Morgunblaðið - 27.10.2007, Síða 35

Morgunblaðið - 27.10.2007, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. OKTÓBER 2007 35 www.salkaforlag.is Bók fyrir þá sem vilja skoða heiminn í nýju ljósi Suðurlandsbraut 50 (Bláu húsin við Faxafen) Sími 513 4300 OPIÐ HÚS LAUGARDAGINN 27. OKT. KL. 16:00 – 16:30 Fallegt nýtt einbýli á einni hæð með tvöföldum innbyggðum bílskúr. Íbúðin er 5 herbergja 156,6 fm og bílskúrinn er 55,5 fm, eignin er því samtals 212,1 fm. Húsið er staðsteypt og er tilbúið til innréttingar. Eignin skiptist í forstofu, 2 baðherbergi, 4 svefnherbergi, þvottaher- bergi, eldhús, svefnherbergisgang, stofu, geymslu og bílskúr. Hiti er í gólfi. Eignin afhendist tilbúin að utan með grófjafnaðri lóð. Að innan er búið að setja milliveggi, sparsla og mála. Loft er tekið upp að hluta og er með möguleika á halógen lýsingu. AFHENDING ER VIÐ KAUP- SAMNING. Verð 49.900.000. Sigurður gsm. 663-2697 tekur á móti gestum. Opið hús Kvistavellir 41 – 221 Hafnarfj OPIÐ HÚS LAUGARDAGINN 27. OKT. KL. 15 -15:30 Glæsilega ný uppgerð 4ra herb. 94,3 fm íbúð á fjórðu hæð (efstu hæð) ásamt 18 fm bílskúr. Eignin er því samtals 112 fm. Þrjú rúmgóð svefn- herbergi með eikar skápum sem ná upp í loft og parket á gólfum. Stofan er með parket á gólfum, og útgengt á stórar suður svalir frá stofu þar sem möguleiki er á sólstofu. Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, innrétting, baðkar með sturtu og góðir skápar. Eldhús er með nýrri eikar innréttingu frá Axis, parketlagt, lagt fyrir uppþvottavél, ný eldavélatæki og góður borðkrókur. Allar hurðir eru nýjar úr ljósum hlyn frá Agli Árnasyni. Allt parket er rauð eik og er nýtt frá Agli Árnasyni. Rafmagn er allt endurnýjað. Nýtt gler í stofuglugga og hjónaherbergis- glugga. Öll eignin er ný máluð. Laus við kaupsamning. Verð 26.400.000 Sigurður gsm. 663-2697 tekur á móti gestum. Opið hús Austurberg 4 – 111 Rvk OPIÐ HÚS LAUGARDAGINN 27. OKT. KL. 14 – 14:30 Falleg 3ja-4ra herbergja 97,5 fm íbúð á þriðju hæð (efsta hæð) í fjölbýli á vinsælum stað í Grafarholti. Eldhús er með fallega viðar innréttingu, góð tæki og uppþvottav.t. Inn af eldhúsi er þvottaherbergi með hillum. Stofa og borðstofa (auka herb. mögulegt) eru samliggjandi með eld- húsi. Gengið er út á svalir frá borðstofu sem eru flísalagðar. Tvö svefn- herbergi. Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, innrétting og baðkar með góðri sturtu. Flísar og parket er á gólfum. Geymsla er á jarðhæð. Góð staðsetning, þar sem stutt er í alla þjónustu, skóla og samgöngur. Stórkostlegt útsýni yfir til Esjunnar og yfir Reykjavík. Verð 27.500.000 Sigurður gsm. 663-2697 tekur á móti gestum. Opið hús Kristnibraut 4 – 113 Rvk Vilhjálmur Bjarnason lögg. fast.sali Guðbjörg Róbertsdóttir lögg. fast.sali ENN er komin á kreik hug- myndin um áfengissölu í mat- vöruverslunum og sem fyrr er sömu blekkingunum beitt. Reynt er að telja almenningi trú um að hér búi fólk við mikla frelsisskerðingu með núverandi fyrirkomulagi. Nokkrir þingmenn hafa tekið að sér að fá lögum um vínsölu breytt. Þegar þessi hug- mynd kom síðast á borð Alþingis spurði ég starfsmenn á nokkrum vinnustöðum hvort þeir teldu sig hafa orðið fyrir óþæg- indum á síðustu sex mánuðum, (aldrei, sjaldan, eða oft) af því að geta ekki keypt áfengi í mat- vöruverslun. Flest svörin voru á þá leið að svarendur sögðust ekki hafa orðið fyrir óþægindum vegna þessa en að loknu svari sögðust þeir þó telja líklegt að einhverjum öðrum þætti núverandi söluform hamlandi á vín- kaup og því væri kannski rétt að breyta lögum til samræmis við það sem væri í útlöndum. Útkoman bendir til að það séu ekki hinir almennu borgarar sem þarfnist þessara breytinga. Margir þeirra telja að þær séu var- hugaverðar og til þess fallnar að auka neyslu áfengis. Flutnings- menn frumvarpsins ganga því ekki erinda almennings. En hverra þá? Arður af verslun byggist að sjálf- sögðu á því að söluvaran standi sem styst við í hillunum. Til að auka veltuhraðann þarf sífellt að laða að fleiri viðskiptavini með því að auka vöruúrvalið, lengja af- greiðslutíma og auglýsa. Það eru nefnilega kaupmenn sem telja sig þurfa að fá vín og bjór í hillur sín- ar. Til þess reyna þeir að telja fólki trú um að það þarfnist greiðari að- gangs að veigunum. Annað sé skerðing á frelsi þess og sjálfstæði. Og svo eru búin til rökin. T.d. þau að við getum ekki verið þekkt fyrir að hafa ríkiseinkasölu á víni og bjór meðan aðrar þjóðir eru með þessar vörur í hverri búð, að við séum fangar gamaldags forræð- ishyggju og að almenningur njóti ekki trausts sem sjálfráða ein- staklingar. Svo þegar samkórinn er talinn nægjanlega stór og hávær eru þingmenn valdir til að pota frumvarpi gegnum þingið. Öll eru rök þessi falsrök, búin til í smiðju þeirra sem vilja ná til sín stærri hlut af ráðstöfunarfé almennings og hafa margfalt meiri áhuga á eigin hagnaði en vel- ferð almennings og frelsi. Þessi rök eru sauðargærur sem hverri utan yfir ann- arri er ætlað að hylja græðgisúlfinn. Og hvað svo ef kaupmenn og tagl- hnýtingar þeirra hafa sitt fram? Þegar áfengið er komið í hillur verslana er það komið undir sömu lögmál og aðrir vöruflokkar sem þar eru fyrir og þá þarf að snúa sér að því að auka hraða vör- unnar í og úr hillunum. Þingmenn- irnir fá þá næsta verkefni sem verður að afnema auglýsingatak- markanir, og aðrar hindranir sem kunna að verða settar til mála- mynda rétt á meðan frumvarpinu verður lætt gegnum þingið. Þá verður og gerð krafa um að ríkið hætti að selja þessar vörur í sínum útsölum með þeim rökum að ríkið eigi ekki að standa í samkeppni við frjálsa verslun. Sölusálfræðingar kaupmanna munu síðan hefja sín sölutrix til koma vörunni í innkaupakörfur við- skiptavinanna. Þeirra brellur má nú þegar sjá í hverri verslun. Það er engin tilviljun t.d. að sælgætinu er raðað upp við afgreiðslukassana þar sem biðraðirnar myndast því það er einmitt þar sem börnin fá nægan tíma til að hefja sinn kröfu- söng meðan foreldrarnir sitja fastir í biðröð og kynoka sér við að þrasa þar við þau. Og svo þetta með blessaða út- lendingana. Að þeir geri grín að skipulagi okkar á vínsölu. Því skyldu þeir ekki mega gera grín ef þá langar til? En hvers vegna ættu þeir að storma hingað til Íslands til að skoða land og þjóðmenningu ef hér væri allt með sama sniði og þeir búa við heima hjá sér. Það er gaman að koma til ann- arra landa og sjá þar og kynnast siðum og menningu annarra þjóða, en ekki er nú nauðsynlegt að flytja allt hingað sem við sjáum öðruvísi í útlöndum. Það er ekki endilega víst að sölu- og neysluvenjur þær sem þróast hafa um aldir meðal annarra þjóða henti okkur betur en þær sem við höfum og það er heldur ekki víst að þessar þjóðir séu svo mjög ánægðar og stoltar af því hvernig þessi áfengissölumál hafa þróast hjá þeim. Það situr nefni- lega hver þjóð uppi með þróun sinnar menningar, sumt gott og betra en hjá öðrum, en annað mið- ur gott en of rótfast til þess að því verði breytt. Spyrjum okkur sjálf spurning- arinnar sem getið var um í upphafi þessa pistils. Kemur það svo oft og illa við okkur að geta ekki keypt vín í matvörubúð að lagabreyting til þess arna verði sett í forgang viðfangsefna alþingis. Myndum okkur skoðun á málinu út frá okkar eigin svari og á okkar eigin for- sendum, en látum lönd og leið hug- aróra um að sendiboðar Versl- unarráðsins inn á alþingi þekki þarfir betur en við sjálf. Hver ætli telji til dæmis að þjóð- in þarfnist þess helst að áfengi renni örar um hillur verslana og þá um leið um kverkar landsmanna? Ég vona að enn höfnum við þeirri leið til frelsis og velfarnaðar sem frumvarpið stefnir til. Höldum áfenginu sem lengst utan markaðar og veltulögmála kaupsýslunnar. Blekking á blekkingu ofan Jökull A. Guðmundsson vill ekki áfengi í matvöruversl- anirnar » Flutningsmennfrumvarpsins ganga því ekki erinda almenn- ings. En hverra þá? Jökull A. Guðmundsson Höfundur er eldri borgari. Fáðu fréttirnar sendar í símann þinn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.