Morgunblaðið - 02.05.2007, Page 48

Morgunblaðið - 02.05.2007, Page 48
MIÐVIKUDAGUR 2. MAÍ 122. DAGUR ÁRSINS 2007 »MEST LESIÐ Á mbl.is »VEÐUR mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 200 ÁSKRIFT 2650 HELGARÁSKRIFT 1600 PDF Á MBL.IS 1700 SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT Morgunblaðið bíður eftir þér þegar þú vaknar á morgnana ÞETTA HELST» Umræða um forgangs- röðun nauðsynleg  Það er nauðsynlegt að ræða áfram forgangsröðun í heilbrigðiskerfinu, segir Siv Friðleifsdóttir heilbrigð- isráðherra. Á borgarafundi í Sjón- varpinu sagði hún að sums staðar er- lendis væri rætt um að þeir sem hefðu náð ákveðnum aldri fengju ekki fulla heilbrigðisþjónustu. Siv tók fram að hún væri ekki að boða slíka stefnu. »Forsíða 1. maí  Hátíðahöld á frídegi verkalýðsins 1. maí voru með hefðbundnum hætti í gær víða um land. Í Reykjavík var farin kröfuganga frá Hlemmi og nið- ur Laugaveg, sem endaði á Ingólfs- torgi þar sem útifundur var haldinn. Hátíðahöldin voru haldin undir yf- irskriftinni Treystum velferðina. »Miðopna Kaupa nýja bora  Jarðboranir gengu í gær frá samningi um kaup og kauprétt á há- tæknivæddum stórborum sem geta borað niður á mun meira dýpi en eldri borar fyrirtækisins eða niður á allt að fimm þúsund metra dýpi. Kaupin eru liður í áætlunum fyr- irtækisins um stóraukna útrás á er- lenda markaði, en fyrirhugað fyrsta verkefni boranna verða djúpboranir í Suður-Þýskalandi fyrir lok þessa árs. »4 Mengun í göngum  Grípa varð til aðgerða í aðrennsl- isgöngum Kárahnjúkavirkjunar skömmu eftir miðnætti í fyrrinótt og flytja nokkra starfsmenn til vegna köfnunarefnisdíoxíðsmengunar sem fór lítillega yfir viðmiðunarmörk. Mengun fór síðan öðru sinni yfir mörkin kl. 17 í gær og voru 12 manns fluttir til í ferskara loft. »2 SKOÐANIR» Ljósvakinn: Fótbolti í stofunni Staksteinar: Meðaltöl Sivjar Forystugreinar: Spilin á borðið | Minni mengun – meiri sátt? Af listum: Myndlist og knattspyrna Viðhorf: Skemmtilegur Zizek UMRÆÐAN» Tækifæri íbúa við Njálsgötu Viltu vinna milljón? Réttindi flugfarþega – eitt verð Flugvöllinn burt úr Vatnsmýri Heitast 18 °C | Kaldast 8 °C  SV og V 5–8 m/s og rigning en bjartviðri að mestu NA- og A- lands fram til kvölds. Hlýjast NA til. »10 Á Kópavogsdögum í vikunni má meðal annars sækja tón- leika með Emilíönu Torrini og Víkingi Heiðari. »45 TÓNLIST» Emilíana og Víkingur BÆKUR» Íbúar Múmíndals eru sívinsælir. »42 Tilefningar til MTV- kvikmyndaverð- launanna kunn- gjörðar, þeirra á meðal berrassaður Borat. »47 VERÐLAUN» Kossar og slagsmál DANS» Uppselt er á sýningu Dansflokksins í Kína. »43 FÓLK» Söngkonan Pink er enn á lífi að eigin sögn. »45 reykjavíkreykjavík VEÐUR» 1. Ekki hrifnir af Eiríki … 2. Drengurinn settur á Stuðla 3. Rove sagður hafa hrækt á Sheryl 4. Boy George í vondum málum Eftir Birtu Björnsdóttur birta@mbl.is GUÐJÓN Friðriksson sagnfræðing- ur situr þessa dagana við ritun end- urminninga forseta Íslands, Ólafs Ragnars Grímssonar. Ekki er þó um eiginlega ævisögu að ræða heldur verður kastljósinu beint að tíð Ólafs í forsetaembætti. „Það er ofsögum sagt að þetta sé ævisaga,“ sagði Guðjón í samtali við Morgunblaðið í gær. „Ég er sem sagt að skrifa bók sem segir meira og minna frá forsetatíð Ólafs Ragnars. Þar er lögð sérstök áhersla á þessi erlendu samskipti hans og um leið er ég í raun að fjalla um útrásina og viðskiptalífið og þátt hans í því,“ segir Guðjón jafnframt og bætir við að Ólafur Ragnar hafi greitt leið fjölmargra viðskipta- manna út fyrir Íslandsstrendur. Fjölmiðlafrumvarpið og fleira Guðjón segist einnig taka til um- fjöllunar atburði hér á landi, bæði í starfi Ólafs Ragnars sem og einka- lífi. Fjölmiðlafrumvarpið og andlát Guðrúnar Katrínar, fyrrum for- setafrúar, er meðal þess sem fjallað verður um í bókinni. „Reyndar rek ég líka framgöngu Ólafs á alþjóðavettvangi áður en hann varð forseti sem eins konar grundvöll fyrir því sem síðar kom. En ég fer ekkert út í pólitík hans hér áður fyrr,“ upplýsir Guðjón. Bókina byggir hann bæði á viðtöl- um við forsetann sem og fjölda ann- arra, hér heima og heiman. Áætlað er að gefa bókina út með haustinu, en hún hefur ekki enn fengið nafn. Saga af forseta Í haust kemur út bók Guðjóns Friðrikssonar sagnfræðings um forsetatíð Ólafs Ragnars Grímssonar Í HNOTSKURN »Ólafur Ragnar var kjörinnforseti Íslands árið 1996. »Hann var endurkjörinn árið2000 án atkvæðagreiðslu og sigraði svo tvo mótframbjóð- endur árið 2004. »Ólafur Ragnar er fyrsti for-setinn í sögu Íslands til þess að neita að skrifa undir lög sem samþykkt höfðu verið á Alþingi. Morgunblaðið/Jim Smart Á Bessastöðum Ólafur Ragnar afhenti Guðjóni Íslensku bókmennta- verðlaunin árið 2003 fyrir ævisögu Jóns Sigurðssonar. VEÐURSÍÐAN belgingur.is hefur spurst út meðal þeirra sem vilja fylgjast með veðri og nýtur sívax- andi vinsælda meðal útivistar- fólks, flugmanna, sjómanna og ann- arra. Nákvæmni Belgings byggist á því að reiknað er í neti sem hef- ur möskva sem eru aðeins þriggja kílómetra víðir en möskvastærð annarra reiknilíkana, sem hingað til hafa verið notuð við spágerð á Íslandi, er yfirleitt 20–50 kílómetrar, að sögn Haraldar Ólafssonar veðurfræðings og forsvarsmann Belgings. Sprotafyrirtæki og framhaldsnemar Veðursíðan Belgingur er samvinnu- verkefni Veðurstofu Íslands, Há- skóla Íslands og Reiknistofu í veð- urfræði sem er sprotafyrirtæki sem var stofnað af Haraldi og Ólafi Rögnvaldssyni veðurfræðingi og hýsir m.a. nemendur í framhalds- námi í veðurfræði. Á Reiknistofunni starfa m.a. Hálfdán Ágústsson og Einar Magnús Einarsson sem sam- hliða rekstri Belgings sinna rann- sóknum á vindhviðum og óvissu í veðurspám. | Miðopna Belgingur spyrst út Haraldur Ólafsson METÞÁTTTAKA var í 1. maí-hópkeyrslu Snigl- anna í gær þegar ökumenn á 650 hjólum svöruðu kalli Snigla og óku af stað frá Perlunni til Hafn- arfjarðar í fylgd lögreglumanna. Setti fylkingin mikinn svip á umferðina með smávægilegum umferðartöfum í byrjun og við ferðalok en allt gekk vel að öðru leyti. Bifhjólin voru af öllum gerðum og stærðum og riddararnir allvel dúðaðir. Morgunblaðið/Kristinn Metþátttaka hjá Sniglunum 650 BIFHJÓL Í 1. MAÍ-HÓPKEYRSLU

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.