Morgunblaðið - 02.05.2007, Side 29

Morgunblaðið - 02.05.2007, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. MAÍ 2007 29 ✝ KRISTÍN GUÐJÓNSDÓTTIR glerlistakona, andaðist að heimili sínu í Chapel Hill, Norður- Karólínu, laugardaginn 21. apríl. Minningarathöfn verður í Kópavogskirkju fimmtudaginn 3. maí kl. 15.00. Útförin verður á Þingeyri laugardaginn 5. maí. Davíð Aðalsteinsson, Steini, Vala og Atli, Bergþóra Ragnarsdóttir, Guðjón Jónsson, Gyða Helgadóttir, Aðalsteinn Davíðsson. ✝ Móðir okkar, tengdamóðir, amma, lang amma og langalang amma, GUÐBJÖRG VALDADÓTTIR frá Siglufirði, Heiðarbraut 3, Garði, lést á hjúkrunarheimilinu Garðvangi Garði föstu- daginn 27. apríl. Útför hennar fer fram frá Útskálakirkju föstudaginn 4. maí kl. 14.00. Heiðar Þorsteinsson, Ingibjörg Gísladóttir, Guðrún Þorsteinsdóttir, Jónas Jóhannsson, Jóhann Þorsteinsson, Helga Sigurbjörg Bjarnadóttir, Leó Þorsteinsson, Guðrún Alfreðsdóttir, Valbjörn Þorsteinsson, Jón Þorsteinsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi og langalangafi, HJÖRTUR LEÓ JÓNSSON, fv. hreppstjóri, Káragerði, Eyrarbakka, Gauksrima 30, Selfossi, lést á sjúkrahúsi Suðurlands þriðjudaginn 24. apríl. Jarðarförin fer fram frá Selfosskirkju föstudaginn 4. maí kl. 13:30. Sesselja Ásta Erlendsdóttir, Vigdís Hjartardóttir, Þórður Grétar Árnason, Hreinn Hjartarson, Hólmfríður Rannveig Hjartardóttir, Ólafur Sigfússon, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn. Skúli Þórðarson gegndi starfi for- manns Verkalýðs- félags Akraness í heil 15 ár eða á árunum 1966 til 1981. Auk þess gegndi hann margvíslegum trúnaðarstörfum fyrir félagið. Það er alveg ljóst að félagið eign- aðist sterkan forystumann þegar Skúli tók þar við formennsku og skilaði hann því starfi með miklum sóma. Við sem nú stjórnum Verka- lýðsfélagi Akraness verðum að halda hátt á lofti því fórnfúsa og óeigingjarna starfi sem frumkvöðl- arnir lögðu grunninn að. Það var afar ánægjulegt að sjá að Skúli hafði mjög mikinn áhuga á starfsemi félagsins þó svo hann væri hættur öllum trúnaðarstörfum fyrir það og sem dæmi þá kom hann Skúli Þórðarson ✝ Skúli Þórðarsonfæddist á Akra- nesi 14. september 1930. Hann lést á hjúkrunardeild Höfða á Akranesi 22. apríl síðastliðinn og var útför hans gerð frá Akra- neskirkju 30. apríl. margoft á skrifstof- una til að taka púlsinn á starfseminni og ávallt mætti Skúli á hátíðardagskrá fé- lagsins vegna 1. maí. Það sýndi okkur hversu háan sess Verkalýðsfélag Akra- ness skipaði í lífi hans. Í lok ávarps sem Skúli Þórðarson ritaði vegna 70 ára afmæl- isblaðs félagsins sagði hann orðrétt: „Megi Verkalýðsfélag Akraness ávallt njóta þess, að þeir er til forustu veljast, beri gæfu til að halda uppi merki frumherjanna og halda áfram að auka hlutdeild hins vinnandi manns í afrakstri þess, er þeir framleiða og vinna að. Ef þetta tekst mun starf þess blómgast.“ Stjórn félagsins hefur og mun hafa þessa ráðleggingu frá Skúla Þórð- arsyni að leiðarljósi í sínum störfum í náinni framtíð, félagsmönnum Verkalýðsfélags Akraness til heilla. Ég vil fyrir hönd stjórnar Verka- lýðsfélags Akraness þakka Skúla kærlega fyrir störf hans í þágu fé- lagsins og ljóst er að félagið væri ekki jafnöflugt í dag ef hans krafta hefði ekki notið við hér á árum áður. Einnig vil ég fyrir hönd stjórnar félagsins votta eftirlifandi ættingj- um samúð okkar í fullvissu um að minning um merkan verkalýðsfor- kólf muni halda áfram að lifa. Vilhjálmur Birgisson. Guð gefi mér æðruleysi til að sætta mig við það sem ég fæ ekki breytt, kjark til að breyta því sem ég get breytt og vit til að greina þar á milli. (Reinhold Niebuhr.) Skúli vinur minn Þórðarson var mikill félagsmálamaður, mannvinur og ekki síst baráttumaður og barð- ist hann einkum fyrir þá sem ein- hverra hluta vegna áttu undir högg að sækja, og þörfnuðust því hjálpar til að komast á beinu brautina að nýju. Hans verður að sjálfsögðu sér- staklega minnst vegna verkalýðs- baráttu sinnar á Akranesi en hún var hans aðalvettvangur, en ég vil minnast hann sérstaklega vegna baráttu hans fyrir SÁÁ (samtök áhugafólks um áfengis- og vímu- efnavandann), en hann var í farar- broddi hér á Akranesi á upphafs- árum þeirra mannræktarsamtaka á síðari hluta áttunda áratugarins. Hann heimsótti fjölda fólks og fyr- irtækja á Akranesi til að kynna samtökin og afla þeim stuðnings. Margir minnast Skúla frá þeim ár- um og baráttuanda hans sem aldrei brást. Skúli hafði sjálfur átt í miklum vanda, og hafði hann reynt ýmsar leiðir til að reyna að vinna bug á fíkn sinni, en án árangurs. Það urðu því tímamót í lífi Skúla þegar hann sótti meðferð hjá SÁÁ á árinu 1980, fyrst á Silungapolli og í framhaldi af því á Sogni. Skúli taldi þessa dvöl sína hjá SÁÁ hafa verið upphaf þeirrar far- sælu heillabrautar sem hann fetaði í framhaldi af því. Hann hóf að að- stoða aðra sem átt höfðu í svipuðum vanda og hann sjálfur, og reyndist hann mörgum haukur í horni, enda bjó hann að mikilli þekkingu vegna félagsstarfa sinna frá unga aldri, auk þeirrar reynslu sem hann aflaði sér í meðferðinni. Honum reyndist auðvelt að tileinka sér þau tvö meg- inatriði sem nauðsynleg eru fyrir bata, þ.e. að viðurkenna vanmátt sinn gegn áfengi og taka leiðsögn þeirra manna sem átt höfðu við sama vanda og hann og störfuðu hjá SÁÁ. Eins var honum æðruleysis- bænin ávallt mikilvæg. Félagar Skúla hjá SÁÁ þakka honum fyrir alla þá hjálp og sjálfboðavinnu sem hann lagði á sig um áratugaskeið. Liðsmenn SÁÁ um land allt eru margir, en þeir vinna verk sín að mestu í kyrrþey; reyndar er þetta mikilvæga net sjálfboðaliðanna hjálpartæki sem ekki má bresta. Þetta vissi Skúli, og því barðist hann með ráðum og dáð fyrir því að tilvist samtakanna yrði tryggð og stendur því samfélagið í mikilli þakkarskuld við Skúla og allt það starf sem hann hefur innt af hendi. Þegar Skúli var búinn að vinna bug á fíkn sinni, hóf hann að byggja sjálfan sig upp, en það var erfitt verk, sérstaklega vegna alvarlegs slyss sem hann hafði orðið fyrir nokkrum árum áður, en það slys hafði skert starfsgetu hans til muna. Auk þess að fylgja meðferð- inni eftir á þann hátt sem þeir ágætu menn hjá SÁÁ höfðu ráðlagt honum, þá hóf hann að byggja upp þrek sitt og styrkja líkamann. Hann sýndi eindæma dugnað við göngur og ekki síður við sundiðkun, en hann mætti daglega á hverjum morgni í sundlaugina, synti sína vegalengd, og naut hann auk þess félagsskapar allra þeirra sem á vegi hans urðu. Ég stend í mikilli þakkarskuld við vin minn Skúla; ég þakka honum fyrir samveruna á Pollinum forðum daga og einnig fyrir að hafa fengið að njóta nærveru hans og vináttu um langa hríð og allt til enda. Bless- uð sé minning hans. Ásmundur Ólafsson. Aðfaranótt föstu- dagsins 13. apríl var hinsta stund vinar míns og vinnufélaga Svavars Guðmundssonar. Fréttin af andláti hans kom eins og reiðarslag en var að einhverju leyti ekki óvænt. Svavar var kominn hátt á áttræðis- aldur og hafði lifað viðburðaríku og skemmtilegu lífi. Hann hafði glímt við veikindi síðustu misseri og var nokkuð af honum dregið. Fyrir syrgjendur er það huggun harmi gegn að ég hygg hann hafi kvatt saddur lífdaga, sáttur við guð og menn. Við Svavar vorum búnir að vera vinnufélagar hjá Vífilfelli hf. í 11 ár. Það var happafengur fyrir ungan mann að vingast við sómamanninn Svavar og vera samferða honum hluta af leiðinni. Það var lærdóms- ríkt að kynnast viðhorfi hans og reynslu. Aðalsmerki Svabba var létt- leiki og heilindi. Hann var einstak- lega traustur og umhyggjusamur vinur sem vílaði ekki fyrir sér að leggja hart að sér til að reynast sín- um vel. Svavar hallaði aldrei orði á nokkurn mann og vildi einlæglega öllum vel. Góðmennska hans var gegnheil og kærleiksþelið ósvikið. Svavar var dugnaðarforkur og með eindæmum samviskusamur. Svo mikill fengur var af félagsskap og framlagi Svabba að honum var hálfpartinn bannað að hætta störfum hjá Vífilfelli þegar hann hafði aldur til. Því var hann enn lykilmaður í lífi okkar samstarfsmanna hans þegar að kveðjustundinni kom. Skarðið sem hann skilur eftir sig er ekki hægt að fylla. Það getur enginn kom- ið í staðinn fyrir Svabba. Svavar lauk sínu dagsverki með miklum sóma. Af barna munni og brjóstmylkinga býrðu þér lof, stendur ritað. Svavari varð ekki barna auðið en unun var að sjá hvernig börn hændust að honum. Það segir meira en mörg orð um hvern mann hann hafði að geyma. Dýrmætasti sjóðurinn er sá sem geymdur er í hjartanu. Minningar af mönnum og atburðum sem ylja um hjartarætur og auðga andann. Það er sárt að kveðja sómamanninn Svavar en hann mundi ekki vilja að Svavar Guðmundsson ✝ Svavar Guð-mundsson fædd- ist í Odda á Sel- tjarnarnesi hinn 15. ágúst 1930. Hann lést á heimili sínu í Seljahlíð hinn 13. apríl síðastliðinn og var útför hans gerð frá Seltjarnar- neskirkju 30. apríl. vinir hans og velunn- arar legðust í sorg og sút. Hann hefur skilið eftir hjá okkur margar góðar minningar sem við getum ornað okkur við um ókomna tíð. Guð blessi minningu vinar míns og félaga. Þorsteinn M. Jónsson. Ég hrökk örlítið í kút við fyrstu sam- skipti okkar Svabba fyrir rúmum áratug, en fljótlega tók- ust með okkur góð kynni, sem ég er þakklátur fyrir að hafa notið. Röddin var rám og ytra byrðið hrjúft en und- ir því sló stórt hjarta og handtakið var hlýtt og þétt. Ég minnist með bros í huga þeirra stunda, þegar við hittumst við „eftirlitsferðir“ hans í verksmiðjunni og tókum létt spjall saman. Svabbi innti mig oftar en ekki eftir því hvernig tengdapabbi hefði það í baráttu sinni við Elli kerl- ingu og var sú spurning borin fram af raunverulegum áhuga og hlýhug. Örlögin haga því nú þannig, að báðir þessir heiðursmenn eru til moldar bornir sama dag. Sjálfsagt myndi eitt og annað úr lífsgöngu Svavars ekki eiga heima í leiðbeiningabækl- ingi frá Lýðheilsustöð og ekki rataði hýran alltaf beint inn á sparireikn- ing, en hefði annars verið frá nokkru merkilegu að segja og af óvenjulegri reynslu að miðla? Virðingu eiga skilið þeir vinir Svabba, sem gerðu honum kleift að eiga sitt ævikvöld með þeim hætti, sem raun bar vitni. Blessuð veri minning Svavars Guðmundssonar. Guðmundur Níelsson. Það var á sumardegi í kjallaraíbúð í Skjólunum sem ég hitti hann fyrst og hafði þá varla vitað af honum fram að því. Við fjölskyldan, ég, verðandi eiginkona og uppeldissonur, sátum í eldhúsinu um hádegisbilið að snæð- ingi og veðrið var svo gott að úti- dyrnar voru opnar upp á gátt. Svav- ar birtist fyrirvaralaust í eldhúsdyrunum upptendraður af bræði. Þarna stóð hann, bolmikill og stuttur til hnésins, svírinn jafngildur höfðinu og hann var rauðþrútinn í andliti, skipaði mér út rámri raust með hnefana á lofti. Ég lempaði hann út með góðu og það var þegar úr hon- um allur vindur. Svavar var mér nokkurskonar tengdafaðir árin þrettán sem ég var í hjúskap, honum fylgdi jarðsamband sem var tengdó ómissandi um hennar daga í fjötrum stórfjölskyldunnar. Hún lést á síð- asta ári; blessuð sé minning hennar. Og nú er hann látinn, þessi harð- jaxl sem svo vildi vera láta og við nánari kynni reyndist hafa mýkri og betri hlið. Hann var mér sífellt vandamál á hjúskaparárunum; ég á við flókin eignarréttarákvæðin sem hann ætlaði mér að hlíta og komin voru langt aftan úr forneskju, hann hafði gert tengdó að ambátt sinni út á þessi ákvæði og taldi sig líka hafa forræði yfir dótturinni, þótt ekki væri til annars, þá þess að ráða makavali hennar. Og blankur rithöf- undur var greinilega ekki ofarlega á listanum. Svavar var lífsnautnamað- ur sem lét sér duga konur og vín og vildi, held ég, umgangast hvort tveggja að hætti víkinga en átti svo í stríði við sinn innri mann sem þráði betri siði, og hann lærði seint eða aldrei, að víkingslyndið sem hann hafði kosið sér, gat af þessum sökum ekki orðið annað og meira en strákskapur. Hann var snyrtimenni sem starfaði mest við hreingerning- ar, lengst hjá Vífilfelli, og gegndi þar reyndar þegar fram leið trúnaðar- störfum, enda naut þjónslyndi þessa samsetta manns sín vel hjá því góða og gamalgróna fyrirtæki. Við náðum saman á tímabili, þegar hann hafði sannfærst um, að hann gæti ekki veifað mér í kringum sig eins og hann hafði ætlað og ég fyrir mitt leyti lært að horfast í augu við þann dæmalausa örlagavald sem hann var sínu nánasta venslafólki. Samhliða því að hann hélt við tengdó – fimmtíu ár – og það alltaf í felum fyrir foreldrum hennar og fjölskyldu – átti þessi maður, á þeim tíma sem ég þekkti hann, sambýliskonu sem hann kallaði engilinn sinn og reynd- ist svo vel, að hann hjúkraði henni til borðs og sængur eftir að hún var orðin farlama. Ég reyndi að finna út úr því hvort lífið hefði gert hann svona tvískiptan milli ills og góðs eða hvort hann væri beggja blands frá fyrstu tíð. Hann fór í útikompuna hjá okkur eftir að við eignuðumst íbúð við Vífilsgötu og skildi eftir kók handa krökkunum. Hann var útsláttarsamur þegar hann var drukkinn og stanslaust í reiðiham en bar með sér að þrá sam- tímis forræði manneskju, sem héldi honum á mottunni. Kannski höfðu foreldrarnir, annað eða bæði, þessi langtímaáhrif á hann, en um það veit ég ekkert. Bara það, að uppeldis- stöðvarnar voru Seltjarnarnesið. Þar fór hann um ásamt öðrum strákum með ærslum og lágu meðal annars á gluggunum hjá Jóhannesi Birkiland á þeim tíma þegar karl lok- aði sig inni í húsi sínu í einsemd og uppgjöf. Ég læt duga að ljúka þessum kveðjuorðum mínum með þeim sann- mælum, að varla hefur nokkur mað- ur á minni vegferð orðið mér jafn skelegg áskorun um að láta af hé- gómaskap, sem mér var innrættur með skáldskaparhneigðinni, og horf- ast í staðinn í augu við kynferði mitt, kosti þess og lesti. Þorsteinn Antonsson. andaðist á heimili sínu í Chapel Hill, Norður-Karólínu, laugardaginn 21. apríl. Útför hennar verður gerð frá Kópavogskirkju fi tudaginn 3. maí kl. 15. Jarðsett verður á Þingeyri laugardaginn 5. maí kl. 13.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.