Morgunblaðið - 27.10.2007, Page 29

Morgunblaðið - 27.10.2007, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. OKTÓBER 2007 29 ekki dögum saman, braut reglur skólans og botnaði ekkert í þess- ari undarlegu hegðun sjálfur. Honum var ómögulegt að skilja af hverju hann fékk A á prófum þeg- ar honum fannst allt í óreiðu hjá sér og hann gat ekki einu sinni sinnt heimavinnunni. Á þessum tíma fór Titus að drekka áfengi og var þess vegna rekinn úr skól- anum. Síðar hóf hann leiklistarnám en á þeim tíma var hann farinn að drekka mikið ofan í geðlyfin og það fór afar illa saman. Neysla áfengis einstaklinga með geðhvörf er því miður mjög mikil; talið er að allt að 80% þeirra séu í ein- hverri neyslu. Titus tók m.a. lyfið rítalín og fór fljótlega að sjúga það upp í nefið. Þetta fór mjög illa með hann og líklega hefur rítalínið verið það síðasta sem hann þurfti á að halda því það reyndist honum mjög hættulegt.“ – Hvernig var fyrir þig sem móður að upplifa þessi alvarlegu veikindi Titusar? „Það voru margs konar upplif- anir,“ segir Clare hugsandi. „Ég féll í þá gryfju að skoða sjálfa mig sem hugsanlegan sökudólg; var orsökina að finna í einhverju sem ég gerði – eða gerði ekki? Hjálp- arleysið var yfirgnæfandi tilfinn- ing og eftir því sem Titus varð eldri, orðinn sjálfráða, höfðum við foreldrarnir minna um líf hans og ákvarðanir að segja. Að sjálfsögðu vorum við þó alltaf til staðar fyrir hann.“ Sigursteinn Másson, formaður Öryrkjabandalagsins, skrifar inn- gangsorð í bókina Þegar ljósið slokknar en þau hefjast á þessum orðum: „Hann var vinur minn og bróðir en ég hitti hann aldrei. Hann var sálufélagi minn en ég talaði aldrei við hann.“ Clare brosir hlýlega þegar ég les þessar línur úr bókinni: „Þegar Sigursteinn var formað- ur Geðhjálpar kynntumst við í gegnum Ólaf Stephensen hér á Ís- landi. Hann fékk strax áhuga á þeirri hugmynd að mig langaði til að skrifa bók með syni mínum um veikindi hans og í gegnum tíðina hefur hann sent Titusi bar- áttukveðjur og persónulegan stuðning með bréfum.“ – Hver eru helstu skilaboð bók- arinnar ykkar? „Ein mikilvægustu skilaboð bók- arinnar eru að forðast fullkomlega áfengi og önnur vímuefni ef þú greinist með þennan sjúkdóm. Ti- tus var mikið í mun að koma því á framfæri. Hans draumur var að ná það góðri heilsu að honum væri kleift að fara á meðal fólks, tala opinskátt um reynslu sína og deila henni öðrum til góðs. Titus vildi segja frá afleiðingum og eig- inleikum geðhvarfa. Með þessari bók er tilgangi hans vonandi náð.“ MIRALE Síðumúla 33 108 Reykjavík sími: 517 1020 Opið mán.–föstud. 11–18 laugardag 11–16 www.mirale.is Hinn frægi tappatogari „Anna G.“ eftir Alessandro Mendini aðeins í dag á kr. 2.500,- áður kr. 3.900,- takmarkað magn Fegraðu þitt heimili! Pappi Pappír Dagblöð/ tímarit Fernur Rafhlöður Málmar Plast- umbúðir Fréttir á SMS

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.