Morgunblaðið - 27.10.2007, Page 25

Morgunblaðið - 27.10.2007, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. OKTÓBER 2007 25 ÁRBORGARSVÆÐIÐ reynslumikið og menntað starfsfólk sé á Litla-Hrauni og 85% núverandi starfsmanna búi í sveitarfélaginu Árborg. Aðrir starfs- menn eru að mestu frá öðrum stöðum á Suðurlandi. Gott hafi verið að fá fólk til af- leysinga. Þjónusta á svæðinu Bent er á mikið öryggi af því að hafa starfsmenn svo nálægt Litla–Hrauni sem raun ber vitni því við neyðartilfelli eru starfs- menn á Eyrarbakka 3 mínútur á staðinn, frá Stokkseyri 5 mínútur og frá Selfossi rétt um 10 mínútur. Sérsveit sé starfandi á Litla- Hrauni og mjög góð heilbrigðisþjónusta á Selfossi með reyndu starfsfólki sem þjón- ustar Litla-Hraun. Þá er bent á að farsælt samstarf sé við Fjölbrautaskóla Suðurlands um kennslu á Litla-Hrauni og að Árborg sé nánast hluti af höfuðborgarsvæðinu og samgöngur verði eins og best getur orðið eftir lagfæringu Hellis- heiðar og með tilkomu hins nýja Suður- strandarvegar en hvort tveggja sé í sjónmáli. Þrengslavegur er greið leið á öllum tímum. Bent er á mjög góða reynslu af flutningi Landbúnaðarstofnunar á Selfoss í hið rót- gróna landbúnaðarhérað og víst er að sama yrði með flutning Fangelsismálastofnunar í Árborg þar sem fangelsismálamenningin er í eins góðum farvegi og raun ber vitni. Eftir Sigurð Jónsson Eyrarbakki | Starfsmenn fangelsisins á Litla- Hrauni hafa afhent Árna Mathiesen, fjár- málaráðherra og fyrsta þingmanni Suður- kjördæmis, áskorun til þingmanna, dóms- málaráðherra, Fangelsismálastofnunar og sveitarstjórna á Suðurlandi um að þeir beiti sér fyrir uppbyggingu fangelsisins á Litla- Hrauni. Máli sínu til stuðnings benda starfsmenn Litla-Hrauns á að þar hafi verið rekið vinnu- hæli og fangelsi frá árinu 1929 með farsælum hætti og starfsemin alla tíð verið í mikilli sátt og samlyndi við allt og alla á svæðinu. Fang- elsismálastofnun eigi góð svæði í kring um Litla-Hraun, innan öryggisgirðingar, sem auðveld eru til bygginga. Miklar byggingar séu til staðar sem og önnur nauðsynleg atriði svo sem vandaðar girðingar, að- og frárennsl- isveitur og vegtengingar eins og best gerist. Viðhald og þjónusta þessara þátta sé í góðum höndum aðila í næsta nágrenni. Hægt sé að selja stór og verðmæt byggingasvæði sem ríkið er eigandi að á svæðinu til þess að fjár- magna byggingarkostnað. Einnig að mjög Morgunblaðið/Sigurður Jónsson Áskorun Ari Thorarensen fangavörður af- hendir Árna Mathiesen fjármálaráðherra áskorunina ásamt gögnum. Krefjast uppbyggingar á Litla-Hrauni Selfoss | „Aðalmálin á þessum fundi verða menntunarmál slökkviliðsmanna og samræmdar útkallsskýrslur,“ sagði Krist- ján Einarsson, slökkviliðsstjóri á Selfossi og formaður Félags slökkviliðsstjóra Ís- landi (FSÍ), en félagið heldur aðalfund sinn núna um helgina. Til fundarins, sem verður á Hótel Heklu, koma fulltrúar 49 slökkviliða. Að sögn Kristjáns hefur það verið á döf- inni hjá Brunamálastofnun að koma Brunamálaskóla á fót í gömlu herstöðinni á Keflavíkurflugvelli. „Þetta er gott og gilt en reynslan sýnir að það er dýrt fyrir slökkviliðin á landsbyggðinni að senda menn á námskeið í skólanum þegar fara þarf um langan veg auk uppihalds og gist- ingar. Við viljum að farið verði yfir málið og að unnin verði að stefnumótun fyrir Brunamálaskóla.“ Varðandi samræmdar útkallsskýrslur sagði Kristján að mikilvægt væri að koma þeim á svo vinnubrögð við gerð skýrsln- anna yrðu samræmd og eins á öllu land- inu. Þetta sagði hann að yrði kynnt á fundinum. Hann sagði og að á fundinum yrði einn- ig rætt um Tetra-talstöðvarkerfið. „Við er- um þeirrar skoðunar að það muni aldrei nást samstaða um það kerfi fyrr en kostn- aður við kerfið verður í lágmarki. Rekstur á einni Tetrastöð kostar 4.300 krónur á mánuði vegna leyfisgjalda. Flest slökkvilið eru með VHF-stöðvar þar sem rekstr- arkostnaðurinn er 1.400 krónur. Vilja lækka kostnað við Tetra-tal- stöðvarnar Morgunblaðið/Sigurður Jónsson Slökkviliðsstjóri Kristján Einarsson er formaður Félags slökkviliðsstjóra. Slökkviliðsstjórar með aðalfund um helgina Eftir Sigurð Jónsson Hveragerði | „Mér finnst fengur að því að fá hann hingað með námskeið fyrir börn og stefni að því að halda svona vinnustofur í safninu. Mín ósk er að safnið verði lifandi og rækti myndlistaráhuga frá barnæsku,“ sagði Inga Jónsdóttir, safnstjóri Listasafns Árnes- inga, sem hefur boðið til sín indverska mynd- listarmanninum Baniprosonno, sem dvelur nú í listamannaíbúðinni í Hveragerði og hefur starfrækt litríkar og fjörugar listasmiðjur fyrir börn í Listasafni Árnesinga. Hann ræðir um list sína við gesti safnsins í dag, laugar- dag, kl. 15. Baniprosonno er 75 ára myndlistarmaður frá Bengal-héraði á Indlandi og vel þekktur í sínu heimalandi þar sem hann heldur sýn- ingar reglulega. Hann segist hafa dreymt um að koma til Íslands frá því hann var lítill drengur en tækifærið gafst ekki fyrr en nú þó hann hafi oft dvalið og sýnt verk sín á Norðurlöndunum, m.a. í Henie-Onstad lista- miðstöðinni í Noregi og í Listasafni Norður- Jótlands í Álaborg í Danmörku. Hann hefur einnig sýnt verk sín víðar í Evrópu. Með hon- um í för er jafnan eiginkona hans, Putul, sem var barnakennari. Í liðinni viku hafa Baniprosonno og Putul unnið með börnum við listsköpun og í samein- ingu bjuggu þau til undradýr sem gert er úr trjágreinum og dagblaðapappír. Það var mik- ill handagangur í öskjunni þegar hópurinn var að skapa dýrið sem verður til sýnis í Listasafninu í dag. „Við erum með í undirbúningi að þróa safnkennslu og listfræðslu í tengslum við skólana svo safnið geti tengst þeim á gagn- kvæman hátt. Við ætlum að ná upp góðu sam- stafi við myndmenntakennara í grunnskólum og framhaldsskólum í sýslunni. Það er margt framundan í starfsemi safnsins og áhugaverð- ar sýningar,“ sagði Inga safnstjóri. Hún sagði að dagskrá næsta árs væri í lokavinnslu. Nú er safnið opið í hverri viku frá fimmtu- degi til sunnudags klukkan 12 til 18 en lokað verður í mánuð frá miðjum desember. Hún sagði aðsókn að safninu hafa aukist en nú er uppi sýning undir heitinu „Þessa heims og annars; Einar Þorláksson & Gabríela Frið- riksdóttir“. „Næsta sýning verður á verkum í eigu safnsins og þá verður gestum boðið upp á að taka þátt í vinnustofu þar sem þeir fá að tjá sig með hug og höndum,“ sagði Inga Jóns- dóttir safnstjóri Listasafns Árnesinga. Undradýr úr trjágreinum og dagblöðum Morgunblaðið/Sigurður Jónsson Listasmiðja Börnin gerðu undradýr í listasmiðjunni í Listasafni Árnesinga. Hér er hópurinn með listamanninum Baniprosonno og Putul konu hans og hluta afraksturs námskeiðsins.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.