Lesbók Morgunblaðsins - 18.08.2007, Side 3

Lesbók Morgunblaðsins - 18.08.2007, Side 3
Eftir Þröst Helgason throstur@mbl.is O rphans er krakki sem hefur lent á villigötum og keyrir kistu á stórum dekkjum yfir Ohio-fljót með logsuðugleraugu á andlit- inu, svipu til að berja konuna og flugeld í eyranu. Þannig lýsir Tom Waits safnkassa þriggja diska með tónlist sinni, gamalli og nýrri, sem kom út á síðasta ári og heitir Orphans eða Mun- aðarleysingjar vegna þess að diskarnir innihalda lög sem hafa orðið útundan með einhverjum hætti, dottið upp fyrir, týnst, hrakist á brott. Þetta er auðvitað ekki nein lýsing á verkinu en samt hefði enginn getað lýst því betur. Tom Waits segir eiginlega aldrei neitt sem hægt er að taka mark á nema hugsanlega í laga- textum sínum. Hann er hraðlyginn. Hann laug því einhvern tímann að blaðamanni að hann hefði verið læknir. Ég man ekki með hvaða ósköpum sú saga endaði en blaðamaðurinn trúði því öllu og prentaði – að sögn Waits. Í öðru viðtali var hann spurður við hvaða tækifæri hann lygi helst: „Hver þarf sérstakt tækifæri til þess?“ svaraði hann. Waits segir sögur sem ekki hafa heyrst áður. Hann syngur eins og skrattinn hafi reynt að rífa úr honum raddböndin. Og hann semur tónlist eins og hann sé á útgáfusamningi hjá eilífðinni. En þetta skýrir samt ekki ótrúlegt aðdrátt- arafl mannsins. Goðsögnin You’ve got to lie to me baby, eru fyrstu orðin á fyrsta diski þríleiksins Orphans sem nefnist Brawlers. Lagið heitir Lie to me og er löð- ursveittur sexrokkari með þessum frábæru hendingum: I know you got another jockey at home Let me be your rider till your real man comes Whip me baby, lie like a dog I really don’t care if you do Lie to me baby Uh huh, lie to me baby Lie to me baby Lie to me baby - move on I know you got yourself a skinny ol’ man Let me be your baby, I know that I can Slap me baby, give me all of your grief I have no use for the truth Lie to me baby - move on Ljúgðu, ljúgðu, ég hef enga þörf fyrir sann- leikann. Waits er goðsögn. Og kannski … nei, að öllum líkindum er hann uppdiktuð goðsögn. Það þýðir ekki að Waits sé ekki til, að hann sé bara lyga- saga. Það þýðir að ímynd hans lifi sjálfstæðu lífi, sögurnar um hann eru stundum stærri en hann sjálfur, en hann sjálfur er stærri en allt mennskt. Waits er goðsögn. Og hann gerir sér fullkomlega grein fyrir því sjálfur. Hann er nefnilega höfundur goðsagn- arinnar að stórum hluta. Goðsögn Waits tengist barlífi sótsvartra drykkjuhrúta, lestarrottum, skurðgröfurum, vegleysingjum og órökuðum flækingum sem aka gömlum, höktandi Bjúikk- um og Nóvum um þjóðvegina og eiga sér sálu- félaga í hórum, dópurum, svindlurum og öðrum smákrimmum sem þeir deila herbergjum með á svæsnum vegahótelum til þess eins að vakna allslausir að morgni með timburmennina trommandi upp í bleikum samfestingum. Waits átti sína sæludaga á áttunda áratugn- um. Tróð upp á börum öll kvöld, sat við píanóið með sígarettu í munnvikinu og vískíglas við höndina og söng um hjörtu sem blakta í vind- inum, puttalinga með haus í laginu eins og billj- ardkúla, tómar götur, einmana fólk á dænerum að borða pulsur og egg, róna sem telja sig betur komna án eiginkonu, vændiskonur og flækinga sem sitja við barina fram eftir nóttu og deila síð- an ódýru hótelherbergi með ljósastaur. Á köflum var Waits langt leiddur, búinn að reykja úr sér lungun og drekka frá sér vit en hann var vinnusamur, gaf út fjölda platna og tróð upp á nánast hverju kvöldi, söng við píanó- ið, sagði sögur, laug, blótaði. Smám saman eign- aðist hann tryggan áhangendahóp. En í byrjun níunda áratugarins kynntist Wa- its eiginkonu sinni, Kathleen Brennan, sem átti eftir að breyta öllu. Waits hætti að drekka og gafst fljótlega upp á kráarspilinu. Hann hætti samt ekki að syngja um fólkið sem sótti barina – rónana, hórurnar, flækingana, hina fötluðu og afskræmdu, vonlausu og vinalausu – og hélt þannig goðsögninni lifandi. Og þótt sumum kunni að finnast það þver- sagnarkennt þá varð tónlistin tilraunakenndari og áhugaverðari en nokkru sinni eftir að Waits eignaðist konu og börn. Waits sjálfur hefur margoft þakkað Brennan (sem hann sagði í við- tali að væri hámenntuð í klassískri tónlist en það hefur aldrei fengist staðfest svo ég viti) þá þróun sem orðið hefur á tónlist sinni frá því á ní- unda áratugnum en hún hefur verið helsti sam- starfsmaður hans síðan þau kynntust. Melódían varð stríðari og píanóið vék að stórum hluta fyr- ir rámum lúðrum, gítarsargi, vírasurgi, potta- glamri, skruðningum í skrani og sífellt djöf- ullegri rödd Waits. En það sem kannski hefur haldið hvað fastast í aðdáendur Waits allan þennan tíma (ferillinn spannar nú 38 ár) er að hann hefur alltaf verið hann sjálfur – hversu velgjulega sem það nú hljómar. Hann hefur staðið af sér diskóið, pönk- ið, rappið, hipphoppið, dauðarokkið og glans- poppið allt eins og það leggur sig. Tileinkað sér það sem hentaði, stælt sumt og skopstælt, hafn- að öðru. En alltaf hefur hann haldið sínum þræði. Svolar, Volarar og Svikarar Orphans sannar þetta. Verkið er eins konar þverskurður af ferli Waits. Orphans inniheldur 54 lög á þremur diskum sem bera hver sitt waitsíska heiti. Sá fyrsti, Brawlers (Svolar), er fullur af svermandi blús og dansrokkurum sem fóru að verða algengari á plötum Waits á níunda áratugnum. Annar diskurinn, Bawlers (Vol- arar), býður upp á kántríballöður, valsa og pí- anóklassík að hætti Waits. En sá síðasti, Bast- ards (Svikarar), er barmafullur af þeirri tilraunakenndu tónlist sem Waits hefur verið þekktur fyrir frá því í byrjun níunda áratug- arins og mörgum (þar á meðal þáverandi útgef- anda hans) þótti kannski eins konar svik við melódíska og ljóðræna hæfileika höfundarins. Á diskunum þremur eru rúmlega þrjátíu nýj- ar tónsmíðar og talsvert af lögum sem Waits hafði samið fyrir kvikmyndir, leikrit og önnur tækifæri en hafa ekki heyrst áður á diski eftir Waits. Þarna eru líka ábreiður hans á lög tón- listarmanna á borð við The Ramones, Kurt Weill og Berthold Brecht, Charles Bukowski og Jack Kerouac, allar sem ein svo sérviskulegar að frumverkin eignast annað líf. Waits er því samur við sig. Hann er enn að syngja um fólkið sem hefur orðið útundan með einhverjum hætti, dottið upp fyrir, týnst, hrak- ist á brott. Þetta eru svolar, volarar og svikarar en líka einmana hjörtu sem finna sitt nirvana inni á lítilli vegasjoppu þar sem kokkurinn talar tóma steypu og uppvaskarinn hlær góðum, hreinum, þægilegum hlátri. Waits blífur hvað sem þræsingnum úr popp- vélinni líður. Neonljósin blikka í sífellu yfir bar- dyrunum, maður fer inn og lendir á villigötum, setur upp logsuðugleraugun og grípur til svip- unnar á meðan flugeldarnir loga í eyrunum. Tom Waits Hann segir eiginlega aldrei neitt sem hægt er að taka mark á nema hugsanlega í lagatextum sínum. Með flugeld í eyranu Á fimmtudaginn verða haldnir tónleikar í Gamla bíói þar sem nokkrir íslenskir tónlist- armenn og aðrir munu flytja lög eftir Tom Waits, þar á meðal Pétur Ben, Daníel Ágúst, Krummi úr Mínus, Sigtryggur Baldursson og Ólafur Darri Ólafsson leikari. Af þessu tilefni er hér fjallað um nýjustu plötu Waits í ljósi fjörutíu ára ferils hans og goðsagnarinnar um hann. » Goðsögn Waits tengist barlífi sót- svartra drykkjuhrúta, lestarrott- um, skurðgröfurum, vegleysingjum og órökuðum flækingum sem aka göml- um, höktandi Bjúikkum og Nóvum um þjóðvegina og eiga sér sálufélaga í hórum, dópurum, svindlurum og öðr- um smákrimmum sem þeir deila her- bergjum með á svæsnum vegahótelum til þess eins að vakna allslausir að morgni með timburmennina tromm- andi upp í bleikum samfestingum. Í HNOTSKURN MEÐAL LAGA Á TÓNLEIKUNUM Í GAMLA BÍÓI VERÐA: »Ol’ ’55: Bara nafnið fær mann til þess að kikna í hnjánum, ein fallegastaballaða Waits og mest kóveraða lag hans. Fyrsta lagið á fyrstu plötunni, Closing Time. »Kentucky Avenue: Minningar úr heimabænum, sögur af krökkunum ígötunni, frábær melódramatísk laglína heldur manni ísköldum. »Swordfishtrombone: Af samnefndri plötu sem var tímamót í ferli Waitsí byrjun áttunda áratugarins, píanóið farið og búið að stokka upp spilin. »Earth Died Screaming: Fyrsta lagið á plötunni Bone Machine, tæki ogtól úr verkfæraskúrnum slá harðsvíraðan Waits-taktinn. »Road to Peace: Ádeilusöngur um Íraksstríð Bush, vakti mikla athygli ánýjasta disknum Orphans. MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. ÁGÚST 2007 3

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.