meira en 40 ár eftir því
að fá viðbrögð við bók sinni frá þeim sem helst
hefðu átt að bregðast við. Og þá ekki fyrr en
hann kallaði eftir þeim með formlegu bréfi til op-
inberrar stofnunar í íslenskum fræðum!
Vésteinn segir að helsti galli þeirrar aðferðar
sem Helgi beitir sé sú að niðurstöðurnar eða hin
endurgerðu kvæði séu jafnmörg túlkendunum.
Hann bætir við að kannski geri það ekkert til að
svo sé.
Sumir fræðimenn virðast reyndar ekki láta að-
ferðafræði Helga trufla sig. Eysteinn Þorvalds-
son, prófessor emeritus við Kennaraháskóla Ís-
lands, skrifaði grein í Lesbók á fjörutíu ára
útgáfuafmæli bókarinnar og sagði hana athygl-
isverðasta rit sem birst hefði um Völuspá. Í
greininni sagði Eysteinn meðal annars: „Með
rannsókn sinni hefur Helgi Hálfdanarson unnið
verk sem allir aðrir hafa talið óvinnandi, – að
gera grein fyrir líklegri upprunalegri gerð Völu-
spár. Helgi miklast ekki af verki sínu sem hann
hefur óneitanlega unnið af kunnáttu, innsæi og
hugkvæmni og einstakri þekkingu á skáldskap-
armálum.“
Vésteinn er ekki sammála Eysteini. Hann
greinir á við Helga um túlkun á ýmsum þáttum
kvæðisins eins og hann rekur í greininni. Hann
telur að Sigurður Nordal og Ursula Dronke hafi
lagt mest fram til skilnings á Völuspá á síðustu
öld. Því verður samt ekki á móti mælt að bækur
eins og Maddaman með Kýrhausinn eru fágætar
hér á landi.
Margt skrýtið í kýrhausnum
» Það er engu að síður heldur
hart að Helgi skuli hafa þurft
að bíða í meira en 40 ár eftir því
að fá viðbrögð við bók sinni frá
þeim sem helst hefðu átt að
bregðast við.
ERINDI
Eftir Hjálmar S. Brynjólfsson
hsb@mbl.is
S
íðari hluti tuttugustu aldar reyndist
Kínverjum ekki auðugur af nýjum og
gagnrýnum eða skapandi bók-
menntum. Sjálfsagt er um að kenna
þeirri sömu deyfð og færðist yfir
önnur ráðstjórnarríki, eftir að
kommúnistar náðu völdum. Skapandi og gagn-
rýnin hugsun í bókmenntum var til að mynda ekki
hátt skrifuð í gömlu Sovétlýðveldunum, og er það
ekki heldur í Kína – þótt teikn breytinga séu á lofti
nú á dögum.
Hins vegar eiga kommúnistaveldin stóru, Sov-
étríkin og Kína, það sameiginlegt að áður en stöðn-
unin færðist yfir bókmenntirnar ríkti tími nýsköp-
unar og samfélagslegrar gagnrýni. Rússneskir
rithöfundar eins og Gorkíj og Búlgakoff hleyptu
nýju lífi í stöðnuð listform sinnar samtíðar, þótt sú
umbylting hafi verið drepin skömmu eftir fæðingu.
Flestum eru rússnesku rithöfundarnir vel kunn-
ir, Pasternak og Solzenitsyn er hægt að taka sem
dæmi auk hinna sem fyrr voru nefndir. En merki-
lega hljótt hefur farið um kínverskan skáldjöfur
sem hefur sambærilega stöðu í Kína nútímans og
Gorkíj hafði í Sovétríkjunum. Þann mann sagði Oe
Kenzaburo, Nóbelsverðlaunahafi í bókmenntum
árið 1994, vera „mesta rithöfund í Asíu á 20. öld-
inni“ og verk hans hafa verið nefnd í hópi 100
bestu skáldverka allra tíma. Hann er rithöfund-
urinn Lu Xun sem fæddur var 1881 og lést árið
1936.
Mikilvægara að hrista upp
í sálinni en að lækna líkamann
„Lu Xun“ er reyndar skáldanafn, en réttu nafni
hét hann Zhou Shuren, þar áður Zhou Zhangshu.
Hann fæddist inn í vel menntaða fjölskyldu sem þó
var ekki sérstaklega auðug. Þegar hann var ung-
lingur dó faðir hans, og eftir það einsetti Lu Xun
sér að gerast læknir. Hann valdi að læra vestræn
læknisvísindi og flutti til Japan í þeim tilgangi. Frá
þeim áætlunum sneri hann og ákvað þess í stað að
gerast rithöfundur.
Sagan segir að það sem olli þessum straum-
hvörfum hafi verið þegar hann þurfti að horfa á
myndir af aftöku Japana á kínverskum manni sem
talinn var vera njósnari. Lu Xun var mjög brugðið
við að sjá hóp landa sinna standa aðgerða- og and-
lausa hjá og fylgjast með aftökunni. Í formálanum
að fyrsta smásagnasafni sínu sagði hann síðar
meir að hann hefði gerst rithöfundur, því honum
fyndist mikilvægara að hrista upp í sál kínversku
þjóðarinnar en að lækna líkama hennar. Í kjölfarið
settist hann aftur að þar árið 1909.
Lu Xun var sporgöngumaður sem rithöfundur. Í
fyrsta lagi ritaði hann frásagnir sínar með öðrum
hætti en hafði tíðkast. Kínversk skáld eða rithöf-
undar fram til hans tíma höfðu notast við klassíska
kínversku í verkum sínum. Þess háttar ritverk
gátu aðeins menntamenn lesið. Lu Xun skrifaði
hins vegar texta sína – og varð fyrstur til þess – á
kínversku sem er nær þeirri tungu sem alþýðu-
menn töluðu, en þessi stíll hefur eftir það verið
nefndur baihua.
Í öðru lagi var Lu Xun brautryðjandi með því að
taka þátt í að innleiða vestræn bókmenntaform í
kínverskan skáldaheim. Smásöguformið var hans
sérgrein, og helstu verk hans eru á því sviði.
Helstu ritverk og þýðingar á íslensku
Alls liggja þrjú smásagnasöfn eftir Lu Xun og eru
tvö fyrstu söfnin hans frægustu verk. Fyrsta safn-
ið hét Herkvaðning og kom út árið 1923. Það
næsta kom út tveimur árum síðar en titil þess
mætti þýða sem Hik. Það síðasta kom út árið 1935
og bar titilinn Endursagnir á gömlum sögum.
Reyndar má deila um það að hversu miklu leyti
síðasta verkið er hans höfundarverk, þar sem hann
fæst þar við að endursegja gamlar kínverskar
þjóðsögur frá sínu sjónarhorni.
Fyrir utan þessi þrjú smásagnasöfn lét Lu Xun
reyndar eftir sig verk á öllum sviðum bókmennt-
anna, fyrir utan það að hann skrifaði aldrei skáld-
sögu. Hann gaf út pólitísk tímarit, ljóðabókina Ill-
gresi og lét til sín taka á sviði bókmenntagagnrýni
með rannsóknum sínum á klassískum, kínverskum
bókmenntum. Einnig skrifaði hann endurminn-
ingar í formi stuttra ritgerða og þýddi nokkur rit
úr rússnesku; af þeim eru þýðingarnar á verkum
eftir Gogol frægastar.
Tónninn í verkum Lu Xuns er írónískur, bitur
og þurr, jafnvel háðskur. Í frægustu verkum hans,
t.d. smásögum eins og „Dagbók vitfirrings“ og
„Sannri sögu Ah Q“ (úr Herkvaðningu) eða „Ný-
ársfórninni“ og „Sápu“ (úr Hiki), má sjá glögg
dæmi þessa. Í þessum verkum birtist gjarnan
raunsæisleg afhjúpun á hræsni, skinhelgi eða
grimmd frá sjónarhorni sögumanns. Í smásög-
unum er gjarnan sögumaður sem segir frá í fyrstu
persónu.
Í sögum Lu Xuns er sjaldan óvæntur endir, en
meira lagt upp úr persónulýsingum. Aðstæðurnar
eru því sem næst hversdagslegar og það er ekki
mikið um yfirnáttúruleg fyrirbæri í sögunum.
Þvert á móti veltur allt í sögunum á persónunum
og hvernig þær afhjúpast og birtast í því sem þær
segja eða gera. Þau atvik sem persónurnar lenda í
verða lesendum síðan hugvekjur. Þannig er af-
hjúpunin í verkum hans fyrst og fremst fólgin í að
draga fram mannlegan breyskleika: skinhelgi, fá-
visku, hégómleika eða grimmd. Ósjaldan er um-
hverfið þáttur í þessum breyskleika, og deilir Lu
Xun í smásögunum á lénsaldarsamfélagið og hug-
myndir Konfúsíanisma.
Verk Lu Xuns eru ekki ófáanleg á íslensku.
Fimm af smásögum hans eru til í íslenskri þýðingu
(undir höfundarnafninu Lu Hsün). Halldór Stef-
ánsson, smásagnahöfundur og þýðandi, sneri sög-
um hans og Mál og menning gaf út bókina árið
1957. Áhugasamir geta því rennt við á uppáhalds-
bókasafninu sínu, nú eða fundið eintak af skrudd-
unni í fornbókabúðum landsins.
Orðstír, hveim er sér góðan getur …
Þótt Lu Xun hafi aldrei verið meðlimur í kínverska
Kommúnistaflokknum þótti hann róttækur í hugs-
un og vinstrisinnaður. Skrif hans höfðu áhrif á
landa hans og eru margir sagðir hafa gengið í
flokkinn vegna rita hans og skoðana. Svo fór og að
sjálfur Mao Zedong kallaði hann herforingja
menningarbyltingarinnar sem færðist yfir Kína
nútímans. Þótt Kommúnistaflokkurinn hafi gengið
í gegnum endurskoðun eftir daga Zedongs hefur
hvergi brugðið skugga á orðstír Xuns.
Lu Xun var alla sína ævi heilsuveill. Hann lést af
völdum berkla, en sjálfsagt hefur það ekki hjálpað
til í baráttunni að hann var mikill reykingamaður
og yfirleitt með vindil í hönd. Þegar dagar hans
voru taldir var reist safn til minningar um hann í
Sjanghæ, sem stendur enn þann dag í dag.
Mesti rithöfundur Asíu á 20. öld?
Lu Xun hefur verið kallaður mesti rithöfundur
Asíu á 20. öld. Hann var kínverskur og hefur
svipaða stöðu í heimalandi sínu nú og Gorkíj
hafði í Sovétríkjunum.
Lu Xun Halldór Stefánsson þýddi smásögur
eftir Xun árið 1957.
TENGLAR
...............................................................
http://www.coldbacon.com/luxun.html
http://mbl.is/mm/gagnasafn/
grein.html?grein_id=666336