Morgunblaðið - 02.05.2007, Qupperneq 9

Morgunblaðið - 02.05.2007, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. MAÍ 2007 9 FRÉTTIR www.feminin.is Bæjarlind 12, Kópavogi • sími 544 2222 Opið mán.-fös. kl. 11-18 - lau. 10-16 Hör- fatnaður í miklu úrvali Vesti - buxur - skyrtur St. 38-56 • Engjateigur 5 • Sími 581 2141 Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16 Nýjar yfirhafnir          Þú þværð hárið, þurrkar, berð froðuna í, greiðir og hárið nær sínum eðlilega lit á ný, þykknar og fær frískari blæ. Grecian 2000 hárfroðan fæst hjá: Lyfju Lágmúla, Lyfju Smáralind, Árbæjar Apóteki, Lyfjavali, Apótekinu Mjódd, Hársnyrtistofunni Hár - Hjallahrauni 13 Hfj., Rakarastofu Gríms, Rakarastofu Ágústar og Garðars, Rakarastofunni Klapparstíg, Rakarastofu Ragnars - Akureyri, Torfa Geirmunds, Hverfisgötu 117 og Hagkaupum. Árni Scheving slf. - Heildverslun, sími 897 7030 Lögg. fasteignasali: Bergur Guðnason hdl. Nánari upplýsingar veittar á skrifstofunni ekki í síma eða á netinu. Skráin á netinu: www.fyrirtaeki.is Elsta fyrirtækjasalan á landinu. Arðvænleg fyrirtæki 1. Skemmtileg sérverslun. Til sölu er myndlistargallerí eitt hið þekktasta og fallegasta á svæðinu. Um 50 framleiðendur og selja þau mest í umboðssölu. Stóraukning í sölu listaverka er núna eins og allir vita. Einkar áhugavert starf. 2. Lítill innflutningur með tæki sem er hollustutæki fyrir unga- börn. Selst vegna þess að eigandinn er fluttur til útlanda. Mjög sanngjarnt verð. Eitthvað sem allir ráða við. Tilvalið með öðru. 3. Lítil trésmiðja, tilvalin fyrir tvo smiði. Framleiðir innréttingar og húsgögn, tækjalisti á staðnum. Mikill hagnaður. Eigandinn er að fara í skóla og selur þess vegna. Frábært fyrirtæki. Sprautuklefi. 4. Bílasala í Reykjavík með stæði fyrir um 40 bíla, 8 bíla inni. Mjög þekkt sala og vinsæl. Um 1000 bílar á skrá. Gott fyrir 2 sniðuga og snjalla bílasala. 5. Tveir söluturnar í eigu sama eiganda. Eru í samliggjandi þorpum á suðurnesjum. Öll þjónusta til staðar. Sameiginleg velta um 86 millj. kr. brúttó. Mikil samlegðaráhrif. Lægra innkaupsverð, góður hagnaður. 6. Grillturn. Frábær grillstaður í hörkuumferð. Mikil grillsala og mikil íssala á sumrin. Einnig mikil sælgætissala. Tvær bíla- lúgur og aðstaða fyrir 5 manns til að borða inni. 7. Hársnyrtistofa í miðborginni.Glæsileg og þekkt hársnyrtistofa í 101 Reykjavík. Allir þekktustu koma þangað, 6 stólar, 4 förðunarstólar, biðaðstaða og aðstaða fyrir naglafræðing. Stofa sem vert er að spá í. ÍBÚÐ ÓSKAST TIL LEIGU Traustur aðili óskar eftir 4ra herbergja íbúð til leigu nú þegar og fram til áramóta. Æskileg stærð ca 100-150 fm. Æskileg staðsetning, miðborg, Þingholt, Skerjafjörður og Seltjarnarnes. Nánari upplýsingar veitir Sverrir Kristinsson. Eftir Bergljótu Leifsdóttur Mensuali UM SÍÐUSTU helgi var opnuð sýningin „Islanda: Paesaggi di luce“ eða „Ísland: Landslag ljósa“ í Galleria „Via Larga“ í Via Cavour 7/r í miðbæ Flórens. Sýningin stendur til 10. maí nk. og er hún opin alla daga frá kl. 17 til kl. 20 og er aðgangur ókeypis. Sýninguna opnaði Tiziano Lepri, sem er yfir- maður fjárlagasviðs og starfs- mannahalds Flórenssýslu en sýn- ingarsalurinn er í eigu Flórens- sýslu. Hugmyndina að sýningunni átti flórenski lögfræðingurinn Massimo Sani. Upphaflega hafði hugmynd hans verið að halda sýningu á mál- verkum sínum en síðan datt honum í hug að hafa samband við Sendiráð Íslands í Róm og bauð hann Guðna Bragasyni, sendifulltrúa Sendiráðs- ins í Róm, að nota þetta tækifæri til að koma Íslandi á framfæri í Flór- ens. Þeir sem taka þátt í sýning- unni fyrir Íslands hönd eru Guðrún Sigurðardóttir, eigandi ferðaheild- sölunnar Island Tours, sem sérhæf- ir sig í skipulagningu Íslandsferða, Rósa Gísladóttir myndhöggvari og svissneski listmálarinn Brigitta Reinhardt, en þetta er 6. samsýn- ing Rósu og Brigittu. Ljósmyndir eru eftir ítalska ljós- myndarann Marco C. Stoppato en hann er jarðfræðingur. Einnig eru til sölu á sýningunni íslenskar bæk- ur í ítalskri þýðingu frá ítalska bókaforlaginu Iperborea en það hefur gefið út 12 íslenskar bækur, bæði Íslendingasögur og bækur eftir Halldór Laxness, Thor Vil- hjálmsson, Einar Má Guðmundsson og Hrafnhildi Hagalín. Mikið af upplýsingaefni um Ísland er á sýn- ingunni. Íslandsvinurinn Massimo Sani Í samtali mínu við Massimo Sani sagði hann mér að hann hefði haft áhuga á að læra jarðfræði eftir stúdentspróf árið 1972 en á þeim tíma og allt fram til ársins 1990 voru fá atvinnutækifæri fyrir jarð- fræðinga á Ítalíu og valdi hann þá að fara frekar í lögfræði. En Ísland var eitt af þeim löndum sem heill- uðu hann líka jarðfræðilega séð. Árið 1972 fór hann inn á tvær ferðaskrifstofur í Flórens til að fá upplýsingar um ferðir til Íslands en enginn starfsmaður vissi neitt um Ísland en sögðust geta látið hann fá bæklinga um Írland! Árið 1977 hafði Sani áhuga á að fara til Ís- lands með vinum sínum og þá hafði eitthvað rofað til með upplýsingar um Ísland en verðið var mjög hátt á Íslandsferðum og má til saman- burðar geta þess að ein vika á Ís- landi kostaði jafn mikið og að dvelj- ast einn mánuð í Bandaríkjunum. Þetta var því of dýr draumur fyrir háskólastúdenta. Það var því ekki fyrr en sumarið 1995 sem Massimo Sani fór til Íslands í viku og sá hann aldrei sólargeisla en litir nátt- úrunnar heilluðu hann samt sem áður og á sýningunni eru 12 mál- verk eftir hann af íslenskri náttúru en Sani er frístundamálari. Fyrsta opinbera heimsóknin til Flórens síðan árið 1175 Menningarleg samskipti Íslands og Flórens hafa ekki verið mikil. 31. mars 2007 kom Guðni Bragason í opinbera heimsókn í Ráðhús Flór- ensborgar og tók þar á móti honum borgarfulltrúinn Eugenio Giani en hann sér um alþjóðleg samskipti fyrir Flórensborg. Einnig hitti Guðni Paolo Bartolozzi, varaforseta Toskanahéraðs, og Giovanna Fol- onari, fulltrúa Flórenssýslu. Árið 1175 kom Gizur Hallsson biskup til Flórens til að hitta borgaryfirvöld. Íslandssýning í Flórens Opnun Guðni Bragason og Tiziand Lepri við opnun sýningarinnar. 116. ÞING Alþjóðaþingmannasam- bandsins (IPU) fer fram í Indónesíu dagana 29. apríl–4. maí. Fundinn sækja alþingismennirnir Hjálmar Árnason, varaformaður Íslands- deildar IPU, sem er formaður sendi- nefndarinnar, Jón Gunnarsson og Drífa Hjartardóttir. Helstu mál þingsins verða friðsamleg sambúð ólíkra trúarbragða, atvinnusköpun og atvinnuöryggi í hnattvæddum heimi, að stuðla að fjölbreytni og jafnrétti með sameiginlegum lýð- ræðis- og kosningastöðlum. Sækja þing í Indónesíu FORSVARSMENN Atlantsolíu telja að gömlu olíufélögin séu að gera atlögu að fyrirtækinu með því að lækka verð næst bensínstöðvum fyrirtækisins á meðan landsbyggðin sé látin greiða hærra verð. Forráða- menn Atlantsolíu hafa falið lögmönn- um sínum að skoða réttarstöðu sína vegna þeirrar stöðu sem fyrirtækið hefur búið við undanfarið, að því er segir í tilkynningu frá fyrirtækinu. Þar segir að neytendur á lands- byggðinni greiði um 5–7 kr. hærra verð í sjálfsafgreiðslu en þar sem stöðvar Atlantsolíu eru. Skoða réttarstöðu sína Forsvarsmenn fyrirtækisins segja að þetta sé raunin t.d. á stöðum eins og í Vestmannaeyjum, á Hvamms- tanga, Sauðárkróki, Húsavík, Seyðisfirði, í Borgarnesi, á Eskifirði og Hvolsvelli. „Augljóst er að af- slættir ríkja í flestum tilvikum að- eins þar sem samkeppni fyrirtækis- ins nýtur við, annars staðar ekki. Hátterni gömlu olíufélaganna, sem augljóslega er beint gegn Atlantsolíu, skaðar samkeppni því beitt er hærri álagningu þar sem fyr- irtækið hefur ekki stöðvar. Eins og dæmin hafa sýnt leiðir þetta til verri niðurstöðu fyrir neytendur fái sam- keppnin ekki að njóta sín. Forráðamenn Atlantsolíu hafa fal- ið lögmönnum sínum að skoða rétt- arstöðu sína vegna þeirrar stöðu sem fyrirtækið hefur búið við undanfar- ið,“ segir í tilkynningu frá Atlants- olíu. Segja olíuverð við stöðvar Atlantsolíu óeðlilega lágt

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.