Morgunblaðið - 27.10.2007, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 27.10.2007, Blaðsíða 6
6 LAUGARDAGUR 27. OKTÓBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Eftir Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is BANDALAG háskólamanna hefur lengi talað fyrir því að hér ætti að vera ein vinnulöggjöf,“ segir Halldóra Friðjónsdóttir, formaður BHM, vegna upplýsinga í nýrri könnun á stjórnun og starfsmannamálum ríkisstofnana. Ögmundur Jónasson, formaður BSRB, segir aðalatriðið að starfsfólk búi við grundvallarmannréttindi og gefur lítið fyrir könnunina. Halldóra Friðjónsdóttir segir að það komi ekki á óvart að starfsmannalögin þyki íþyngj- andi þegar komi að áminningaferlinu. Það sé þungt í vöfum og tilfellið sé að oft hafi mistek- ist að gera hlutina eftir settum reglum. Fyrir vikið sé jafnvel enn meiri hræðsla til að nýta þó þá möguleika sem sé boðið upp á. Áminninga- ferlið taki langan tíma og til að því sé beitt þurfi fólk að hafa brotið af sér, en oft á tíðum sé um samskiptavandamál að ræða. Það þýði ekki endilega að viðkomandi hafi brotið af sér í starfi eða standi sig ekki. Þá sé erfitt að sitja uppi með starfsmann sem yfirmanni líki ekki við en ekki sé hægt að láta fara. Á móti megi segja að ef vel væri vandað til verka við ráðn- ingar, þess alltaf gætt að velja hæfasta ein- staklinginn og reynslutími nýttur ættu ekki að þurfa að koma upp svona tilvik. Að sögn Halldóru veigra margir sér við að sækja um ýmis störf, ekki síst ýmsar hærri stöður, vegna þess að ekki sé hægt að óska eft- ir nafnleynd. Þótt fólk hafi áhuga á starfinu og sé hæft til að gegna því vilji það ekki gefa upp að það sé að líta í kringum sig. Sæki það um og fái ekki starfið vilji það ekki sitja undir því að yfirmaðurinn sé fúll vegna þess að hann veit að viðkomandi sé að leita að öðru starfi. Halldóra minnir á að fyrir um þremur árum hafi verið gerð tilraun til að afnema áminninga- skylduna en það hafi orðið til þess að viðræður, sem hafi verið komnar af stað á milli ríkisins og heildarsamtaka opinberra starfsmanna, hafi lagst af. Mikilvægt sé að setjast niður og reyna að komast að einhverri lausn en það verði að gera í sátt við samtök opinberra samtaka, því ekki gangi að breyta lögunum einhliða. BHM geri sér líka grein fyrir því að til að óskin um eina vinnulöggjöf verði að veruleika verði líka að gefa eftir á einhverjum sviðum. Standa vörð um mannréttindi Ögmundur Jónasson segir að hafa beri í huga að um könnun á meðal stjórnenda al- mennt sé að ræða og niðurstaðan einhver með- altalsniðurstaða sem endurpegli ekki sjónar- mið allra stjórnenda hjá hinu opinbera. Gera megi því skóna að niðurstaðan sé ekki til marks um afstöðu margra stjórnenda sem líði ágæt- lega í því réttinda- og lagalega umhverfi sem opinberri starfsemi sé búin. Hins vegar hafi komið fram að fjöldi stjórnenda vilji losna við allar hömlur sem á þá séu settar. Þar með að þeir geti rekið fólk skýringarlaust og geti ráðskast með kjör og réttindi í ríkari mæli en verið hefur. Það væri alls ekki til bóta enda hafi BSRB mótmælt því harðlega þegar reynt hafi verið að hafa sjálfsögð mannréttindi af fólki eins og til dæmis áminningaskyldu vegna upp- sagnar í starfi. „Ég gef ekki sérstaklega mikið fyrir þetta,“ segir hann. Að sögn Ögmundar er sjálfsagt að samræma þann réttindaramma sem launafólk á Íslandi býr við og BSRB hafi aldrei verið því andvígt enda yrði það til þess að bæta réttindi starfs- fólksins almennt en ekki að færa þau niður eins og þessar óskir gangi út á. Því falli hugmyndir og hugrenningar ýmissa stjórnenda hjá ríkinu BSRB ekki í geð. Ögmundur bætir við að hann telji að þessar hugmyndir komi fyrst og fremst frá stjórn- endum, sem ráði illa við hlutverk sitt. Stjórn- endum, sem lendi í vandræðum vegna starfs- mannalaganna, segi upp fólki án þess að þora að segja því hvers vegna og vilji helst reka það út af vinnustaðnum samstundis og skýringar- laust. Hinir vönduðu stjórnendur, sem ráði vel við sitt hlutverk, setji ekki fram kröfur af þessu tagi og það sé visst áhyggjuefni hvað margir stjórnendur taki undir þessar hug- myndir. Þegar komi upp samskiptaörðugleikar liggi vandinn ekki síður hjá stjórnendum en starfsmönnum, en í þessu tilviki ætli menn sér að fá lausnir, sem séu alfarið á forsendum stjórnenda og það kunni ekki góðri lukku að stýra. Eins megi ekki gleyma því að þeir sem stjórni opinberum stofnunum séu með fjár- muni frá skattgreiðendum í höndunum og þurfi að standa skil sinna gjörða. Það sé ekki þeirra einkamál hvernig þeir fari með þessa fjármuni og það starfsfólk sem hjá þeim starfi. „Að því leyti er ekki að öllu leyti saman að jafna op- inberum rekstri og einkarekstri þótt ég sé ein- dregið á þeirri skoðun að starfsfólk almennt, óháð vinnustað, eigi að búa við grundvallar- mannréttindi.“ Starfsfólki tryggð mannréttindi  BHM vill eina vinnulöggjöf  BSRB gefur lítið fyrir könnun á stjórnun og starfsmannamálum Í HNOTSKURN » Í skýrslunni kemur fram að for-stöðumenn telja mikilvægustu úr- lausnarefnin í starfsmannamálum þau að færa regluverk nær því sem gerist á einkamarkaði. » Stjórnendur telja að lög og reglur,einkum um uppsagnir, séu íþyngj- andi og draga þurfi úr miðstýringu launaákvarðana. Ögmundur Jónasson Halldóra Friðjónsdóttir HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur hefur sýknað tvo fyrrverandi ritstjóra dagblaðs- ins DV af kröfu formanns Heilbrigðiseftir- lits Suðurlands um að ummæli sem birtust í blaðinu yrðu dæmd dauð og ómerk. For- maðurinn var þá dæmdur til að greiða rit- stjórunum sameiginlega 500 þúsund krónur í málskostnað. Ummælin sem birtust í blaðinu voru m.a. í fyrirsögn á forsíðu DV 20. janúar 2006: „Bað bréfbera í Keflavík að njósna um íbúa“. Magnús Guðjónsson, formaður Heil- brigðiseftirlits Suðurlands, kvaðst fyrir dómi hafa séð frétt þess efnis að bréfberar í Keflavík hefðu lent í vandræðum við störf sín vegna lausagangs hunda. Í kjölfarið hefði hann sent stöðvarstjóra Íslandspósts í Keflavík bréf. Þar sagði m.a.: „Mér var að detta í hug hvort einhverjir bréfberar hjá þér væru til í að punkta niður hjá sér hvar hunda væri að finna í þeirra hverfum.“ Magnús byggði á því að umfjöllun DV hefði verið sérlega særandi og ærumeiðandi og fór hann fram á tvær milljónir króna í miskabætur. Í niðurstöðu héraðsdóms segir að ráða- gerðir Magnúsar hafi varðað skráningu og vinnslu á viðkvæmum persónuupplýsing- um. „Verður að telja að það orki mjög tví- mælis hvort slík upplýsingaöflun sem lögð var til í erindi stefnanda standist lög.“ Einnig segir að augljóst sé að fréttin hafi átt fullt erindi við almenning. Átti fullt erindi við almenning Eftir Sunnu Ósk Logadóttur sunna@mbl.is „ÞAÐ er óhætt að segja að sam- skipti Ítalíu og Íslands séu mjög góð og geti bara batnað,“ sagði Geir H. Haarde forsætisráðherra eftir fundi sem hann átti með Romano Prodi forsætisráðherra Ítalíu í gærmorgun sem og Bene- dikt XVI páfa. Geir segir heim- sóknina þegar hafa verið árang- ursríka, m.a. hafi verið ákveðið á fundi ítalsk-íslenska verslunar- ráðsins að setja á fót starfshóp til að vinna að því að auka enn frekar viðskipti milli landanna. Á fundi Geirs og Prodi voru tví- hliða samskipti landanna rædd, m.a. samningur um tvísköttun, sem unnið er að að koma í gegnum ítalska þingið, sem og fyrirætlanir um opnun ítalskrar sendi- skrifstofu á Íslandi. „Ég ýtti aðeins á eftir því að þeir opnuðu hér sendiskrifstofu, líkt og við höfum gert í Róm,“ seg- ir Geir. „Það er gamalt loforð.“ Þá ræddu ráðherrarnir tungumála- kennslu, en Ítalir hafa kostað tölu- verðu til ítölskukennslu hér á landi. „Ég tilkynnti Prodi að við myndum vilja greiða fyrir því að hægt yrði að hefja íslensku- kennslu við háskólann í Róm og hefur íslenska ríkisstjórnin sam- þykkt að leggja fjármuni í það frá og með næsta skólaári.“ Þá ræddu þeir framboð Íslands til öryggisráðs SÞ, „en það þurfti nú ekki mikið að tala um það því það er langt síðan þeir lýstu yfir stuðningi við okkur“, segir Geir. Í kjölfar fundarins með Prodi gekk Geir á fund Benedikts páfa XVI. „Þessi fundur okkar var í alla staði mjög ánægjulegur. Það er alveg sérstök upplifun að koma í Páfagarð og fá móttökur af þessu tagi sem ég og mitt föru- neyti fengum.“ Ræddi stöðu íslenskra kvenna Geir segir páfa vel að sér um ís- lensk málefni. Sagði páfi að geng- ið yrði frá útnefningu á nýjum biskupi kaþólskra yfir Íslandi mjög bráðlega. „Ég færði honum kveðjur bæði frá kaþólska söfnuð- inum og biskupi Íslands og færði vegna þess að við stöndum mjög framarlega miðað við margar aðr- ar þjóðir í þessum efnum.“ Þá ávarpaði Geir fund ítalsk- íslenska verslunarráðsins, ásamt Emmu Bonino, utanríkisvið- skiptaráðherra Ítalíu. „Við ákváðum að setja á laggirnar nefnd til að fara yfir það með hvaða hætti hægt sé að efla og auðga viðskipti og fjárfestingar milli landanna. Það er þá næsta vers í þessum efnum. Það eru ótal viðskiptatækifæri fyrir íslensk fyrirtæki á Ítalíu og það gildir líka í hina áttina.“ Á fundinum afhenti Geir þýð- andanum Sylviu Cosimini viður- kenningu og styrk frá ríkisstjórn- inni en hún hefur þýtt marga íslenska höfunda yfir á ítölsku, m.a. Laxness, Thor Vilhjálmsson, Hrafnhildi Hagalín og Arnald Indriðason. Segir Geir að ánægju- legt hafi verið að geta kvatt Bon- ino með stafla af íslenskum bókum á ítölsku að gjöf. Síðdegis í gær heimsótti Geir svo skrifstofu FAO, Matvæla- og landbúnaðarstofnunar SÞ, sem Geir Valdimarsson veitir forstöðu. Heimsókn Geirs til Ítalíu lýkur á sunnudag. staða kvenna hefði breyst á Íslandi með aukinni atvinnuþátttöku. Ég fór yfir það hvað það væri mik- ilvægt að skapa skilyrði til þess að bæði konur og karlar geti sinnt börnum sínum við þessar breyttu aðstæður. Þeir hlustuðu á það allt saman með miklum skilningi, fannst mér. […] Ég veit ekki hvort þeir ræða mikið þessi mál en mér fannst ástæða til að nefna þetta, honum nýju þýðinguna af Biblíunni sem var með áletrun á latínu frá biskupi Íslands.“ Einnig átti Geir fund með þeim tveimur kardínálum sem gegna embætti forsætisráðherra og ut- anríkisráðherra Páfagarðs. „Ég fór yfir það með þeim hvernig þjóðfélag okkar hefur verið að breytast á undanförnum árum, m.a. sagði ég þeim frá því hvernig Geir H. Haarde átti fundi með páfa og Prodi Sérstakt að koma í Páfagarð Ljósmynd/Stefano Spaziani Hans heilagleiki Geir H. Haarde og eiginkona hans, Inga Jóna Þórðardóttir, með Benedikt XVI páfa í Páfagarði í gær. Geir segir sérstaka upplifun hafa verið að koma til Páfagarðs. Reuters Árangur Forsætisráðherrar Íslands og Ítalíu, Geir H. Haarde og Rom- ani Prodi, áttu árangursríkan fund í Chigi-höllinni í Róm í gær. HÉRAÐSDÓMUR Suðurlands hefur sýkn- að karlmann af ölvunarakstri á Suðurlands- vegi í mars sl. þar sem svo mikill vafi var kominn upp í málinu og eina vitnið sem hefði getað staðfest sekt mannsins var ekki leitt fyrir dóminn né skýrsla tekin af því. Lögreglunni barst tilkynning um að bif- reið hefði verið ekið út af veginum á Hellis- heiði og að ökumaðurinn væri ölvaður. Gef- in var greinargóð lýsing á ökumanninum en tilkynningin barst frá vegfaranda sem ræddi við manninn. Lögregla hafði ekki frekari samskipti við vegfarandann. Enginn ágreiningur var um hvort mað- urinn hefði verið ölvaður á umræddum tíma, en hann neitaði hins vegar að hafa ek- ið. Sagði hann kunningja sinn hafa ekið en í kjölfarið húkkað sér far til Reykjavíkur. Vildi maðurinn ekki greina frá nafni kunn- ingjans. Fyrir dómi hélt maðurinn sig við þá sögu að hann hefði ekki ekið bifreiðinni og nefndi þá bróður sinn sem ökumanninn. Bróðir mannsins kom fyrir dóminn og staðfesti söguna. Lögregla yfirheyrði ekki eina vitnið
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.