Morgunblaðið - 02.05.2007, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. MAÍ 2007 13
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
Stórar dælur - Litlar dælur
Góðar dælur - Öruggar dælur
Úrval af dælum
Skútuvogi 6 • 104 Reykjavík • Sími 510 4100 • www.danfoss.isDanfoss hf
www.utflutningsrad.is
Yury Korolev, viðskiptafulltrúi í sendiráði
Íslands í Moskvu, verður með viðtalstíma
hjá Útflutningsráði dagana 7.-8. maí nk.
Viðtölin eru einkum ætluð fyrirtækjum sem óska eftir aðstoð
sendiráðsins í markaðsstarfi sínu í umdæmislöndum þess
sem eru auk Rússlands: Armenía, Aserbaídsjan, Georgía,
Hvíta-Rússland, Kasakstan, Kirgisía, Moldóva, Tadsjikistan,
Túrkmenistan og Úsbekistan.
Viðtölin fara fram á skrifstofu Útflutningsráðs, Borgartúni 35, Reykjavík.
Áhugasamir eru hvattir til að bóka fundi sem fyrst í síma 511 4000
eða með tölvupósti á utflutningsrad@utflutningsrad.is.
Nánari upplýsingar veitir Svanhvít Aðalsteinsdóttir:
svanhvit@utflutningsrad.is
P
IP
A
R
S
ÍA
70846
Viðtalstímar
hjá viðskiptafulltrúa
í Moskvu
ÞETTA HELST ...
● VEGNA alþjóðlegs baráttudags
verkalýðsins 1. maí voru margar
kauphallir heims lokaðar í gær og
því frá litlum verðbréfaviðskiptum að
segja, a.m.k. ekki af kauphöllinni hér
á landi. Þó var opið fyrir viðskipti
m.a. í Bandaríkjunum.
Lokað vegna 1. maí
● KAUPÞING
banki hefur
hækkað vexti
verðtryggðra inn-
og útlána frá 1.
maí. Vextir á verð-
tryggðum inn-
lánum hækka um
allt að 0,50 pró-
sentustig. Þannig
hækka vextir á verðtryggðum Bú-
stólpareikningi úr 6,0% í 6,50%.
Vextir á Framtíðarreikningi og Lífeyr-
isbók hækka úr 6,25% í 6,60%. Auk
þess hækka breytilegir kjörvextir
verðtryggðra skuldabréfalána um
0,50 prósentustig, úr 7,50% í 8%.
Í tilkynningu frá Kaupþingi segir að
hækkun á verðtryggðum vöxtum sé
gerð í ljósi þess að raunstýrivextir
Seðlabankans, miðað við verðbólgu
undanfarinna mánaða, hafi hækkað
mikið. Megi þar nefna að nafn-
stýrivextir Seðlabanka séu 14,25%
en síðustu 12 mánuði hafi verðbólg-
an verið um 5,3%.
Vextir á íbúðalánum Kaupþings
breytast ekki og eru eftir sem áður
4,95%.
Kaupþing hækkar
vexti inn- og útlána
● ACTAVIS í Þýskalandi hefur und-
irritað samning til eins árs við sam-
band sjúkrasamlaga í Þýskalandi en
skjólstæðingar sambandsins eru um
8,7 milljónir Þjóðverja. Í samn-
ingnum mæla aðilar að sambandinu
með því að þarlendir læknar ávísi
þeim 42 lyfjum sem samkomulagið
nær til, í þeim tilgangi að lækka
kostnað í þýska heilbrigðiskerfinu,
segir í tilkynningu frá Actavis.
Sigurður Óli Ólafsson, aðstoð-
arforstjóri Actavis, segir að samning-
urinn sé góð viðurkenning fyrir starf-
semi félagsins í Þýskalandi.
Ánægjulegt sé að Actavis sé eina fé-
lagið sem sambandið ákveði að
semja við vegna umræddra lyfja.
„Við höfum hingað til ekki selt mik-
ið til þessara aðila og væntum þess
að sala lyfjanna geti verið ágæt við-
bót við sölu okkar á markaðnum,“
segir Sigurður Óli.
Actavis semur við
þýsk sjúkrasamlög
staka athygli á því að samkvæmt til-
kynningu FL Group og Jötuns
Holding hafi félögin gert með sér
hluthafasamkomulag, sem afmarki
það samstarf, sem þau hyggjast hafa
með sér um meðferð eignarhluta
þeirra. Einnig liggi fyrir að Glitnir
fari með 5,089% hlut í sjálfu sér.
Yfirtökuskylda gæti
hafa myndast í Glitni
Yfirtökunefnd vísar Glitniskaupum til Fjármálaeftirlitsins
Morgunblaðið/RAX
Yfirtökuskylda Að mati yfirtökunefndar er rík ástæða fyrir FME að
kanna hvort yfirtökuskylda hafi myndast meðal helstu hluthafa Glitnis.
Hér tekur Hannes Smárason í hönd Bjarna Ármannssonar á hluthafafundi
Glitnis á mánudag. Með þeim eru Einar Sveinsson og Björn Ingi Sveinsson.
YFIRTÖKUNEFND sendi Fjár-
málaeftirlitinu (FME) bréf skömmu
fyrir hluthafafund Glitnis á mánudag
þar sem tilkynnt var að nefndinni
hefði ekki borist næg gögn eða vitn-
eskja til að byggja á efnislegri af-
stöðu um hvort yfirtökuskylda hefði
myndast í kaupum nýrra hluthafa
meðal helstu eigenda Glitnis. Hefði
nefndin því ákveðið að láta málið nið-
ur falla af sinni hálfu en í bréfinu er
vísað til þess að FME sé með þessi
kaup til áframhaldandi skoðunar og
stjórnvaldsákvörðunar.
Í bréfinu segir að öflun gagna og
upplýsinga hafi reynst torveld og
tímafrek. Þau gögn sem nefndinni
hafi borist hafi verið afhent af hálfu
Kaupþings, sem hafði milligöngu um
viðskiptin. Hafði yfirtökunefnd að-
eins tekist að afla munnlegra upplýs-
inga frá einum af þremur stærstu
kaupendum hlutanna, þ.e. Sundi
Holding.
Yfirtökunefnd telur nauðsynlegt
að vekja athygli FME á hugsanlegri
yfirtökuskyldu í málinu. Í því sam-
bandi bendir nefndin á að kveikjan
að viðskiptunum með hlutina í Glitni
hafi verið krafa stærsta hluthafans,
FL Group, um aukin áhrif við stjórn-
un félagsins. Því sé rík ástæða til að
taka til skoðunar, hvort tilkoma
nýrra hluthafa tryggi FL Group,
sem þó hafi ekki aukið við hlut sinn í
viðskiptunum, þess konar yfirráð
sem fjallað sé um í lögum um verð-
bréfaviðskipti. Vekur nefndin sér-
ÍSLENSKIR áhrifavaldar svo-
nefndir bera mest traust til sænskra,
þýskra og kanadískra alþjóðafyrir-
tækja. Íslensk fyrirtæki lenda í
fjórða til fimmta sæti yfir þau fyr-
irtæki sem mesta traustsins njóta.
Þetta er meðal niðurstaðna nýrrar
rannsóknar Capacent Gallup og AP
almannatengsla á trausti íslenskra
„áhrifavalda“, en rannsóknin er sam-
bærileg alþjóðlegri könnun sem al-
mannatengslafyrirtækið Edelman
hefur framkvæmt síðustu átta ár.
Könnunin mælir viðhorf skil-
greindra áhrifavalda í þjóðfélaginu.
Um er að ræða háskólamenntað fólk
á aldrinum 35 til 64 ára sem fylgist
með fjölmiðlum og hefur heildar-
tekjur yfir 400 þúsund krónum á
mánuði.
Niðurstöðurnar verða kynntar í
heild sinni á málþingi í Salnum í
Kópavogi á morgun. Um 61% segjast
bera frekar eða mikið traust til al-
þjóðafyrirtækja með höfuðstöðvar á
Íslandi en mest traust er borið til
sænskra fyrirtækja (75%), þýskra
(74%) og kanadískra (66%). Japönsk
fyrirtæki deila svo fjórða til fimmta
sætinu með þeim íslensku.
Sænsk, þýsk og kanadísk fyrir-
tæki tróna einnig á toppi alþjóðlegu
rannsóknarinnar en aðstandendur
könnunarinnar telja athyglisvert að
Íslendingar beri minna traust til ís-
lenskra fyrirtækja heldur en fyrir-
tækja frá þessum þremur löndum.
Minnst traust bera íslenskir áhrifa-
valdar svo til rússneskra (1%), mexí-
kóskra (3%), brasilískra (4%) og
pólskra (7%) fyrirtækja.
Meira traust til
erlendra fyrirtækja
Ný rannsókn kynnt í Salnum á morgun
Morgunblaðið/ÞÖK
Traust Minna traust er borið til inn-
lendra en erlendra fyrirtækja hér.
FL Group hefur
sent frá sér yf-
irlýsingu þar
sem félagið lýsir
sig ósammála
þeirri niðurstöðu
Fjármálaeftir-
litsins (FME) að
myndast hafi
virkur eignar-
hlutur í Glitni og líta megi á FL
Group, Jötun Holding, Elliðaham-
ar, Elliðatind og Sund sem tengda
aðila samkvæmt ákvæðum laga um
fjármálafyrirtæki.
Lítur FME svo á að þessir aðilar
fari saman með 32,99% atkvæð-
isrétt í bankanum en samanlögð
hlutafjáreign þeirra er 44,99%.
Stjórnendur FL Group segjast
eiga eftir að kynna sér niðurstöðu
FME til hlítar og leggja á hana end-
anlegt mat.
Lítur FL Group svo á að ákvörð-
un FME hafi engin áhrif á rekstur
eða stjórnun Glitnis. Ákvörðunin
breyti heldur engu um það að FL
Group sé og verði áfram leiðandi
hluthafi í Glitni og muni styðja við
bakið á bankanum af fullum krafti.
FL Group muni leggja sig fram um
að ljúka þessu máli eins skjótt og
auðið sé með hagsmuni hluthafa,
viðskiptavina, starfsmanna og
markaðarins í heild að leiðarljósi.
Ósammála
niðurstöðu
FME
● VELTA á fasteignamarkaði í síðustu
viku nam 7,5 milljörðum króna og
jókst hún um 52% á milli vikna. Í Veg-
vísi Landsbankans er bent á að þetta
sé næstmesta velta sem mælst hafi
á einni viku, en hæst hafi hún numið
rúmum 8 milljörðum fyrir fimm vikum.
Í síðustu viku var 249 kaupsamn-
ingum þinglýst á höfuðborgarsvæð-
inu en það er töluvert meira en í með-
alviku. Það sem af er árinu hefur að
meðaltali 170 samningum verið þing-
lýst í hverri viku, segir í Vegvísi.
Áfram aukin velta á
fasteignamarkaði