Morgunblaðið - 27.10.2007, Síða 8
8 LAUGARDAGUR 27. OKTÓBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
TVEIR ökumenn voru teknir fyrir
ölvunarakstur á höfuðborgarsvæð-
inu í fyrrinótt. Annar þeirra, karl á
þrítugsaldri, var stöðvaður í Graf-
arvogi en hinn, 18 ára piltur, var
stöðvaður í Kópavogi. Sá yngri hef-
ur aldrei öðlast ökuréttindi en með
honum í bílnum voru sex farþegar,
sem allir voru í annarlegu ástandi.
Tveir ökumenn voru teknir fyrir
að aka undir áhrifum fíkniefna.
Tvítug kona var stöðvuð fyrir þær
sakir í Breiðholti og tæplega þrí-
tugur karl stöðvaður af sömu
ástæðu í Hafnarfirði. Í bíl hans
fundust ætluð fíkniefni. Ökumað-
urinn og farþegi, karl á líkum aldri,
voru báðir færðir á lögreglustöð en
sá síðartaldi reyndist jafnframt
vera eftirlýstur fyrir aðrar sakir.
Gripnir fyrir
að aka ölvaðir
UTANRÍKISRÁÐHERRA hefur
falið Ellisif Tinnu Víðisdóttur að
gegna hlutverki breytingastjóra
innan Ratsjárstofnunar með starfs-
hópi utanríkisráðuneytisins um
yfirtöku stofnunarinnar. Mun hún
leiða yfirfærslu á verkefnum og
endurskipulagningu á starfi stofn-
unarinnar. Ellisif Tinna hefur und-
anfarin ár starfað sem staðgengill
sýslumannsins á Keflavíkurflug-
velli, og sem aðstoðarlögreglustjóri
við lögregluembættið á Suður-
nesjum frá síðustu áramótum.
Ellisif stýrir
breytingum
Eftir Silju Björk Huldudóttur
silja@mbl.is
ÖRFIRISEY er besti staðurinn fyrir
olíubirgðastöð, miðað við óbreytt
skipulag á svæðinu. Þetta gildir einn-
ig ef byggðaþróun
í Örfirisey, og á
landfyllingum í
kring, helst vel ut-
an allra hættu-
svæða samkvæmt
áhættugreiningu
ráðgjafarstofunn-
ar COWI á stöð-
inni sjálfri. Engu
að síður þarf að
bæta núverandi
ástand í olíubirgðastöðinni þar sem
áhættugreining COWI sýnir umtals-
verða innri áhættu í alþjóðlegum
samanburði.
Þetta er niðurstaða verkefnis-
stjórnar, sem skipuð var um mitt ár
2006 að ósk Reykjavíkurborgar, og
falið var að meta áhættu af olíu-
birgðastöðinni í Örfirisey og bera
saman við 14 aðra staðarvalskosti, á
strandlengjunni frá Reykjanesi og
upp á Grundartanga. Þess ber að
geta að verkefnisstjórnin ákvað að
skoða fleiri staði en færri, en það að
staðsetning sé tekin með þýðir ekki
að fyrir hendi sé yfirlýstur vilji við-
komandi sveitarfélaga til að staðsetja
olíubirgðastöð þar.
Sjö næstu kostir, á eftir Örfirisey,
sem fýsilegastir eru reyndust vera:
Brimnes, Keilisnes, Álfsnes,
Straumsvík, Hafnarfjarðarhöfn,
Helguvík og Engey. Sjö aðrar stað-
setningar voru skoðaðar en túlkun
verkefnisstjórnar á niðurstöðum
greininganna er að þær séu síðri
kostir. Þessir staðir voru: Kópavogs-
höfn, Sundahöfn, Geldinganes, Hval-
fjarðarnes, Hvítanes, Olíustöðin í
Hvalfirði og Grundartangi. Skýrslan
var kynnt í borgarráði nú í vikunni.
Að sögn Jóns Viðars Matthíasson-
ar, slökkviliðsstjóra höfuðborgar-
svæðisins, sem jafnframt var formað-
ur verkefnisstjórnarinnar, var í
skýrslunni lagt mat á áhættugrein-
ingu á olíubirgðastöðinni í Örfirisey,
áhættugreiningu landflutninga mið-
að við alla fimmtán staðarvalskost-
ina, umhverfissjónarmið við stað-
setningu olíubirgðastöðvar, flutn-
ingskostnað miðað við staðarvals-
kostina og stofnkostnað vegna nýrr-
ar stöðvar.
62% eldsneytis frá Örfirsey fara
til höfuðborgarsvæðisins
Jón Viðar bendir á að síðan inn-
flutningur flugvélasteinolíu fyrir
Keflavíkurflugvöll var fluttur frá Ör-
firisey í Helguvík í febrúar á þessu
ári sé árlegur landflutningur elds-
neytis frá Örfirisey 303 þúsund tonn.
Af þessu fara 188 þúsund tonn eða
62% til afhendingarstaða innan höf-
uðborgarsvæðisins, en 126 þúsund
tonn eða 38% inn á Suðurlandsveg,
Reykjanesbraut og Vesturlandsveg.
Jón Viðar bendir á að almennt
gildir að flutningum um lengri veg
fylgir meiri áhætta. Sökum þessa er
miðlæg staðsetning ákjósanlegust. Í
ljósi þess að 62% alls eldsneytis, sem
flutt er frá Örfirisey, fara til afhend-
ingarstaða innan höfuðborgarsvæð-
isins myndi staðsetning á olíubirgða-
stöð langt utan borgarmarkanna
auka bæði flutningsáhættu og
-kostnað.
Að sögn Jóns Viðars er markmiðið
með skýrslunni ekki síst það að hægt
sé að taka rökstudda ákvörðun um
það hvort Örfirisey sé rétt framtíð-
arstaðsetning eða hvort ráðast beri í
flutning starfseminnar. „Okkar út-
reikningar miða eingöngu við núver-
andi skipulag,“ segir Jón Viðar og
bendir á að eigi að skipuleggja mörg
þúsund manna byggð á svæðinu
myndu forsendur breytast talsvert.
Einnig þurfi að taka tillit til pólitískr-
ar afstöðu, upplifunar og vilja al-
mennings, álags á vegakerfi, lagning-
ar flutningsvega í göng eða stokk,
sem og staðsetningar viðkvæmrar
starfsemi á borð við skóla, sjúkra-
húss og elliheimila nálægt birgðastöð
eða flutningsleiðum.
Jón Viðar segist afar ánægður með
að borgaryfirvöld nálgist ákvörðun
um framtíðarskipulag á svæðinu í
kringum Örfirisey á faglegum for-
sendum. Segir hann ljóst að nútíma-
samfélag geti ekki verið án olíu og því
sé mikilvægt að hægt sé að lágmarka
áhættuna sem hljótist af staðsetn-
ingu olíubirgðastöðvar og flutningi
eldsneytis, á sama tíma og borgin
hafi möguleika á að þróast og dafna.
Ný skýrsla verkefnisstjórnar um olíubirgðastöðina í Örfirisey og samanburður við aðrar staðsetningar
Örfirisey besti
kosturinn að
öllu óbreyttu
!"#
!$ % "!% % &
!" &'()!( % % +&!",!"- !.& /)&01 &&$2&!
!
"
#
$ !
! Jón Viðar
Matthíasson
Í HNOTSKURN
»Heildarkostnaður vegnabyggingar nýrrar olíu-
birgðastöðvar er um 9,5 millj-
arðar króna.
»Yrði olíubirgðastöðin fluttúr Örfirisey í Brimnes
myndi árlegur flutningskostn-
aður hækka um rúma 71 millj-
ón króna miðað við núverandi
staðsetningu.
»Væri stöðin flutt í Helgu-vík myndi árlegur flutn-
ingskostnaður hækka um tæp-
lega 238 millj. kr.
»Væri hún flutt í Hvalfjörðmundi flutningskostnaður
hækka um 308-353 milljónir
kr. árlega eftir því hvort farið
væri um göngin eða ekki.
„ÉG fagna þessari skýrslu og tel
að hún sé mjög mikilvægt innlegg
inn í umræðuna um uppbyggingu
og framtíð í Ör-
firisey,“ segir
Björn Ingi
Hrafnsson, for-
maður borg-
arráðs og stjórn-
arformaður
Faxaflóahafna.
Bendir hann á
að skýrslan fari
á næstu dögum
til umræðu í
starfshópi á veg-
um borgarráðs og Faxaflóahafna
sem vinni að hugmyndum um
íbúðabyggð í Örfirisey og á mögu-
legum landfyllingum. „Það þarf
að vinna þetta þar og síðan taka
ákvarðanir um framhaldið, því
það er alveg ljóst að við verðum
að finna út úr því hvernig best er
að samþætta þau eðlilegu sjón-
armið að það sé nauðsynlegt að
hafa einhvers staðar á suðvest-
urhorninu olíubirgðastöð, en um
leið að framþróun höfuðborg-
arsvæðisins haldi áfram með eðli-
legum hætti til framtíðar.“
Aðspurður hvort hann telji að
niðurstaða skýrsluhöfunda, þess
efnis að Örfirisey sé besti kost-
urinn fyrir olíubirgðastöð, miðað
við núverandi aðstæður, setji
pressu á borgaryfirvöld um að
birgðastöðin verði þar áfram
svarar Björn Ingi því neitandi.
Segist hann sjálfur vera þeirrar
skoðunar að núverandi staðsetn-
ing olíubirgðastöðvarinnar í Ör-
firisey gangi ekki til lengri fram-
tíðar.
„Við getum hins vegar ekki tek-
ið ákvörðun um að olíubirgða-
stöðin í Örfirisey fari fyrr en við
erum komin með annan stað sem
uppfyllir sömu skilyrði og Örfir-
isey eða sé jafnvel betri. Áður en
við finnum þann stað getum við
ekki tekið neina ákvörðun um
brottflutning.“
Mikilvægt
innlegg í
umræðuna
Björn Ingi
Hrafnsson