Morgunblaðið - 02.05.2007, Page 34
34 MIÐVIKUDAGUR 2. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Atvinnuauglýsingar
Baader-maður
Vanur Baader-maður óskast á Snorra Sturluson
VE 28. Upplýsingar hjá skipstjóra í síma 852 2818
og 692 1478.
Tilboð/Útboð
Útboð á ræstingu
fyrir Öldrunar-
heimili Akureyrar
Akureyrarbær óskar eftir tilboðum í ræstingu fyrir
Öldrunarheimili Akureyrar. Verkstaðir eru tveir,
dvalar- og hjúkrunarheimilið Hlíð ásamt raðhúsum
og dvalarheimilið Kjarnalundur, heildarflatarmál til
ræstinga er um 8.200 m². Gert er ráð fyrir að
samningur um ræstingu verði til 3 ára með
möguleika á framlengingu um 2 ár.
Umsjónaraðili útboðsins er:
Hagþjónusta Akureyrarbæjar
Eggert Óskarsson, verkefnastjóri
Geislagötu 9, 600 Akureyri
Sími: 460-1000 Fax: 460-1001
Netfang: eggert@akureyri.is
Útboðsgögn verða seld á kr. 3.000 frá og með 3. maí
2007, kl. 09:00 í þjónustuanddyri Akureyrarbæjar,
Geislagötu 9, 600 Akureyri.
Tilboðum skal skila á sama stað eigi síðar en 22. maí
2007 kl. 11:00 og verða þau opnuð kl. 11:00 þann
sama dag í fundarsal 2. hæð Geislagötu 9 að
viðstöddum þeim bjóðendum, eða fulltrúum
þeirra, sem þess óska.
Verkefnastjóri hagþjónustu
Tilkynningar
BORGARTÚN 3 - 105 REYKJAVÍK - SÍMI 411 3000 - MYNDSENDIR 411 3090
Í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingarlaga
nr. 73/1997, með síðari breytingum, eru hér með
auglýstar tillögur að nýju deiliskipulagi og breytin-
gum á deiliskipulagsáætlunum í Reykjavík.
Nýlendureitur
Tillaga að deiliskipulagi á reit 1.115.3 sem afmarkast
af Vesturgötu, Seljavegi, nýrri legu Mýrargötu og
Ægisgötu/Geirsgötu.
Í tillögunni er gert ráð fyrir blandaðri byggð íbúða og
athafnastarfsemi og er meginmarkmið deiliskipulags-
ins að fullnýta uppbyggingarmöguleika á reitnum og
enn fremur að stuðla verndun byggðamynsturs með
því m.a. að gefa kost á að setja niður flutningshús á
nýjum lóðum og einnig að draga fram þá möguleika
sem gefast á hverri lóð fyrir sig til að auka verðmæti
þeirra bygginga sem fyrir eru á svæðinu. Stokkur
verður gerður milli Geirsgötu og Grandagarðs undir
nýja Mýrargötu sem tengir miðbæ við vesturhöfnina
og aðra hluta borgarinnar.
Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna.
Laugavegur 33-35 og Vatnsstígur 4.
Tillaga að breytingu á deiliskipulagi fyrir reit 1.172.1,
sem afmarkast af Laugavegi, Frakkastíg, Hverfisgötu
og Vatnsstíg vegna lóðanna að Laugavegi 33-35 og
Vatnsstígur 4.
Tillagan gerir ráð fyrir að öll efsta hæð fjögurra hæða
byggingar sé dregin inn um 2 metra og að byggja
alls 4260 m2. Nýtingarhlutfall verður 3.5. Í tillögu
er einnig gert ráð fyrir að byggja bílakjallara undir
verslunarrými og með þeim hætti auka nýtingu undir
verslanir/þjónustu á þeirri hæð sem er að fullu nið-
urgrafin við Laugaveg en á jarðhæð við þær bygg-
ingar sem nú standa að Laugavegi 33B og Vatnstíg
4. Heildarnýtingahlutfall að meðtöldum kjöllurum er
því allt að 5,2
Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna.
Grófartorg, Zimsenhús
Tillaga að breytingu á deiliskipulagi fyrir reit 1.140.0,
sem afmarkast af Hafnarstræti, Vesturgötu, Grófinni,
Tryggvagötu og Naustinni, vegna lóðanna að
Vesturgötu 2 og 2a.
Tillagan gerir ráð fyrir að í stað nýbyggingar sam-
kvæmt núgildandi deiliskipulagi verður gert ráð fyrir
aðfluttu húsi, svokölluðu Zimsen - húsi, sem áður
stóð við Hafnarstræti 21. Kvöð um göngutengsl
milli Vesturgötu og Tryggvagötu um undirgöng verð-
ur felld niður og verður eftir breytingu um lóð-
ina Vesturgötu 2a. Við þá breytingu stækkar leyfð
nýbygging á Vesturgötu 2 sem samsvarar undir-
göngum. Fyrirhugðum götustæðum við Tryggvagötu
er fjölgað um tvö stæði.
Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna.
Reykjavíkurborg
Skipulags- og byggingarsvið
Hádegismóar
Tillaga að breytingu á deiliskipulagi fyrir Hádegismóa,
svæði sem afmarkast af opnu svæði í austur, í suður
af grænu svæði sem liggur að Rauðavatni og hring-
torgi, í norðuraustur af golfvelli GR og í vestur af
Suðurlandsvegi.
Tillagan gerir ráð fyrir að í stað þriggja stórra lóða
verða svæði afmarkað í sex lóðir, fimm til viðbótar við
lóð Morgunblaðsins (númer 2 við Hádegismóa) og eru
nýjar lóðir norðvestan við lóð Mbl. Verða húsin með
númerin 1 – 3 og 2 – 8. Ný gata verður lögð á svæð-
inu. Hámarkshæðir húsa verða tuttugu og þrír metrar
og skulu tvær efstu hæðir húsanna númer sex og átta
vera inndregnar sem nemur 2/3 af flatarmáli bygging-
arreits. Nýtingarhlutfall hækkar úr 0,4 í 0,5.
Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna
Hlíðarendi
Tillagan felst í því að skipulagsreiturinn stækkar vegna
breyttrar legu Hlíðarfótar og að byggingarmagn á
atvinnu- og íbúðarlóðum á skipulagsreitnum er aukið úr
50.000 fermetrum í 85.000 fermetra. Þar af eru 25.000
fermetrar á lóð LSH og 60.000 fermetrar á lóðum sem
merktar eru A til F. Gert er ráð fyrir að á lóðum A til F
skiptist byggingarmagnið nokkuð jafnt milli atvinnu-
húsnæðis (lóðir A, B og C) og íbúðarhúsnæðis (lóðir
D, E og F). Atvinnuhúsnæði hefur verið raðað meðfram
umferðargötum þannig að hljóðvist í íbúðarhúsnæði
batnar. Gera skal ráð fyrir að 2/3 hlutar bílastæða séu
í bílakjöllurum. Þá er gert ráð fyrir aðkomu að svæðinu
frá Hlíðarfæti auk aðkomu frá Flugvallarvegi, eins og
gert er ráð fyrir í gildandi deiliskipulagi. Gildandi deili-
skipulag lóðar Knattspyrnufélagsins Vals helst óbreytt
að öðru leyti en því að gert er ráð fyrir áhorfendastúku
við norðausturhlið knatthúss.
Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna.
Tillögurnar liggja frammi í upplýsingaskála skipulags-
og byggingarsviðs Reykjavíkurborgar að Borgartúni
3, 1. hæð, virka daga kl. 8:20 – 16:15, frá 2. maí 2007
til og með 13. júní 2007. Einnig má sjá tillögurnar á
heimasíðu sviðsins, www.skipbygg.is. Eru þeir sem
telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna
sér tillögurnar.
Ábendingum og athugasemdum við tillögurnar skal
skila skriflega eða á netfangið skipulag@rvk.is, til
skipulags- og byggingarsviðs eigi síðar en 13. júní
2007.
Vinsamlega nota uppgefið netfang fyrir innsendar
athugasemdir með tölvupósti.
Þeir sem eigi gera athugasemdir innan tilskilins frests,
teljast samþykkja tillögurnar.
Reykjavík, 2. maí 2007
Skipulagsstjóri Reykjavíkur
Auglýsing um nýtt deiliskipulag og breytingar á
deiliskipulagsáætlunum í Reykjavík
Auglýsing um
aðalskipulag í
Svalbarðsstrandarhreppi
Tillaga að breytingu á aðalskipulagi Sval-
barðsstrandarhrepps 1994 – 2014.
1. Heiðarholt, nýtt 2,5 ha íbúðarsvæði fyrir 3
íbúðarhús.
2. Sólberg, íbúðarsvæði stækkað úr 2,8 ha í 3,8
ha. Heimilt að byggja allt að 12 hús í stað 9.
Lágmarksstærð lóða 2.000 m2 í stað 2.500
m2.
3. Veigastaðir II og Hallland, nýtt 2,8 ha
íbúðarsvæði. Allt að 7 lóðir. Lágmarksstærð
lóða 2.000 m2 í stað 2.500 m2.
4. Veigastaðir II, nýtt 3,9 ha íbúðarsvæði. Allt
að 4 lóðir.
5. Veigastaðir II, nýtt 1,1 ha íbúðarsvæði. Allt
að 3 lóðir.
6. Veigastaðir I, 1,4 ha af frístundabyggðinni
Kotabyggð er breytt í íbúðarsvæði fyrir 2
lóðir í framhaldi af íbúðarbyggðinni
Vaðlabrekku. Þar er 1 frístundahús sem
breytist í íbúðarhús.
7. Vaðlabyggð, stækkun íbúðarsvæðis úr 10,7
ha í 11,4 ha. Allt að 22 lóðir í stað 15.
8. Veigastaðir I, nýtt 26,8 ha frístundasvæði.
Þéttleiki 1-3 hús á ha. og lágmarks lóðastærð
3.000 m2.
9. Hallland og Veigastaðir, leiðrétt mörk
frístundabyggðar miðað við jarðamörk.
10. Vaðlabrekka, íbúðarlóðum fjölgað úr 12 í 14.
Jarðamörk að norðan lagfærð, svæðið
verður 5,7 ha í stað 6,0 ha.
Skipulagstillagan er hér með auglýst með
vísan til 1. mgr. 21. gr. skipulags- og byggingar-
laga nr. 73/1997 og verður hún til sýnis á skrif-
stofu Svalbarðsstrandarhrepps, í Ráðhúsinu á
Svalbarðseyri frá og með fimmtudeginum 3.
maí til og með fimmtudeginum 31. maí 2007.
Á sama stað skal skila athugasemdum við
tillöguna í síðasta lagi kl. 12:00 föstudaginn
15. júní 2007. Hægt er að skoða skipulagstil-
löguna á vefsíðunni www.teikna.is. Hver sá
sem ekki gerir athugasemd við tillöguna innan
ofangreinds frests telst samþykkur henni.
Sveitarstjórinn
í Svalbarðsstrandarhreppi.
Raðauglýsingar 569 1100
Rangárþing Ytra
Leikskólakennarar
athugið!
Frábært atvinnutækifæri fyrir
leikskólakennara í skemmtilegum
leikskóla
Leikskólinn Heklukot á Hellu vill ráða
jákvæða og metnaðarfulla leikskólakennara
til starfa. Leikskólinn hefur nýverið
opnað þriðju deildina svo nú er lag fyrir
leikskólakennara að vinna í leikskóla þar
sem unnið er eftir kenningu Howard
Gardner, í yndislega fallegu umhverfi!
Leikur - Gleði - Lífsleikni!
Allar upplýsingar gefur Björg Kvaran
leikskólastjóri í síma 487 5956 og 845 1019.
Athugið að einungis leikskólakennarar
verða ráðnir.
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn