Morgunblaðið - 02.05.2007, Blaðsíða 44
44 MIÐVIKUDAGUR 2. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
SKRÁÐU ÞIG Á SAMbio.is
NEXT kl. 6 - 8 - 10 B.i. 14 ára
BLADES OF GLORY kl. 6 - 8:10 - 10:20 B.i. 12 ára
BREACH kl. 8 B.i. 12 ára
ROBINSON FJÖLSKYLDAN m/ísl. tali kl. 6 LEYFÐ DIGITAL 3D
300 kl. 10:20 B.i. 16 ára DIGITAL
/ KRINGLUNNI
BLADES OF GLORY kl. 3:40 - 5:50 - 8 - 10:10 B.i.12.ára
BLADES OF GLORY VIP kl. 3:40 - 5:50 - 8 - 10:10
SHOOTER kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i.16.ára
BREACH kl. 5:50 - 8:10 - 10:30 B.i.12.ára
THE GOOD SHEPERD kl. 10:10 B.i.12.ára
THE MESSENGERS kl. 10:10 B.i.16.ára
MR. BEAN'S HOLIDAY kl. 4 - 6 - 8 LEYFÐ
ROBINSON FJÖLSKYLDAN m/ísl. tali kl. 4 LEYFÐ
WILD HOGS kl. 8 B.i.7.ára
BECAUSE I SAID SO kl. 6 LEYFÐ
/ ÁLFABAKKA
NICOLAS CAGE - JULIANNE MOORE - JESSICA BIEL
SÁ SEM SÉR FRAMTÍÐINA GETUR BJARGAÐ HENNI
EFTIR HÖFUND MINORITY REPORT OG BLADE RUNNER
eee
H.J. Börn sjá meira en
fullorðnir gera sér
grein fyrir!
STRANGLEGA BÖNNUÐ BÖRNUM
BE
SPRENG-
HLÆGILEG
MYND FRÁ
BEN STILLER
Fór beint á
toppin í USA
SJALDAN EÐA ALDREI HAFA
TVEIR KARLMENN DANSAÐ JAFN VEL SAMAN!
eee
V.J.V. TOPP5.IS
eee
S.V. - MBL
Fullbúið einbýli, laust strax.
Nýkomið glæsilegt nýtt, tvílyft
einbýli m. innbyggðum bílskúr,
samtals ca 235 fm. Húsið skiptist
m.a. þannig: Stofa m. arni,4 rúm-
góð svefnherbergi, glæsilegt stórt
eldhús m. borðstofu, tvö glæsileg
baðherbergi o.fl. Flísar og parket
á gólfum.
Góð staðsetning og útsýni.
Garður frágenginn.
Sjón er sögu ríkari.
Myndir á mbl.is. V. 68 millj.
Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði • Sími 520 7500 • www.hraunhamar.is
Asparhvarf - Kóp, nýtt glæsilegt
Nánari upplýsingar gefur Helgi Jón sölustjóri í s: 893 233
Fyrir nokkru skrifaði ég pistilþar sem ég velti því fyrirmér hvernig myndlist-
armenn verðleggja verk sín. Sá
pistill virðist hafa farið fyrir brjóst-
ið á mörgum en aðrir fögnuðu um-
ræðunni. Í fyrstu minntist ég á
mikla verðhækkun á verkum gömlu
meistaranna, sem sjálfsagt skýrist
af auknum áhuga ríkra Íslendinga
á myndlist. Verð á verkum þekktra
myndlistarmanna fer almennt
hækkandi í hinum vestræna heimi
sem hlýtur að vera afleiðing aukins
áhuga manna á myndlist, skilnings
á því að um góða fjárfestingu sé að
ræða og síðast en ekki síst að menn
hafa meira fé milli handa.
Í pistlinum velti ég því einnig fyr-ir mér hvort olíumálverk væru
alltaf margfalt dýrari en málverk
unnin með annars konar málningu,
þ.e. burtséð frá hugmyndafræðinni
í verkinu. Ég átti þar við að ef tveir
álíka færir málarar færu út saman
og máluðu Heklu, annar með olíu
og hinn með vatnslitum, yrði olíu-
verkið margfalt dýrara að öllum
líkindum. Þetta voru tiltölulega
saklausar vangaveltur, að mér
fannst, en vöktu hörð viðbrögð. Það
skal því tekið fram að hugvit og
hugmyndafræði voru ekki í jöfn-
unni. Ég var einfaldlega að velta
því fyrir mér hvort fínna þætti að
eiga olíumálverk og þess vegna
væru þau dýrari.Ég er ekki þeirrar
skoðunar að verðleggja eigi mynd-
list eftir efninu sem notað er í hana.
Það væri galið.
Þá hafa menn einnig misskiliðtextann þannig að ég sé á móti
háu verði á myndlist. Þvert á móti
vil ég að öll myndlist hækki í verði
en ekki bara verk gömlu meist-
aranna og þeirra sem þykja bera af
nú til dags. Ég var einfaldlega að
benda á það misræmi sem oft má
sjá í verðlagningu myndlistar, og
þá er ég að tala um sambærilega
myndlist. Nú súpa menn kannski
hveljur af hneykslan og spyrja hvað
sé sambærilegt. Málverk af epli og
flösku sem málað er af svipaðri
færni og í svipuðum stíl? Tveir
menn mála auðvitað aldrei alveg
eins, en ég leyfi mér að setja smá
skekkjumörk.
Mergurinn málsins er sá að það
er heljarinnar hausverkur að verð-
leggja myndlist og engar reglur til
þar að lútandi. Það var í raun það
sem ég var að fara með þum-
alputtareglunum sem ég nefndi í
pistlinum sem einhverjir tóku að-
eins of bókstaflega. Einnig fór það
fyrir brjóstið á mönnum að ég
skyldi ráðleggja nýútskrifuðum
myndlistarmanni að setja það verð
á verk sem hann héldi að fólk væri
reiðubúið að kaupa það á. Þannig
verðlagði ég mín verk á mínum
fyrstu sýningum, en ef til vill er að
harðbannað núna og listfræðingar
sem ráðleggja mönnum með verð-
lagningu. Þegar ég útskrifaðist úr
framhaldsnámi voru kennarar hik-
andi við að ráðleggja mér hvað
varðaði verðlagningu þannig að á
endanum varð ég að verðleggja eft-
ir eigin höfði. Nýútskrifaðir geta
bara hunsað mínar ráðleggingar ef
þeim svo sýnist.
Ég geri mér fullkomna greinfyrir því að sumir eru goð-
sagnir í myndlist (eins og Guð-
mundur Oddur bendir á í frétta-
skýringu) og að verð á verkum
þeirra er í samræmi við það. Ég
veit af hverju hallamál Kristjáns
Guðmundssonar kosta sitt og af
hverju þau eru peninganna virði,
þar er hugvitið verðlagt umfram
annað. Ég hef aldrei haldið öðru
fram. Það sem ég var að tala um í
pistlinum var verðlagning á mynd-
list þeirra sem ekki eru goðsagnir,
nýútskrifaðir eða lítt eftirsóttir eft-
ir margra ára myndlistarstörf. Að
verk þeirra ættu að kosta minna en
þeirra sem eru vinsælir og eft-
irsóttir. Það er einfaldlega mín
skoðun.
Sumir myndlistarmenn metaverk sín meira en aðrir. Ef
menn kynna sér verðlag á myndlist,
og þá á ég við þá sem finna má í
galleríum og í búðum, ekki á upp-
boðum, þá ætti ákveðið misræmi að
blasa við. Ef það gerir það ekki
biðst ég velvirðingar á pistlum mín-
um og lýsi mig verðblindan. En ég
held að þetta sé óttalegt kaos.
Ég veit ósköp vel að menn verð-
leggja verk sín eins og þeim sýnist,
enda engin önnur leið fær þar sem
engar reglur gilda um slíkt og
ómögulegt sjálfsagt að búa til slík-
ar reglur. Ég tek undir með mynd-
listarmanninum og gagnrýnand-
anum Jóni B. K. Ransu að það er
erfitt að verðleggja myndlist þar
sem hún er ekki síður hugvit en
handbragð. Það á að sjálfsögðu
ekki að verðleggja hana eins og
iðnaðarvöru. En vilji menn á annað
borð selja verk sín verða þeir að
verðleggja þau. Sumir þurfa ekki
að hafa áhyggjur af þessu, eft-
irspurn á markaði setur verðmiða á
þeirra verk.
Ég vil veg íslenskrar myndlistarsem mestan og að íslenskir
myndlistarmenn hagnist af sínum
verkum sem mest. Mér finnst ís-
lensk myndlist almennt ekki dýr og
hef aldrei haldið því fram. Ef eitt-
hvað er þá er hún almennt of ódýr,
en inn á milli eru undarlega dýr
verk, eins og fyrr sagði, verðið út
úr kortinu. Og um það fjallaði pist-
illinn.
Sum gallerí hafa fengið á sig
þann gæðastimpil að sýna góða
myndlistarmenn, þ.e. þeir sem reka
þau vita hvaða myndlistarmenn eru
efnilegir, hugmyndaríkir og líkleg-
ir til frekari frama innan geirans.
Ég bar það undir kollega minnhjá Morgunblaðinu á dög-
unum hvað honum fyndist um það
að óþekktur myndlistarmaður
verðlegði verk sín jafnhátt og sá
sem væri viðurkenndur og eft-
irsóttur. Honum fannst ósköp eðli-
legt og líkti þessu við laun knatt-
spyrnumanna í ensku deildinni,
benti á að Wayne Rooney hefði ung-
ur að aldri verið keyptur til Man-
chester United fyrir fúlgur fjár.
Þar hafi menn einfaldlega veðjað á
Rooney, menn sérfróðir um knatt-
spyrnu. Þannig starfa í raun um-
boðsgallerí, þau veðja á menn og
vona að þau hafi rétt fyrir sér. Eig-
andi gallerísins hlýtur þá að vera
það vel að sér í myndlistarfræðum
að hann kemur auga á hæfi-
leikamenn. Hann er Alex Ferguson.
Myndlist og
knattspyrna
»Ég veit af hverjuhallamál Kristjáns
Guðmundssonar kosta
sitt og af hverju þau eru
peninganna virði, þar er
hugvitið verðlagt um-
fram annað.
ReutersWayne Rooney Þyngdar sinnar virði í gulli.
helgisnaer@mbl.is
AF LISTUM
Helgi Snær Sigurðsson