Lesbók Morgunblaðsins - 24.02.2007, Blaðsíða 13
Íslendingum er tamara að
koma sagnamegin að veru-
leikanum, að segja sögu. Öf-
ugt við Frakka flosnuðu þeir
ekki upp frá sínum miðalda-
bókmenntum, málæðin fór
ekki í sundur, heldur hitaði
upp hugarfylgsnin sem voru
athvarf þeirra út ísöld alls-
leysisins. Það er undarlegt til
þess að hugsa að kynslóðirn-
ar skuli hafa megnað að
smygla þessum varningi í
gegn um hið stranga landa-
mæraeftirlit fátæktarinnar.
Aftur á móti var fáu þyrmt af
því sem mölur og ryð fá
grandað. Öfugt við Frakka
hljótum við að skila auðu
þegar kemur að glæsibygg-
ingum, þar eiga enn við orð
Adams frá Brimum sem í riti
frá 11. öld segir um Íslend-
inga: „Fjöllin eru þeim í stað
borga.“
Enn í dag er það hin vold-
uga náttúra sem gerir að verk-
um að Ísland blaktir í vitund
nútímamanna: öræfin, víð-
ernin, ógrynnin.
Og svo svörin við spurning-
unni sem fá lönd ganga jafn
eindregið eftir við þjóð sína:
af hverju ertu hér?
Franskir verslunardagar Í fimmta sinn skipuleggur Fransk-íslenska versl-
unarráðið franska verslunardaga á Íslandi 08.03 - 18.03.
Yves Coppens Coppens er forstöðumaður
þróunarmannfræðideildar Collège de
France og talar á vísindaráðstefnu í Há-
skóla Íslands 24.04. Höfundur er rithöfundur.
Ófrönsk? Dionysos syngur orðið aðalega á ensku.
henni á eftir Bretlandi. Emilíana Torrini
náði einnig góðum árangri í Frakklandi með
fyrstu breiðskífu sína, gekk reyndar hvergi
eins vel og þar. Sama má segja um Barða
Jóhannsson og hljómsveit hans Bang Gang,
Frakkar hafa tekið honum opnum örmum,
ekki síst eftir að hann tók upp samstarf við
Keren Ann, og Sigur Rós nýtur mikillar
hylli þar í landi.
Af þessu má ráða að Frakkar kjósa helst
tónlist sem er öðruvísi, ef svo má segja, tón-
list sem vekur mann til umhugsunar - und-
irspil undir heimspekilegar vangaveltur og
djúpar pælingar yfir kaffibolla eða rauðvíns-
glasi. Þetta hafa Íslendingar svo sem kunn-
að að meta þótt tungumálið hafi staðið í
þeim. Þannig hefur franskur vísnasöngur
notið nokkurrar hylli hér á landi; nefni sem
dæmi vinsæla skemmtun sem byggði að
nokkru á slíkri músík fyrir fáum árum og
ekki má gleyma frábæru leikriti um Edith
Piaf sem fékk metaðsókn í Þjóðleikhúsinu á
sínum tíma og varð til þess að menn rifjuðu
upp þá merku söngkonu sem átti ömurlegri
ævi en orð fá lýst en gat þó sungið svo fal-
lega.
Franskt vor á Íslandi
Þrátt fyrir þetta má þó segja að frönsk mús-
ík hafi ekki náð verulegum vinsældum hér á
landi fyrr en Etienne de Crécy hrinti af stað
bylgju af franskri danstónlist fyrir áratug
með tveimur frægum plötum; Pansoul, sem
hann gaf út undir nafninu Motorbass, og Su-
per Discount, sem hann gaf út undir eigin
nafni, en á þeirri skífu koma ýmsir við sögu.
Í kjölfarið fylgdu svo fleiri franskir dans-
tónlistarmenn, ólíkrar gerðar og ekki allir
beinlínis samherjar; Cassius, Air, Alex Gop-
her, St. Germain, Dimitri from Paris og Daft
Punk, svo dæmi séu tekin.
Frá miðjum tíunda áratug síðustu aldar
og vel fram yfir aldamót hafa franskar
hljómsveitir náð langt í Bretlandi og víðar.
Sumpart er þar vegna þess að tungumál
skiptir litlu máli þegar danstónlist er annars
vegar en einnig hafa frönsk stjórnvöld lagt
hljómsveitum lið og rekið sérstaka kynning-
arskrifstofu í Lundúnum. Gott til eft-
irbreytni! Liður í öllu saman er svo menn-
ingarhátíðir á við "Pourquoi Pas? – Franskt
vor á Íslandi" sem hófst sl. fimmtudag.
Klokochazískur Labyala Fela Da Ja-wid Fel leiðir hljóm-
sveiytina Nosfell.
Hljómsveit Monade varð til sem einskonar angi af Stereolab en breyttist svo í hljómsveit.
»Um leið og frönsk
tónlist sker sig úr í
evrópsku poppi, þá er
hún í senn alþjóðlegri
en til að mynda það
sem gefur að heyra í
Bretlandi eða Þýska-
landi eða hér á landi.
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. FEBRÚAR 2007 13
Þeir frönsku tónlistarmenn sem hingað
koma á menningarhátíðina Pourquoi pas?
eru úr ýmsum áttum, ólíkir listamenn sem
gefa góða mynd af frönsku poppi, auk-
inheldur sem margir þeirra eiga sér ís-
lenska skírskotun.
Fyrsta franska poppsveitin á hátíðinni,
Dionysos, er þó eiginlega dálítið ófrönsk,
ef svo má segja, syngur að mestu á ensku
og hefur leitað til Englands og Bandaríkj-
anna að upptökustjórum og –aðstöðu. Hún
er ekki verri fyrir það, betri jafnvel finnst
einhverjum sem eiga erfitt með frönsk-
una. Dionysos hefur gefið út fimm breið-
skífur og verið afskaplega iðin við kolann
frá því sveitin var stofnuð 1993. Höf-
uðpaur hennar og helsti lagasmiður er
Mathias Malzeu.
Dionysos leikur í Listasafni Reykjavíkur,
Hafnarhúsi, í kvöld 24. febrúar.
Söngkonan Emilie Simon er hámenntuð
í músík, lærði söng og tónsmíðar árum
saman, var meðal annars við nám í IRCAM
stofnuninni í París áður en hún sneri sér
alfarið að poppinu, rafeindapoppi. Simon
hefur iðulega verið líkt við Björk, til-
raunakennd og tilfinningarík raftónlist og
einlægur og tær söngur.
Emilie Simon syngur í Háskólabíói 4.
mars.
Monade varð til sem einskonar angi af
Stereolab, enda stofnaði Lætitia Sadier,
helmingur Stereolab, sveitina sem dægra-
styttingu. Ýmsir komu við sögu í sveitinni
framan af en smám saman hefur liðs-
skipan tekið á sig skýrari mynd og jafn-
framt hefur Monade breyst í eiginlega
hljómsveit.
Monade leikur í Þjóðleikhúskjallaranum
28. mars.
Nosfell er hljómsveit furðufuglsins La-
byala Fela Da Jawid Fel sem er að sögn
frá landinu Klokochazia. Hann syngur ým-
ist á ensku, klokobetz, sem er heimsmíðað
tungumál eða á frönsku. Tónlistin er sér-
kennileg blanda af rokki og ótilgreindri
þjóðlegri tónlist, kannski frá Klokochazia
þar sem menn eru greinilega fornir í lund.
Nosfell kemur fram á Ísafirði 7. apríl.
Eins og sjá má á heiti sveitarinnar Nou-
velle Vague leikur hún sér með hugtök því
ekki er bara vísað í frönsku nýbylgjuna í
kvikmyndaleik heldur er líka ýjað að bras-
ilísku nýbylgjunni bossa nova. Sveitin hóf
nefnilega feril sinn með breiðskífu þar sem
ýmsar lummur breskrar nýbylgju voru
framreiddar í nýjum búningi, glænýjum,
enda svo búið um hnútana að hver söng-
kona sveitarinnar syngi aðeins lög sem
hún hafði ekki áður heyrt til að tryggja að
fyrri flutningur hefði engin áhrif á hana.
Nouvelle Vague treður upp á Nasa 26.
apríl.
Franska söngkonan Françoiz Breut
lagði stund á myndlist framan af en tók
síðan upp gítarinn vegna áhrifa frá Leon-
ard Cohen og Neil Young. Framan af ferl-
inum var hún í nánu samstarfi við Dom-
inique Ané, söng bakraddir á plötum hans
og á tónleikum, en ákvað svo að hefja sóló-
feril. Á fyrstu breiðskífunni samdi Ané öll
lög og eins obbann af annarri plötunni en
smám saman hafa fleiri lagasmiðir slegist í
hópinn.
Françoiz Breut syngur í Þjóðleikhúskjall-
aranum 10. maí.
Franskt poppréttahlaðborð