Morgunblaðið - 02.05.2007, Side 19
|miðvikudagur|2. 5. 2007| mbl.is
daglegtlíf
Þegar árin færast yfir breytist
viðbragðsflýtir flestra. Þá er
gott að huga að atriðum sem
draga úr slysahættu. »22
heilsa
Það nær enginn að lesa allt
námsefnið á einum degi og
borgar sig að leggja áherslu á
aðalatriðin í prófvikunni. »20
menntun
Ilmvötn sveipa konur oft ljóma, og reyndar karl-menn líka, ef lyktin fer manneskjunni vel. Enúr hverju eru þessir stundum heillandi ilmirbúnir til og hver er munurinn á tegundum ilm-
vatna? Ilmvatn er nefnilega ekki það sama og ilmvatn,
eða réttara sagt Perfume extract er ekki það sama og
Eau de parfum sem er ekki það sama og Eau de toi-
lette. Ilmvötn eru flóknar efnablöndur samansettar úr
allt að hundruðum mismunandi efnasambanda. Aðal-
efni ilmvatnsins er ilmefnið eða ilmolían sem síðan er
blönduð etanóli, hvers styrkur er oftast um 95%. Ilm-
efnin geta verið úr jurtaríkinu eins og úr blómum,
trjám eða kryddjurtum eða úr dýraríkinu eins og
moskus, sem er sterkt ilmefni, unnið úr litlum kirtli
undir húð moskusdýra. Ilmvötn eru flokkuð eftir því
hve styrkleiki ilmolíunnar í þeim er mikill.
Perfume extract: 20–40% ilmolía
Eau de parfum:10–30% ilmolía
Eau de toilette: 5–20% ilmolía
Eau de cologne:2–5% ilmolía
Eftir því sem styrkur ilmolíunnar er meiri, því þétt-
ari er ilmurinn og jafnvel þyngri en ilmurinn endist
jafnan lengur. Þau ilmvötn sem hafa lægra hlutfall af
ilmolíu eru oftast
léttari. Þetta eru þó
aðeins viðmið-
unarreglur og ekki
algildar.
Tónar ilmvatnsins
Ilmvatnsframleið-
endur lýsa ilmum nú-
tímans eins og hálf-
gerðu tónlistarverki.
Í myndlíkingunni
sameinast þrír tónar
í tónverkinu sem
með tímanum renna í eina heild, ilminn, en gegna,
hver og einn ákveðnum hlutverki í tímans rás. Upp-
hafstónninn, sá sem slær stefið, er gerður úr litlum,
léttum sameindum sem gufa fljótt upp. Upphafstónn-
inn er samt mjög mikilvægur, því hann er sá sem
neytandinn hefur fyrstu kynnin af. Áhrif hans eru því
mikil.
Næsti tónn, er tónninn í miðjunni. Hann er dýpri en
upphafstónninn og kemur strax í kjölfarið. Miðjutón-
inn er í raun og veru hjarta ilmvatnsins og veitir að-
gang að grunntóni ilmvatnsins. Ilmur hjartatónsins
getur varað frá tveimur mínútum og upp í klukku-
stund en þá afhjúpast grunntónn ilmvatnsins.
Grunntónninn er ásamt hjartatóninum hinn raun-
verulegi ilmur vatnsins. Í grunntóninum er dýpt og rík
festa. Stórar, þungar sameindirnar gufa hægt og ró-
lega upp af húðinni, en eftir situr ilmurinn, hinn ljóm-
andi, eini og sanni.
Leyndardómar
hinna vel lyktandi
Kvenleg Í hjarta ilmvatnsins
Miss Dior Cherie frá Dior eru
ilmur af fresíum og jarðaberj-
um en í grunninn slær blómið
Patchouli tóninn.
Morgunblaðið/Ásdís
Vorilmur Jean-Paul Gaultier
kemur nú loks með nýtt ilmvatn
fyrir karlmenn, Fleur du Male, en
að á rætur sínar að rekja til hins
vinsæla Le Male sem kom á mark-
að árið 1994. Nýja ilmvatnið ber
með sér áru vorsins, mjúka og
viðarkennda appelsínuangan.
Vatnaliljur Ĺeau
d́issey frá Issey
Miyake er sígilt ilm-
vatn, með skörpum
en ferskum ilmi
nokkurra vatna-
blóma, þar á meðal
lilja, ásamt daufri
nellikuangan.
Rósaangan Blóm eru vinsæl
ilmefni í ilmvötnum.
Sumargleði Í
upphafstóni ilm-
vatnsins Sunset
Heat fyrir karl-
menn er stjörnuá-
vöxturinn
ríkjandi og lím-
ónuilmurinn en
grunntónninum
er m.a. ilmefni úr
rekaviði frá Costa
Rica og moskus.
Blómailmur Upphafs-
tónn Pure White Linen
frá Estée Lauder ber
keim af ávöxtum og
blómum, hjartað er
hlaðið blómum en ilm-
urinn af hvítum, sedr-
usvið og blómanna
Patchouli og Heliotrop-
ine mynda grunninn.
Sólarhiti Það er
sítrus ávaxtakeim-
ur af upphafsstefi
Sunset Heat frá Es-
cada en grunntónn-
inn er moskus,
sandelvið og am-
berkristöllum, sem
er trjákvoða.
Karlmannleg Í hjarta sumarilmsins
frá Gucci fyrir karlmenn, Pour
Homme II, eru svört telauf og kan-
elbörkur en grunntóninn ilmar af
tóbakslaufum, moskus og myrru.
uhj@mbl.is
© Gareth Brown/Corbis