Morgunblaðið - 27.10.2007, Síða 52
52 LAUGARDAGUR 27. OKTÓBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Afmælisþakkir
Kæru ættingjar og vinir!
Hjartans þakkir fyrir gjafir, heillaskeyti og
hlýhug sem þið sýnduð mér í tilefni 90 ára
afmælisins 16. október.
Ingibjörg Björnsdóttir, Æja,
frá Stóru-Seylu,
Suðurgötu 13 á Sauðárkróki.
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
FALLEGT
GERVIBROS
TAKK
KÆRLEGA
FYRIR
ÞAÐ
ÚPS... ÉG BROSTI
Í ALVÖRUNNI
FYRST
SENDI ÉG RIT-
STJÓRANUM
SÖGUNA...
SÍÐAN HLAUPUM VIÐ OG
KAUPUM DAGBLAÐIÐ TIL AÐ
SJÁ HVERNIG MYNDASAGAN
MÍN LÍTUR ÚT Í PRENTI!
ÉG HEF ALDREI SKILIÐ
HVERNIG MYNDASÖGURNAR
KOMAST Í BLÖÐIN
ÞARNA ER
MAÐKUR!
MAÐKAR
ERU
PÖDDUR, ER
ÞAÐ EKKI?
ÞETTA ER
ÓGEÐSLEGT!
HANN ER
BÚINN AÐ
FLJÓTA ÞARNA
Í MARGA DAGA
SKÓLINN BYRJAR EKKI FYRR
EN EFTIR TÍU MÍNÚTUR. EF
MÉR TEKST AÐ SAFNA FIMM
PÖDDUM Á MÍNÚTU ÞÁ ER
ÉG KOMINN MEÐ NÓGU
MARGAR PÖDDUR FYRIR
SKORDÝRASAFNIÐ MITT
FIMM
PÖDDUR Á
MÍNÚTU!
ÞÚ ERT
KLIKKAÐUR!
ÞARNA ER
ÖNNUR
PADDA!
ÞETTA ER
BARA
LÍTILL
BÚTUR
AF MOLD!
HELDUR ÞÚ
VIRKILEGA AÐ
KENNARINN EIGI
EFTIR AÐ SKOÐA
HVERJA EINUSTU
PÖDDU HJÁ
ÞRJÁTÍU
NEMENDUM
SÆLL,
HRÓLFUR
HVERNIG
HEFUR KONAN
ÞÍN ÞAÐ?
BARA GOTT...
EN ÞÍN?
BARA
GOTT
ÉG SAGÐI ÞÉR AÐ VIÐ VÆRUM FARNIR
AÐ RÁÐAST OF OFT Á SAMA KASTALANN
ÞAÐ GÓÐA ER
AÐ ÞETTA ER
ROSALEGA
GOTT FYRIR
MAGAVÖÐVANA
ÞANNIG AÐ
ÞÚ ÁTT Í
ERFIÐLEIKUM
MEÐ AÐ
TENGJAST
NETINU...
AFSAKIÐ...
FYRST VIL
ÉG AÐ ÞÚ
SLÖKKVIR Á
MÓDEMINU
ÞÍNU...
KLIKK
BÍP...
BÍP...
BÍP...
BÍP...
JÁ! ÉG
ER BÚINN
AÐ SEGJA
ÞAÐ FIMM
SINNUM!
ÉG ER
BÚINN
AÐ GERA
ÞAÐ!
HVENÆR ÆTLIÐ
ÞIÐ FÍFLIN AÐ ÁTTA
YKKUR Á ÞVÍ AÐ
VANDAMÁLIÐ LIGGUR
HJÁ YKKUR?
NEI!
FYRIR-
GEFÐU!
KOMDU
AFTUR!
GHOST
RIDER!
ÉG HEF EKKI SÉÐ
ÞIG FRÁ ÞVÍ AÐ VIÐ
BJÖRGUÐUM
HEIMINUM SÍÐAST
SLAKAÐU Á
FÉLAGI, ÞETTA ER
PÁSAN OKKAR
EKKI
VERA
FYRIR
MÉR
ÉG VISSI EKKI
AÐ ÞEIR VÆRU AÐ
GERA MYND UM
KÓNGULÓNA
ÉG HEFÐI ÁTT
AÐ SJÁ AÐ ÞETTA
VÆRI BARA
LEIKARI
Í BÚNING
dagbók|velvakandi
Frumvörp til Alþingis
ÁFENGISMÁL hafa mikið verið í
sviðsljósinu síðustu daga og finnst
mér frumvarpið um að heimila sölu á
áfengum drykkjum í venjulegum
verslunum vera alveg fyrir neðan
allar hellur.
Núna eru SÁÁ-samtökin búin að
vera samningslaus við ríkið í rúm tvö
ár, og nú stefnir í að SÁÁ þurfi að
fara að skera niður vegna fjárskorts,
t.d. að loka bráðamóttöku og þess
háttar. Hvernig væri að ganga frá
samningum við SÁÁ áður en svona
frumvarp er lagt fram?
Gunnar Diego.
Akranesstrætó
MIG langar að spyrja hvort ekki sé
hægt að vagn nr. 27, sem gengur á
milli Akraness og Reykjavíkur,
gangi alla leið niður á Hlemm. Eins
og þetta er núna stöðvar strætis-
vagninn í Háholti í Mosfellsbæ og
þeir farþegar sem ætla niður í bæ
þurfa að skipta um vagn og fara all-
an Mosfellsbæjarhringinn og þaðan
niður í bæ. Þetta kemur sér illa fyrir
marga.
Þá mætti einnig bæta við ferð um
eða upp úr hádegi.
Farþegi.
Hugleiðing á Þingvöllum
TIL umræðu hér eru þær spurn-
ingar sem vakna í hvert skipti sem
ég kem til Þingvalla. Hvaða snillingi
datt það í hug að husla utangarðs
hér (á Þingvöllum) tvö skáld? Hvað
höfðu þeir unnið til saka svo svaka-
legt? Hvers vegna þessir tveir
menn? Hversvegna engir aðrir og af
hverju ljóðskáld? Af hverju liggur
ekki Einar Jónsson myndhöggvari
hér, svo dæmi sé tekið, eða Guðjón
Samúelsson, eða eru þessi fáu pláss
sem eftir eru frátekin og þá fyrir
hverja? Megas kannski, eða Davíð
Oddsson skáld? Geta kannski auð-
menn tryggt sér hérna pláss til
framtíðardýrkunar? Ég legg til að
karlagreyin verði flutt í bæinn.
Ólafur Auðunsson.
Horfið geisladiskasafn
UM síðustu helgi var geisladiska-
safnið mitt tekið úr bifreið minni
sem var lagt við Barónsstíg. Engar
skemmdir voru unnar á bílnum, en
ég sakna sárt hátt í 100 geisladiska
sem ég geymdi í hanskahólfi bílsins.
Þarna var fullt af afrískri og
egypskri tónlist sem mun reynast
erfitt að fá aftur. Diskarnir voru í
svartri geisladiskamöppu. Hafi ein-
hver þetta í fórum sínum biðla ég til
þess hins sama um að hafa samband
við mig í síma 893 9912. Fundarlaun
eru í boði, því þarna er ansi margt
tilfinningatengt sem ekki gagnast
neinum öðrum.
Með von um að fá safnið mitt aft-
ur.
Sólveig.
Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og
13–15 | velvakandi@mbl.is
Í GÖMLUM sögum segir að við enda regnbogans sé falinn fjárasjóður.
Einnig að sá sem kemst undir endann á regnboganum hljóti eina ósk. Þessi
fallegi regnbogi teygði sig niður að Laugarnestanga.
Morgunblaðið/G.Rúnar
Við enda regnbogans
FRÉTTIR
NÁMSKEIÐ í gæðastjórnun á veg-
um Endurmenntunar Háskóla Ís-
lands verður haldið á Dunhaga 7
þriðjudaginn 13. nóvember kl. 8.30-
16, miðvikudaginn 14. nóvember og
fimmtudaginn 15. nóvember kl. 13-
17 (3x).
Kennari verður Davíð Lúðvíks-
son, rekstrarverkfræðingur og for-
stöðumaður þjónustu- og þróun-
arsviðs hjá Samtökum iðnaðarins.
Í fréttatilkynningu segir m.a. að
farið verði í hugmyndir, aðferðir og
þróun gæðastjórnunar á innlendum
og alþjóðlegum vettvangi. Einnig í
ábyrgð og hlutverk stjórnenda í
gæðastarfi. Gefið er yfirlit yfir ISO
9000 staðlana og altæka gæða-
stjórnun.
Námskeiðið er ætlað stjórn-
endum og starfsmönnum sem taka
virkan þátt í að byggja upp gæða-
stjórnun og umbótastarf á sínum
vinnustað, hvort heldur er í fram-
leiðslu eða þjónustu. Verð fyrir
námskeiðið er 42.400 kr.
Námskeið í gæðastjórnun