Morgunblaðið - 27.10.2007, Side 28

Morgunblaðið - 27.10.2007, Side 28
daglegt líf 28 LAUGARDAGUR 27. OKTÓBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ Titus, sonur Clare Dickens,var sextán ára þegarhann var greindur meðgeðhvörf. Árin sem í hönd fóru voru afskaplega erfið en Clare gafst aldrei upp í baráttunni við sjúkdóminn illvíga sem herjaði á drenginn hennar. Þau mæðgin ákváðu í sameiningu að skrifa bók um þessa miklu lífsreynslu með það göfuga markmið að leiðarljósi að leitast við að geta hjálpað öðr- um einstaklingum sem þjást af geðhvörfum og fjölskyldum þeirra. Clare er nú stödd á Íslandi. Það kemur fljótlega í ljós að Clare er velkunnug Íslandi og hún kemur akandi niður í miðbæ til þess að hitta mig á kaffihúsi en blaðamaður hafði átt von á að þurfa að lóðsa rithöfundinn um bæinn: „Við fjölskyldan bjuggum á Ís- landi um nokkurra ára skeið þeg- ar eiginmaður minn, Ed, starfaði í bandaríska sendiráðinu í Reykja- vík og Titus var barn. Við fluttum síðan aftur til Bandaríkjanna en á sínum tíma stóð einmitt til að Ti- tus kæmi til meðferðar og end- urhæfingar hér á Íslandi. En áður en af því gat orðið varð sjúkdóm- urinn honum ofviða eins og rakið er í bókinni. Þegar haldin var veisla í tilefni af fimmtugsafmælinu mínu bað ég um leyfi Titusar til að skrifa sög- una hans. Hann samþykkti það og meira að segja bauðst til að taka sjálfur þátt í skrifunum, sem gladdi mig mikið. Titus hafði góða frásagnargáfu og skrifaði ljóð í gegnum tíðina en nokkur þeirra eru birt í bókinni í þýðingu Krist- ínar Svövu Tómasdóttur. Því miður entist Titusi mínum ekki tími til að skrifa nema um helming sögunnar. Við unnum hana þannig að við skrifuðum hvort í sínu lagi og stundum varð hann að taka hlé frá skrifunum sökum veikindanna. Ti- tusi fannst þessi vinna hjálpa sér í byrjun en við höfðum ekki nokkra hugmynd um hversu dramatíska stefnu sagan átti eftir að taka og hinn átakanlega endi – sem varð síðan að vera upphaf bókarinnar. Titus var hreinskilinn við sjálfan sig og aðra þegar hann skrifaði og reyndi ekki að draga dul á neitt. Hans von var að með bókinni væri mögulegt að hjálpa öðru ungu fólki með geðhvörf. Að skrifa lífs- reynslusögu okkar hafði þau áhrif að við mæðginin öðluðumst skýr- ari sýn á sjúkdóminn og eðli hans.“ – Hvernig kom sjúkdómurinn í ljós? „Titus var mjög hamingusamt og vel gefið barn og sýndi engin merki um geðhvörfin sem síðar áttu eftir að ná völdum á sálarlífi hans á unglingsárunum. Hann fór smám saman að skynja einhverjar breytingar sem við foreldrar hans áttuðum okkur ekki á. Það var svo í kringum 15-16 ára aldur sem greiningin átti sér stað. Titus hafði verið í heimavistarskóla þeg- ar erfið einkenni fóru að koma í ljós. Það sem ruglaði bæði hann og okkur í ríminu var að hann var afbragðsnámsmaður og fékk mjög góðar einkunnir. Þarna var hann þó orðinn ringlaður og óskipulagð- ur. Hann varð manískur og svaf Morgunblaðið/Ómar Mikil lífsreynsla Clare Dickens réðst í það ásamt syni sínum, Titusi, að skrifa bók um baráttu hans við geðhvarfasýki, en honum entist ekki tími til að skrifa nema helming bókarinnar. Sálarstríð sonar við geðhvörf Clare Dickens hefur skrifað bók um baráttu son- ar síns við geðhvarfasýki og þátttöku sína í þeirri baráttu. Hrund Hauksdóttir mælti sér mót við hina hugrökku móður – til þess að fræðast um þessa merkilegu bók sem var að koma út hjá JPV útgáfu og nefnist: Þegar ljósið slokknar. EF ÞÚ óttast að tapa getur þú ekki unnið,“ sagði sænski tenn- isleikarinn Björn Borg einhverju sinni. Franka Dietzsch varð heimsmeistari í kringlukasti árið 1999, en eftir það small allt í lás. Hún klúðraði hverju mótinu á fæt- ur öðru, köstin mistókust, kringl- an lenti í netinu eða hún gerði ógilt. Í maí 2005 fór hún í fyrsta tím- ann hjá sálfræðingnum Willi Neu- mann. Hann lét hana loka aug- unum, talaði til hennar rólegri röddu og dáleiddi hana. Þegar hún var komin í leiðslu bað hann hana að rifja upp heimsmeist- aramótið í Sevilla þar sem hún landaði heimsmeistaratitlinum, sjá fyrir sér þegar hún gekk inn í hringinn og upplifa aftur kastið, sem tryggði henni titilinn. Dá- leiðslan stóð yfir í 20 mínútur. Nokkrum vikum síðar kastaði hún 66,65 metra og tryggði sér annan heimsmeistaratitilinn. Í Osaka í ágúst varð hún heimsmeistari þriðja sinni. Það færist nú mjög í vöxt að íþróttamenn leiti til sálfræðinga og þerapista til að bæta sig og losna við óttann við að kikna und- ir álagi. Dáleiðsla er síður en svo ný af nálinni og haldið hefur verið fram að níu af hverjum tíu séu mót- tækilegir fyrir henni. Í grein í þýska vikuritinu Der Spiegel í þessari viku er fjallað um dá- leiðslu og íþróttir. Þar er vitnað í Ortwin Meiss, sérfræðing í dá- leiðslumeðferð. Hann segir að vitaskuld þurfi líkamlegt form og tækni íþróttamannsins að vera í lagi, en hægt sé að draga úr lík- um á að íþróttamenn bregðist. „Íþróttamenn geta lært að losna við ótta og upplifa umhverfi sitt í keppni með jákvæðum hætti,“ segir hann og bætir við að jafnvel megi fá þá til að snúa veru- leikanum sér í hag, t.d. með því að telja sér trú um að blístrið á áhorfendapöllunum stafi af hrifn- ingu á frammistöðu þeirra. Þetta staðfesta rannsóknir á starfsemi heilans að einhverju leyti. Dáleiðsla veiki hæfni heilans til gagnrýninnar og rökréttrar hugsunar. Þetta þýði að efi og mótsagnir sæki ekki að ein- staklingnum, sem sjái, heyri og upplifi það sem hann vilji eða það sem honum er sagt. Einn viðmælandi blaðsins, lækn- irinn Klaus-Diethart Hüllemann, heldur því fram að með dáleiðslu sé hægt að ná fram svipuðum áhrifum hjá íþróttamönnum og með lyfjum. „Með andlegri tækni er einnig hægt að láta þreytu, sársauka eða þorsta víkja,“ segir hann og bætir við að þetta eigi sérstaklega við í íþróttagreinum, sem krefjast úthalds. „Þótt íþróttamaðurinn finni fyrir þorsta getur hann hjólað áfram. Þótt íþróttamaðurinn finni fyrir sárs- auka getur hann haldið áfram að hlaupa.“ Hüllemann telur reyndar að á einhverjum tímapunkti geti dáleiðsla íþróttamanna orðið skað- leg og gert að verkum að þeir hætti að þekkja sín takmörk. Aðr- ir eru ósammála og binda vonir við að aðeins þurfi að beita dá- leiðslu tímabundið vegna þess að með tímanum muni íþróttamenn, sem fari í slíka meðferð, hafa til- einkað sér rétta hugarfarið. Tekur dáleiðsla við af lyfjum í íþróttum? Reuters Heimsmeistari Franka Dietzsch náði sér úr lægð með dáleiðslu. „Á vissan hátt hugsa ég alltaf til Íslands sem lands geð- hvarfa. Æðiskennd sumur með dagsbirtu næstum allan sólarhringinn og smitandi löngun íbúanna til að nýta hverja mínútu. Þunglynd- islegir, myrkir vetur, þegar varla sér til sólar, sem valda því að maður fær yfirþyrm- andi löngun til að leggjast í dvala. En eftir nokkurra mánaða dvöl á Íslandi hafði þetta einstaka land náð full- komnum tökum á mér. Það er ástarævintýri sem stendur enn.“ Úr bókinni Þegar ljósið slokknar eftir Clare Dickens.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.