Morgunblaðið - 02.05.2007, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 02.05.2007, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. MAÍ 2007 15 ERLENT Eftir Baldur Arnarson baldura@mbl.is HVÍTA húsið lak fregnum af afsögn Randalls Tobias seint út á eftirmið- degi föstudags í von um að þær færu framhjá blaðamönnum. Reynt að var að draga athyglina frá ástæðu af- sagnarinnar og tilkynningarnar voru fullar af lofi á Tobias. En það er illt að halda leyndarmál í höfuðborginni Washington og innan nokkurra klukkustunda varð press- unni ljóst að hér var á ferðinni hnýsi- legt mál, raunveruleg ástæða reynd- ist tengsl Tobias við fylgdarþjónustu í borginni. Birtist nafn Tobias, sem vann að baráttu gegn eyðni í utanrík- isráðuneytinu, í tengslum við 20 kílóa gestalista fylgdarþjónustu með síma- númerum viðskiptavina sem ku fylla hillumetra. Deborah Jeane Palfrey, eða „frú D.C.“ eins hún er uppnefnd, rak þjón- ustuna og telur sig fórnarlamb rann- sóknar skattayfirvalda sem hafi fryst bankainnstæður hennar. Til að snúa vörn í sókn lét hún ABC-sjónvarpsstöðina hafa nöfn 15.000 viðskiptavina sem gætu borið vitni um að hún hafi ekki staðið fyrir meintri ólöglegri vændisstarfsemi. Lét Tobias af störfum skömmu eftir frétt ABC á föstudag um að hann hefði keypt þjónustu af fyrirtækinu, Pamela Martin & Associates. Hyggst ABC-stöðin senda í loftið sérstakan þátt um málið. Stýran á brotaferil að baki Palfrey hótar nú að birta allan listann og má telja víst að sú hótun sé tekin alvarlega. Segir hún konur á hennar vegum hafa selt „kynóra“, hafi þær gert eitthvað umfram það sé það einkamál þeirra sjálfra. Palfrey á brotaferil að baki, hún sat 18 mánuði í fangelsi í Kaliforníu fyrir að reka vændishring 12 kvenna, hugðist því næst flytja inn listmuni frá Indlandi og Vesturlöndum til Bretlands en tók upp fyrri háttu. Fleiri höfuð gætu fokið verði list- inn gerður opinber og hefur ástandið í Írak og hneykslismálið í kringum Paul Wolfowitz, forstjóra Alþjóða- bankans, vikið úr huga margra á meðan hótunin liggur í loftinu. Gestalisti fylgdarþjónustu vekur ugg í Washington Reuters Í HNOTSKURN »Þjónustan hafði verið starf-rækt í 13 ár þegar skatta- yfirvöld hófu rannsóknina. »Tengsl við kynlífshneyksli erum margt pólitískur dauða- dómur vestanhafs. »Palfrey lofar að nöfn háttsettra aðila í stjórnkerfinu sé að finna á listanum fræga. EITAN Cabel, ráðherra í stjórn Ehuds Olmerts, forsætisráðherra Ísraels, sagði af sér embætti í gær. Cabel, sem gegndi ráðherrastöðu án ráðuneytis, sagði á blaðamanna- fundi að Olmert bæri að segja af sér vegna skýrslu sem birt var á mánudag, en þar var komist að þeirri niðurstöðu að stjórn- in hefði gerst sek um alvarleg mistök í átökunum við skæruliða Hizbollah- hreyfingarinnar í Líbanon síðasta sumar. „Ég get ekki setið í ríkisstjórn sem er undir stjórn Ehuds Olmerts,“ sagði Cabel, sem bætti við að leiðtog- inn hefði glatað trausti kjósenda. Skoðanakönnun ísraelskrar út- varpsstöðvar rennir stoðum undir þá tilgátu, 69 prósent telja að Olmert eigi að hætta og 74 prósent að varnar- málaráðherranum Amir Peretz beri að víkja úr embætti sínu. Ef marka má aðra könnun er traustið á leiðtoga stjórnarinnar í sögulegu lágmarki, þar sögðust tvö prósent bera traust til Olmerts. Flokkssystir bætist í hópinn Gen Halutz, yfirmaður ísraelska hersins, sagði af sér embætti í janúar vegna harðrar gagnrýni á framgöngu hersins í Suður-Líbanon og hafa þeir Peretz og Olmert verið undir þrýst- ingi um að gera slíkt hið sama. Þá hermdu ísraelskir fjölmiðlar að þingkonan Marina Solodkin hefði fyrst flokkssystkina Olmerts í Kad- ima-flokknum farið fram á afsögn for- sætisráðherrans í gær. Niðurstaða skýrslunnar væri það alvarleg. Sjálfur segir Olmert að það mundi vera „rangt“ af sér að víkja og ætti ekki að afskrifa hann enn um sinn, þótt hneykslismál og brigsl um van- hæfi þyki hafa tekið toll af ráðherran- um. Átökin í S-Líbanon síðasta sumar vöruðu í 34 daga. Um 1.200 Líbanar týndu lífi og yfir 160 Ísraelar, flestir hermenn, biðu bana í átökunum. Segir sig úr ríkisstjórn Olmerts Ráðherra skorar á leiðtogann að víkja Eitan Cabel BRESKIR fjölmiðlar minnast þess nú að tíu ár eru liðin frá því að Tony Blair varð forsætisráðherra landsins eftir stórsigur Verka- mannaflokksins í þingkosning- unum 1997. Alls hafði flokkurinn 179 sæta meiri- hluta í fulltrúa- deildinni og varð Blair yngsti for- sætisráðherra Bretlands síðan 1812, eða 43 ára. Meðal þess sem hæst hefur borið á valdaferli Blairs eru friðarsamn- ingarnir á Norður-Írlandi árið 1998, þátttaka Breta í loftárásum Atlantshafsbandalagsins, NATO, gegn Serbum í Kosovo árið 1999, stuðningur við hernaðaraðgerðir Bandaríkjahers og NATO gegn tal- ibönum í Afganistan í kjölfar hryðjuverkaárásanna á Bandaríkin 11. september 2001 og málflutn- ingur fyrir því að ráðist yrði inn í Írak í marsmánuði 2003. Um ein milljón manna mótmælti fyrirhugaðri innrás í London í fjöl- mennustu mótmælunum í sögu landsins og munu eftirmálar þeirr- ar ákvörðunar án efa bera hæst þegar síðar verður litið yfir for- sætisráðherratíð Blairs. Könnun blaðsins Independent rennir stoð- um undir þessa ályktun, 69% sögðu Íraksstríðið myndi standa upp úr á ferli forsætisráðherrans. Um 61% sagði hann hafa verið góðan for- sætisráðherra, 36% slæmur. Hneykslið í kringum lánamálið, ásakanir um veitingu lávarðatigna gegn greiðslu í kosningasjóði, hafa sett blett á ímynd mannsins, sem eitt sinn var uppnefndur „Teflon Tony“ sökum þess að ekkert gruggugt virtist festast við hann. Einnig verður harðvítugum árás- um eigin flokksmanna Blairs hald- ið til haga þegar styrkur hans sem leiðtoga verður gerður upp í sögu- bókunum en óumdeilt er að hann er mikill ræðumaður og skörungur og vígfimur í pólitískum skylm- ingum. Voru raddir úr þeim röðum um að hann ætti að víkja úr formanns- sæti flokksins einkar háværar eftir stuðning hans við loftárásir Ísraela í Suður-Líbanon síðasta sumar, óánægjuraddir sem voru um margt endurómur af andstöðu flokks- manna við Íraksstríðið. London orðin fjármálamiðstöð Hagvöxtur hefur verið góður í valdatíð Blairs og London orðið að alþjóðlegri fjármálamiðstöð – borgaryfirvöld standa nú í ströngu við undirbúning Ólympíuleikanna þar 2012 en deilur um kostnað hafa nokkuð skyggt á framkvæmdina. Hægar umbætur á mennta- og heilbrigðiskerfinu hafa hins vegar sætt gagnrýni og ef marka má orð Blairs eru nú aðeins nokkrar vikur þar til fjármálaráðherrann Gordon Brown tekur við forsætisráðherra- embættinu. Mjög hefur dregið úr stuðningi við Blair-stjórnina og mælist Íhaldsflokkurinn með töluvert for- skot í hverri könnuninni á fætur annarri. Mun því fara í hönd at- hyglisverður slagur á milli Browns og Davids Camerons, leiðtoga íhaldsmanna, um hylli kjósenda fyrir næstu þingkosningar. Brown hefur átt við nokkurn ímyndarvanda að etja, þykir vel gefinn en að sama skapi ger- sneyddur persónutöfrum. Hafa því andstæðingar stjórnarinnar, t.a.m. dálkahöfundar The Daily Tele- graph, gert mikið úr vilja sumra flokkssystkina Browns að hann verði ekki sjálfskipaður leiðtogi flokksins. Áratugur frá stórsigri Verkamannaflokksins Tony Blair

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.