Morgunblaðið - 27.10.2007, Síða 31
daglegt líf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. OKTÓBER 2007 31
Tilnefndur til BAFTA
verðlauna fyrir besta
alþjóðlega barnaefnið
Myndform ehf • Trönuhraun 1 • Sími: 534 0400 • www.myndform.is • myndform@myndform.is
matvörum og öðrum
matvörum.
Svarið var að svo
væri ekki. Lífrænar
matvörur væru að vísu
eitthvað dýrari en ekki
svo mjög að það drægi
úr áhuga fólks á að
kaupa þessar vörur.
Þessi svör hljóta að
vekja spurningar um
það, hvers vegna líf-
rænar matvörur eru
enn svo dýrar á Íslandi
sem raun ber vitni. Það
mátti skilja þann mikla
verðmun, sem hér er
enn á meðan þessar
vörur voru seldar í
einni og síðar tveimur sérverzl-
unum. Nú eru stórmarkaðir hins
vegar einnig með þessar matvörur á
boðstólum og leggja undir þær tölu-
vert pláss, sem bendir til að sala sé
að aukast á þeim. Hvernig stendur á
því að aukin sala kemur ekki fram í
umtalsverðri verðlækkun á þessum
vörum?
Er þetta gamla sagan, að hægt sé
að bjóða Íslendingum hvað sem er?
Það er engin spurning, að lífrænar
matvörur standa öðrum matvörum
langtum framar að gæðum. Berið
saman lífrænt ræktuð epli og venju-
leg epli, sem hér eru á boðstólum í
stórmörkuðum. Þar er ólíku saman
að jafna. Raunar vekur furðu hvað
sumar ávaxtategundir eru ótrúlega
lélegar að gæðum. Hvers vegna
bjóða stórmarkaðir ekki upp á líf-
rænt ræktuð epli í ríkara mæli en
gert er? Má ekki búast við að hægt
sé að lækka verð með stærri inn-
kaupum?
Kannski er kominn tími á verð-
könnun á lífrænt ræktuðum mat-
vörum hér og í Kaupmannahöfn til
þess að sýna Íslendingum fram á
hvað þeir láta bjóða sér?
Er engin leið til þess að hinum al-
menna borgara verði sýnd sanngirni
í viðskiptum? Þessi sami viðmælandi
Víkverja sagðist ekki lengur finna
lægra fargjald með flugvélum milli
Kaupmannahafnar og Keflavíkur en
40-50 þúsund krónur. Hvað veldur?
Ómeðvitað verðsamráð?!
Einn af viðmæl-endum Víkverja,
sem býr í Kaupmanna-
höfn, hafði orð á því á
dögunum, að framboð
á lífrænum matvörum
hefði aukizt svo mikið í
matvöruverzlunum þar
í borg, að í sumum til-
vikum mætti telja, að
helmingur allrar sölu
væri í lífrænum vörum.
Víkverji spurði þá í
sakleysi sínu hvernig
það mætti vera, þar
sem verðmunur hlyti
að vera jafnmikill í
Kaupmannahöfn og á
Íslandi á lífrænum
víkverji skrifar | vikverji@mbl.is
Skólavörðustíg 21, Reykjavík
sími 551 4050
Glæsileg
brúðarrúmföt
í úrvali
Fréttir á SMS