Morgunblaðið - 03.05.2007, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 03.05.2007, Blaðsíða 32
32 FIMMTUDAGUR 3. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Heiðar VigfúsHafsteinsson fæddist í Reykjavík 26. júlí 1959. Hann lést á krabbameins- lækningadeild Landspítalans við Hringbraut 20. apr- íl síðastliðinn. For- eldrar hans eru María Rannveig Elsa Vigfúsdóttir húsmóðir, f. 14. október 1936 og Hafsteinn Daní- elsson vélfræð- ingur, f. 2. febrúar 1934, d. 17. jan- úar 1993. Systkini Heiðars eru Daníel, f. 1956, Sævar, f. 1961, Hafsteinn Sigurður, f. 1965 og sambúð í Reykjavík árið 1984. Heiðar lauk öllum stigum frá Vélskóla Íslands árið 1981 og út- skrifaðist þá sem vélfræðingur og aflaði sér síðar réttinda með sveinsprófi í vélvirkjun. Árið 1989 hóf Heiðar nám í véliðnfræði og útskrifaðist hann frá Tækniskóla Íslands sem iðnrekstrarfræðingur af tæknisviði árið 1992. Heiðar starfaði sem vélstjóri á sjó árin 1981 til 1984 en þá hóf hann störf hjá Fiskafurðum í Þorlákshöfn og var þar til ársins 1992 þegar hann flutti sig yfir í Saltverksmiðjuna á Reykjanesi. Þá tók hann við yf- irvélstjórastöðu á skipum útgerð- arfélagsins Njarðar árið 1994 en kom í land árið 1998 og hóf störf á tæknideild Ölgerðar Egils Skalla- grímssonar. Frá árinu 2002 starf- aði hann sem yfirvélstjóri hjá Sjólaskipum úti fyrir ströndum Afríku. Útför Heiðars verður gerð frá Grafarvogskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13. Berglind Líney, f. 1966. Hinn 21. júlí 1990 kvæntist Heiðar Sig- ríði Dögg Geirsdóttur viðskiptafræðingi, f. 15. febrúar 1961. For- eldrar hennar eru Ingveldur Guðlaugs- dóttir, frv. banka- starfsmaður, f. 31. janúar 1928 og Geir Gunnarsson, ritstjóri, f. 9. apríl 1916, d. 10. júlí 1978. Börn Sig- ríðar og Heiðars eru Andri, f. 12. mars 1988, Ingveldur Dís, f. 23. desember 1991 og Gígja, f. 27. október 1995. Heiðar og Sig- ríður kynntust árið 1977 og hófu Þar sem þú varst næstur mér í röðinni í fimm systkina hópi þá fékk ég að njóta návistar við þig lengur en flestir aðrir eða í tæp 48 ár og fyrir þann tíma er ég þakklátur. Á milli okkar ríkti ætíð virðing og vinátta enda áttum við margar góðar stundir saman. Að fá aðeins tæpa tvo mánuði frá því að sjúkdómur greinist til loka er ekki langur tími. Tími er hins vegar afstæður og jafnvel kostur að hafa hann stuttan í baráttu við svo erfiðan sjúkdóm. Ég get ekki annað en hugs- að um það hvort öðruvísi hefði farið ef þú hefðir ekki verið svona harður af þér að eðlisfari. Þegar ég hugsa til þín koma eft- irfarandi orð sterkt upp í huga mér, þ.e. hjartahlýja, kímnigáfa, djörfung, útsjónarsemi og hjálpsemi. Aðeins tuttugu dögum fyrir andlát þitt átt- um við frábæra stund saman þegar þú, Sigga og börnin komuð í ferm- inguna hennar Tinnu okkar. Þann dag kviknaði sú von að sjúkdómurinn væri að ganga til baka. Þó að missir okkar sé mikill þá er missir Siggu, og barnanna, sem hefur staðið eins og klettur þér við hlið í þessari erfiðu baráttu, enn meiri. Að lokum votta ég Siggu, Andra, Ingu og Gígju mína dýpstu samúð. Daníel bróðir. Ég kynntist Heiðari fyrir um 30 árum, þegar þau Sigga systir mín byrjuðu saman. Í gegnum árin hefur verið mikill samgangur á milli fjöl- skyldna okkar og börnin öll nánast eins og einn systkinahópur. Við höf- um átt ótal samverustundir saman, bæði við leik og störf, þar sem Heið- ar lét ekki sitt eftir liggja til að gera þær ánægjulegar og eftirminnilegar. Heiðar var mikill matgæðingur og ekki ósjaldan sem hann hristi fram úr erminni sælkera máltíðir sem seint munu gleymast. Þær stundir lifa einnig í minningunni þegar við settum niður kartöflur, tókum slátur og fórum saman í útilegur eða til út- landa. Hjálpsemi var órjúfanlegur hluti af Heiðari og hann var alltaf tilbúinn að aðstoða við hvaðeina. Þess naut ég ríkulega sjálf á sínum tíma, þegar ég þurfti á því að halda. Hann var einstaklega barngóður og börn hændust að honum. Erfitt verð- ur fyrir strákana mína að sætta sig við að hann skuli horfinn okkur og við fáum ekki framar notið hjálpsemi hans og heilræða t.d. við útfærslu uppfinninga, en Heiðar var mikill áhugamaður um alls kyns uppfinn- ingar, tækni og vísindi. Dýravinur var hann einnig mikill og ekki að ástæðulausu að „Beast master“ var kallaður til ef fjarlægja þurfti fram- andlegt skordýr. Hann tók þá dýrið varlega upp og skoðaði í krók og kima, áður en hann sleppti því út í frelsið. En það var fjölskyldan sem var í fyrirrúmi og þegar Heiðar var ekki á sjónum, lagði hann sig fram um að hugsa um heimilið og börnin, hjálpa þeim við námið og leiðbeina í lífinu. Heiðar fékk góða heilsu í vöggu- gjöf og þá sjaldan sem eitthvað am- aði að honum, kveinkaði hann sér aldrei, heldur tók hann því með karl- mennsku og jafnaðargeði. Heiðari rann sjómannsblóð í æðum og ekki datt honum í hug að láta fara með sig í land, þó hann væri með einhverja „flensu“. Þessi „flensa“ reyndist þó vera allt annað og illvígara. Síðustu vikurnar barðist hann hetjulega við krabbamein sem því miður uppgötv- aðist mörgum árum of seint. Allan tímann stóð Sigga þétt við hlið hans á þessu erfiða tímabili, hún var Heiðari ómetanleg stoð og gerði honum veik- indin léttbærari. Heiðar mágur minn er nú látinn, langt um aldur fram. Þannig var skjótur endi bundinn á líf hans sem virtist eiga bjarta framtíð. Ég votta móður hans, systkinum og aðstandendum innilega samúð mína. Ég bið góðan Guð að styrkja Andra, Ingu og Gígju sem misst hafa góðan föður. Minni elskuðu systur, Siggu, sendi ég mínar innilegustu hugsanir sem mættu verða henni huggun í harmi hennar. Ingibjörg Dís Geirsdóttir. Það er komið að kveðjustund. Elskulegur mágur og svili hefur ver- ið kallaður á brott svo allt of fljótt eftir stutta en erfiða baráttu við ólæknandi sjúkdóm. Þó að ljóst væri að Heiðar ætti við alvarlegan sjúk- dóm að stríða, er erfitt að sætta sig við þá tilhugsun að hann sé ekki leng- ur á meðal okkar. Eftir situr minning um góðan dreng. Við kynntumst Heiðari fyrst þegar kynni hans og Siggu hófust fyrir u.þ.b. 30 árum. Síðan þá hefur hann verið hluti af lífi okkar, bæði í sorg og í gleði. Við kynntumst honum best þegar við þurftum á barnapössun að halda. Kom þá strax í ljós hversu barngóður hann var. Oft komu krakkarnir í blokkinni í heimsókn til að fá Heiðar til að lesa fyrir sig sögu. Var setið allt í kringum hann og á öxlum hans. Heiðar var mikill áhugamaður um eldamennsku. Við minnumst stór- veislnanna í Ljósheimunum hjá mömmu og tengdó, hvort heldur var um jól eða á hefðbundinni samveru- stund 17. júní þar sem kjúklingar voru á borðum. Voru Heiðar og mamma þá bara tvö í eldhúsinu að elda kjúklingana; enginn mátti trufla þau við það. Þetta voru bestu kjúk- lingar sem hægt var að hugsa sér og eru krakkarnir okkar enn að tala um þá. Oft heyrum við sagt: „Maður fær vatn í munninn við að hugsa um kjúk- lingana þeirra.“ Heiðar var lærður iðnvélfræðing- ur og var einstaklega laghentur á alla hluti. Ófá eru þau handtök, skjót og góð, sem við nutum frá honum – og allt var meira en sjálfsagt. Hans viðbrögð verða seint fullþökkuð. Jólin 2005 var ákveðið að gefa mömmu það í jóla- og afmælisgjöf að breyta íbúðinni hennar. Það er ekki að orðlengja það að íbúðin varð fok- held eftir að við byrjuðum. Vorum Heiðar Vigfús Hafsteinsson ✝ Oddný SigríðurJónsdóttir fædd- ist í Reykjavík 28. október 1926. Hún lést á Hrafnistu í Reykjavík 20. apríl síðastliðinn. Faðir hennar var Jón Sig- urðsson raffræð- ingur, f. 22. febrúar 1884, d. 4. júlí 1928, sonur Sigurðar Jenssonar prófasts í Flatey á Breiðafirði og Guðrúnar Sig- urðardóttur. Móðir Oddnýjar var Ólöf Guðrún Sigurð- ardóttir, f. 7. febrúar 1903, d. 14. júní 1954, dóttir Sigurðar Bjarna- sonar, sjómanns í Reykjavík og Oddnýjar Sigríðar Jónasdóttur. Fósturfaðir Oddnýjar var Albert P. Goodman sendiráðsfulltrúi, f. 22. október 1906, d. 24. júní 1967, son- ur Lárusar Guðmundssonar og 1954, gift Viðari Sigurjónssyni. Dóttir þeirra er Sunna og á hún eina dóttur. 3) Auður, f. 1958, gift Kristni H. Þorsteinssyni og eiga þau dótturina Lilju. Sonur Auðar og fyrrverandi sambýlismanns, Hans Olav Hansen, er Jón Thor og synir Kristins eru Ívar og Nói. 4) Ólafur Theódór, f. 1959, í sambúð með Hildi Guðjónsdóttur. Synir þeirra eru Guðjón Andri og Krist- ján Rafn. 5) Geir Hafsteinn, f. 1962. Synir hans og fyrrverandi sam- býliskonu hans, Lene Hansen, eru Benjamín og Lúkas. Oddný lauk námi frá Kvenna- skólanum í Reykjavík árið 1944. Fyrsta starf hennar var hjá „Hinu íslenzka steinolíuhlutafélagi“ (Esso). Árið 1947 var hún skipuð talsímakona en sagði upp störfum 1951. Hún hóf aftur störf hjá Land- síma Íslands sumarið 1961 og vann þar fyrst yfir sumartímann í afleys- ingum en síðar um margra ára bil í fullu starfi, fyrst á Langlínunni en síðar í Upplýsingum, þar til hún lét af störfum fyrir aldurs sakir árið 1996. Útför Oddnýjar verður gerð frá Fossvogskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 13. Ingibjargar Guð- mundsdóttur í Winne- peg í Kanada. Bróðir Oddnýjar var Sig- urður Jónsson, f. 4. janúar 1925, d. 3. maí 2005. Eiginmaður Odd- nýjar er Jón Gunnar Sigurðsson, f. 14. júlí 1924. Foreldrar hans voru Sigurður Sig- urðsson, f. 20. júní 1891, d. 9. júní 1943 og Ólína Ágústa Jóns- dóttir, f. 19. febrúar 1893, d. 27. ágúst 1991. Börn Odd- nýjar og Jóns Gunnars eru: 1) Guð- rún, f. 1951, gift Stefáni Pálssyni. Börn Guðrúnar og fyrrverandi eig- inmanns hennar, Unnsteins Gísla- sonar, eru Sarah og Davíð, sam- býliskona Eva Björk Eggertsdóttir, þau eiga tvo syni. Stefán á fjögur börn og sjö barnabörn. 2) Ólöf, f. Það stafar birtu af sumu fólki. Það er sem hafi það gleypt bita af sólinni eða eins og Klukkublóm eða önnur ævintýravera á hverjum morgni strái örlitlu töfradufti á hafragrautinn þess. Þessi orð hafði Thomas Thurah um eina af sögupersónum Stein- becks. Þegar ég las þau einu sinni fyrir litla strákinn okkar, sagði hann: „Já, það er alveg eins og amma Ossý, það er bara eins og hún hafi gleypt alla sólina.“ Slíkur sólargeisli var Oddný. Ég kynntist henni fyrst fyrir tæpum þremur áratugum, þegar ég var ung og ástfangin af syni hennar. Við vorum að læðast inn seint um kvöld, en þá sátu þau hjónin í stofunni og nutu sólarlagsins. Mér var tekið með þvílíkri hlýju og vingjarnleika að mér er enn minnisstætt. Nánast frá þessu augnabliki var ég sem ein af fjölskyldunni. Þegar ég síðar var komin til náms í Kaupmannahöfn og Óli ennþá heima á Íslandi, hringdi hún reglulega. Eftir dálítið spjall kallaði hún svo í Óla og sagði honum að það væri sími til hans. Hvort sem hún átti frumkvæðið að þessum símtölum eða ekki, var mér dýrmætt að finna að hún hefði að minnsta kosti ekki neitt á móti því að vinátta okkar entist. Góðvild hennar og hjartanlegt viðmót umlukti alla sem hún um- gekkst. Hún var svo jákvæð og bjartsýn að eðlisfari. Það var ekki skortur á lífsreynslu. Hún þekkti vel til galla fólks. Kostir þess voru í hennar augum bara svo miklu merkilegri og áhugaverðari. Þess vegna sóttumst við líka öll eftir ná- vist hennar. Synir okkar voru svo lánsamir að kynnast henni. Sá eldri man eftir legó-byggingum og búðarleikjunum á gólfinu með ömmu sinni, þar sem þau voru búin að breyta eldhúsinu í gamaldags verslun. Hann var kaup- maðurinn og hún kær viðskiptavin- ur. Þá var hún komin á áttræðisald- ur, en ekkert of gömul til að leika sér. Föðurfólk Oddnýjar var ættað úr Flatey. Afi hennar, séra Sigurður Jensson, var sóknarprestur þar í áratugi, og þar naut hún sumarsins á æskuárum. Húsið þar, Klaustur- hólar, var síðar tekið eignarnámi. Í kringum 1990 endurheimtu þau systkinin Oddný og Sigurður húsið aftur. Þá hafði það staðið autt í ára- tugi, illa útlítandi, enda ekki verið hugað að viðhaldi. En eftir að búið var að staðreyna að timbrið væri heilt, var hafist handa við endur- byggingu. Fyrir utan uppgerð á gluggum, þaki og veggklæðningu, lögðu þau klóak sem ekki var fyrir áður. Öll börn þeirra systkinanna Oddnýjar og Sigurðar lögðu hönd á plóginn. En fyrst og fremst voru það þau sjálf og makar þeirra Jón og Guðlaug sem báru hitann og þungann af verkinu. Þetta var gjöf þeirra til afkomenda sinna, sem nú eiga þarna sameiginlegan sumar- dvalarstað. Samúð okkar er með Jóni, eig- inmanni og lífsförunaut hennar í 60 ár. Viðbrigðin eru snögg. Það er napurt í skugganum eftir fráfall hennar. Tíminn er líknsamur og læknar sár. Megi hann milda söknuðinn. Og megi minningin um yndislega eig- inkonu, mömmu, ömmu og tengda- mömmu lifa með okkur, og hjálpa okkur til að verða betri manneskj- ur. Ef allir líktust henni örlítið, væri heimurinn betri staður að gista. Hildur. Nú er kallið komið, tengdamóðir mín Oddný S. Jónsdóttir hefur fengið hvíld eftir löng og erfið veik- indi. Að leiðarlokum hrannast minningarnar upp og mér verður hugsað til baka til þess tíma þegar hún var í fullu fjöri og sjálfri sér lík. Hress, kát og glöð. Leiðir okkar Oddnýjar lágu fyrst saman þegar ég kynntist dóttur hennar, Auði og Jóni Thor syni hennar og tók hún mér opnum örm- um. Hún lét sér einnig annt um syni mína tvo og fylgdist vel með lífi þeirra og þroska. Ég á ekkert nema góðar minn- ingar um þessa glæsilegu og góðu konu, sem gætti þess vandlega að vera ævinlega vel til höfð og naut þess að klæðast fallegum fötum. Hún var afar gestrisin og þau Jón Gunnar tengdafaðir minn opnuðu heimili sitt og veittu okkur Auði skjól á meðan við vorum að gera upp íbúð sem varð okkar fyrsta heimili. Það var ótrúlegur kraftur sem bjó í Ossýju, eins og hún var gjarn- an kölluð. Þegar hún tók sig til var betra að vera ekki fyrir. Hún fór um sem stormsveipur, þvoði glugga, gólf og þvott á yfirnáttúrulegum hraða. Þess á milli gat hún slakað fullkomlega á og naut þess oft að lesa eða horfa góða mynd í sjón- varpinu. Hún hafði gaman af að reyna eitt- hvað nýtt og þegar ég hringdi einu sinni og spurði svona í gríni frekar en alvöru hvort hún vildi ekki borða með mér spikfeitan, saltaðan fýl- sunga var hún mætt heim mín augnabliki síðar, hún ætlaði ekki að missa af þeirri veislu þó hún vissi ekkert hvað hennar beið. Það voru skemmtilegar stundir sem við áttum saman í Flatey í Breiðafirði. Ossý og bróðir hennar Sigurður höfðu ásamt Jóni Gunnari og Laugu endurheimt Klaustur- hóla, gamalt glæsilegt hús sem reist var 1901 af afa þeirra systkina. Margar ferðir voru farnar til að smíða og mála. Ossý og mágkona hennar Lauga sáu um að við vinnu- mennirnir syltum ekki og það er ekki orðum aukið þegar sagt er að borð svignuðu undan kræsingum og ilmandi nýtt kaffi var stöðugt í boði. Þess á milli skrapaði hún glugga, naglhreinsaði eða mokaði til jarð- vegi. Á milli þeirra systkina Ossýar og Sigurðar voru miklir kærleikar og þær Lauga voru bestu vinkonur. Það voru því mikil forréttindi að fá að dvelja með þeim og fjölskyldunni í Flatey og upplifa þennan mikla vinskap og kærleika sem á milli þeirra var. Margt breytist við fráfall Ossýj- ar, það verður öðruvísi skötuveisla á heimili mínu á næstu Þorláks- messu, jólin fá annan blæ og svo mætti lengi telja. Ossý og Jón Gunnar hafa átt heimili á Hrafnistu seinustu ár og þar hefur verið hugsað vel um þau. Jón dvelur áfram á Hrafnistu, hann hefur misst mikið. Við Auður sendum starfsfólki á Hrafnistu hjartans þakkir fyrir allt það sem þetta ágæta fólk hefur gert fyrir þau hjón. Að leiðarlokum kveð ég tengda- móður mína með virðingu og þökk fyrir allt sem hún var mér á samleið okkar um lífið. Það var og verður mér ómetanlegt. Hennar verður sárt saknað. Kveðja, þinn tengdasonur, Kristinn. Amma Ossý var einstaklega skapgóð og hlý. Við barnabörnin minnumst þess ekki að hún hafi skipt skapi eða hvesst tóninn við okkur, hún var alltaf létt og kát. Það var gaman að hlæja með ömmu. Hún var einstaklega hláturmild, hló alltaf svo tárin streymdu niður kinnarnar og ósjaldan grétum við saman úr hlátri. Það var alltaf gott að koma í Bauganesið. Hjá ömmu horfðum við á Tomma og Jenna meðan hún stjanaði við okkur og færði okkur það sem var bannvara heima hjá okkur, kókómalt og kókópöffs. Við fórum aldrei svöng frá ömmu. Um helgar var það alltaf fastur liður að renna við í kaffi í Bauganesinu og á hátíðisdögum safnaðist fjölskyldan saman hjá ömmu og afa. Jólaasp- Oddný Sigríður Jónsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.