Morgunblaðið - 03.05.2007, Side 8

Morgunblaðið - 03.05.2007, Side 8
8 FIMMTUDAGUR 3. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Nafn Ragnheiður Ríkharðsdóttir Starf Bæjarstjóri og bæjarfulltrúi í Mosfellsbæ. Fjölskylduhagir Gift, á tvö börn, eina tengdadóttur og þrjú barnabörn. Kjördæmi Suðvestur, 6. sæti fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Helstu áhugamál Ég er mikil félagsvera, áhugamálið mitt gegnum tíðina hefur einkum ver- ið hestamennska en svo er ég forfallin fótboltaáhugamanneskja, ég les mik- ið og hef gaman af því að búa til mat. Hvers vegna pólitík? Ég er í pólitík vegna þess að mig langar til að hafa áhrif á samfélagið sem ég lifi í en svo er ég frekar stjórnsöm og það er nú líka hluti af þessu! Er Alþingi áhugaverður vinnustaður? Ég væri að minnsta kosti ekki að sækjast eftir starfinu ef ég teldi að svo væri ekki. En að sjálfsögðu vil ég breyta ýmsu þar, ég held að með nýju fólki komi alltaf nýjar áherslur. Fyrsta mál sem þú vilt koma á dagskrá? Ég vil fylgja eftir því sem við sjálf- stæðismenn höfum verið að tala um í sambandi við málefni eldri borgara. Ég tel að það sé stærsta málið sem við þurfum að sinna og helst strax. Og svo hef ég náttúrlega brennandi áhuga á menntamálum þar sem ég kem úr þeim geira og vil styðja það góða starf sem þar er verið að vinna. Þarf breytingar? Ég tel að Sjálfstæðisflokknum sé best treystandi til að vera í forsvari ríkisstjórnar, til að viðhalda því góða ástandi sem hér er og gera betur. Nýir frambjóðendur | Ragnheiður Ríkharðsdóttir Eldri borgarar efst á dagskrá Ragnheiður Boðar nýjar áherslur með nýju fólki á Alþingi. Nafn Ingibjörg Inga Gumundsdóttir. Starf Íþróttafræðingur. Starfandi verkefnisstjóri á sunnanverðum Vestfjörðum við að koma á fram- haldsskólanámi á svæðinu. Fjölskylduhagir Gift og þriggja barna móðir. Kjördæmi Norðvestur, 2. sæti fyrir Vinstri hreyfinguna grænt framboð. Helstu áhugamál? Íþróttir, útivist og allt sem viðkemur menntun og uppeldi. Hvers vegna pólitík? Mér finnst VG hafa mjög góða stefnu þegar kemur að velferðarmálum og öðrum mikilvægum þáttum. Síðan finnst mér mikilvægt að láta rödd kvenna heyrast! Er Alþingi áhugaverður vinnustaður? Ég veit það ekki fyrr en á reynir en mér finnst þetta spennandi. Fyrsta mál sem þú vilt koma á dagskrá? Ég vil að þeir sem eru á landsbyggð- inni njóti jafnræðis á við íbúa höfuð- borgarsvæðisins, t.d. varðandi jafn- rétti til náms og samkeppnisstöðu fyrirtækja. Þarf breytingar? Já. Það er of mikil mismunun og of margir sem hafa það ekki gott. Þessi stjórn hefur verið við völd í svo mörg ár og fengið sín tækifæri. Nýir frambjóðendur | Ingibjörg Inga Guðmundsdóttir Of mikil mismunun Misskipting Það eru of margir sem ekki hafa það gott, segir Ingibjörg. BARÁTTUSAMTÖK aldraðra og öryrkja eru hætt við að bjóða sig fram fyrir alþingiskosningar, sem fara fram eftir rúma viku. Þetta staðfesti María Óskarsdótt- ir, í samtali við Fréttavef Morgun- blaðsins í gær. María situr í efsta sæti framboðslista samtakanna í Norðausturkjördæmi en Baráttu- samtökin skiluðu aðeins lista til yf- irkjörstjórnar í því kjördæmi í tæka tíð. Hún segir meginástæðuna fyrir ákvörðuninni vera fjárskort. Arndís Óskarsdóttir, formaður Baráttusamtaka aldraðra og ör- yrkja, sagði í samtali við Fréttavef Morgunblaðsins að það sé mun meira en vonbrigði að samtökin hafi ekki getað boðið fram á landsvísu, listar hafi verið fullmannaðir. Hún telur að gróflega hafi verið brotið á samtökunum, meðal annars af fulltrúum yfirkjörstjórnar sem að hennar sögn gáfu ekki samtökunum nauðsynlegar upplýsingar. „Mér finnst líka ansi einkennilegt að yfirkjörstjórn sé öll skipuð sjálf- stæðismönnum" segir Arndís sem segir að það væri engu líkara en að fyrirfram hafi verið ákveðið að gera baráttusamtökunum lífið leitt. Þar hafi fjölmiðlar líka spilað stórt hlut- verk og segir Arndís suma fjölmiðla varla hafa gefið samtökunum neitt vægi í umfjöllun sinni og nefnir þar Morgunblaðið sérstaklega. Baráttu- samtök hætt við framboð ÚTLIT er fyrir góða grassprettu í sumar, fimmta árið í röð, sam- kvæmt athugunum sem Páll Berg- þórsson veðurfræðingur hefur gert. Spá hans byggist á hitastig- inu í vetur sem var yfir meðallagi. Páll hefur í áratugi gefið út spá í sumarbyrjun um grassprettu sumarsins. Byggist hún á sam- hengi hitafars á landinu og skýrslna um heyfeng hjá bændum. Páll miðar við meðalhitann í Stykkishólmi í október til apríl en hann hefur í heila öld reynst nokk- uð öruggur fyrirboði um gras- sprettu sumarsins. Á góðærisskeið- inu 1931 til 1960 var hitinn á þessum tíma 1,3 stig en nú þriðja veturinn í röð hefur hann verið 1,5 stig. Árið þar á undan var enn hlýrra en metið var hins vegar slegið veturinn 2002 til 2003 þegar hitinn var 3,2 stig enda varð þá dæma- laus grasspretta á landinu. Páll skýrir þetta samhengi út með því að því meiri sem vetrarfrostin eru, þeim mun meira veiklast eða ferst af grasrótunum. Kalið verði því meira sem kaldara verður, þótt það verði ekki sýni- legt fyrr en frostin verði verulega hörð. Páll segir að samkvæmt þessu ættu bændur að bera jafn mikið á túnin og síðustu tvö árin, vilji þeir fá sama heyfeng. Hann bætir því við að það geti talist eins konar kaupbætir að tíðarfarið eftir 20. apríl hafi verið einkar hagstætt gróðri, með mikilli hlýju og góðri vætu. Því sé ekki eftir neinu að bíða með að bera á túnin. Hlýtt næstu árin Spá sem Páll gerði í febrúar um að lítill hafís yrði á árinu hefur staðist vel fram að þessu enda hlýtt í hafinu norður af landinu, svo sem á Jan Mayen. Síðasta ár var það langhlýjasta sem komið hefur á Spitsbergen síðan hitamæl- ingar hófust þar. Þetta telur Páll til marks um sjávarhitann og þar með loftslag á norðurhveli jarðar næstu fimm til tíu árin, fyrir utan hlýnun vegna gróðurhúsaáhrif- anna. Morgunblaðið/Sverrir Heyfengur Bændur landsins eiga von á góðum heyfeng í sumar, samkvæmt spá Páls Bergþórssonar. Útlit fyrir góða gras- sprettu fimmta árið í röð Páll Bergþórsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.