Morgunblaðið - 06.10.2007, Side 4
4 LAUGARDAGUR 6. OKTÓBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
KEPPNI hélt áfram á Special Olympics í Kína í
gær þar sem Íslendingar gera það gott, sýna sitt
allra besta og gleðjast. Keppt var í öllum grein-
um nema lyftingum og keilu. Íslensku forseta-
hjónin heimsóttu keppendur í fimleikum en
Helgi Magnússon og Jóhann Fannar Krist-
jánsson sýndu mikil tilþrif í æfingum sínum. „Jó-
hann er aðeins 12 ára en hefur náð mikilli tækni
og sýnt ótrúlegar framfarir frá því hann hóf æf-
ingar,“ segir Anna Karólína Vilhjálmsdóttir,
framkvæmdastjóri Íþróttafélags fatlaðra, en
hún er ein af þeim sem eru með hópnum í Kína.
Þjálfarar fimleikafólksins eru Ásta Ísberg og Er-
lendur Kristjánsson, þjálfarar hjá Gerplu, en þau
hafa sýnt mikinn metnað við að byggja upp æf-
ingar fyrir þennan hóp.
Langur boccia-dagur
Langur keppnisdagur var í boccia en úr-
slitakeppni er hafin þar. Keppt er utandyra á
sérvöllum sem henta fyrir íþróttagreinina. Bolt-
ar eru stærri en þeir sem notaðir eru á innan-
hússmótum á Íslandi og reglur ekki þær sömu en
íslensku keppendurnir gerðu sitt besta í hitanum
og sýndu góða takta.
Boccia-hópurinn býr á Great Tang hotel
Shanghai þar sem langt er á keppnisstað frá Yan
An-hótelinu sem flestir búa á. „Þrátt fyrir að
þetta skipulag hafi ekki verið vinsælt í upphafi
er fólk mjög ánægt með gististaðinn núna enda
hótelið fimm stjörnu hótel og eitt af hótelum sem
nýtt eru vegna Formúlunnar sem fram fer í
Sjanghæ þessa dagana,“ segir Anna Karólína.
Íslendingar kepptu í öllum greinum nema lyftingum og keilu
Glaðir keppendur og gera sitt besta
Boccia Íslensku keppendurnir kepptu meðal annars í boccia í gær og
reyndar í öllum greinum fyrir utan keilu og lyftingar.
Fimi Helgi Magnússon og Jóhann Fannar Kristjánsson sýndu mikil tilþrif
þegar þeir kepptu í fimleikum á ólympíuleikunum í Kína.
„BREYTINGARNAR munu tví-
mælalaust hafa þá þýðingu að með-
ferð mála verður hraðvirkari og
öruggari,“ segir Jón H.B. Snorra-
son, aðstoðarlögreglustjóri lögregl-
unnar á höfuðborgarsvæðinu, en
ákærusviði embættisins verður
framvegis skipt í deildir eftir mála-
flokkum. Með því verður sérhæfing
aukin og verður lögð áhersla á að
stytta málsmeðferðartíma.
Gert er ráð fyrir að starfsemi
ákæru- og lögfræðisviðs verði skipt í
þrjú svið, þ.e. brot gegn almennum
hegningarlögum, brot gegn sérrefsi-
lögum og almenna löggæslu. Deild-
irnar eru átta og afmarkast af af-
brotaflokkum. Þannig er brotum
gegn almennum hegningarlögum
skipt í megindráttum í þrjár deildir,
kynferðisbrot, ofbeldis- og líkams-
meiðingabrot og auðgunar- og fjár-
munabrot. Svið sérrefsilagabrota er
skipt í fíkniefnabrot, umferðalaga-
brot og önnur sérrefsilagabrot og
skipting sviðs almennrar löggæslu
er annars vegar viðfangsefni al-
mennu deildar lögreglu og erlend
réttaraðstoð og mál vegna nálgunar-
banns og hins vegar mál frá hverf-
isstöðvum og mál vegna afbrota út-
lendinga og málefni lögreglu vegna
eftirlits með útlendingum.
Lokið eftir útkall
Jón H.B. sem er yfirmaður sviðs-
ins bendir á þá nýbreytni að almenn
löggæsla fær nú sérstakt lögfræði-
svið. „Í kjölfarið mun málum í al-
mennri löggæslu verða háttað þann-
ig að þeim verði hægt að ljúka í beinu
framhaldi af útkalli. Það er mjög
þýðingamikið fyrir þá sem lögregla
hefur afskipti af að hafa ekki mál
lengi hangandi yfir sér.“ Meðal
þeirra brota eru t.d. brot á lögreglu-
samþykktum.
Þorsteinn Davíðsson, sem gegnt
hefur starfi aðstoðarmanns Björns
Bjarnasonar dómsmálaráðherra,
hefur verið ráðinn til að stýra deild
almennrar löggæslu. Hann tekur við
starfinu í næstu viku en samkvæmt
upplýsingum frá Birni hefur ekki
verið tekin ákvörðun um eftirmann
hans.
Meðferð mála
verði hraðvirkari
Skipulagsbreytingar Jón H.B. Snorrason aðstoðarlögreglustjóri, Stefán
Eiríksson lögreglustjóri og Þorsteinn Davíðsson, nýráðinn deildarstjóri.
Morgunblaðið/Júlíus
Eftir Egil Ólafsson
egol@mbl.is
KJÚKLINGABÆNDUR telja sig
nauðbeygða til að hækka verð á
kjúklingi vegna mikilla verðhækk-
ana á fóðri. Fóðurverð hækkaði um
13% í þessari viku, en það er fjórða
verðhækkunin á síðustu 12 mán-
uðum. Kúabændur segjast heldur
ekki geta einir tekið á sig verð-
hækkanir á fóðri.
„Það var dembt á okkur nýrri
hækkun á fóðri í þessari viku.
Þetta var mjög mikil hækkun eða
13%. Hún kemur í kjölfar 5%
hækkunar í september. Fóðrið
hafði tvívegis hækkað um 4% í
fyrravetur. Við höfum ekkert
hreyft við verði frá þeim tíma.
Þetta er um 30% hækkun á einu
ári. Við erum að skoða verð á kjúk-
lingum út frá þessum hækkunum.
Við þolum ekki að taka þessa
hækkun á okkur. Við fáum auk
þess þau skilaboð frá fóðurfyrir-
tækjunum að það sé meira í píp-
unum,“ segir Matthías Guðmunds-
son, formaður Félags kjúklinga-
bænda og framkvæmdastjóri
Reykjagarðs.
Fóðurkostnaður er um 50% af
framleiðslukostnaði kjúklinga.
Mikil kostnaðaraukning
hjá kúabændum
„Þetta eru alveg svakalegar
hækkanir sem ganga yfir okkur
núna,“ sagði Þórólfur Sveinsson,
formaður Landssambands kúa-
bænda, um verðbreytingar á fóðri.
Hann segir að Hagþjónusta
landbúnaðarins hafi tekið saman
upplýsingar um kostnað við kjarn-
fóðurliðinn í rekstri kúabúa á árinu
2006. Niðurstaðan sé sú að þessi
liður hafi hækkað um 40% á því ári.
Ástæðan sé bæði verðhækkanir á
fóðri og meiri notkun á kjarnfóðri
vegna þess að bændur hafi verið
hvattir til að auka framleiðslu sem
mest þeir geti. „Síðan koma þessar
hækkanir núna ofan í þetta, þannig
að það er ljóst að þessi kjarnfóður-
liður hefur hækkað alveg gríðar-
lega á síðustu tveimur árum og
langmest þó síðustu vikurnar.“
Í fyrra gerðu bændur og afurða-
stöðvar samkomulag við kúabænd-
ur um að hækka ekki verð á mjólk
til neytenda. Verðið hefur því verið
óbreytt í tvö ár. Bændur fengu
hins vegar hækkun á launalið um
síðustu áramót, en ekki var tekið
tillit til aukningar á kostnaði við
framleiðsluna.
Þórólfur segir ljóst að kúabænd-
ur muni gera kröfu um verðhækk-
anir um næstu áramót. Þeir muni
standa við það sem þeir hafi sagt
og ekki gera kröfu um að tekið
verði tillit til verðhækkana á árinu
2006, en taka verði tillit til þess
kostnaðar sem bændur hafi þurft
að taka á sig í haust. Þar muni
mest um verðhækkanir á fóðri.
„Þetta eru alveg
svakalegar hækkanir“
Þurfa að hækka verð á kjúklingi vegna hækkana á fóðri
Í HNOTSKURN
»Þrjár meginástæður erufyrir verðhækkunum á
fóðri á heimsmarkaði. Í fyrsta
lagi er uppskeran minni og
sums staðar er talað um upp-
skerubrest.
» Í öðru lagi fer sífellt stærrihluti uppskerunnar og
stærri hluti akurlendis í að
framleiða bíódísilolíu sem not-
uð er sem eldsneyti á bíla.
» Í þriðja lagi hefur eftir-spurn eftir korni aukist,
ekki síst í Kína.
Fóður Verð á fóðri hækkaði um 13% í vikunni og 5% í síðasta mánuði.
Morgunblaðið/Sverrir
HÉRAÐSDÓMUR Norðurlands
eystra hefur dæmt 38 ára gamlan
karlmann til að greiða 150 þúsund
krónur í sekt til ríkissjóðs fyrir til-
raun til kynferðisbrots. Honum var
að auki gert að greiða þóknun skip-
aðs verjanda síns, 65 þúsund krónur.
Málið var höfðað gegn manninum
þar sem hann beraði og strauk kyn-
færi sín fyrir framan vefmyndavél,
og sendi hreyfimyndina af athæfinu
til viðmælanda síns í gegnum spjall-
forritið MSN Messenger. Maðurinn
hélt að hann væri að ræða við 14 ára
stúlku en svo reyndist ekki vera.
Móðir stúlkunnar reyndist við skjá-
inn og fór umsvifalaust til lögregl-
unnar.
Játaði brotið greiðlega
Maðurinn viðurkenndi brot sitt
fyrir dómi en hann hefur ekki áður
sætt refsingum. Í niðurstöðu dóms-
ins kemur fram að brotið sem mað-
urinn er sakfelldur fyrir, þ.e. að
reyna að afhenda unglingi yngri en
18 ára klámmynd, varði sektum eða
allt að sex mánaða fangelsi. Við
ákvörðun refsingar var litið til þess
að maðurinn játaði brotið greiðlega
og að einungis hefði verið um eina
hreyfimynd að ræða.
Erlingur Sigtryggsson héraðs-
dómari kvað upp dóminn. Svavar
Pálsson, fulltrúi sýslumannsins á
Húsavík, sótti málið og Örlygur
Hnefill Jónsson hdl. varði manninn.
Hélt að
hún væri
14 ára
Reyndi að senda ung-
lingsstúlku klámmynd