Morgunblaðið - 02.05.2007, Blaðsíða 40
Kelly Osbourne bjarg-
aði svo málunum þeg-
ar hún lánaði nokkrum
„uppábúnum brasspíum“ úr
sveitinni hárlakk … 43
»
reykjavíkreykjavík
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
„VIÐ erum með skipulagða tvenna
tónleika. Aðrir verða við opnun
Listahátíðar en hinir miðvikudag-
inn þar á eftir,“ segir Einar Örn
Benediktsson, forsprakki Gho-
stigital um tónleika sem bera yf-
irskriftina Radium og verður út-
varpað á útvarpsstöðinni Rondo
FM 87,7. „Það sem er óvenjulegt
við þessa tónleika er að þú getur
bara heyrt þá í gegnum útvarp. Þú
mætir á staðinn og við látum þig fá
útvarp til að hlusta á tónleikana. Þú
verður sem sagt með þitt eigið
söngkerfi,“ segir Einar sem hefur
engar áhyggjur af fjölda viðtækja.
„Við verðum með nóg af útvörpum.
Við erum svo vinsælir að ég held að
við verðum með tugi þúsunda út-
varpa,“ segir hann í léttum dúr.
„Við útvörpum þessu í gegnum
Rondo þannig að það er hægt að
hlusta á þetta á leiðinni, síðan legg-
urðu bílnum og kemur á tónleikana.
En þá sérðu að við erum svolítið að
spila á umhverfið, þetta eru svona
umhverfistónleikar. Við erum bara
að magna upp það sem aðrir
heyra,“ segir Einar og útskýrir að
algjörlega nauðsynlegt sé að vera
með útvarp til að vita hvað sé í
gangi. „Við notum hljóð úr Reykja-
vík, sem maður tekur kannski ekki
eftir dagsdaglega, en við mögnum
þau upp og gerum þau að tónlist.“
Tónlist og litir
Aðspurður segir Einar að sam-
starfið við Finnboga hafi legið í
augum uppi. „Finnbogi er mikill
hljóðlistamaður og það hefur alltaf
legið fyrir hjá okkur að vinna með
honum. Nú ætlum við að nota þetta
tækifæri til þess að vinna eitthvað
saman. Við erum með Curver sem
er náttúrlega myndlistarmaður og
ég hef teiknað fullt af bókakápum
og plötualbúmum þannig að þetta
er bara tónlist og myndlist saman,“
segir Einar sem telur lítið mál að
koma myndlist til skila í gegnum
útvarp.
„Það er eins og einn ágætur ís-
lenskur tónlistarmaður, Bubbi
Morthens, talar alltaf um – að hann
sjái tónlist í litum. Þetta er allt
samtengt. Þetta er skynjun og við
erum bara að teikna út í loftið.“
Síðari tónleikarnir, sem fara
fram á Rjúpnahæð, verða með öðru
sniði en hinir fyrri. „Þeir tónleikar
eru aðeins flóknari að því leyti að
þá ætlum við að senda út í quat-
rofoníu. Þannig að á milli fjögur og
fimm sendum við út í gegnum
Hlaupanótuna á Rás 1 en svo fram
og aftur af stereóinu í gegnum
Rondo. Þannig að þú þarft í raun
tvö útvarpstæki til að heyra okk-
ur,“ útskýrir Einar og bætir við að
svona nokkuð hafi aldrei verið gert
áður.
Fyrri tónleikarnir verða við opn-
un Listahátíðar fyrir utan Listasafn
Íslands fimmtudaginn 10. maí frá
kl. 15 til 20 en síðari tónleikarnir
verða á Rjúpnahæð miðvikudaginn
16. maí frá kl. 15 til 19.
Tónleikarnir eru haldnir í sam-
starfi við fyrirtækið CCP og út-
varpsstöðina Rondo.
Morgunblaðið/G.Rúnar
Samstarf Einar Örn, Finnbogi og Curver ætla að skeyta tónlist og myndlist saman á tvennum tónleikum á Listahátíð.
Hljóðræn myndlist á Listahátíð
Hin framsækna hljóm-
sveit Ghostigital hefur
hafið samstarf við
Finnboga Pétursson
myndlistarmann. Af-
raksturinn er sérstakt
samband tón- og mynd-
listar sem frumflutt
verður á Listahátíð í
Reykjavík fimmtudag-
inn 10. maí.
HLJÓMSVEITIN Bardukha hefur ferð sína
um Ísland í dag með tónleikum í Pakkhúsinu
á Höfn í Hornafirði kl. 21.
Balzamersveitin Bardukha var stofnuð
2003 og eru meðlimir Steingrímur Guð-
mundsson sem leikur á slagverk, Ástvaldur
Traustason á harmonikku, Hjörleifur Vals-
son á fiðlu og Birgir Bragason á bassa.
Þeir félagar leika eigin hræring af þjóð-
lagatónlist þar sem blandað er saman balk-
nesku, slavnesku og arabísku tónkryddi.
Þó að tónlist Bardukha virðist vera nið-
urnjörvuð og hefðbundin þjóðlagatónlist með
taktríkum sígaunablæ er ekki rétt að láta
blekkjast. Þessir piltar láta gjarnan gamminn
geisa, taka sér óspart skáldaleyfi og sleppa
sér lausum í frjálsum og persónulegum ein-
leiks-spunaköflum sem færir tónlistina í nýj-
ar og óræðar víddir. Flutningur Bardukha
fær þar af leiðandi sinn eigin svip og einkenni
og þess vegna hafa þeir félagar kosið að
nefna tónlist sína balzamer-tónlist, til að forð-
ast samlíkingar.
Næstu tónleikar sveitarinnar eru á morg-
un, 3. maí, á Hótel Héraði á Egilsstöðum kl.
21, Gamla Bauk á Húsavík 4. maí kl. 22 og 5.
maí á Græna hattinum á Akureyri kl. 22.
Balzamersveitin
Bardukha er á ferðinni
Bardukha Hefja ferð sína um Ísland með tónleikum í dag.
www.myspace.com/bardukha