Morgunblaðið - 02.05.2007, Page 23

Morgunblaðið - 02.05.2007, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. MAÍ 2007 23 -hágæðaheimilistæki Ef þú kaupir Miele þvottavél eða þurrkara færðu kaupverðið endurgreitt með betri meðferð á þvottinum Íslenskt stjórnborð Ný og betri tromla Verð frá kr.114.800 Hreinn sparnaður vi lb or ga @ ce nt ru m .is 1. verðlaun í Þýskalandi W2241WPS Baldursnes 6, Akureyri | Suðurlandsbraut 20, Reykjavík Sími 588 0200 | www.eirvik.is Þurrkari T223 Verð frá kr. 78.540 skilið hvað vakir fyrir fólki sem gerir svona. Er hér á ferðinni öf- ugsnúin hneigð til að setja mark á umhverfi sitt? Víkverji getur fullvissað viðkomandi um að það eru til aðr- ar leiðir og jákvæðari til að gera það. Á þetta að heita gjörn- ingur eða einhvers konar innsetning? Það eru til betri leiðir til að fá útrás fyrir list- hneigðina. Er viðkom- andi kominn í bann hjá Sorpu? Fær hann ekki að nota ruslatunnuna heima hjá sér? Kannski höfundur verksins sé tilbúinn að skýra mál sitt. x x x Umhverfissóðana er víðar aðfinna en við Rauðavatn. Vík- verji sér til dæmis ökumenn iðulega henda sígarettustubbum út um bíl- glugga með tilheyrandi neistaflugi þegar stubburinn lendir á malbik- inu. Þetta er einkar aðlaðandi sýn. x x x Þá er ærið verkefni fyrir hreins-unardeild borgarinnar um hverja helgi að hreinsa upp dreggj- ar næturlífsins – sígarettustubba, dósir og flöskur, oft mölbrotnar. Umgengni fólks við umhverfi sitt getur sannarlega verið heillandi. Víkverji hafði sigloks í það að reima á sig hlaupa- skóna og skokka í kringum Rauðavatn eftir að hafa horft yfir vatnið og hugsað um að gera það í tæpt ár. Um fjórðung leið- arinnar er hægt að hlaupa eftir göngustíg en síðan tekur við reiðstígur og síðasta spottann er akvegur ef hlaupið er rangsæl- is í kringum vatnið. x x x Það er fallegt aðhlaupa meðfram bökkum Rauðavatns og ólíkt fjölbreytilegra en að vera á hlaupabretti þar sem maður stendur bara í stað þrátt fyrir púlið. x x x Á einum stað vék þó fegurðinfyrir sóðaskap. Þar hafði eitt- hvert snyrtimennið ákveðið að búa til sinn einkasorphaug. x x x Víkverji hefur ekkert á mótieinkavæðingu, en þetta fannst honum of langt gengið. Þarna lá haugur af drasli og hafði sá, sem þarna hafði ákveðið að losa sig við úrgang, greinilega haft nokkuð fyr- ir því að koma honum þangað. Vík- verji getur ekki með nokkru móti         víkverji skrifar | vikverji@mbl.is Eftir Þuríði Magnúsínu Björnsdóttur thuridur@mbl.is Það þarf átak til að hætta að reykja.Þorsteinn Blöndal, yfirlæknirHeilsugæslunnar á höfuðborgar-svæðinu, hefur sérhæft sig í að að- stoða fólk við að hætta að reykja og hann segir lyfjagjöf nauðsynlega í glímunni við sjúkdóminn nikótínfíkn. Champix (vareniclin) er nýtt lyfseðlisskylt lyf fyrir fólk sem vill hætta að reykja en það var sett á markað í byrjun árs hér á landi. Lyfið er það fyrsta sem er þróað sérstaklega til að hjálpa fólki við að hætta reykingum og það inniheldur ekki nikótín sem viðheldur fíkninni. Hins vegar virkar það á nikótínmót- taka í heila og blekkir þannig líkamann og með því móti er hægt að minnka magn nikó- tíns í líkamanum smám saman. Lyfið hefur tvöfalda verkun, það minnkar löngun til að reykja og dregur úr fráhvarfseinkennum. Meðferðin tekur þrjá mánuði og hafa rann- sóknir sýnt fram á að eftir 12 vikna meðferð höfðu 44% verið reyklaus og að 52 vikum liðnum voru 23% þátttakenda reyklaus. Þetta er betri árangur en þekkist við önnur með- ferðarúrræði en almennt er talað um 3–10% árangur hjá þeim sem eru að hætta að reykja, þ.e. án lyfjameðferðar eða frekari stuðnings. Gegn brenglaðri dómgreind „Sjúkdómurinn er nikótínfíkn. Það er svo- lítið erfitt að nota orðið reykingar yfir sjúk- dóma því fólk lítur á það sem félagslegt fyr- irbæri,“ segir Þorsteinn Blöndal. „Nikótínfíkn brenglar dómgreindina þannig að þeir sem reykja setja reykingar í lífshættulegan for- gang. Það kemur fram í því að þrátt fyrir löngun fólks til að hætta að reykja, t.d. heils- unnar vegna, þá reykir það áfram sem er lífs- hættulegt vegna sjúkdómanna sem fylgja í kjölfarið.“ Þorsteinn segir umrætt lyf vera nýjung, nikótínlyf hafi komið fram fyrir 20 árum, búprópíon fyrir 10 árum og nú þetta. „Nýja lyfið virðist betra en fyrri lyf vegna þess að með því ná fleiri að halda langvarandi reyk- bindindi. Sömuleiðis virðast aukaverkanir vera vægari og ekki eins alvarlegar og af fyrri lyfjum.“ 28% finna til ógleði af champix sem er oftast væg. Í sömu tilrauninni var gerður samanburður á vareniklíni, búprópíoni og lyfleysu (hveiti- pillum). Þorsteini þykir fyrrgreindur árangur af lyfinu, 23% reyklaus á ári, góður í ljósi þess hve krafan um að halda reykbindindi í 365 daga sé hörð en 16% þeirra sem hafi not- að búprópíon hafi verið reyklaus og 9% þeirra sem fengu hveitipillur. Stuðningur hafi líka verið til staðar, s.s. samtöl, sem skýri árang- urinn af hveitipillunum. Hann undirstrikar að árangurinn byggist ekki eingöngu á lyfjum. Fyrir 20 árum reyktu 40% af fullorðnum Íslendingum en í dag reykja 20% þeirra og kveður Þorsteinn það mikla breytingu en þó eigi margir í miklum erfiðleikum með að hætta í dag, margir þeirra séu þunglyndir eða eigi áfengismeðferð að baki. Þorsteinn hélt lengi námskeið til að hætta reykja á Heilsuverndarstöð Reykjavíkur á lungna- og berklavarnadeild en hann og Tryggvi Ásmundsson byrjuðu aftur með nám- skeiðin um áramótin. „Reynslan virðist stað- festa að nýja lyfið er virkileg viðbót; meira en helmingur þátttakenda frá áramótum heldur samfelldu reykbindindi við tveggja mánaða eftirlit sem er mjög flott! Á námskeiðunum okkar notum við það þrennt sem vitað er að gefi árangur: Stuðn- ingur í hóp skilar 5–10% umfram engan stuðning, persónuleg viðtöl skila hinu sama og umrædd lyfjameðferð 10–20% umfram hveitipillur eða lyfleysu. Samtals er þetta 30% á ári sem er næstum einn af hverjum þremur og það er mjög gott. Ég held að það séu að koma nýir tímar í sambandi við með- ferð við nikótínfíkn,“ segir Þorsteinn að lok- um. Nýir tímar í með- ferð við nikótínfíkn Nikótínfíkn er sjúkdómur sem þarf að meðhöndla, segir Þorsteinn Blön- dal yfirlæknir. Nýtt lyf sem inniheldur ekki nikótín þykir gefa góða raun. Morgunblaðið/Ásdís Stuðningur Elsa Ásdís Sigurðardóttir, ein þátttakenda á námskeiði á lungna- og berkla- varnadeild, og Þorsteinn Blöndal læknir ásamt „nikótíndjöflinum“. Fréttir í tölvupósti

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.