Morgunblaðið - 27.10.2007, Blaðsíða 24
24 LAUGARDAGUR 27. OKTÓBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
LANDIÐ
Eftir Örn Þórarinsson
Skagafjörður | Kvikmyndafélagið Skotta, sem
er í eigu Árna Gunnarssonar á Sauðárkróki og
fjölskyldu hans, hefur undanfarið ár unnið að
gerð tveggja sjónvarpsmynda. Önnur er um
Laufskálarétt í Hjaltadal og hin heimsmeistar-
ana Þórarinn Eymundsson og Kraft frá Bringu.
Myndirnar eru teknar upp á háskerpu-tökuvél-
ar.
Í myndinni um Laufskálarétt er varpað fram
þeirri spurningu hvers vegna á fjórða þúsund
manns koma saman á Laufskálaholtinu síðustu
helgina í september. Tökur hófust í september í
fyrra. Myndað var í Kolbeinsdal í vetur og einn-
ig þegar bændur fluttu hross og sauðfé í dalinn í
vor og sumar. Tökum lauk um stóðréttarhelg-
ina, 28. til 29. september.
Að sögn Árna er myndin tekin í samvinnu við
stjórn Upprekstrarfélagsins á svæðinu. Hún
byggist á ósnortinni náttúru afréttarins, Kol-
beinsdals, og iðandi mannlífi þegar stóð er rétt-
að í Laufskálarétt í Hjaltadal. Þúsundir gesta
koma í héraðið gagngert til að smala hrossum
og fylgjast með stóðréttinni.
Fylgdust með frá upphafi
Myndin um stóðhestinn Kraft frá Bringu og
knapa hans, Þórarin Eymundsson, er að sögn
Árna allt annars eðlis. „Kraftur, en það er
vinnuheiti myndarinnar, fjallar um samskipti
manns og hests og þá staðreynd að þeir sem
taka þátt í heimsmeistaramóti íslenska hestsins
verða að skilja hestana sína eftir þegar keppni
lýkur úti,“ segir Árni. „Við fórum á stúfana þeg-
ar við fréttum af því að Tóti og fjölskylda hans
stefndi á þátttöku í heimsmeistaramótinu í Hol-
landi sem fram fór í ágúst. Í þessari mynd feng-
um við að vera eins og fluga á vegg. Þórarinn
gerði það til dæmis fyrir okkur að ríða með
þráðlausan sendihljóðnema í úrslitakeppninni í
töltinu. Tökum er að mestu lokið en ég býst við
að þessi mynd höfði til mun stærri hóps en bara
hestamanna,“ segir Árni Gunnarsson.
Árni leikstýrir Krafti og skrifaði handrit en
Þorvarður Björgúlfsson kvikmyndagerðamaður
er meðframleiðandi, ásamt Steingrími Karls-
syni kvikmyndagerðarmanni (Borgarauglýsing
ehf.) og kvikmyndafyrirtækinu Mystery. Þor-
varður og fyrirtæki hans, Kukl ehf. leggur til
allar upptökuvéar. Þeir Árni og Björgúlfur hafa
unnið saman áður að gerð sjónvarpsmynda. Ár-
ið 2004 gerðu þeir myndina „Í Austurdal“ og
einnig gerðu þeir í sameiningu mynd um líf fólks
flóttamannabúðum sem tekin var á Balkan-
skaga. Báðar myndirnar voru sýndar í Ríkis-
sjónvarpinu. Hefur nú verið undirrituð viljayfir-
lýsing um sýningu RÚV á báðum myndunum.
Einvalalið
Að sögn Árna kemur einvalalið að gerð mynd-
anna. Tökumenn eru Steingrímur Karlsson sem
einnig ritstýrir klippingu, Þorvarður Björgúlfs-
son, Bergsteinn Björgúlfsson og Friðþjófur
Helgason. Um hljóð og hljóðsetingu sér Gunnar
Árnason en útsetning og upptökur á tónlist ann-
ast Eiríkur Hilmisson og Sandra Dögg Þor-
steinsdóttir ásamt fleirum.
Þess má geta að Kvikmyndamiðstöð Íslands
styrkir gerð myndarinnar um Kraft.
Kvikmyndafélagið Skotta er með tvær skagfirskar myndir í framleiðslu
Fengu að vera eins og fluga
á vegg hjá heimsmeistara
Morgunblaðið/Örn Þórarinsson
Í stóðréttum Félagarnir tóku upp efni í Laufskálarétt í haust, f.v. Gunnar Árnason hljóðmaður,
Bergsteinn Björgúlfsson upptökumaður og Árni Gunnarsson framleiðandi.
Stokkseyri | Tónleikar verða með Ljótu
hálfvitunum á Draugabarnum á Stokks-
eyri í kvöld, í tilefni vetrarkomu.
Knattspyrnufélagið Ástríkur PSV
stendur fyrir tónleikunum. Tilgangurinn
er að krydda „síðkvöld haustsins þegar
myrkrið er um það bil að taka völdin ...“
segir í fréttatilkynningu og tekið fram að
tilgangur tónleikanna sé að lífga upp á
mannlífið fremur en að hagnast.
Hugmyndin er að gera tónleika á hausti
að árvissum viðburði í menningarlífinu á
Suðurlandi.
Ljótu hálfvitarnir
á Draugabarnum
Vestmannaeyjar | Bæjarráð Vestmanna-
eyja gerir kröfu um að stærri og öflugri
ferja verði notuð til siglinga milli Vest-
mannaeyja og Bakkafjöruhafnar en gert
er ráð fyrir í auglýsingu Siglingastofn-
unar um forval vegna kaupa og rekstr-
ar ferju á þessari leið. Telja Vest-
mannaeyingar að þannig geti ferjan
betur sinnt þjónustuhlutverki sínu og
öryggi aukist.
Bæjarráð samþykkti minnisblað með
kröfum sem það vill að tekið verði tillit
til við útboð á ferjusiglingum. Þar koma
meðal annars fram kröfur um að skipið
beri 55 bíla og 350 farþega í ferð og að
frátafir verði ekki meiri en hafa verið í
siglingum til Þorlákshafnar.
Ferðatími verði ekki minni en 6 ferð-
ir á sólarhring yfir vetrartímann og 8
ferðir yfir sumartímann. Kröfur eru
gerðar um hámark fargjalda og fleira
af því tagi.
Þá telur bæjarráðið ekki ráðlegt að
semja til nema 5 ára í einu, og eitt til
tvö ár til að byrja með, á meðan reynsla
er að komast á þessar nýju samgöngur.
Siglingastofnun gengur út frá fimmtán
ára samningstíma í sínu forvali.
Eyjamenn gera
kröfu um stærri
og öflugri ferju
ANTONÍA Sigurðardóttir, ellefu
ára dóttir Sigurðar Gestssonar eig-
anda Vaxtarræktarinnar, tók í gær
fyrstu skóflustungu að heilsurækt-
arhúsi sem fyrirtækið ætlar að
reisa á sundlaugartúninu norðan
við íþróttahöllina. Sigurður stend-
ur við hlið Antoníu á myndinni.
Í húsinu verður fjölbreytt heilsu-
tengd þjónusta. Helst er þar að
nefna að vaxtarræktin verður öflug
líkamsrækt á flestum sviðum og
verður þar með langstærsta og öfl-
ugasta tækjasal á landsbyggðinni,
að sögn Sigurðar.
Í húsinu er gert ráð fyrir ljósa-
stofu, nuddurum, hár- og snyrti-
stofu, veitingasölu og barnapössun.
Ennfremur verður í húsinu fyr-
irtæki sem heitir InPro, en það sér-
hæfir sig í heilsuvernd og vinnu-
vernd.
Að sögn Sigurðar hefur við hönn-
un hússins verið haft að leiðarljósi
að þar verði fyrsta flokks íþrótta-
aðstaða fyrir flesta aldurshópa og
ekki síður að staðurinn verði, í sam-
vinnu við fjölskyldugarðinn og
Sundlaug Akureyrar, fyrir alla fjöl-
skylduna í anda stefnu Akureyr-
arbæjar um fjölskylduvænan bæ.
Stefnt er að því að húsið verði
tekið í notkun 21. ágúst á næsta ári,
á afmæli Sigurðar Gestssonar.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Aðstaða
fyrir alla
aldurshópa
JÓHANNES Jónsson, gjarnan
kenndur við Bónus, er afar ósáttur
við þau ummæli bæjarstjórans á Ak-
ureyri í Morgunblaðinu að ólíklegt sé
að Hagkaupsverslun verði reist á
svæðinu þar sem Akureyrarvöllur er
nú. Sigrún Björk Jakobsdóttir bæj-
arstjóri sagði að uppi væru hug-
myndir um lágreista íbúðabyggð á
svæðinu, í samræmi við byggðina
sem fyrir er á Eyrinni, og almenn-
ingsgarð, en ekki gert ráð fyrir stór-
verslun.
Þyrping hefur sóst eftir lóð undir
Hagkaupsverslun á vallarsvæðinu en
Sigrún Björk sagði í Morgunblaðinu
að bærinn hefði í raun aldrei léð máls
á því að þar yrði reist slík verslun,
þreifingar hefðu átt sér stað en engar
alvarlegar viðræður.
„Það var fyrrum bæjarstjóri á Ak-
ureyri sem benti mér á þessa leið á
sínum tíma og sagði mér að sækja um
lóð þarna. Við höfum beðið í nokkur
ár eftir svari og mér finnst forkast-
anlegt að halda okkur í óvissu, bæði
starfsmönnum og viðskiptavinum,“
sagði Jóhannes í samtali við Morg-
unblaðið. „Mér finnst það ótrúlegur
dónaskapur hvernig komið er fram í
þessu máli. Okkur hefur aldrei verið
neitað, en sjáum þetta svo í blaðinu.
Ef fólk hefur ekki kjark til þess að
segja nei á það að ekki að vera í póli-
tík,“ segir Jóhannes.
Kristján Þór Júlíusson, fyrrver-
andi bæjarstjóri á Akureyri, vildi
ekki tjá sig um málið í gær.
G. Oddur Víðisson, framkvæmda-
stjóri Þyrpingar, segir í sjálfu sér
ágætt að hafa loksins fengið svar en
þetta hafi ekki verið æskileg leið.
„Við höfum hitt fulltrúa Akureyrar-
bæjar fjórum sinnum síðan í vor og
áttum síðast fund með þeim á mánu-
degi í síðustu viku.“ G. Oddur sagði
fulltrúa Þyrpingar fyrst hafa rætt við
Akureyrarbæ í mars 2004 og síðan
hafi félagið beðið á gulu ljósi; „það
kom ekki rautt ljós fyrr en í Mogg-
anum [í fyrradag]. Við höfum beðið
átekta en aldrei fengið svar.“ Þrjú og
hálft ár væri að sínu mati óeðlilega
löng bið eftir svari um lóð.
Hann segir Þyrpingu hafa kynnt
hugmyndir sínar fyrir bæjarráði árið
2005, umsóknin liggi enn hjá bæjar-
félaginu og henni hafi aldrei verið
svarað til fullnustu.
G. Oddur segir að í vor hafi félagið
lagt fram óformlegar hugmyndir um
verð fyrir svæðið. Við þeim hafi ekki
komið svar „en í síðustu viku barst
okkur sú spurning frá bæjarstjóran-
um hvort við værum tilbúnir að skoða
það að vera bæði með verslunina og
bílastæðin neðanjarðar. Við erum
búnir að sjá að ekki er hægt að koma
því við, en erum reyndar ekki búnir
að svara erindinu. Svo sjáum við
þetta bara í Mogganum…“
Höfum beðið á gulu
ljósi í þrjú og hálft ár
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Lágreist byggð? Séð yfir Akureyrarvöll og efri hluta Eyrarinnar. Verið er
að skoða hugmyndir um lágreista íbúðabyggð á hluta vallarsvæðisins.
Í HNOTSKURN
»Bæjarstjóri segir ólíklegtað Hagkaupsverslun rísi á
vallarsvæðinu. Nú sé verið að
skoða hugmyndir um lágreista
íbúðabyggð og garð.
»Jóhannes í Bónus segirHagkaupmenn með vara-
áætlun en hann tjái sig ekki
um hana strax.
EFNI tónleika
Sinfóníuhljóm-
sveitar Norður-
lands á morgun á
Akureyri og
Eskifirði eftir
viku helgast að
stórum hluta af
nálægð allra
sálna messu sem
er á næstu grös-
um. Stærsta
verkið er Sálumessa Gabriele
Fauré þar sem kór Glerárkirkju og
félagar úr kirkjukórum á Austur-
landi syngja með hljómsveitinni.
„Requim Faurés hefur að vissu
leyti sérstöðu meðal sálumessa,
sem til eru frá ýmsum tímum. Efn-
ið er klassískt og textinn alltaf
svipaður í grunninn og yfirleitt
talsverð áhersla lögð á ógnina og
óttann við dauðann,“ segir Guð-
mundur Óli Gunnarsson, stjórnandi
Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands,
við Morgunblaðið.
Hjá Fauré er hins vegar allt ann-
að upp á teningnum. „Hann segist
sjálfur, í bréfi, hafa séð þá gagn-
rýni á verkið að það sé nánast eins
og vögguvísa og hann sé ekkert
ósáttur við það; þannig sé einfald-
lega sýn hans á yrkisefnið.“
Tónlistin er ákaflega falleg, segir
Guðmundur Óli. „Þegar haust-
rökkrið hellist yfir þá finnst mér
þessi tónlist eiga mjög vel við.
Þetta er ákaflega huggunarrík tón-
list, þar sem umfjöllunarefnið er
dauðinn.“
Hin verkin á tónleikunum eru
Pavane fyrir strengi og hörpu eftir
Maurice Ravel og Konsert fyrir óbó
og strengi eftir Thomaso Albinoni.
Ákaflega
huggunar-
rík tónlist
Guðmundur Óli
Gunnarsson