Morgunblaðið - 27.10.2007, Page 32

Morgunblaðið - 27.10.2007, Page 32
32 LAUGARDAGUR 27. OKTÓBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ Einar Sigurðsson. Styrmir Gunnarsson. Forstjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. ATLANTSHAFSBANDALAGIÐ OG AFGANISTAN Í Morgunblaðinu í gær var skýrtfrá því að mótmæli hefðu veriðfyrir utan fundarstað varnar- málaráðherra aðildarríkja Atlants- hafsbandalagsins, sem voru á fundi í Hollandi í fyrradag. Mótmælin beind- ust að þátttöku Atlantshafsbanda- lagsins í hernaðaraðgerðum í Afgan- istan. Atlantshafsbandalagið stendur frammi fyrir vaxandi vandamálum af þessum sökum. Stríðsreksturinn í Afganistan gengur misjafnlega. Fyr- irsjáanlegt er að honum er ekki að ljúka. Talið er víst að hann geti staðið árum saman. Sumir þeirra, sem fylgj- ast með þessum átökum, telja óhugs- andi að Atlantshafsbandalagið geti unnið þetta stríð. Það sé alveg sama hversu marga hermenn talibana her- sveitir bandalagsins drepi, það komi jafn margir í þeirra stað á vígvöllinn ef ekki fleiri. Hvað er bandalagið, sem til var stofnað til þess að tryggja frið í Evr- ópu, að gera í Afganistan? Augljóslega að hjálpa Bandaríkjamönnum, sem hafa knúið það fram innan Atlants- hafsbandalagsins að hersveitir á þess vegum færu til Afganistans. Í Kanada og Hollandi er vaxandi þrýstingur á stjórnvöld að kalla hermenn þessara ríkja heim frá Afganistan. Hið sama má segja um Þýzkaland. Við Íslendingar erum aðilar að þessum aðgerðum Atlantshafsbanda- lagsins í Afganistan. Við höfum lagt blessun okkar yfir þessar aðgerðir. Við höfum haft uppi tilburði til þess að hjálpa til, tilburði, sem hafa engum orðið til framdráttar og okkur sjálfum til lítils sóma. Núverandi ríkisstjórn sýnist fylgja sömu stefnu og forverar hennar gagn- vart þátttöku Atlantshafsbandalags- ins í stríðinu í Afganistan. Samfylk- ingin virðist hafa tekið þá stefnu upp á sína arma. Utanríkisráðherra Sam- fylkingarinnar fylgir henni fram. Það er hins vegar löngu orðið ljóst að það er ekkert vit í þátttöku Atlants- hafsbandalagsins í aðgerðunum í Afg- anistan. Deilur innan bandalagsins um þetta mál fara vaxandi. Það er orðið tímabært að íslenzka ríkisstjórnin taki stefnu Íslands í þessu máli til endurskoðunar. Þeir sem telja að Ísland eigi hlut- verki að gegna á alþjóðavettvangi hljóta að vera sammála því, að Ísland lýsi þá ákveðinni stefnu og afstöðu til mála á borð við stríðið í Afganistan og aðildar Atlantshafsbandalagsins. Við höfum að vísu ekkert pólitískt afl til þess að fylgja þeirri skoðun eft- ir. En það höfum við heldur ekki ann- ars staðar. Það er merkilegt hvað þetta mál er lítið rætt á Alþingi Íslendinga. Eru Vinstri grænir kannski dauðir úr öll- um æðum á Alþingi?! Hafa þeir enga skoðun á þessum málum. Hafa þeir ekki einu sinni kraft í sér til þess að taka þau upp á Alþingi? VALDAMENN OG ALMENNINGUR Eitt af því sem hefur gert sam-félag okkar eftirsóknarvert er sá tiltölulega mikli jöfnuður sem hér hefur ríkt og sú nálægð, sem ríkt hef- ur milli svokallaðra valdamanna og hinna almennu borgara. Hinn al- menni borgari hefur átt auðvelt með að komast í samband við ráðamenn, hvort sem um hefur verið að ræða al- þingismenn, ráðherra eða fulltrúa í sveitarstjórnum. Dyr þeirra hafa staðið opnar. Það hefur verið eitt skýrasta einkennið um opið, lýðræð- islegt samfélag, sem hér hefur verið byggt upp. Vaxandi efnamunur veldur áhyggj- um og er augljóslega byrjaður að hafa áhrif á afstöðu almennings, eins og skýrt kemur fram í málflutningi talsmanna Starfsgreinasambandsins. En nú berast jafnframt fréttir um að nýir valdamenn í landinu séu ekki jafn aðgengilegir og hér hefur tíðk- azt og væri hægt að nefna athygl- isverð og um leið ótrúleg dæmi um það. Það er vond þróun ef sú háttsemi breiðist út að nýir valdamenn setji sig á háan hest gagnvart borgurum sem eiga erindi við þá. Þeir hinir sömu munu þá ekki sitja lengi á valdastólum. Íslendingar kunna ekki að meta slíka afstöðu og framkomu. Við höfum einstakt tækifæri til að byggja hér upp lýðræðisríki, sem er til fyrirmyndar, og samfélag, sem einkennist af jafnræði. Vaxandi fylgi er við að almennir borgarar taki stórar ákvarðanir í al- mennum kosningum. Þær umræður, sem nú eru að hefjast, um grundvall- arstefnuna í nýtingu orkulindanna og um eignarhald á þeim auðlindum, munu leiða til ákvarðanatöku. Það er við hæfi að þær ákvarðanir verði teknar af þjóðinni sjálfri. Augljós undirlægjuháttur, bæði einstakra stjórnmálamanna og ein- stakra embættismanna við fjár- magnshafa, sem eru ekki endilega fjármagnseigendur, ýtir mjög undir þá skoðun að þjóðinni einni sé treyst- andi til að taka þessar grundvallar- ákvarðanir. Að minnsta kosti er kom- ið í ljós að þeim, sem hafði verið falið umboðið af reykvískum kjósendum, hefur ekki verið treystandi til þess og hið sama má raunar segja um fleiri ákvarðanir, sem teknar hafa verið á þessu sviði, sumar á landsvísu. Þess vegna er kominn tími til að þjóðin sjálf ákveði framtíðarstefnuna t.d. í sambandi við nýtingu orkulind- anna og tilefni til að minna hina kjörnu fulltrúa á í umboði hverra þeir starfa. Þeir sem biðla til kjósenda fyrir kosningar en telja sig ekki þurfa að tala við þá eftir kosningar hafa mis- skilið það umboð sem þeir hafa feng- ið. Þeir ættu að rifja það snarlega upp hverjir það voru sem lyftu þeim í valdastóla. Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ Í lok síðasta mánaðar var haldið þing sem Þerapeia í samvinnu við Landlæknisembætti stóð fyr- ir. Þangað komu góðir gestir sem höfðu margt athyglisvert að segja heilsugæslulæknum, fæðingar- og kvensjúkdómalæknum, barnalæknum, ljósmæðrum, hjúkrunarfræðingum, geð- læknum, sálfræðingum og fleiri faghóp- um sem starfa á vettvangi þar sem fram kemur hvaða afleiðingar vímuefnaneysla foreldra hefur fyrir börn. Gestirnir sem fyrr voru nefndir eru þær dr. Kari Killén prófessor og dr. May Olafsson yfirlækn- ir. Kari Killén lauk doktorsprófi frá Osló- arháskóla 1988 og fjallaði doktorsritgerð hennar um vanrækslu barna. Síðan hefur hún stundað rannsóknir, verið faglegur leiðbeinandi á sviði sem varðar illa með- ferð á börnum og starfað að forvörnum á þessu sviði. „Óhreinu börnin hennar Evu“ Hún sagði í samtali við blaðamann Morg- unblaðsins að í fjölda ára hefði þessum börnum verð lítt sinnt í norsku kerfi, þau verið einskonar „óhreinu börnin hennar Evu“. „En þetta hefur smám saman verið að breytast en þær breytingar hafa gerst hægt,“ segir dr. Kari Killén. Hún kvað Smám saman h in milli vímuefn mála sem börni Hvað er gert þróun? „Við reynum sem unnt er og ekki að jafnvel l orsakað fósturs mánuðum meðg Er þeim börn er að hafi hlotið um erum við á e höfum þeirra re hluta í okkar sta árum leggja á h þessum börnum þeim vettvangi? Hvað með pe „Það er stór s sjá hvort það er um að setja pen að unnt verði að eiga foreldra se enda eru vanda mikil og þau í áh Kari Killén k börnum í ranns fjölda barna búa við óviðunandi aðstæður vegna vímuefnaneyslu foreldra en nú væri verið að opna æ fleiri stofnanir sem tækju á þessum vanda. „Þangað geta komið konur snemma á meðgöngunni sem eiga við vímuefnavanda að stríða og fengið hjálp og leiðsögn. „Mikið er reynt að gera konum ljósa þá hættu sem fóstrið er í vegna drykkju og annarrar vímu- efnaneyslu þeirra og reynt að sporna við að það verði fyrir skemmdum vegna þessa. Reynt er að fá konurnar inn sem fyrst í afeitrun til að koma í veg fyrir fósturskemmdir. Ekki er vitað hve mörg börn verða fyrir fósturskemmdum En þetta er orðið mikið samfélagslegt vanda- mál sem helst í hendur við aukna vímu- efnaneyslu og fátækt. “ Er alkóhólismi mjög mikill í Noregi? „Um er að ræða þar blandaða neyslu en mestu vandræðin hljótast þó af áfengi enda er neysla þess langmest. Oft verður ekki ljóst hve mikill skaðinn er fyrr en börnin vaxa úr grasi. Í verstu tilvikum koma fósturskemmdirnar í ljós í andlits- dráttum barna, einkum sjást þær á augn- svipnum, en börn verða líka fyrir skaða sem ekki sést en kemur fram síðar. Fósturskaði veg Áfengi er mikið í um- ræðunni núna. Þótt um löglegt vímuefni sé að ræða veldur það ýmsum skaða, stundum óbæt- anlegum. Guðrún Guð- laugsdóttir ræddi við sér- fræðinganna Kari Killén, dr. May Olafsson og Huldu Guðmundsdóttur um fósturskemmdir af völdum áfengis og skaðleg áhrif þess og annarra vímuefna í umhverfi barna og fjölskyldna. Fræðikonur Kari Killén, May Olafsson og Hulda Guðmund Ég er mjög ánægður meðþennan fund. Hann stóðfyllilega undir mínumvæntingum. Það var mjög gott að fá svona góð erindi frá fulltrú- um Hafrannsóknastofnunar. Þau voru mjög upplýsandi og gáfu betri og skýrari sýn á það, sem er að gerast í hafinu í kringum okkar,“ sagði Björg- ólfur Jóhannsson, formaður LÍÚ, í lok aðalfundar samtakanna í gær. Hann var endurkjörinn formaður með lófaklappi. En hver eru helztu málin núna? „Þorskurinn er auðvitað helzta málefnið núna, en einnig eru váleg tíðindi í sumum öðrum tegundum. Það er gengi íslenzku krónunnar, vaxtastefna Seðlabankans og síðan skattlagning á sjávarútveginn, sér- tækir skattar. Við munum koma til- lögum og ályktunum fundarins á framfæri við viðeigandi aðila, en helztu tillögur okkar lúta að því að laga til rekstrarumhverfið í heild sinni. Við erum í sjálfu sér ekki með nein- ar aðrar tillögur en við höfum verið uppi með hingað til, um gengismál og skattlagningu. Við leggjum þunga áherzlu á þessa þætti. Það er að vísu ein tillaga sem felur það í sér að auð- lindagjaldið verði fellt niður. Annars eru þetta almennar breytingar á reglum, sem við teljum í sjálfu sér mikilvægar, því regluverkið í sjávar- útveginum er allsvaðalegt á köflum.“ Hagræðing var markmiðið Umræðan um sjávarútveginn hef- ur að margra mati verið fremur nei- kvæð um þessar mundir. Hvað skýr- ingu hefur þú á því? „Það er ljóst að sjávarútvegurinn er mjög tengdur byggðum landsins og hefur verið það í gegnum tíðina. Það er líka ljóst að þær breytingar sem orðið hafa í sjávarútvegi, sam- þjöppun, efling fyrirtækja, hafa að sjálfsögðu komið við íbúa mjög margra byggðarlaga. Sum byggðar- lög standa betur eftir, önnur verr. Ég ímynda mér að það sé einn angi af nei- kvæðri umræðu að fólk tali um það sem brennur á því, bæði á viðkomandi stöðum og í fjarlægð. Það horfi á þessa þróun sem mjög neikvæðan þátt fyrir sjávarútveginn. Það áttar sig ekki á heildarmyndin sig ekki á samdrætti í af og aukinni tæknivæðingu bara á að það er að mi Það er að fækka verule sjávarútvegi vegna hagr minni aflaheimilda. Stjór sjálfu sér ekki haft bein ö að taka aflaheimildir úr Það þarf að laga rekstrarumhverfið Í HNOTSKURN »Það virðist vera svhverjir aðilar í sam inu sakni þess að geta verið með puttana í öl dreift aflaheimildum suður. »Ég held að útvegshafi einfaldlega te arútveginn og gert ha sjálfbærum atvinnuve því að vera ríkisstyrk hluta til ríkisrekinn. »Stjórnvöld hafa í sekki haft bein önn að taka aflaheimildir bygð og færa til anna Björgólfur Jóhannsson endurkjörinn formaður LÍÚ

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.