Morgunblaðið - 25.04.2007, Side 18
18|Morgunblaðið
Vakning hefur orðið íumhverfismálumhér á landi und-anfarin ár sem hef-
ur haft áhrif víða í samfélag-
inu, m.a. á hönnun bygginga
og rekstur. Ljóst er að um-
hverfismál verða æ áleitnari
við skipulag. Hönnun hús-
næðis getur átt stóran þátt í
að auðvelda vinnu við að auka
umhverfisáherslur í rekstri.
Því er mikilvægt að taka tillit
til umhverfissjónarmiða í
áætlanagerð um húsbygg-
ingar.
Umhverfisstefna
Reykjavíkur
„Í umhverfisstefnu Reykja-
víkur segir m.a. að stefnt sé
að því að Reykjavík verði vist-
vænsta höfuðborg norðursins,
það umhverfi sem við búum í
skuli vera aðlaðandi og heil-
næmt með aukna vellíðan
borgarbúa að leiðarljósi og að
sjónarmið umhverfisverndar
skuli höfð að leiðarljósi í
rekstri, stjórnun og uppbygg-
ingu borgarinnar. Í umhverf-
isáætlun Reykjavíkur, Stað-
ardagskrá 21, er markmiðið
að koma á sjálfbæru sam-
félagi sem auðgar lífsgæði
fólks án þess að rýra mögu-
leika komandi kynslóða,“ seg-
ir Rósa Magnúsdóttir, deild-
arstjóri hollustuhátta hjá
Umhverfissviði Reykjavík-
urborgar.
Hún segir að áhersla sé
lögð á að samþætta umhverf-
isleg, félagsleg og efnahags-
leg sjónarmið svo að lausnir á
einu sviði skapi ekki vanda á
öðru.
Umhverfiskröfur við
innkaup
„Í umhverfisstefnu Reykja-
víkurborgar og grænu skref-
unum sem nýlega hafa verið
kynnt er gert ráð fyrir að tek-
ið skuli tillit til umhverf-
issjónarmiða við hönnun,
byggingu og viðhald bygg-
inga Reykjavíkurborgar.
Einnig að skipulega sé unnið
að því að setja umhverf-
iskröfur við innkaup á vörum
og þjónustu fyrir stofn-
anirnar,“ segir Rósa.
Hún segir að einnig þurfi
að vinna samkvæmt vinnu-
ferlum sem tryggi að ávallt sé
tekið mið af lögum og reglu-
gerðum sem m.a. vinnueft-
irlit, eldvarnareftirlit og heil-
brigðiseftirlit hafa umsjón
með.
„Við hönnun, byggingu og
viðhald skal leitast við að um-
hverfi innan- og utanhúss
stuðli að heilbrigði og vellíðan
þeirra sem þar dveljast jafn-
framt því að sjónarmið sjálf-
bærrar þróunar verði höfð að
leiðarljósi,“ segir Rósa. Hún
segir að ávallt skuli reynt að
samræma öryggis-, gæða-,
hagkvæmnis-, heilsu- og um-
hverfissjónarmið.
Góð staðsetning
og skipulag
„Við staðsetningu fyr-
irtækja og stofnana þarf eftir
eðli starfseminnar að gæta
þess að ekki verði óþarfa
ónæði frá umferð, atvinnu-
rekstri eða annarri starfsemi.
Mikilvægt er að aðkomuleiðir
séu öruggar og greiðfærar
fyrir vegfarendur þótt not-
aður sé mismunandi sam-
göngumáti, s.s. gangandi og
hjólandi vegfarendur ásamt
þeim sem koma á bifreiðum
eða í strætó.“
Þá sé mikilvægt að haga
heildarskipulagi bygginga
þannig að innra fyrirkomulag
þeirra endurspegli heild-
arlausnir með tilliti til gæða-
og umhverfissjónarmiða.
Þetta eigi við staðsetningu
un til að hægt sé að halda
uppi eðlilegri starfsemi og til
að tryggja að þeir sem þar
dveljist verði ekki fyrir álagi
né óþægindum sem stafa af
framkvæmdum og efnanotk-
un. Við minni viðhalds-
framkvæmdir eldri bygginga
þurfi að haga framkvæmdum
þannig að þær valdi sem
minnstri hættu, truflun og
ónæði fyrir starfsemina.
„Hafa verður að leiðarljósi
við hönnun bygginga að inn-
anhúsumhverfi sé heilnæmt
og stuðli að öryggi, heilbrigði
og vellíðan þeirra sem dvelj-
ast í byggingunni. Einnig að
þjóna ólíkum einstaklingum
með mismunandi þarfir og
stuðla að góðri umgengni.
Dagsbirta eða lýsing, loftræs-
ing og hljóðvist þarf að vera
góð. Frágangur húsnæðis
ætti að vera þannig að þrif
séu auðveld og gera þarf ráð-
stafanir til að óþarfa óhrein-
indi berist ekki inn í bygg-
inguna. Mikilvægt er að
forðast óþarfa notkun á efna-
vörum og miða ætti bygging-
arefni og frágang innanhúss
við að vistvænar aðferðir við
þrif henti vel.“
Vandað val
á innréttingum
Við val á innréttingum og
búnaði innan- og utanhúss
skal huga vel að gæða-, um-
hverfis-, heilsu- og örygg-
isþáttum s.s. endingu, styrk-
leika, efnainnihaldi,
orkunotkun, hávaða, geislun,
framleiðsluaðferðum og
slysahættu. Velja ætti sterk-
ar og endingargóðar innrétt-
ingar og búnað með sem
lengstan líftíma en jafnframt
þarf að gæta vel að því að
byggingarefni og innrétt-
ingar innihaldi ekki efni sem
eru á einhvern hátt skaðleg
eða óæskileg fyrir heilsu fólks
eða umhverfi, segir enn-
fremur í stefnumótun borg-
aryfirvalda.
„Ávallt skal reynt að velja
vörur þar sem orkunotkun,
hávaði og geislun eru í lág-
marki uppfylli þær aðrar
gæðakröfur sem settar eru,“
segir Rósa.
rýma innbyrðis, gönguleiðir,
tengsl lóðar og húss, loftræs-
ingu, birtu, hljóðvist o.s.frv.
Efni sem notuð eru til
bygginga þurfa að standast
öryggis-, heilbrigðis-, um-
hverfis- og gæðakröfur, að
sögn Rósu. „Við leggjum
áhersla á að nota traust, end-
ingargóð og vistvæn bygging-
arefni sem hafa litla viðhalds-
þörf og langan líftíma. Við
byggingarframkvæmdir ætti
ávallt að leitast við að nota að-
ferðir sem auðvelda viðhald
og gera flokkun/endurnýt-
ingu úrgangs við niðurrif auð-
velda.“
Hún bendir á að við hönnun
bygginga og viðhald þeirra sé
rétt að leggja áherslu á að
orkuþörf verði sem minnst.
Hönnuðir eigi einnig að huga
að rekstri byggingarinnar til
lengri tíma og þeir verði
beðnir að stilla upp nokkrum
valkostum þar sem fram komi
áætlaður rekstrar-, viðhalds-
og stofnkostnaður.
„Ávallt ætti velja þann val-
kost sem hefur minnsta orku-
og viðhaldsþörf uppfylli hann
öll önnur skilyrði sem sett eru
og ef stofnkostnaður hans er
réttlætanlegur. Við hönnun
loftræsikerfa er mikilvægt að
halda orku- og viðhaldsþörf í
lágmarki án þess að slaka á
kröfum um hollustusamlegt
inniloft og heilnæma innivist.
Við hönnun og viðhald ljósa-
búnaðar skal leitast við að
nota ljósaperur sem hafa litla
orkuþörf og hafa langan líf-
tíma. Lögð skal áhersla á að
auðvelt sé fyrir starfsfólk að
kveikja og slökkva í rýmum í
byggingunni. Við hönnun
snjóbræðslukerfa á skólalóð
skal miðað við að nýta af-
gangsvatn frá byggingunni og
forðast notkun sérstakrar
innspýtingar fyrir snjó-
bræðslukerfið,“ segir Rósa
Magnúsdóttir.
Að loknum fram-
kvæmdum
Í stefnumótun Reykjavík-
urborgar segir að reynt skuli
eftir fremsta megni að ljúka
byggingarframkvæmdum áð-
ur en húsnæði er tekið í notk-
Stuðlum að heilnæmi og vellíðan inni
Morgunblaðið/Ásdís
Heilnæmt Ljúka skal byggingaframkvæmdum áður en hús eru tekin í notkun til að forðast að fólk verði fyrir óþarfa álagi eða truflunum.
Morgunblaðið/Arnaldur
Inniloft Mikilvægt er að huga að góðri loftræstingu og þörfum þeirra sem í byggingunni
dvelja. Sjónarmið sjálbærrar þróunar eru einnig höfð að leiðarljósi í stefnu Reykjavíkur.
Rósa Magnúsdóttir, deildarstjóri hollustuhátta hjá Umhverfissviði Reykjavíkur er bjartsýn