Morgunblaðið - 03.05.2007, Side 14

Morgunblaðið - 03.05.2007, Side 14
14 FIMMTUDAGUR 3. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR FYRIRTÆKJAKEPPNIN Hjólað í vinnuna hófst í Fjölskyldu- og hús- dýragarðinum í Reykjavík í gær. Þá höfðu 520 lið frá 230 fyr- irtækjum og stofnunum skráð sig. Jónína Bjartmarz umhverfis- ráðherra sagði m.a. að auknar hjól- reiðar væru ekki eingöngu heil- brigðismál heldur einnig umhverfismálþví þær drægju úr notkun bifreiða og þar með meng- un. Þorgerður Katrín Gunn- arsdóttir menntamálaráðherra og Siv Friðleifsdóttir heilbrigðis- ráðherra voru einnig mættar. Þor- gerður Katrín sagði að nokkur hjólalið hefðu þegar verið mynduð í ráðuneyti hennar, þar á meðal eitt sem kallast „Ljóskurnar“. Siv kvaðst vera nokkuð dugleg að hjóla í kringum heimili sitt ásamt fjöl- skyldu sinni, en hún hefði ekki enn hjólað í vinnuna. Gísli Marteinn Baldursson, for- maður umhverfisráðs, benti á að 1995 hefðu verið 450 bílar á hverja þúsund íbúa, sem jafnaðist á við það sem algengt væri á Norðurlöndum. Nú væri bílafjöldinn kominn yfir 600 á hverja þúsund íbúa sem væri álíka og í mestu bílaborgum Banda- ríkjanna. Einnig var Ólafur Rafns- son, forseti ÍSÍ, mættur en nánari upplýsingar má fá á heimasíðu ÍSÍ. Ljósmynd/Arnaldur Keppni Hjólreiðafólkið lét ekki á sig fá þótt það rigndi þegar fyrirtækja- keppnin Hjólað í vinnuna hófst í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum í gær. Keppt um að hjóla í vinnuna NÝLIÐINN aprílmánuður var með þeim hlýjustu sem sögur fara af hér á landi frá því samfelldar mælingar hófust á ofanverðri 19. öld. Úrkoma var einnig mikil í apríl og hefur t.d. ekki verið meiri á Ak- ureyri frá árinu 1989. Þar voru sólskinsstundir þó yfir meðal- lagi. Veðurstofan segir í veð- urfarsyfirliti, að tíðarfar hafi almennt verið hagstætt í mán- uðinum, en hans verði einkum minnst fyrir tvær óvenjulegar hita- bylgjur. Sú fyrri varð um landið austanvert í byrjun mánaðarins og komst hiti hinn 3. í 21,2 stig í Nes- kaupstað. Hiti hefur ekki mælst hærri svo snemma árs. Síðari hitabylgjan gekk yfir mik- inn hluta landsins síðustu daga mánaðarins. Landshitamet apr- ílmánaðar féll hinn 29. þegar hiti komst í 23°C á sjálfvirku stöðinni í Ásbyrgi í Öxarfirði og í 21,9°C á mönnuðu stöðinni á Staðarhóli í Að- aldal. Hvort tveggja er met í sínum stöðvaflokki. Áður hafði hiti á sjálf- virkri stöð orðið hæstur á Hall- ormsstað 21,4°C hinn 19. apríl 2003, en á mannaðri stöð 21,1°C á Sauða- nesi við Þistilfjörð 18. apríl 2003. Hlýtt og blautt í apríl Magnús Pálsson sleikir sólskinið á Egilsstöðum. RÁÐSTEFNAN „Önnur úrræði en fangelsi“ verður haldin á Hótel Örk í Hveragerði á morgun, föstu- dag, og stendur hún frá kl. 9 til 15. Það er samráðsnefnd um mál- efni fanga sem stendur að ráð- stefnunni. Flutt verða fimm erindi um mál- efnið og einnig verða umræður og fyrirspurnir. Tveir erlendir fyr- irlesarar flytja erindi á ráðstefn- unni. Önnur úrræði FÆRRI umferðaróhöpp voru til- kynnt til lögreglunnar á höfuðborg- arsvæðinu í síðustu viku en á sama tímabili í fyrra. Í ár voru þau 142 en 157 árið 2006. Þetta er 10% fækkun en alþjóðleg umferðaröryggisvika var einmitt haldin hérlendis í síð- ustu viku. Í 142 umferðaróhöppum í ár var tilkynnt um slys á fólki í 12 tilfellum, eða 8% tilvika. Á sama tíma í fyrra var tilkynnt um slys á fólki í 27 tilfellum, eða 17% tilvika. Færri óhöpp HEILBRIGÐISRÁÐHERRA hefur undirritað nýja reglugerð um hækkun á styrkjum Trygginga- stofnunar ríkisins til kaupa á nær- ingarefnum og sérfæði fyrir sjúk- linga sem eiga við tilgreinda sjúkdóma að stríða og þurfa lífs- nauðsynlega á slíkum efnum að halda. Greiðsluþátttakan er upp- færð til samræmis við verðþróun og ábendingar viðskiptavina TR um að innkaupaheimildir hafi ekki dugað. Greiðslur hækka EKKI er óalgengt að selir sjáist í nágrenni Blönduóss enda nóg þar að bíta og brenna. Þessi selur slapp- aði af í blíðunni í Blönduóshöfn. Hann haggaðist ekki fyrr en bæj- arstarfsmenn nálguðust hann óhóf- lega, að hans eigin mati. Ekki er ólíklegt að selurinn hafi talið að mennirnir væru komnir til að rukka inn hafnargjöldin. Morgunblaðið/Jón Sigurðsson Slappað af í Blönduóshöfn BEITNINGARVÉL fyrir staðlaða pokabeitu frá Seabait er nú komin á markað, en vélin er smíðuð í sam- vinnu við ýmsa aðila, meðal annarra Ragnar Aðalsteinsson og KM stál og styrkt af AVS sjóðnum. Á síðasta sprettinum hefur verið unnið að vél- inni í samvinnu við Vísi hf. í Grinda- vík. „Þeir hafa lagt okkur til bæði fjár- muni og tæki og Páll Pálsson hefur farið yfir virkni vélarinnar með okk- ur. Útkoman reyndist vera mjög góð og við náðum stöðugleika í 97% beitningu á átta mílna ferð. Þetta er í raun og veru 100% vél, en svo eru bara mannleg mistök og frávik, sem draga okkur niður í 97%,“ segja þau Júlíana T. Jónsdóttir og Sveinbjörn Jónsson. Þau eru í fararbroddi fyrir fyrirtækið Seabait, sem framleiðir bæði beituna og beitningarvélina. Tvær vélar að fara um borð „Við erum búin að selja tvær vélar, sem eru að fara um borð í bátana. Við stefnum að því að svona búnaður verði kominn í nokkra báta fyrir sumarið. Þá verði hægt að keyra þessa beitu okkar við beztu skilyrði, það er taka hana beint úr frysti á krókinn og út á hafið. Þá eru menn lausir við annmarka geymsluþolsins. Ef beitan er handbeitt og sett inn á frystiklefa hrakar henni hraðar en annarri beitu, en sé hún notuð fersk, fiskar hún miklu betur. Sá, sem var fyrstur til að panta svona beitning- arvél, var búinn að nota beituna frá okkur í tvö ár til ýsuveiða. Hann vill helzt ekki neitt annað. Notkun á svona beitningavél spar- ar mikinn kostnað. Það þarf ekki að beita í landi, en það er reyndar ekk- ert nýtt. Það er beitan, sem er ný- lundan. Hana er hægt að laga að að- stæðum hverju sinni og hvernig fisk menn vilja veiða. Það er til dæmis hægt að blanda lýsi í hjúpinn og þá veiðir beitan, þrátt fyrir að hún sé í raun og veru ekki að virka sem slík. Þá veiðir hjúpurinn í stað beitunnar. Þess vegna erum við að gera tilraunir með að bleyta beituna í lýsi við beitn- ingu. Þannig getum við breytt beit- unni við lögn. Þetta er kannski eins og að velja sósu á matinn. Þetta er ekki hægt að gera við hefðbundna beitu eins og síld eða smokk. Mögu- leikarnir eru reyndar allt að því endalausir. Það er hægt að ráða inni- haldi og útliti beitunnar eftir kenjum hvers og eins. Nú má segja að við séum búin að loka hringunum. Við erum komin með framleiðsluna, beituna, og notk- unarbúnað, beitningarvélina og þó nokkuð af vísindalegum gögnum til að ákveða hvernig við viljum hafa hlutina. Til skamms tíma vorum við ekki í stakk búin til að bjóða vélabát- unum upp á beituna okkar, því það vantaði beitningarvélar fyrir hana. Núna erum við tilbúin í slaginn, get- um boðið heildarlausnir fyrir þessa báta. Við erum löngu komin af stað með beituna, framleiðslutæknina, og þekkingaröflunina og nú er vélin tilbúin. Við erum einnig komin langt með einkaleyfin. Við höfum margfaldað beitusöluna og erum núna með 40 til 50 notendur, en þeir voru aðeins nokkrir síðast- liðið haust. Þetta er því að virka. Sjó- menn frá Drangsnesi og Hólmavík hafa notað beituna frá okkur mjög mikið. Þeir hafa mikla trú á henni og segja að það sé ódýrara að nota hana heldur en hefðbundna beitu. Það er ljóst að við hefðbundna vélbeitningu þarf um 30 gröm í hverja beitu að meðaltali. Beitan okkar er 10 grömm eða þriðjungur af þyngd hinnar beit- unnar. Hún veiðir engu að síður jafn- vel eða betur en hin beitan, auk þess sem hún tollir mun betur á önglinum. Það er þegar ljóst að beitan okkar veiðir ýsu gríðarlega vel og það er eftirsóknarvert um þessar mundir að minnsta kosti. Með beztu ýsubeitu í heimi Svo er auðvitað hægt með tilraun- um að þróa alls konar gerðir af beit- unni sem myndu henta við mismun- andi aðstæður og veiðar á mismun- andi tegundum. Við búum til beztu ýsubeitu í heimi. Það er engin beita í veröldinni, sem veiðir ýsu betur en þessi beita. Við höfum mælingar frá Hafrannsóknastofnuninni sem sýna allt upp í 116% aukningu á ýsuveiði með beitunni okkar. Veikleikar beit- unnar eru fólgnir í geymsluþoli, styrkurinn felst í ferskleika. Þegar beitan er handbeitt og geymd inni í frysti slaknar ferskleikinn óhjá- kvæmilega. Þegar beitan er hins veg- ar sett frosin í beitningarvélina helzt ferskleikinn mjög mikill og fyrir vik- ið ætti hún að veiða betur en með handbeitningunni. Því er að opnast fyrir okkur mjög stór markaður fyrir pokabeituna og við getum ekki annað en verið bjartsýn á framvinduna,“ segja þau Júlíana og Sveinbjörn. Við erum búin að loka hringnum Fyrstu beitning- arvélarnar fyrir pokabeitu frá Seabait seldar Forystan Júlíana Jónsdóttir framkvæmdastjóri og Sveinbjörn Jónsson þróunarstjóri í verksmiðjunni í Súðavík. VERÐ sjávarafurða lækkaði lítil- lega í mars, eða um 0,4% frá mán- uðinum á undan mælt í erlendri mynt (SDR). Afurðaverð á erlend- um mörkuðum er samt sem áður nærri sögulegu hámarki og hefur hækkað um rúm 13% á síðustu tólf mánuðum. Í íslenskum krónum lækkaði af- urðaverð í mars um 0,2% frá mán- uðinum á undan. Síðastliðna tólf mánuði hefur afurðaverðið hækkað um 14% mælt í íslenskum krónum. Það er Morgunkorn Glitnis sem byggir þennan útreikning á tölum Hagstofunnar og gengisbreytingum helstu gjaldmiðla. „Ytri aðstæður fyrir sjávarút- vegsfyrirtækin eru ágætlega hag- felldar um þessar mundir. Munar þar mestu um hátt afurðaverð á er- lendum mörkuðum. Krónan hefur reyndar styrkst undanfarnar vikur en gengisspár gera ráð fyrir nokkru veikari krónu en nú er á seinni hluta ársins. Horfur fyrir yf- irstandandi ár eru ágætar, sterk spurn er eftir afurðum á erlendum mörkuðum og því líklegt að afurða- verð haldist hátt,“ segir í Morg- unkorninu. Lítilsháttar lækkun á afurðaverði                          %   & '                      „VIÐ prófuðum með þeim, hvernig beitan festist á önglinum við lögn og það gekk mjög vel. Við höfum ekki reynt beitningavélina úti á sjó og vitum því ekki hvernig útkoman þar er. Það virðist þó álveg ljóst að hugmynda- fræðin að baki bæði beitunni og beitningarvélinni gengur upp,“ segir Páll Jóhann Pálsson, útgerðarmaður í Grindavík. „Það mjög góður kostur að geta valið fiskitegundir með beitunni, ekki veitir af nú, þegar menn þurfa að forðast þorskinn og sækja meira í ýsuna. Það er líka góð staða að geta valið á milli tveggja aðferða við línuveið- arnar, þá hefðbundnu og svo pokabeituna. Bezti kosturinn væri sá að hægt væri að keyra þessi kerfi saman, þannig að ekki væri mikið mál að skipta á milli kerfa úti á sjó. Það væri kjöraðstaða,“ segir Páll. Hugmyndafræðin gengur upp ÚR VERINU Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörns

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.