Morgunblaðið - 27.10.2007, Síða 47

Morgunblaðið - 27.10.2007, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. OKTÓBER 2007 47 af fjölbreytilegum söng og tónlist og áhersla er lögð á fyrirbæn- arþjónustu og sömuleiðis á virka þátttöku leikmanna. Hópur fólks tekur jafnan þátt í undirbúningi og framkvæmd messunnar, bæði leikmenn, djáknar og prestar. Helgihald í Kolaportinu Helgihald verður í „Kaffi Port“, í Kolaportinu 28. október kl. 14. Um leið og gengið er um og bæn- arefnum safnað eða frá kl. 13.30 syngur og spilar Þorvaldur Hall- dórsson ýmis þekkt lög bæði eigin og annarra. Hann annast einnig tónlistina í helgihaldinu. Prestar, djáknar og sjálfboðaliðar munu leiða samveruna og prédika. Boðið er upp á að leggja fram fyrirbæn- arefni og verður beðið með og fyr- ir þeim sem þess óska. Miðborg- arstarfið. Samkirkjulegur bókamarkaður Bókaforlagið Salt ehf og Samband íslenskra kristniboðsfélaga standa fyrir samkirkjulegum bóka- og tónlistarmarkaði, í kjallara húss KFUM og KFUK við Holtaveg 28, gegnt Langholtsskóla. Til sölu eru bækur og tónlistardiskar með kristilegu efni einnig bækur al- menns efnis sem hafa verið gefnar á markaðinn, bæði innlendar og erlendar, nýjar, nýlegar og eldri. Þar eru barnabækur, ýmiss konar fræðslurit um kristna trú og kirkju, og bækur um hjónaband og uppeldi, auk ljóða- og bænabóka, skáldsagna og ævisagna. Kaffihús verður opið meðan á markaðinum stendur. Sérstök tilboð verða í gangi og útvaldar bækur gefins. Allur ágóði af markaðnum rennur til starfs Kristniboðssambandsins í Afríku. Markaðurinn verður opinn í dag laugard kl. 13-16. ÞANN 25. september sl. varð ann- ar stórmeistari Íslendinga, Guð- mundur Sigurjónsson, sextugur. Yngri kynslóðir yngri skákmanna þekkja kannski ekki mikið til Guð- mundur enda hefur hann lítið teflt á opinberum vettvangi í meira en 20 ár. Hann varð Íslandsmeistari árið 1965 aðeins 17 ára gamall og vann titilinn aftur 1968 og 1972. Á sjöunda og átt- unda áratug síðustu aldar voru Guð- mundur og Friðrik Ólafsson lang- fremstu skákmenn Íslands og um tíma voru áhöld um það hvor væri betri. Besti tími Guðmundar í skák- inni var á árunum 1968–78. Hann vann Reykjavíkurskákmótið 1970 með 80% vinningshlutfall, hlaut 12 vinninga úr 15 skákum, tefldi á sterku móti í Caracas í Venesúela sama ár og einnig á Ólympíumótinu í Siegen en gerði þá hlé á taflmennsku. Tók upp þráðinn aftur eftir að lokið laganámi, varð stórmeistari í ársbyrjun 1975 með frábærri frammistöðu í Hast- ings-mótinu og tefldi á næstu árum víða um heim við góðan orðstír enda almennt talinn einn af glæsilegustu skákmönnum sinnar kynslóðar. Hann var aðstoðarmaður Robert Hübners á millisvæðamótinu í Rio de Janeiro 1979 sem lauk með glæstum sigri Hübners. Þá var hann aðstoðarmað- ur og þjálfari Hannesar Hlífars Stef- ánssonar á heimsmeistaramóti sveina 1987 en Hannes vann mótið með eft- irminnilegum hætti. Í dag er Guð- mundur einn af eigendum Eignamiðl- unar, einnar stærstu fasteignasölu landsins. Guðmundur rauf ákveðna kyrrstöðu í skáklífi Íslendinga þegar hann varð Íslandsmeistari 1965. Frið- rik Ólafsson bar höfuð og herðar yfir aðra íslenska skákmenn og kannski sá eini sem gat ógnað honum, Ingi R. Jóhannsson tefldi ekki mikið. Á Fiske-mótinu sem fram fór í Oddfel- low-húsinu 1968 sem var jafnframt þriðja Reykjavíkurskákmótið tefldi Friðrik með miklum glæsibrag en Guðmundur kom næstur. Hann átti í dálitlu basli með baráttuglaða landa sína en tefldi hinsvegar frægustu skák mótsins gegn hinum þekkta ungverska stórmeistara Lazslo Szabo. Þessi skák var valin fimmta besta skák ársins 1968 af hinu virta riti Infirmant sem er ekki lítið afrek þegar litið er til þess að þetta var upp- gangstími hjá meisturum á borð við Boris Spasskí og Bent Larsen. Fiske-mótið 1968 Laszlo Szabo – Guðmundur Sig- urjónsson Slavnesk vörn Á þessum árum var Slavneska vörnin ekki eins vinsæl og dag. Szabo reyndi að slá hinn unga andstæðing sinn út af laginu með sjaldséðri leið, 8. Be2. Tilraun til að skorða peð svarts á drottningarvæng svarar Guðmundur með því að brjótast fram með 13. .. e5. Allt virtist með kyrrum kjörum eftir 21. Rb3 en þá setur Guðmundur allt í bál og brand með 21. .. c5. Hafi sá leikur og skiptamunarfórnin í kjölfar- ið komið Ungverjanum á óvart hlýtur 23. leikurinn, Rf3+ hafa slegið hann út af laginu. Hann getur ekki leikið 25. gxf3 vegna 25. .. Dh3 26. f4 Rg4 og mátar en þegar Guðmundur lagði út 21. .. c5 varð hann að hafa séð 25. .. Re4 sem er eiginlega rúsínan í pylsu- endanum, 26. Ba5 sem blasir við er svarað með 26. .. Rg5 og hvítur getur enga björg sér veitt. Szabo tekst að stoppa í götin á kóngsstöðu sinni en þá kemur sókn úr annarri átt, 31. .. He5! Hvítur tapar peði og síðan knýr Guðmundur fram unnið peðsendatafl. Kraftmikil taflmennska. 1. d4 d5 2. c4 c6 3. Rf3 Rf6 4. Rc3 e6 5. e3 Rbd7 6. Bd3 dxc4 7. Bxc4 b5 8. Be2 Bb7 9. a3 a6 10. b4 Bd6 11. O–O O–O 12. Bd2 De7 13. Dc2 e5 14. Hae1 Hac8 15. Rg5 h6 16. Rge4 Bb8 17. Rg3 Hfe8 18. Rf5 De6 19. dxe5 Rxe5 20. Rd4 Dd7 21. Rb3 c5 22. Rxc5 Hxc5 23. bxc5 Sjá stöðumynd. 23. .. Rf3+ 24. Bxf3 Bxf3 25. Re2 Re4 26. Rg3 Rxd2 27. gxf3 Rxf3+ 28. Kg2 Dc6 29. e4 Rxe1+ 30. Hxe1 Bxg3 31. hxg3 He5 32. Hd1 Hxc5 33. Hd8+ Kh7 34. De2 f5 35. Hd4 Hc4 36. Hxc4 Dxc4 37. Dxc4 bxc4 38. Kf3 g5 39. exf5 c3 40. Ke4 c3 – og Szabo gafst upp. Fyrsta Norðurlandamót stúlkna í skólaskák Sjö íslenskar stúlkur taka þátt í Norðurlandamóti stúlkna í skóla- skák. Mótið fer fram í Blokhus í Dan- mörku um helgina. Þetta er í fyrsta sinn sem þetta mót fer fram en það mun verða árlegur viðburður fram- vegis. Skáksamband Íslands sendir 7 stúlkur til keppni. Þær eru: Elsa María Þorfinnsdóttir, Geirþrúður Anna Guðmundsdóttir, Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir, Jóhanna Björg Jóhannsdóttir, Sigríður Björg Helgadóttir, Stefanía Bergljót Stef- ánsdóttir og Tinna Kristín Finnboga- dóttir. Fararstjórar eru Guðfríður Lilja Grétarsdóttir og Bragi Krist- jánsson. Björn efstur á Haustmóti TR Björn Þorfinnsson vann Sigur- björn Björnsson í 2. umferð Haust- móts TR sem nú stendur yfir i húsa- kynnum Taflfélags Reykjavíkur í Faxafeni. Björn er einn efstur í A– flokki, hefur unnið tvær fyrstu skákir sínar. Í 2. sæti kemur Davíð Kjart- ansson með 1½ vinning. Snilld í húsi Oddfellowa SKÁK Fiske-mótið Oddfellow-húsið 1968 Helgi Ólafsson Norðurlöndin gegn Bandaríkjunum 1986 Bent Larsen, Guðmundur Sig- urjónsson og Margeir Pétursson. helol@simnet.is Fyrirtæki Naglasúpan - veitingastaður Meðeigandi óskast í veitingastað í miðbæ Rvík. Hafið samband við Gerhard, s.845-6265. Byggingavörur Ítalskir hringstigar til sölu. Hágæða "ítölsk" vara. Gler/viðar tröppur, burstað stál (stainless) eða pólerað, engar suður. B.Haraldsson ehf., s. 897 8947 bjorneh@simnet.is Sumarhús - orlofshús . Erum að framleiða stórglæsileg og vönduð sumarhús í ýmsum stærðum. Áratuga reynsla. Höfum til sýnis á staðnum fullbúin hús og einnig á hinum ýmsu byggingarstigum. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, símar 892 3742 og 483 3693, netfang: www.tresmidjan.is Falleg og vönduð sumarhús frá Stoðverk ehf. í Ölfusi. Gott verð. Teiknum eftir óskum kaup- enda, sýningarhús á staðnum. Einnig til sölu lóðir á Flúðum. Símar: 660 8732, 660 8730, 892 8661, 483 5009. stodverk@simnet.is Iðnaðarmenn Steinn og Timbur Sérfræðingar í múrverki, flísaverki, og flotverki, m.ö.o. allur pakkinn. Nánari upplýsingar í síma 896-8892. Sandspörslun og málun Upplýsingar í síma 893 5537 og Arno@internet.is Arnar málarameistari. Hestar Háskólinn á Hólum auglýsir hross til sölu: Þröstur IS2002158300 F: Forseti frá Vorsabæ M: Þrá frá Hólum Þórir IS2002158302 F: Glampi frá Vatnsleysu M: Þóra frá Vatnsleysu Fjörnir IS2002158311 F: Smári frá Skagaströnd M: Þilja frá Hólum Brák IS1994258301 F: Kveikur frá Miðsitju M: Birta frá Hólum Skrifleg tilboð berist skrifstofu skólans fyrir 15. nóvember nk. Réttur er áskilinn til að hafna til- boðum. Nánari upplýsingar í s. 455-6300 og á vikingur@holar.is. Nudd Veiði Stud, Stud, Stud! Innfluttur labrador rakki frá USA tiltækur á tíkur. Tiger uppfyllir allar heilsufarskröfur HRFÍ. Ný og spennandi lína á Íslandi! Allar upplýsingar í síma 821 8644. www.pointinglab.tk. Bátar Tilboð óskast! gerðu góð kaup núna á skemmtibát fyrir næsta sumar Marex 330. árg. 2001 2x260 hp Volvo Penta . Fullbúinn bátur með öllu sem þarf, vel búinn tækjum. Uppl. í síma 892 6114. Meðferðabekkir Glæsilegir bekkir frá USA. Ath. 7,6 cm svampþykkt Nálastungur Íslands ehf. www.nalar.net Sími 5200120 og 8630180 Húsgögn Tómstundir Revell módel: Nýkomin sending af plast- og trémódelum í miklu úrvali. Tómstundahúsið, Nethyl 2, sími 587 0600. www.tomstundahusid.is. NÓRA DALVEGI 16a Nóra hefur opnað á Dalvegi 16. Full búð af fallegum rómantískum vörum. Sjón er sögu ríkari. s: 517 7727 www.nora.is Húsnæði í boði Til leigu í Bæjarlind, Kópavogi Til leigu 48 m2 og 16 m2 herb. og jafnvel fl. m2, er í sameigilegu rými með snyrtistofu og heildsölu með snyrtivörur, góð aðstaða og stað- setning. Áhugasamir hafi samband í síma 821-7779 2ja-3ja herbergja íbúð í Þingholtunum 2ja-3ja herbergja nýuppgerð íbúð til leigu í rólegri götu í Þingholtunum. Verð 125 þús/mánuði. Nánari upplýsingar veitir Kristján í síma 6633132 Geymslur Getum bætt við okkur í geymslu nokkrum tjaldvögnum og fellihýsum. Uppl. í síma 421 5452 og 867 1282. Sumarhús Verslun NÓRA DALVEGI Mikið af nýrri og fallegri heimilis- og gjafavöru. Gott verð. Nóra Dalvegi 16a. S: 517 7727, www.nora.is Jeppar Landcruiser óskast. Óska eftir Landcruiser 120 VX, helst dísil. Staðgreiðsla í boði. Uppl. í síma 896 0850. Land Cruiser 120 árg 2006 Svartur, ek. 31 þús. km, ssk., 5 manna, krókur, filmur, þverbogar, vindskeið m/ljósi, húdd- og glugga- hlífar, cd magasín, hraðastillir, loftkæling o.m.fl. Engin skipti. Áhvílandi ca 1200 þús. Verð tilboð. Sími 860 4853/862 0204. Ökukennsla Ökukennsla Reykjavíkur ehf. Ökukennsla - akstursmat. Sverrir Björnsson Volkswagen Passat '06 . 892 4449/557 2940. Ævar Friðriksson Toyota Avensis '06. 863 7493/557 2493. Gylfi Guðjónsson Subaru Impreza '06. 696 0042/566 6442. Kristófer Kristófersson BMW. 861 3790. Sigurður Jónasson Toyota Rav4 ‘06. 822 4166. Snorri Bjarnason Nýr BMW 116i. 892 1451/557 4975. Glæsileg kennslubifreið Subaru Impreza 2006, 4 wd. Akstursmat og endurtökupróf. Gylfi Guðjónsson, sími 696 0042. Fellihýsi Geymsluhúsnæði - fellihýsi Höfum til leigu nokkur pláss undir fellihýsi, tjaldvagna o.fl. í upphituðu rými í Borgarfirði á sanngjörnu verði. Uppýsingar í síma 899 7012. Einkamál Til lukku með útskrift Bestu kveðjur í MEGA OFUR Partý :) Ritgerðinni er loksins lokið, ljúft skal haldið teitið. Af víkinga sið í vínið rokið, varlega þess þó neytið. Binni. Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.