Morgunblaðið - 03.05.2007, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. MAÍ 2007 19
BERGLIND Jóna Hlynsdóttir er listakona sem útskrifaðist frá
Listaháskóla Íslands í fyrravor og hefur þá þegar verið nokkuð
ötul í að taka þátt í samsýningum. Hún heldur nú einkasýningu
í ljósmyndagalleríinu Auga fyrir auga sem hún kallar „Þú, ég
og önnur vandamál“. Þetta er fyrsti hluti verkefnis sem lista-
konan hefur unnið að í Brasilíu þar sem hún fylgir vissum sam-
félagslegum reglum þeirra sem eru auðugir þegar hún ferðast
um í fátækari hverfum Sao Paolo-borgar. Reglurnar eru einna
helst þær að vera ekki með dýra hluti utandyra, eins og mynda-
vél, eða þá að halda sig inni í bíl og með lokaða glugga þegar
stansað er á rauðu ljósi. Þannig tekur Berglind myndirnar og
bera þær líka með sér þetta skerta ferðafrelsi.
Ljósmyndirnar sýna aðallega fólk í nálægð við veggi eða
girðingar sem skilja svæði í sundur. Fólkið er hins vegar ósköp
sakleysislegt að spóka sig í sólinni eða á ferð og einhvern veg-
inn virkar þessi öryggisáróður eitthvað svo fjarlægur fólkinu á
myndunum, sem skapar óvissu og spurningar í huga manns.
Myndirnar eru litlar og látlausar en hanga lárétt þétt saman
og mynda einskonar vegg umhverfis mann í sýningarrýminu.
Listakonan brýtur það form síðan upp, býr til glompur með því
að skella lóðréttum myndum af sér sjálfri í hvítu rými þar sem
hún ljósmyndar út í tómt. Þessar glompur skapa tilfinningu
fyrir rými á milli ljósmyndara og fyrirmynda og má m.a. túlka
sem líkingarmynd fyrir þá firð sem verður þeirra á milli vegna
áðurnefndra aðstæðna.
Aðstæðurnar eða „vandamálið“ er þrátt fyrir þetta hið eig-
inlega viðfangsefni sem listakonan er að kljást við, en það er
einmitt þessi hugmyndalegi og/eða pólitíski partur sem gerir
sýninguna svo gegnheila. En í ábæti vinna ljósmyndirnar vel
saman og rýmislega er sýningin mjög vel hugsuð.
Vandamál sem viðfangsefni
Ljósmyndir Pólitíski parturinn gerir sýninguna heilsteypta.
MYNDLIST
Auga fyrir auga
Opið fim. og fös. kl. 15–19, lau. og sun kl. 14–19. Sýningu lýkur 13.
maí. Aðgangur ókeypis.
Berglind Jóna Hlynsdóttir
Jón B.K. Ransu
JÓÐAFLÓÐSKYNSLÓÐ eftirstríðs-
ára ætti öðrum fremur að geta metið
þá byltingu í upphaflegri túlkun á
forntónlist sem hófst kringum 1970 og
nú er orðin ríkjandi. Fólk sem man
allt frá þungrómantískum útfærslum
Münchingers, léttara miðstigi Marr-
iners og „HIP“-ýkjum frumkvöðla 8.
áratugar að fullfleygri upprunatúlkun
Fabios Biondis á þeim tíunda. Og satt
bezt að segja var það einmitt orku-
frussandi en hárnákvæm barokkmeð-
ferð hljómsveita á við L’Europa Gal-
ante og La Petite Bande sem fyrst
kom upp í hugann þegar nýstofnaða
strengjasveitin Camerata Dramma-
tica þreytti frumraun sína í Íslenzku
óperunni á laugardag við fjölmenni.
Í þurri ómvist Gamla Bíós, sem
gerir ekkert fyrir strengjahljóminn
en er því skæðari mælikvarði á
minnstu ósamstillingu, varð brátt
ljóst að hér var engin venjuleg spila-
mennska á ferð. Allt glampaði ýmist
af gustmiklu fjöri, dillandi glettni eða
djúpri innlifun. Og allt hnífsamtaka –
jafnvel við snögg tempóskipti eins og
gleggst mátti heyra í 12 samtengdum
dansþáttum Jean-Férys Rebel þar
sem decettinn (3-2-1-2-1 & semball)
lék sem einn maður. Það var örugg-
lega ekki sízt hinum slóvakíska for-
ystufiðlara Peter Spissky að þakka,
einhverjum músíklega jafnt sem lík-
amlega sprækasta strengjaforkólfi
sem ég hef augum litið, er virtist geta
stýrt minnstu smáatriðum með öllu
frá hvirfli til ilja og þar í millum.
Hvergi brá skugga á leik CD, er
markaði tvímælalaust glæsilegustu
hérlendu hljómsveitarfrumraun á
forntónlistarsviði sem ég hef orðið
vitni að. Það var því nánast útilokað
fyrir nokkurn samlendan einsöngvara
að gera jafn vel, hvað þá betur, en þau
Marta Guðrún og Ágúst Ólafsson áttu
engu að síður marga fína spretti,
hvort heldur saman í dúett eða í ein-
söng.
Frá hvirfli
til ilja
Peter Spissky
TÓNLIST
Íslenzka óperan
Verk eftir Corelli, Händel, Hasse, Rebel,
Gasparini og Telemann. Einsöngvarar:
Ágúst Ólafsson og Marta G. Halldórs-
dóttir. Camerata Drammatica undir for-
ystu Peters Spisskys. Laugardaginn 28.
apríl kl. 20.
Barokktónleikar Ríkarður Ö. Pálsson
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
-
8
1
9
5
EYÐIR AÐEINS 4,7 LÍTRUM Á HUNDRAÐIÐ
Í BLÖNDUÐUM AKSTRI
KIA Rio er magnaður bíll og með aflmikilli og
sparneytinni 112 hestafla dísilvél. Eins og alltaf hjá
KIA fara hér saman gæði, afl og hagkvæmni. Rio er
jafnframt búinn aksturstölvu, átta öryggisloftpúðum,
ABS hemlalæsivörn og álfelgum.
KIA umboðið á Ís landi er í e igu HEKLU • Laugavegi 172 • Reykjavík • s ími 590 5700 • www.kia. is
Engin útborgun, 25.633 kr. á mánuði*
*M.v. 100% lán og 84 mánaða gengistryggt bílalán frá AVANT.
FRÁBÆR
KAUP Í NÝJUM
KIA RIO DÍSEL
Verð nú 1.750.000 kr.
Verð áður 1.850.000 kr.