Morgunblaðið - 03.05.2007, Side 36
36 FIMMTUDAGUR 3. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Atvinnuauglýsingar
Skrifstofustörf hjá Morgunblaðinu
Morgunblaðið óskar eftir að ráða starfsmenn til framtíðarstarfa í auglýsinga- og dreifingardeild.
Um er að ræða annars vegar starf þjónustufulltrúa í auglýsingadeild og hins vegar starf dreifingarfulltrúa
í dreifingardeild.
Við leitum að röskum, þjónustulunduðum einstaklingum sem geta hafið störf sem allra fyrst.
Um er að ræða í báðum tilfellum fullt starf, annars vegar í dagvinnu og hinsvegar í vaktavinnu.
Hæfniskröfur:
• Stúdentspróf eða sambærileg menntun
• Almenn tölvufærni, þekking á Windows, tölvupósti og interneti
• Hæfni í mannlegum samskiptum og afburða þjónustulund
Nánari upplýsingar um störfin
veitir Auður Ingólfsdóttir
starfsmannastjóri í síma
569 1342 eða 669 1342.
Umsóknarfrestur er til 6. maí nk. Umsóknareyðublað er á mbl.is,
efst á forsíðu er flipi, Morgunblaðið, þar undir fyrirtæki er valið
sækja um starf, velj skal almenn skrifstofustörf. Athugið að hægt
er að setja ferilskrá og mynd í viðhengi við umsóknareyðublaðið.
Langar þig að flytja
upp í sveit?
Við búum upp í sveit, u.þ.b. klukkutímaakstur
frá Reykjavík. Þar rekum við ferðaþjónustu, en
við eigum einnig tvö ung börn og nokkra hesta.
Okkur vantar aðstoð við að sinna þessu svo vel
sé. Óskum því eftir að ráða heiðarlega barn-
góða konu til að gæta barnanna, eins og fimm
ára, sjá um heimilið og sinna því sem þarf. Í
boði eru góð laun, fæði, sérhúsnæði og bíll til
afnota. Ef þú hefur áhuga, sendu okkur þá línu
á bygg@internet.is.
Baader-maður
Vanur Baader-maður óskast á Snorra Sturluson
VE 28. Upplýsingar hjá skipstjóra í síma 852 2818
og 692 1478.
Fundir/Mannfagnaðir
Stjórnmálafundur um
skógræktarmál
Opinn stjórnmálafundur um skógræktarmál
verður haldinn fimmtudaginn 3. maí, kl. 16-18
á Elliðavatni á Heiðmörk. Að Elliðavatnsbæn-
um er best að aka Heiðmerkurafleggjarann frá
Suðurlandsvegi.
Að fundinum standa Landssamtök skógareig-
enda, Skógræktarfélag Íslands og Skógfræð-
ingafélag Íslands, ásamt fulltrúum allra stjórn-
málaflokka.
Dagskrá:
16:00. Fundarsetning
Agnes Geirdal, formaður Félags skógarbænda
á Suðurlandi, setur fund, býður gesti velkomna
og skipar Davíð Þór Jónsson fundarstjóra.
16:10. Stutt erindi
Edda Oddsdóttir, Rannsóknastöð Skógræktar
ríkisins, Mógilsá: Skógrækt á Íslandi.
Jón Geir Pétursson, Skógræktarfélagi
Íslands: Skógrækt: Úr vörn í sókn.
Arnór Snorrason, Rannsóknastöð Skógræktar
ríkisins, Mógilsá: Skógur og loftslagsmál.
17:00. Pallborðsumræður með fulltrúum
stjórnmálaflokka. Fulltrúi hvers flokks
flytur stutta framsögu.
Framsóknarflokkurinn
Frjálslyndi flokkurinn
Íslandshreyfingin
Samfylkingin
Sjálfstæðisflokkurinn
Vinstri hreyfingin – grænt framboð
Fundi slitið kl. 18.00
Landssamtök skógareigenda,
Skógræktarfélag Íslands,
Skógfræðingafélag Íslands.
Aðalfundur
Íslandsdeildar
Amnesty International
verður haldinn laugardaginn 12. maí kl. 14.00
í Litlu Brekku við Bankastræti.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt
samþykktum deildarinnar.
Stjórnin.
Aðalfundur GFF 2007
verður haldinn í Norræna húsinu fimmtudag-
inn 10. maí kl. 17.00 og er að venju öllum
opinn.
Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf.
Sérstakt umfjöllunarefni í lok fundar:
Vistvangur
,,Snortin og ósnortin náttúra”.
Allt áhugafólk um umhverfismál er hvatt til
að mæta.
Raðauglýsingar 569 1100