Morgunblaðið - 02.05.2007, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 02.05.2007, Blaðsíða 16
16 MIÐVIKUDAGUR 2. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ MENNING Woodex eðalolía, sérhönnuð fyrir skandinavískar veðuraðstæður. Woodex þekjandi viðarmálning. Gefur sterka málningarfilmu með vörn gegn vatni og sólarljósi. Woodex pallaolía. Flæðir vel inn í viðinn og gefur fallega áferð. Endist allt að tveimur árum lengur en venjulegar olíur. Teknos útimálning. Sílikonbundin og hönnuð til að þola mikla veðrun. Teknos þakmálning. Gefur sterka og varanlega filmu. Teknos innimálning. Mjúk í vinnslu. Lyktarlaus og þekur vel. Fæst í öllum gljástigum. 30 ára afmæli Woodex á Íslandi Meiri gæði Alltaf ódýrar i ÍSLANDS MÁLNING Skútuvogi 13 - Sími 517 1501 / Sætúni 4 - Sími 517 1500 DEILUR hafa nú sprottið upp í Pakistan í kjölfar þess að yfirvöld þar í landi bönn- uðu uppfærslu á leikriti leikfélags- ins Ajoka. Ástæðan er sú að í umræddu leikriti er fjallað um búrkur kvenna af óvirðingu, að því er yfirvöld segja, auk þess sem gert er „ófyrirgefanlegt grín“ að pakistanskri menningu. Leikhússtjórinn, Madeeha Gauh- ar, vísar þessum ásökunum alfarið á bug og segist bæði sár og reið yfir banninu. Guðlast Málið komst í hámæli þegar menntamálaráðherra landsins, Ghazi Gulab Jamal, vakti máls á leikritinu í þinginu og sagði það óvið- unandi að gert væri grín að jafn rót- grónum hlut í sögu landsins og trú- arinnar og búrkum kvenna. Í sama streng tekur Syed Shoaib Hasan hjá BBC í Karachi. Hún segir umrætt leikrit vera skopstælingu á búrkunni og því sem hún stendur fyrir. Guðlast er meðal þess sem nefnt hefur verið í þessu samhengi, en afar hörð viðurlög eru við guðlasti gegn íslam eða spámanninum Múhameð í Pakistan. Dauðadómur er þyngsta refsing við broti af því tagi. Gauhar segist hafa búist við við- brögðum frá heittrúuðum í landinu en ekki að stjórnvöld blönduðu sér í málið með þessum hætti. Deilt um búrkuna Yfirvöld í Pakistan hafa bannað umdeilt leikrit Kona í búrku. FIÐLULEIKARINN Sólrún Gunnarsdóttir heldur burtfar- artónleika í Salnum í Kópavogi í kvöld. Sólrún lýkur burtfar- arprófi í fiðluleik frá Tónlistar- skólanum í Reykjavík í vor og eru tónleikarnir liður í því. Auk Sólrúnar koma fram á tónleikunum Raúl Jiménez, pí- anóleikari, Júlía Traustadóttir, sópransöngkona, Sigrún Harð- ardóttir, fiðluleikari og Strengjasveit Tónlistarskólans í Reykjavík undir stjórn Gunnsteins Ólafssonar. Tónleikarnir hefjast klukkan 20 í kvöld og er aðgangur ókeypis. Tónleikar Burtfararpróf í fiðluleik Sólrún Gunnarsdóttir FJÖLBREYTT dagskrá Lista án landamæra heldur áfram og í kvöld er komið að ljóðalestri. Nokkur ljóðskáld lesa upp úr ljóðum sínum á Hressó í kvöld, meðal þeirra þau Kristian Guttesen, Ragn- heiður Sigurlaug Spence, Hildur Lilliendahl, Kolbrún Dögg Kristjánsdóttir, Skúli Steinar, Magnús Korntop og Hörður Gunnarsson. Meðal þeirra sem lásu upp ljóð á viðburðinum í fyrra var Ásdís Jenna Ást- ráðsdóttir. Upplesturinn hefst klukkan 20.30. Nánri upplýsingar á vefsíðunni www.list- anlandamaera.blog.is. Ljóð Ljóð án landamæra á Hressó Ásdís Jenna LISTAHÁTÍÐ í Reykjavík og RÚV hafa gert með sér samn- ing um upptökur á Listahátíð 2007. Um er í raun að ræða end- urnýjun á samningi en sam- komulag Listahátíðar við út- varp og Sjónvarp er nú 37 ára gamalt. Tólf tónleikar verða teknir upp að þessu sinni, sumir þeirra verða sendir beint út á Rás 1 eða 2. Annað verður tekið upp og útvarpað síðar. Þá verður gerður sjónvarpsþáttur frá sýningu Vatnsdansmeyjaflokksins í varðskipinu Óðni. List Listahátíð og RÚV semja Eftir Árna Matthíasson arnim@mbl.is NÚ STENDUR yfir seinni Beethoven/Brahms-vika Sinfón- íuhljómsveitar Íslands á þessu tón- leikaári, en fyrri vikan var í októ- ber síðastliðnum. Þá fengu áheyrendur að heyra píanókonserta nr. 1, 2 og 3 eftir Beethoven og þriðju og fjórðu sin- fóníu Brahms, en að þessu sinni verða í boði 4. og 5. píanókonsert Beethovens, báðir tileinkaðri Rú- dolf erkihertoga, og 1. og 2. sin- fónía Brahms - talið upp í píanó- konsertunum, frá einum uppí fimm, en niður í sinfóníunum. Flytjendur eru ekki af verri end- anum að þessu sinni, frekar en var í október, því einleikarar á fyrri tón- leikunum, í kvöld, verður brasilíski pínaóleikarinn Christina Ortiz og á þeim næstu, á föstudagskvöld, verður John Lill. Þó þau John Lill og Cristina Ortiz séu bæði heimsþekktir píanó- virtúósar eru þau um ólíkir lista- menn. Lill, sem er nokkuð eldri en Ortiz, er þekktastur fyrir túlkun sína á Beethoven og fleiri höf- uðsmiðum klassískrar tónlistar, til að mynda Tsjaíkovskíj og Brahms, en Ortiz er meðal annars þekkt fyr- ir flutning á Villa-Lobos og öðrum brasilískum tónsmiðum, þó hún sé fræg fyrir flutning á Beethoven og Mozart. Einleikarinn Christina Ortiz Á tónleikunum í kvöld flytur sin- fóníuhljómsveitin píanókonsert nr. 4 eftir Ludwig van Beethoven og Sinfóníu nr. 2 eftir Johannes Brahms. Einleikari í kvöld er Christina Ortiz, en Rumon Gamba stýrir hljómsveitinni. Christina Ortiz sló rækilega í gegn er hún sigraði í þriðju Van Cliburn píanó- keppninni, fyrst kvenna til að vinna það afrek og fram á síðstu ár eina konan sem sigrað hafði í þeirri keppni. Frá þeim tíma hefur hún leikið víða um heim sem einleikari í stærri verkum með mörgum helstu sinfóníuhljómsveitum heims, en Ortiz hefur einnig fengist talsvert við kammermúsík. Hún hefur einnig leikið inn á fjöl- margar plötur fyrir ýmsar útgáfur, til að mynda fyrir BIS-útgáfuna sænsku sem er Íslendingum að góðu kunn, en einnig fyrir Philips, Polygram, Carlton, Decca, Collins og Capitol. Tónlistin sem hún hefur leikið inn á band er mjög fjölbreytt, verk eftir Beethoven, Tsjaíkovskíj, Mendelssohn, Heitor Villa-Lobos, Waxman, Klöru Schumann, Brahms, Rakhmanínov, Mozart, Stenhammar og frösku impressjón- istana; Emmanuel Chabrier, Claude Debussy, Gabriel Faure, Jacques Ibert og Darius Milhaud. Framundan er ný upptökulota hennar hjá Bis. Á seinni árum hefur hún snúið sér æ meira að hljómsveitastjórn við píanóið og þannig stýrðri hún sjálf hljómsveitinni og lék einleik í pínaókonsertum Mozarts sem hún tók upp með London Consort hljómsveitinni. Ortiz þykir með af- brigðum fimur píanóleikari og að sama skapi tilfinningarríkur túlk- andi. Einleikarinn John Lill Næstu Beethoven/Brahms- tónleikar verða síðan næstkomandi föstudag, en þá er á dagskrá 5. pínaókonsert Beethovens, keis- arakonsertinn, síðasti píanókonsert- inn sem hann lauk við, og 1. sin- fónía Brahms. Einleikari verður John Lill, eins og getið er, og Rumon Gamba hljómsveitarstjóri. John Lill var aðeins níu ára gamall þegar hann hélt sína fyrstu píanó- tónleika og átján ára gamall lék hann þriðja pínaókonsert Rakhmaninovs undir stjórn Adrians Boults og debútteraði í Lundúnum með keisarakonsert Beethovens. 1970 sigraði hann síðan í alþjóðlegu Tsjaíkovskíj keppninni í Moskvu og næstu árum eftir það eyddi hann á ferð og flugi við tónleikahald með mörgum helstu sinfónuhljóm- sveitum heims. Bráðungur lék hann þannig með heimsþekktum stjórn- endum eins og John Barbirolli, Eugene Jochum og Seiji Ozawa svo dæmi séu tekin, en alls hefur hann haldið tónleika í á fimmta tug landa. Eins og getið er hefur Lill helst getið sér orð fyrir flutning á Beethoven, en hann leikur einnig títt verk annarra tónskálda og er með á tónleikadagskrá sinni ríflega sjötíu píanókonserta ýmissa höf- unda. Hann hefur einnig leikið inn á fjölmargar plötur fyrir Deutsche Grammophon, EMI, ASV, Chandos og Nimbus, svo dæmi séu tekin. Hann er þekktur fyrir yfirburða tækni en einnig næman skilning á verkunum sem hann hefur flutt. Seinni Beethoven/Brahms-vika Sinfóníuhljómsveitar Íslands í kvöld Heimsþekktir píanóvirtúósar Cristina Ortiz Meðal annars þekkt fyrir flutning á Villa-Lobos og öðrum brasilískum tónsmiðum. Morgunblaðið/Golli John Lill

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.