Morgunblaðið - 03.05.2007, Blaðsíða 20
Djúpivogur | Mikill fjöldi andarteg-
unda verpir við vötnin á Búlandsnesi
við Djúpavog á hverju ári. Skeið-
öndin er ein af sjaldgæfari tegund-
unum sem verpa við vötnin en hún
hefur verið árviss varpfugl síðast-
liðin ár á svæðinu. Skeiðandarstegg-
urinn er mjög litskrúðugur fugl þeg-
ar hann er í sínum fínasta búningi.
Skeiðandarstegg-
ur í vorskrúða við
Búlandsnessvötn
20 FIMMTUDAGUR 3. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
AUSTURLAND
Seyðisfjörður | T.A.K., Tengslanet
austfirskra kvenna, heldur aðalfund
sinn í Herðubreið á Seyðisfirði nk.
laugardag kl. 15.
Kl. 16 hefst málþingið „Í félags-
skap kvenna.“ Þar verður m.a.
fjallað um hvað er líkt og ólíkt með
tengslanetum kvenna og kven-
félögum og um gildi tengslanets í lífi
og starfi. Framsögumenn eru Soffía
Lárusdóttir, Ingunn Karítas
Indriðadóttir og Helga Hreinsdóttir.
Vinnuhópar fjalla í kjölfarið um
möguleg verkefni tengslaneta og í
lok formlegrar dagskrár verða af-
hent hvatningarverðlaun TAK. For-
maður T.A.K. er Katla Steinsson.
Munurinn á
tengslaneti og
kvenfélagi
Egilsstaðir | Stórt skref hefur nú
verið stigið í átt til að auka mjög
þjónustu við geðfatlað fólk á Austur-
landi, m.a. með nýjum búsetuúrræð-
um, aukinni liðveislu og nýrri vinnu-
aðstöðu.
Magnús Stefánsson félagsmála-
ráðherra og Soffía Lárusdóttir,
framkvæmdastjóri Svæðisskrifstofu
málefna fatlaðra á Austurlandi, hafa
undirritað samkomulag um verkefni
til að fjölga búsetuúrræðum og efla
dagþjónustu og dagvist fyrir geðfatl-
að fólk á Austurlandi. Þetta felur í
sér að félagsmálaráðuneytið ver
samtals 70,8 milljónum króna á árinu
2007 til þess að styðja verkefni gagn-
vart geðfötluðu fólki á Austurlandi.
Samkomulagið er gert í samræmi
við átak í þjónustu við geðfatlað fólk,
stefnu og framkvæmdaáætlun ráðu-
neytisins 2006–2010. Svæðisskrif-
stofan hefur unnið að undirbúningi
málsins um langa hríð, m.a. í sam-
vinnu við Geðhjálp á Austurlandi.
Einangrunin rofin
Verkefnin sem um ræðir eru í
fyrsta lagi uppbygging búsetu sem
er ígildi fjögurra leiguíbúða ásamt
starfsmannaaðstöðu, sem Átak í
þjónustu við geðfatlaða fjármagnar,
fyrir einstaklinga með geðfötlun.
Búseturúrræðið verður hluti af hús-
næðiskosti fyrir fatlaða á svæðinu og
nýtt í samstarfi við SAUST þannig
að tryggt sé að jafn margar íbúðir
standi geðfötluðum til boða á hverj-
um tíma.
Í öðru lagi er um að ræða þróun-
arverkefni til að koma á fót félags-
og vinnuaðstöðu fyrir fólk með geð-
raskanir og geðfötlun, líklega í
Kompunni á Egilsstöðum. Við þróun
og mótun þjónustunnar verður lögð
áhersla á þátttöku og virkni notenda
og aðstandenda þeirra. Aðrir sam-
starfsaðilar í þróunarverkefninu eru
Félagsþjónusta Fljótsdalshéraðs,
Félagsþjónusta Fjarðabyggðar,
Heilbrigðisstofnun Austurlands,
deild Geðhjálpar á Austurlandi og
Austurlandsdeild Rauða kross Ís-
lands. Markmiðið er að auka stuðn-
ing til að rjúfa einangrun, stuðla að
tengslamyndun og aðstoða geðfatl-
aða til virkni í samræmi við eigin
getu. Þá er í samkomulaginu gert
ráð fyrir að auka frekari liðveislu í
búsetu við fólk sem býr við geðfötl-
un. Stuðningur átaksverkefnisins
gerir SAUST kleift að ráða fleira
fagfólk til starfa.
Þjónusta við geð-
fatlaða stóraukin
Veittar rúmar 70 milljónir á þessu ári
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Fjölbreytni Frá almennu sam-
komuhaldi á Vilhjálmsvelli.
Vopnafjörður | Um helgina
voru björgunarsveitinni
Vopna á Vopnafirði afhent-
ir peningar sem söfnuðust
á hlutaveltu sem nokkrir
vaskir krakkar á Vopna-
firði stóðu fyrir.
Peningaupphæðin sem
þau gáfu var 30.614 kr. og
munar um minna fyrir sveit
eins og Vopna og eiga börn-
in miklar þakkir skildar.
Þau heita Ingibjörg
María Konráðsdóttir, Gló-
dís Ingólfsdóttir, Anna
Lilja Vigfúsdóttir, Matt-
hildur Ósk Óskarsdóttir og
Tómas Guðjónsson.
Vopni hefur í ýmsu að
snúast og segir á vefsíðu sveitar-
innar m.a. frá útkalli 20. apríl sl.
þegar leita þurfti konu sem ekki
hafði skilað sér úr göngutúr utan við
Strandhöfn. Hún fannst heil á húfi í
bæjarhlaðinu heima hjá sér. Einnig
segir frá því að aðstoða hafi þurft
ökumann í Burstafellsbrekkum við
að koma hestakerru niður fjallið.
Það er ævinlega léttir þegar útköll
leysast farsællega. Svo er þó ekki
alltaf og skemmst að minnast erf-
iðrar leitar sem fjöldi manns kom að,
þegar sjómanns var saknað af bát
sínum í Vopnafirði og fannst svo lát-
inn.
Börn færðu Vopna
veglega gjöf
Morgunblaðið/Jón Sigurðarson
Gjöf Þessir knáu krakkar söfnuðu yfir 30
þúsund krónum og gáfu Vopna.
Fellabær | Kaupþing og Golfklúbbur
Fljótsdalshéraðs hafa gert með sér
auglýsinga- og styrktarsamning til
þriggja ára og er Kaupþing nú að-
alstyrktaraðili klúbbsins.
Samningurinn felur m.a. í sér að
Kaupþing styrkir klúbbinn til að
kaupa nýja æfingabolta, verður með
auglýsingar á 1. braut Ekkjufells-
vallar í Fellum og á æfingasvæði
klúbbsins.
Opna Kaupþingsmótið verður
haldið um miðjan júlí ár hvert og er
það stærsta golfmót sumarsins hjá
golfklúbbnum. Styrkinn ætlar hann
að nota til uppbyggingar á aðstöðu
sinni og velli, sem og til frekari efl-
ingar barna- og unglingastarfs, sem
hefur verið í mikilli sókn sl. tvö ár.
Framkvæmdastjóri Golfklúbbs
Fljótsdalshéraðs er Sturla Hösk-
uldsson.
Kaupþing styrkir Golf-
klúbb Fljótsdalshéraðs
EYFIRÐINGAR og gestir þeirra
geta flakkað á milli safna á laugar-
daginn, án endurgjalds – bæði verð-
ur ókeypis inn á söfnin og boðið
verður upp á rútuferðir á milli
staða; sú skemmtilega nýbreytni er
nú tekin upp að tvær safnarútur
verða á ferðinni og fer önnur þeirra
t.d. frá Akureyri og út á Siglufjörð
á Síldarminjasafnið.
Eyfirski safnadagurinn er á laug-
ardaginn, 5. maí, en markmiðið með
honum er að vekja athygli á fjöl-
breyttri og áhugaverðri safnaflóru
sem Eyjafjörður hefur upp á að
bjóða. Söfnin munu þennan dag
kynna starfssemi sína og bjóða
uppá margt áhugavert; nefna má
listflug, ratleik, upplestur, leiðsögn,
bátsferð, brauðbakstur á hlóðum,
gamaldags leiki, vagnferðir í Hrís-
ey og tónlist gestum að kostnaðar-
lausu.
Eftirfarandi söfn verða opin og
aðgangur ókeypis: Minjasafnið á
Akureyri, Smámunasafn Sverris
Hermannssonar í Eyjafjarðarsveit,
Sigurhæðir hús Matthíasar Joch-
umssonar, Safnasafnið á Svalbarðs-
strönd, Nonnahús, Listasafnið á
Akureyri, Gamli bærinn í Laufási,
Náttúrugripasafn Ólafsfjarðar,
Síldarminjasafnið á Siglufirði, Iðn-
aðarsafnið, Byggðasafnið Hvoll á
Dalvík, Flugsafn Íslands,
Amtsbókasafnið, Hákarlasafnið og
Holt í Hrísey og Davíðshús.
Söfnin í samvinnu við Sérleyfis-
bíla Akureyrar, leiðsögumenn á
Norðurlandi og Vaxtarsamning
Eyjafjarðar bjóða uppá svokallaðar
safnarútur. Auk þess verður safn-
astrætó á ferðinni um Akureyri.
Safnarúta 1 fer á Smámunasafn
Sverris Hermannssonar, Safna-
safnið og Gamla bæinn í Laufási.
Heimkoma kl. 15.
Safnarúta 2 fer á Byggðasafnið
Hvol á Dalvík, Náttúrugripasafnið í
Ólafsfirði og Síldarminjasafnið á
Siglufirði. Heimkoma kl. 16.
Farið verður frá upplýsingamið-
stöð ferðamanna á Akureyri í Hafn-
arstræti 82, kl. 10.
Safnastrætó fer frá Nætursöl-
unni kl. 13, 14, 15 og 16 en strætó-
inn keyrir á milli safnanna á Akur-
eyri með leiðsögumanni.
Safnarútur á
ferð í firðinum
Morgunblaðið/Golli
Síld Bátahúsið, hluti Síldarminja-
safnsins á Siglufirði.
Í HNOTSKURN
»Sameiginleg heimasíða safn-anna í Eyjafirði, www.sofn.is
(www.museums.is) verður opnuð
á laugardaginn. Heimasíðan er
afrakstur sameiginlegs kynn-
ingarátaks safnanna í Eyjafirði
en þegar hefur verið gefinn út
sameiginlegur bæklingur: Söfnin
í Eyjafirði.
DÖNSKU landsliðsstúlkurnar í liðinu Tårnby Curling
Club sigruðu á ICE Cup, alþjóðlegu krullumóti á vegum
Krulludeildar Skautafélags Akureyrar, sem fór fram um
síðustu helgi. Dönsku stúlkurnar urðu í öðru sæti á
heimsmeistaramótinu nýverið. Alls komu fjögur erlend
lið til landsins til að keppa á mótinu, tvö frá Bandaríkjun-
um, eitt frá Lettlandi og svo danska liðið. Koma erlendu
liðanna er mikill fengur fyrir krullufólk hér á landi, að
sögn mótshaldara.
Þetta er í fjórða sinn sem Akureyringar halda ICE
Cup. Átján lið kepptu á mótinu og er það metþátttaka, en
í liðunum átján voru samtals yfir 80 manns með vara-
mönnum.
Mótinu lauk síðdegis á sunnudag með úrslitaleikjum
þar sem sterk erlend lið röðuðu sér í þrjú efstu sætin.
Eitt íslenskt lið, Skytturnar, komst í úrslitaleik um
bronsið en liðið gerði sér lítið fyrir á laugardeginum og
náði jafntefli gegn þeim dönsku, 6-6.
Áður en til úrslitakeppni kom voru leiknar fimm um-
ferðir og í þeirri keppni sýndi lettneska liðið Latvian
Curling Friends mestan styrk og sigraði alla fimm and-
stæðinga sína. Dönsku landsliðskonurnar í Team TCC
voru í örðu sæti eftir 5 umferðir og léku því til úrslita við
lettneska liðið. Í lettneska liðinu eru tvær konur sem
báðar hafa tekið þátt í Evrópumótum. Lettneska liðið
varð að játa sig sigrað í sjálfum úrslitaleiknum því þar
léku þær dönsku vel og unnu 9-3.
Í leiknum um bronsið áttu Skytturnar í höggi við
bandaríska liðið Hacks. Skytturnar létu finna fyrir sér
strax í upphafi leiksins þegar liðið skoraði 5 steina í
fyrstu umferðinni. Bandaríkjamennirnir létu það ekki á
sig fá og unnu næstu fimm umferðir. Leikurinn endaði
11-6 þeim bandarísku í vil.
Í sigurliðinu eru þær Angelina Jensen, Madeleine
Dupont, Camilla Jensen og Anne Hansen. Í silfurliðinu
frá Lettlandi eru Sandris Buholcs, Solvita Gulbe, Ansis
Regza og Dace Regza. Bronsliðið Hacks frá Bandaríkj-
unum skipa þeir Russ Armstrong, Cliff Andreoli, Mike
Griem og Thom Knitter.
Mótshaldið tókst með afbrigðum vel og voru hinir er-
lendu gestir hæstánægðir með aðstæður, mótið sjálft og
alla umgjörðina í kringum það, að sögn aðstandenda.
Dönsku dömurnar sigruðu
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Snjallir en töpuðu Leikmenn lettneska krulluliðsins í úrslitaleiknum gegn dönsku landsliðskonunum.