Morgunblaðið - 27.10.2007, Side 43

Morgunblaðið - 27.10.2007, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. OKTÓBER 2007 43 ✝ Gunnar Helga-son fæddist að Háreksstöðum í Norðurárdal hinn 23. september 1924. Hann lést á Heil- brigðisstofnuninni á Blönduósi hinn 19. september síðastlið- inn. Foreldrar hans voru Helgi Þórð- arson, f. 1877, d. 1951 og Ingibjörg Skarphéðinsdóttir, f. 1890, d. 1965. Gunnar var yngstur átta systkina. Hin eru Lára Kristín (hálfsystir), f. í Winnipeg 1902, d. í Kaliforníu 1985, Rögnvaldur Ingv- ar, f. 1911, d. 1990, Sigurþór, f. 1913, d. 1995, Laufey, f. 1914, d. 1983, Sigurlaug, f. 1916, Óskar, f. 1917, d. 1993, Sigríður, f. 1921. Kristín, f. 25.3. 1955, búsett á Skagströnd, gift Guðmundi Ólafs- syni. Börn þeirra eru Ruth (dóttir Guðmundar), maki Guðjón Ingi Guðmundsson, börn þeirra Daníel og Rakel Hanna. Gunnar, maki Hrafnhildur B. Gunnlaugsdóttir. Ólafur, maki Ragnheiður Ólöf Skaptadóttir, barn þeirra er Rannveig Lilja. 3) Unnur Ingi- björg, f. 23.9. 1957, búsett í Reykjavík, gift Vilmari Þór Krist- inssyni. Börn þeirra eru Elísabet, Steinunn, maki Ólafur Stefnir Jónsson, Þórunn, Valdís. Upp- eldissonur Vilhjálmur Vilmarsson, maki Mariella Tsirilakis. Gunnar ólst upp í Hrútafirði. Hann fluttist með foreldrum sín- um til Skagastrandar 12 ára gam- all og fór snemma að vinna ýmis verkamannastörf. Síðar gerðist hann vörubílstjóri og varð það hans ævistarf. Gunnar verður jarðsunginn frá Hólaneskirkju á Skagaströnd í dag og hefst athöfnin klukkan 11. Gunnar kvæntist á Skagaströnd, hinn 14. september 1952, Elísabetu Guðmundu Kristjánsdóttur, f. 30.9. 1925, d. 21.3. 1991. Foreldrar hennar voru Unnur Gíslína Björnsdóttir og Kristján Sigurðs- son. Börn Gunnars og Elísabetar eru 1) Kristján Helgi, f. 22. júlí 1952, búsettur á Skagaströnd, kvænt- ur Öldu Ragnheiði Sigurjónsdóttur. Börn þeirra eru Árný Elfa, maki Steinn Símonar- son, börn þeirra Kristján Páll og Rakel Alda. Guðrún Elsa, maki Arnar Ólafur Viggósson, dóttir þeirra Arna Rún. Gunnar, maki Guðrún Björnsdóttir. 2) Eygló Okkur langar í fáeinum orðum að minnast afa. Eitt af því fyrsta sem kemur upp í hugann þegar við hugsum um afa í Lundi er mjólkurkexpakkinn á eld- húsborðinu, Scania dagatalið í stig- anum, vörubíllinn úti á hlaði, húfan hans á snaganum og vasahnífurinn í buxnavasanum. Það var alltaf nota- legt að heimsækja afa. Rúmlega ársgömul fór ég í mína fyrstu barnapössun. Pabbi flaug með mig norður þar sem amma og afi í Lundi tóku glöð á móti mér. Til að byrja með var ég ekki eins kát og þau en það átti fljótt eftir að breyt- ast. Ævintýraferðirnar norður á Skagaströnd urðu fleiri og var ég iðulega í góðu yfirlæti. Afi var mjög vinnusamur. Hann bauð mér stundum með á rúntinn, á vörubílnum sínum. Það var mikið sport að fá að sitja í og fylgjast með honum keyra, sturta, hífa og fram- kvæma hinar ýmsu kúnstir. Heilu og hálfu dögunum eyddi ég með honum í vörubílnum og fékk að velja tónlistina. Amma var svo tilbúin með hádegismatinn handa okkur og þá gat afi hlustað á fréttirnar og fengið sér smá kríu. Í Lundi átti afi skemmtilegar græjur sem við systurnar fengum að leika okkur með, ritvél og reikni- vél sem prentaði á strimil. Draum- urinn um að gerast búðarkona var í algleymi. Þegar ég náði loksins niður á kúp- linguna á græna Bronconum hófst æfingaakstur í malargryfju fyrir of- an Skagaströnd. Afi var ágætis kennari, pollrólegur yfir þessu öllu saman og eflaust stoltur að hafa kennt afadóttur sinni að skipta úr fyrsta gír í annan. Bíltúrar um Skagaströnd, út á Skaga, í Kálfshamarsvík, inn á Blönduós o.fl. voru svo til fastir liðir. Þá var farið með nesti og stoppað á áhugaverðum stöðum. Bæjarnöfn og heiti á hólum og hæðum voru á hreinu hjá karlinum. Einnig er mér minnisstæð veiðiferð í Harastaðavík þar sem afi veiddi lítinn kola og gaf mér. Umsvifalaust var búin til lítil tjörn fyrir nýja gæludýrið mitt en stíflan brast og fiskurinn fagnaði frelsinu. Mikil sorg og eftirsjá ríkti en afi reyndi allt hvað hann gat að veiða kolakrílið aftur. Það tókst ekki en þess í stað veiddi hann stærðar silung sem hann gaf mér. Veturnir á Skagaströnd voru oft snjóþungir. Skaflarnir náðu stund- um upp undir þak og þá var afi lið- tækur í snjóhúsagerð með okkur krökkunum. Hann mætti galvaskur með skófluna og gróf út heilu íbúð- irnar, með forstofu, glugga og stofu með hillu fyrir kerti. Í fyrrasumar var svo komið að mér að rúnta með afa um mitt vinnusvæði á Kárahnjúkum, þar sem ég vann um skeið. Hann hafði mjög gaman af því að sjá fram- kvæmdarsvæðið og vinnuvélarnar sem voru af annarri stærðargráðu en hann hafði unnið við. Malarhaug- ana mældi hann í hlössum og tonn- um, enda með næmt auga fyrir þeim. Hann iðaði í skinninu þegar hann sá búkollurnar. „Asssgoti hefði nú verið gaman að prufa eina svona.“ Síðasta heimsóknin til afa var á afmælisdaginn hans fyrir skömmu. Þá var hann kominn á sjúkrahúsið á Blönduósi en þaðan átti hann ekki afturkvæmt. Elsku afi, biðjum að heilsa ömmu á nýja bænum í Himnaríki. Elísabet og systur. Í dag kveðjum við í hinsta sinn vin okkar Gunnar Helgason vörubíl- stjóra. Uppí hugann koma margar góðar minningar. Gunnar var alltaf stór hluti af samfélaginu undir Höfðanum. Sem lítill drengur ólst ég upp í næsta húsi við hliðina á Gunnari og Elsu þar sem við Helgi sonur þeirra erum miklir vinir og leikfélagar og mátti segja að ég væri þar heima- gangur til fjölda ára. Gunnar átti alltaf fallega vörubíla og þeir voru margir í gegnum tíðina og sérstak- lega til þess tekið hvað hann hugsaði vel um þá. H-34 var alltaf hans bíl- númer. Margar ferðirnar sátum við Helgi í bílnum hjá Gunnari er hann var við vinnu sína. Dýrðarstundir áttum við í bílskúrnum hjá Gunnari og þar var margt brallað. Man ég sérstaklega eftir að þegar við strák- arnir í útbænum vorum í bílaleikj- um, þá var oft sagt „Ég pant vera Gunni Helga“. Gunnar var ótrúlega hjálpsamur við okkur krakkana þegar við vorum að undirbúa ára- mótabrennurnar sem þá voru hafð- ar uppi á Höfða. Er hann flutti heilu bílfarmana af spýtnarusli sem safn- að hafði verið saman hingað og þangað og keyrði uppí Tjaldklauf. Þegar við byggðum húsið okkar þá var gott að eiga góðan að er leit- að var til Gunnars, sem alltaf var boðinn og búinn að leysa öll verkefni sem hann var beðinn um. Ein ferð kemur sérstaklega upp í hugann er ég bað Gunnar að koma með mér út á Skaga að sækja hellur sem við ætluðum að nota í garðinn okkar. Gekk okkur bærilega að safna saman hellunum. Gunnar sér fljótlega að mér liggur eitthvað á hjarta og spyr hvað hrjái mig. Ég segi honum að mig vanti góðan stein undir flaggstöng og það komi eig- inlega bara einn steinn til greina þarna í Múlanum. Hann sé bara svo firna stór. Gunnar biður mig að sýna sér steininn, hvað ég og geri. Hann horfið drjúga stund á steininn, mat aðstæður og horfir svo á mig og seg- ir ,,Langar þig í steininn, Finnur?“ Ég játti því og var ekki að sökum að spyrja að eftir mikið basl og slitnar stroffur, þá komum við heim með steininn og sómir hann sér vel þar sem hann er nú. Við þökkum Gunnari áralanga vináttu og sendum öllum ástvinum hans okkar innilegustu samúðar- kveðjur. Finnur og Guðbjörg. Þeim fækkar gömlu görpunum og víst er það eðlilegt samkvæmt lög- máli lífs og dauða. Það er líka skilj- anlegt að menn sem komnir eru á ní- ræðisaldur kveðji eftir langan og starfsaman ævidag. En söknuður býr engu að síður í huganum þegar horft er til baka og margháttuð samskipti rifjuð upp sem ríma við allt sem ærlegt er og gott. Einn af gömlu Skagstrendingun- um, Gunnar Helgason bílstjóri, er nú látinn, en hann var um áratuga- skeið á meðal þeirra sem settu svip sinn á mannlíf Skagastrandar. Í heilan mannsaldur var hann á ferð og flugi á vörubíl sínum í alhliða þjónustu við samborgara sína og gat sér hvarvetna hið besta orð. Hann ók mold, möl og sandi til og frá, áburði, heyi og öllu sem þörf var á fyrir bændur og búalið. Til fjölda ára átti hann stóran verkahring á hafnarsvæðinu, ók bjóðum til báta og frá bátum, sömuleiðis afla á hafn- arvigt og í frystihús. Hann ók salti, kolum og öðrum uppskipunarvarn- ingi úr skipum og fullunnum fisk- afurðum í skip til útflutnings. Lengi tók hann þátt í vegagerð og stór myndi sá haugur þykja sem hann flutti þar á sínum bíl ef allur væri kominn á einn stað. Gunnar var þannig lengstum af- gerandi beintengdur viðgangi at- vinnulífsins til sjávar og sveita og það vantaði ekki að hann væri ábyggilegur í hvívetna. Hann sagði aldrei annað en það sem hann stóð við og það var gott að eiga viðskipti við hann. Get ég vel um það borið, enda var hann alltaf í fyrsta vali sem bílstjórinn minn. Gunnar var kyrrlátur maður og dulur í dagfari, enginn mál- skrafsmaður og meira fyrir að láta verkin tala. Það gaf honum alltaf ríka ánægju að sjá hlutina gerast, sjá uppbyggingu og framfarir í verki. Lífsstarf hans var sem fyrr segir jafnan bundið þeirri framkvæmda- semi sem mestu skipti frá degi til dags. Hann lifði í miðri önn atvinnu- lífsins árum saman og fann sig vel í þeirri atburðarás alla tíð. Hann fékk að sjá heimastaðinn sinn vaxa úr til- tölulega hráu sjávarþorpi í hlýlegan bæ og það var ekki síst hans kynslóð sem lagði hollastar hendur að því verki – duglegir menn og kjarna- konur. En engin barátta er án fórna og á miðjum aldri varð Gunnar fyrir al- varlegu vinnuslysi. Það leið langur tími þar til hann náði sér og gat far- ið að vinna á ný og þó mun hann lík- lega aldrei hafa náð sér til fulls. En það vantaði ekki að áfram var barist og bitið á jaxla meðal dagljóst var. Gunnar missti Elsu konu sína fyr- ir aldur fram og var það honum þungt áfall sem nærri má geta. Síð- ustu árin reyndu síðan mjög á hann samfara vaxandi heilsuleysi og vita þeir það gleggst sem næstir honum stóðu og vörðu með honum vígið. Og nú er þessi trausti eljumaður horfinn úr heimi, andi hans svifinn til hærri víddar og hvíld og friður fenginn. Við sem eftir stöndum, samferða- menn um lengri eða skemmri veg, þökkum fyrir góða viðkynningu og biðjum Gunnari Helgasyni blessun- ar. Ástvinum hans eru jafnframt færðar hugheilar samúðarkveðjur á þessum kveðjudegi og megi minn- ingar um mætan mann verða ljós- geislar á vegum þeirra um ókomna tíð. Rúnar Kristjánsson. Gunnar Helgason ✝ Okkar ástkæri SIGURDÓR JÓHANNSSON, rafvirkjameistari, Akranesi, verður jarðsunginn frá Akraneskirkju þriðjudaginn 30. október kl. 14. Sigríður Eyjólfsdóttir, Sigrún Sigurdórsdóttir, Sæmundur Guðmundsson, Bragi Þór Sigurdórsson, Sigríður E. Hauksdóttir, Jóhann S. Sigurdórsson, Jónína Björk Óskarsdóttir, Hlynur Sigurdórsson, Jónína Herdís Sigurðardóttir. ✝ Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, BJÖRN HALLDÓRSSON gullsmiður, frá Nesi í Loðmundarfirði, lést á Hrafnistu í Reykjavík miðvikudaginn 24. október. Útförin verður auglýst síðar. Auður Björnsdóttir, Valdimar Sæmundsson, Fríða Frank, Gæflaug Björnsdóttir, Eva, Sara, Björn Eiríkur, Nína Margrét og langafabörn. ✝ Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, HALLDÓR BRYNJÚLFSSON, Böðvarsgötu 6, Borgarnesi, verður jarðsunginn frá Borgarneskirkju þriðjudaginn 30. október kl. 14.00. Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Dvalarheimili aldraðra í Borgarnesi. Ásta Sigurðardóttir, Sigurður Halldórsson, Ásta Kristín Guðmundsdóttir, Brynjúlfur Halldórsson, Vigdís Hallgrímsdóttir, Hlynur Snær Unnsteinsson, Brynjar Tumi Sigurðarson, Sigurlaug Brynjúlfsdóttir, Bryndís Brynjúlfsdóttir, systkini hins látna og aðrir aðstandendur. ✝ Okkar elskulega móðir, tengdamóðir og amma, ERLA GUNNARSDÓTTIR, Miðstræti 23, Neskaupstað, lést á Fjórðungssjúkrahúsinu í Neskaupstað þriðjudaginn 23. október. Útförin verður auglýst síðar. Börn, tengdabörn og barnabörn. ✝ Móðursystir mín, SYSTIR ANNE PAULINE, fædd 17. febrúar 1911, hjúkrunarfræðingur, lést á heimili St. Jósefssystra, Strandvejen 91 í Kaupmannahöfn, miðvikudaginn 24. október. María Albertsdóttir. ✝ Ástkær eiginkona mín og móðir, KRISTÍN EYJÓLFSDÓTTIR, Reynigrund 25, Kópavogi, lést fimmtudaginn 25. október á Landspítala í Fossvogi. Útförin verður auglýst síðar. Guðmundur Sæmundsson, Sæmundur Guðmundsson.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.