Morgunblaðið - 25.04.2007, Qupperneq 15
Morgunblaðið |15
Umhverfisvernd nær til nær allra
hliða þjóðfélagsins. Það gildir bæði
framleiðslu, notkun og eyðingu
allra afurða. Ekki minnst orku-
eyðslan hefur verið umhugsunar-
efni í þessu sambandi.
Rafræn tæki skapa vanda
Eitt af því sem í auknum mæli
hefur skapað vandamál er gífurleg
aukning í framleiðslu rafrænna
tækja af ýmsum gerðum. Slík tæki
hafa ekki bara valdið byltingu í
samgöngum og samskiptum, þau
hafa einnig nánast gert sig ómiss-
andi í nútíma framleiðslu.
Hin hliðin á málinu er hvernig á
að reka þær á hagkvæman hátt og
hvernig á að losa sig við þær.
„HP hefur lengi haft umhverf-
isvernd að leiðarljósi og fyrirtækið
segist gæta vel að því að vernda
umhverfið eftir bestu getu í fram-
leiðsluferlinu,“ segir Helga Dögg
Björgvinsdóttir hjá HP.
Hún segir HP sífellt vera að leita
nýrra leiða til að rekstur HP-tölva
og prentara sé sem hliðhollastur
umhverfinu.
Draga úr orkunotkun sinni
Sem dæmi um umhverfisstefnu
HP nefnir Helga Dögg að fyr-
irtækið hafi sett sér það markmið
að draga úr orkunotkun sinni um
20% á heimsvísu fyrir árið 2010.
„Framleiðsluvörur HP standast
flestar núgildandi umhverfisstaðla
hvað varðar orkunotkun en Um-
hverfisstofnun Bandaríkjanna hef-
ur boðað nýja og strangari staðla
sem taka munu gildi í júlí 2007. HP
framleiðir og dreifir nú þegar borð-
tölvum sem standast þessa strang-
ari umhverfisstaðla og eru þessar
tölvur þær fyrstu til að hljóta vott-
un þar að lútandi,“ segir Helga
Dögg.
Um er að ræða HP Compaq
dc5700, dc5750 og dc7700 borð-
vélar. Galdurinn felst í öflugra raf-
magnsinntaki en nýja inntakið nýt-
ir 80% orkunnar og er ríflega 30%
skilvirkara en inntök á öðrum tölv-
um.
„Þetta veldur því að mun minna
rafmagn fer í að knýja tölvurnar
sem kemur bæði umhverfinu og
buddu neytandans til góða,“ segir
Helga Dögg.
HP með vistvænar tölvur
Dagur umhverfisins, sem nú er
haldinn hátíðlegur í níunda sinn, er
haldinn á fæðingardegi Sveins
Pálssonar, fyrsta náttúrufræðings
Íslands.
Sveinn fæddist árið 1762 og gerði
kerfisbundnar rannsóknir á jöklum
landsins í lok 18. aldar. Hann rann-
sakaði líka eldfjöll og dýralíf um
land allt.
Helsta verk hans, sem hann skrif-
aði og afhenti dönsku vísindaaka-
demíunni árið 1795, var ekki gefið
út fyrr en eftir 1880 og þá aðeins
hlutar þess. 1945 var svo ritið loks
gefið út í heild sinni á Íslandi.
Sveinn Pálsson hefur seinna
fengið alþjóðlega viðurkenningu
sem vísindamaður og náttúrufræð-
ingur.
Sveinn Pálsson hylltur
Í dag verður einhverju fyrirmynd-
arfyrirtæki veitt viðurkenning fyrir
vistvæna starfsemi.
Tólf ára í ár
Það er Umhverfisráðuneytið sem
veitir þessa viðurkenningu, en
fyrsta umhverfisviðurkenningin var
veitt árið 1995, þá fyrir starf á
árinu 1994.
Kuðungurinn, eða viðurkenning
ráðuneytisins fyrir umhverfisvæna
starfsemi fyrirtækja, er því tólf ára
í ár.
Umhverfisviðurkenning ráðu-
neytisins er kölluð Kuðungurinn og
hana hlýtur eitt fyrirtæki, sem þyk-
ir hafa skarað fram úr.
Fyrirtæki sem áður hafa hlotið
umhverfisviðurkenningu umhverf-
isráðuneytisins, Kuðunginn, eru:
Línuhönnun (2005), Orkuveita
Reykjavíkur (2004), Hópbílar hf.
(2003), Árvakur hf. (2002), Íslenska
álfélagið hf. (2000), Borgarplast hf.
(1999), Fiskverksmiðja Haraldar
Böðvarssonar á Akranesi (1998), Ol-
íufélagið hf. (1997), Fiskverkun
KEA í Hrísey (1996), Prentsmiðja
Morgunblaðsins (1995), Gámaþjón-
ustan hf. (1994), Umbúðamiðstöðin
hf. (1994) og Kjötverksmiðjan Goði
hf. (1994).
Hannað hefur verið sérstakt
merki fyrir það fyrirtæki sem hlýt-
ur Kuðunginn og hefur fyrirtækið
rétt til að nota merkið í eitt ár.
Kristín Þorkelsdóttir, grafískur
hönnuður, hannaði merkið. Kristín
velur einnig nýjan leirlistamann ár-
lega til þess að sérhanna leirkuðung
sem sá sem hlýtur Kuðunginn fær
til eignar.
Með viðurkenningum sínum vill
ráðuneytið vekja athygli á þeim fyr-
irtækjum sem skara fram úr á sviði
umhverfismála og hvetja þau og
önnur til þess að halda áfram að
samþætta hugmyndir um sjálfbæra
þróun og umhverfismál inn í rekst-
ur sinn, ímynd og menningu.
Morgunblaðið/Sverrir
Umhverfisverðlaun umhverfisráðuneytisins verða afhent í tólfta sinn í dag. Hér sést Sigríður Anna Þórðardóttir,
fyrrverandi umhverfisráðherra, afhenda þeim Hólmsteini Sigurðssyni, aðstoðarforstjóra OR, og Lofti Gíslasyni,
gæðastjóra hjá OR, umhverfisviðurkenninguna Kuðunginn árið 2005.
Kuðungurinn í tólfta sinn
Landsvirkjun hefur þróa› forrit sem fengi› hefur nafni›
Grænt bókhald. Forriti› er ætla› öllum fyrirtækjum sem
hafa áhuga á a› fylgjast me› tölulegum uppl‡singum um
umhverfisáhrif af starfsemi sinni.
Grænt bókhald er opinn hugbúna›ur sem þ‡›ir a› öllum er
frjálst a› bæta vi› virkni hans og a›laga forriti› eigin þörfum.
Hægt er a› panta forritið á vefsí›u Landsvirkjunar og n‡ta
þa› án endurgjalds.
P
IP
A
R
•
S
ÍA
•
7
0
8
0
4
grænt bókhald
Landsvirkjun býður öllum grænt bókhald endurgjaldslaust
Nánari upplýsingar á www.lv.is
Grænt bókhald er efnisuppgjör þar sem fram koma tölulegar
uppl‡singar um hvernig umhverfismálum er hátta› í vi›komandi
starfsemi. Græna bókhaldi› á þannig a› s‡na mælanleg áhrif
starfseminnar á umhverfi›.