Lesbók Morgunblaðsins - 06.10.2007, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. OKTÓBER 2007 7
Eftir Arnar Eggert Thoroddsen
arnareggert@gmail.com
Stephen gamli Morrissey, hinnfyrrum blómum skrýddi forvíg-
ismaður gáfumannapoppsveitarinnar
The Smiths og nú-
verandi sóló-
listamaður, er
með nýja plötu í
farvatninu. Morr-
issey, eða Mozzer
eins og Bretinn
kallar sinn mann,
hefur verið með
eindæmum iðinn
undanfarin ár og
gefið út tvær
prýðisplötur, You are the Quarry
(2004) og Ringleader of the Tormen-
tors (2006), en þær báru með sér list-
ræna endurreisn söngvarans eftir
nokkurra ára þurrkatíð. Platan verð-
ur tekin upp á næstu mánuðum og
gefin út „einhvern tíma“ á næsta ári.
En þó að upptökur séu ekki hafnar og
útgáfudagur sé á huldu eru öll lög og
textar klár, og bíða þess bara að upp-
tökumaðurinn ýti á „rec“.
Morrissey er enn og aftur samn-
ingslaus, en samningur hans við
Sanctuary er runninn út. Hann hefur
hins vegar fengið tilboð frá Warner-
risanum en ekki er vitað hvort því
hefur verið tekið. Þá hefur Morr-
issey, sem er talsvert ólíkindatól, gef-
ið í skyn að hann muni hætta að koma
fram á tónleikum eftir að yfirstand-
andi Ameríkutúr lýkur, en síðustu
tónleikarnir eru í Miami í nóvember.
Chan Marshall, sem er beturþekkt undir nafninu Cat Power,
ætlar að gefa út aðra tökulagaplötu
sína, Covers II, í
janúar á næsta
ári. Það er Mata-
dor sem gefur
hana út. Fyrri
platan, The Co-
vers Records,
kom út árið 2000
hjá sama merki en
þar rennir Mars-
hall sér í gegnum
lög eftir listamenn
á borð við Bob Dylan, Rolling Stones
og Velvet Underground. Ekkert hef-
ur hins vegar enn fengist staðfest um
lagalista nýju plötunnar en hana tek-
ur hún upp með sveit sinni, Dirty
Delta Blues Band. Þar eru um borð
m.a. Jim White úr Dirty Three og Ju-
dah Bauer úr Blues Explosion. Litlir
fuglar hafa þá hvíslað allnokkuð um
nýja hljóðversplötu með frumsömdu
efni, sem heitir Sun og á að koma út
vorið 2008. Síðasta plata Marshall af
þeirri tegund er The Greatest, sem út
kom í fyrra, öndvegisplata sem hefur
mikið verið hampað af gagnrýn-
endum sem og aðdáendum.
Þá má geta þess að Marshall er
hætt að drekka, fyrir utan stöku
rauðvínsglas, og ku það skila sér í
fagmannlegri og gleðiríkari tón-
leikum (sjá mynd), en tónleikar henn-
ar gátu verið allsvakalegt sjónarspil
þar sem allt var gjörsamlega í tómu
rugli, eins og Íslendingar fengu að
kynnast sjálfir á Innipúkanum haust-
ið 2005.
Ein rosalegasta plata síðustu áraer The Drift eftir fyrrverandi
tyggjókúlu- og barokkpopparann
Scott Walker. Og
þá er hún sem
sagt rosaleg í
þeim skilningi að
það er nánast ekki
hægt að hlusta á
hana, svo tauga-
trekkjandi og
hryllileg er hljóð-
myndin. En ef
mönnum tekst að
halda sér við efn-
ið, þó ekki sé nema í nokkrar mín-
útur, verður snilldin þó kristaltær.
Walker, sem er einfari mikill, virðist
nú kominn á fart, því stuttskífan And
Who Shall Go to the Ball? And What
Shall Go to the Ball? kom út fyrir
stuttu undir merki 4AD. Verkið er í
fjórum hlutum og var samið fyrir
enskan dansflokk. Hlustið ef þið þor-
ið …
TÓNLIST
Morrissey
Cat Power
Scott Walker
Eftir Ágúst Borgþór Sverrisson
agust@islenska.is
Þau heyrast oft og víða, sígildu lögin sembesta plata The Who, Whós Next, skart-ar: Tvö þeirra eru einkennisstef í C.S.I.sjónvarpsþáttum, Baba ÓRiley og Wońt
Be Fooled Again (þriðja Who-lagið, Who are You,
af samnefndri plötu, heyrist síðan í enn einni
C.S.I. seríu); Limp Bizkit endurvakti vinsældir
lagsins Behind Blue Eyes með tilþrifalitlum
ábreiðuflutningi fyrir tveimur árum og ýmis lög af
þessari plötu völdu krakkarnir í þáttunum Rock
Star Supernova sér til flutnings.
Lögin á Whós Next hljóma eins og það sem þau
eru: ekta, sígilt eðalrokk. Platan er hins vegar frá
árinu 1971 og fæstir gera sér grein fyrir því að
hljómur hennar var nýstárlegur ef ekki bylting-
arkenndur á sínum tíma. Hljóðgervlar höfðu t.d.
aldrei verið notaðir á þann hátt sem Pete Towns-
hend beitir þeim á þessari plötu þar sem langir og
frumlegir einleikskaflar á hljóðgervil prýða lögin
Wońt Be Fooled Again og Going Mobile. Í lok
sólókaflans í Wońt Be Fooled Again kveður við
risaöskur söngvarans Rogers Daltrey. Það þykir
svo sannarlega engin nýlunda að söngvari öskri í
þungu rokklagi en öskur Daltreys á þessu and-
artaki, tímasetning þess í laginu og ógnarkraft-
urinn færðu því hinn óopinbera titil „öskrið sem
breytti rokksögunni“.
Sagan á bak við þessa plötu er bæði merkileg
og furðuleg. Tveimur árum áður hafði The Who
gefið út Tommy, fyrstu rokkóperu sögunnar. Sag-
an á Tommy er sérkennileg og jafnvel barnaleg en
tónlistin þótti frábær. Tommy var síðan kvik-
mynduð um miðjan áttunda áratuginn og kvik-
myndin naut mikilla vinsælda. Árið 1970 var Pete
Townshend (Townshend samdi nánast allt efni
The Who með örfáum undantekningum) hins veg-
ar með aðra sögu og aðra kvikmynd í huga, flókna
sögu um raunir unglingsáranna , handrit sem
hann skrifaði drög að en enginn annar fékk nokk-
urn botn í. Sagan var öðrum þræði útópísk og
fjallaði m.a. um frelsun mannsandans fyrir til-
verknað tónlistar.
En verkefnið snerist ekki bara um eina óskilj-
anlega kvikmynd, það var miklu viðameira en svo.
Pete Townshend hafði til að bera merkilegt fram-
tíðarinnsæi um gagnvirkni og tengingu miðla, t.d.
telur hann sig hafa séð fyrir tilkomu internetsins í
texta lagsins Relay sem er frá árinu 1974.
Townshend kallaði þetta verk Lifehouse og það
átti semsagt að samanstanda af kvikmynd, nokk-
urra platna albúmi og röð tónleika. En þar með
var ekki allt upptalið. The Who æfðu lögin í Young
Vic leikhúsinu í London fyrir opnum dyrum fyrir
gesti og gangandi. Með því tiltæki var í og með
ætlunin að skapa einhvers konar útópískt alsælu-
samband milli hljómsveitar og áheyrenda, sam-
bærilegt við það sem Lifehouse-sagan boðaði.
Auk þess átti að skeyta þessum tónleikaatriðum
inn í kvikmyndina þar sem texti viðkomandi laga
féll að söguþræðinum hverju sinni.
Pete Townshend tókst ekki að útskýra heildar-
hugmyndina skilmerkilega fyrir nokkrum manni,
hvað þá gera hana eftirsóknarverða. Svo fór að
hann gafst upp á Lifehouse verkefninu en nið-
urstaðan varð sú að hljóðrituð voru 9 af lögunum
sem búið var að semja fyrir verkefnið.
Útkoman var svo þessi þétta og stórkostlega
rokkplata sem ber engin merki um ringulreiðina
og vandræðaganginn sem lágu að baki henni.
Risaprójekt minnkað
niður í níu frábær lög
POPPKLASSÍK
Eftir Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
E
inhver kann að halda að þetta sé
bara sprell hjá mér, eins væri
hægt að tala um sinfónískt svart-
þungarokk eða teknókryddaða
hugleiðslutónlist. Æi, slæm
dæmi, báðar þessar stefnur eru
víst til! Já, það er nú einu sinni þannig að flest er
reynt í þessum efnum í tónlistinni. Það er engin
nýlunda að tveimur, eða fleiri stefnum, sé hnoðað
saman, sjálft rokkið varð þannig til úr blöndu af
blús blökkumanna og sveitatónlist hvíta bóndans,
sem hann flutti með sér frá Evrópu. Það er því í
raun furðanlegt þegar fólk bregst ókvæða við til-
raunum með formin og leitinni eftir einhverju
nýju. Bob Dylan stakk gítarnum sínum í samband
á þjóðlagahátíðinni í Newport og allt varð kolvit-
laust. Það virðist alltaf jafn djúpt á óttanum við
eitthvað nýtt og þránni eftir öryggi í mannskepn-
unni.
Hugmyndirnar í þessum efnum hafa þó líklega
aldrei verið ævintýralegri en í dag og útsjón-
arsemin er alltaf að aukast. Betra aðgengi að alls
kyns tónlist, saman með heilnæmu skeyting-
arleysi í garð þess sem „má“ er að fæða af sér
tónlistarsköpun sem fyrir einhverjum áratugum
hefði verið óhugsandi, í mesta lagi brandari á
blaði. Fyrir einhverjum árum las höfundur grein
um þá yfirburðarsveit, Jethro Tull, þar sem talað
var um að með laginu „Minstrel in the Gallery“
gæti Tull gert tilkall til þess að vera eina „folk-
metal“ sveit heims. Heitinu var þarna slegið fram
í fullkomnu gríni en í dag er það notað yfir einkar
virka undirstefnu í þungarokki, sem er reyndar
það virk að hún sjálf er þegar farin að kvíslast
niður í aðrar undirstefnur og afbrigði. Sköpunin,
leitin, heldur þannig endalaust áfram.
Víkingarokk
Áferð og inntak þessara tveggja tónlistarstefna,
þungarokks og þjóðlagatónlistar, er eðlilega það
sem fær fólk til að staldra við. Þetta er svo ólíkt
er það ekki? Þungarokkið gengur út á ofsa, há-
vaða, hraða og almennt brjálæði. Þjóðlaga-
tónlistin snýst um fínleika, melódíu, fegurð og
angurværð. En stöldrum við og gröfum aðeins
dýpra. Það er sameiginlegur þráður, nokkuð sver,
sem tengir þessar stefnur saman. Það er nefni-
lega eitthvað hreint, og hrátt, sem stafar af þeim
báðum. Tökum Motorhead, eða AC/DC, sem
dæmi. Útgangspunkturinn þar er einfaldleikinn,
að framreiða rokkið án allra flækja þannig að
mönnum sé nær ómögulegt að smíða einhverjar
kenningar í kringum það eða að setja sig í vitræn-
ar stellingar gagnvart því (sem gerir þessa grein
að ákveðinni mótsögn). Það er eitthvað „satt“ við
þessa aðkomu, og sama gildir um þjóðlagatónlist-
ina sem á rætur sínar í hreinni þörf almúgafólks
til að tjá sig í gegnum söng og hljóðfæraslátt.
Þetta gerir umræddan samslátt formanna næsta
sjálfsagðan, og nokkuð athyglisverðan og spenn-
andi líka, því að í mörgum tilfellum hefur tekist
glæsilega til.
Íslendingar ættu best að kannast við þennan
stíl í laginu „Ormurin langi“ með færeysku sveit-
inni Týr, sem tekið er af fyrstu plötu hennar, How
far to Asgaard, en lagið sló í gegn hérlendis árið
2002. Týr er gjarnan sett undir hatt hins svo-
nefnda víkingarokks, sem er skylt þjóðlagaþunga-
rokkinu, og hefur verið að ná gríðargóðum ár-
angri á því sviði eins og síðasta plata þeirra,
Ragnarök, ber vitni um. Þá heimsóttu finnskir
iðkendur formsins, Finntroll, landann á dögunum
en stefnan er giska útbreidd og nefna má í því
sambandi sveitina Stille Volk sem er frá Pírenea-
fjallasvæði Frakklands, en er þó með þýskt nafn
og meðlimir syngja gjarnan á hinu nánast út-
dauða tungumáli occitönsku.
Þá hefur svartþungarokkið verið mikilvæg
gróðrarstöð hvað þetta varðar og margar sveitir
þar hafa unnið úr þjóðlögum og þeim arfi sem þau
koma úr. Kirkjubrennarinn og morðinginn Varg
Vikerness, kenndur við Burzum, gaf út plötuna
Filosofem árið 1996, sem reyndist áhrifarík en
stærsta senan hvað þetta varðar í dag er í Austur-
Evrópu þar sem fjöldi svartþungarokksbanda
vinnur markvisst úr slavneskum rótum sínum.
Þá hefur svissneska sveitin Eluveitie verið að
vekja talsverða athygli að undanförnu, en þar eru
miðaldahljóðfæri brúkuð jafnt á við rafmagnsgít-
ara og trommur. Eins og sjá má á myndinni spilar
ímyndin ekki litla rullu, en meðlimir líta út eins og
fótgönguliðar í gaulverska hernum og maður á
erfitt með að ímynda sér að þetta fólk hafi
áhyggjur af rafmagnsreikningnum eins og við
hin. Já, þessi tónlist maður...
Þjóðlagaþungarokk
Hversu langt er hægt að ganga í samslætti á
ólíkum stefnum og stílum? Er virkilega hægt að
slengja brennivínslegnu sóðarokki saman við
fínlega þjóðlagatónlist svo að vel sé? Herrar
mínir og frúr, má ég kynna þjóðlagaþunga-
rokkið, stefnumót ólíkra heima þar sem úfnir og
illa lyktandi rokkhundar ganga hönd í hönd með
hreinum og stroknum meyjum eins og ekkert sé
sjálfsagðara.
Eluveitie, svissnesk þjóðlagaþungarokkssveit „Áferð og inntak þessara tveggja tónlistarstefna,
þungarokks og þjóðlagatónlistar, er eðlilega það sem fær fólk til að staldra við.“