Morgunblaðið - 27.10.2007, Síða 54

Morgunblaðið - 27.10.2007, Síða 54
„Hann hjó menn í herðar niður.“ Er þetta ekki nokkuð falleg setning, ljóðræn jafnvel? 58 » reykjavíkreykjavík HANN stóð 200 sinnum á sviðinu og flutti leikverkið Hellisbúann. Bráð- um mun hann hafa leikið Pabbann 80 sinnum og stöðugt er uppselt á sýninguna. Það er nóg að gera hjá Bjarna Hauki Þórssyni. „Ætli þetta sé ekki bara lítið blóm sem hefur vaxið!“ segir pabbinn sposkur um Pabbann. Hann varð faðir árið 2004 og skrifaði verkið upp úr því en það fjallar um hlutverk feðra í nútímasamfélagi. „Sýningin byrjaði frekar smátt og partur af þessu er held ég bara að maður hefur verið þolinmóður og leyft þessu að spyrjast út.“ Rigg og stemning Bjarni Haukur hefur ferðast með Pabbann um landið og sýnt hann á hátt í 20 stöðum. „Maður hleður bara dóti inn í stóran sendiferðabíl og ekur af stað. Þetta er bara vertíð! Eins og með hljómsveitirnar, rigg og stemning … Þetta var náttúrlega gert mikið í gamla daga en virðist einhvern veginn vera hætt. Það virð- ist enginn vera að sinna þessu.“ Spurður af hverju hann sé alltaf einn á sviðinu, ýmist sem hellisbúi eða faðir, segist Bjarni Haukur hlæjandi hafa velt því mikið fyrir sér. „Ég er farin að hallast að því að ég hljóti bara að vera svona leið- inlegur! Það vill enginn vera með mér … Ég sit bara uppi með sjálfan mig.“ Hann kveður síðan upp úr með að einleiksformið sé reyndar form sem hann kunni einfaldlega vel við. Vegna mikillar eftirspurnar er bú- ið að skipuleggja aukasýningar á Pabbanum í Íslensku óperunni. Sit uppi með sjálfan mig … Og svo rembast Bjarni Haukur Þórsson fæðir barn í leikritinu Pabbanum sem fyllt hefur hús um land allt og verið sýnt nærri 80 sinnum.  Á Airwaves- hátíðinni bar það við að einn af þekktari lista- mönnum þjóð- arinnar gerðist þyrstur er hann gekk af sviði. Sá var hængurinn á að svo naumt var listamönnunum skammtað að ekki voru nema tveir bjórar á mann, sem þegar voru drukknir, og vörður vígalegur við bjórkælinn. Aðstoðarmaður lista- mannsins náði því fram með harð- fylgi að hann fengi annan bjór, en til að það gengi eftir þurfti að hringja í ýmsa umsjónarmenn há- tíðarinnar. Listamaðurinn var ekki par glaður – enda fékk hann ekki annað fyrir spilamennskuna en þessa þrjá bjóra. Tveir bjórar eru andskotans nóg!?  Broadway fagnar um þessar mundir 20 ára afmæli og í tilefni af því verður boðið upp á sýninguna George Michael í 25 ár! Líkt og seg- ir á heimasíðu Broadway er um eina „stórkostlegustu tónlist- arskemmtun allra tíma“ að ræða en þar verður að sjálfsögðu valinn maður í hverju rúmi. Eru þar fremstir meðal jafningja Friðrik Ómar og Jógvan Hansen. Broadway 20 ára  Innan um alla góðvini okkar á jólabókamark- aðnum er nokkur ný nöfn að finna í Bókatíðindum sem nú er hægt að lesa á netinu. Valur Gunnarsson blaðamaður virðist til dæmis hafa loksins klárað bók sem hann hefur verið með í smíðum í Finnlandi í nokkur ár og Ágúst Bogason útvarpsmaður fer í gegnum samsæriskenningar sem spunnist hafa í kringum árásirnar á Tvíburaturnana í New York. Ný nöfn í Bókatíð- indum 2007 Eftir Hallgrím H. Helgason hgrimur@simnet.is MARTEINN Hunger Friðriksson dómorganisti hefur nú í 26 ár staðið fyrir Tónlistardögum Dómkirkjunnar. Þar er jafnan í öndvegi frum- flutningur á tónverki sem samið er sérstaklega fyrir kórinn og organistann. Hátíðin í ár er þó óneitanlega með sérstæðum brag því að þessu sinni frumflytur Dómkórinn verk eftir dóttur kórstjórans, Þóru Marteinsdóttur. Verkið heitir Missa Brevis og er messa í fjórum þáttum. Það er óhætt að segja að Þóra Marteinsdóttir hafi verið umlukin kórstarfi frá blautu barns- beini en hún byrjaði sex ára að syngja í Kársneskórnum hjá móður sinni, atorkukon- unni Þórunni Björnsdóttur. Þar var hún til 16 ára aldurs. Síðar fór hún í Hamrahlíðarkórinn og loks í Hljómeyki sem faðir hennar stjórnaði á tímabili. Fjölbreytt verk „Ég held ég hafi verið tveggja eða þriggja vikna gömul þegar ég fór á fyrstu kóræfinguna, segir Þóra. „Svo ég er bókstaflega alin upp í kór.“ Marteinn segir það gott ef tónskáld þekki söngröddina. „Ef við fáum verk eftir tónskáld sem semur bara fyrir hljóðfæri þá er ekki alltaf svo auðvelt að koma því til skila með söngrödd- unum einum“. „Ég miða við að ef ég geti sungið þetta sjálf þá eigi kórinn að ráða við það,“ segir Þóra. „Svo ég syng þetta sjálf yfir.“ Þóra tók á sínum tíma próf úr tónfræðideild Tónlistarskólans í Reykjavík. Eftir það fór hún til Gautaborgar í frekara tónsmíðanám og lauk mastersprófi þaðan 2005. Hún hefur samið tón- list af margvíslegum toga en hún neitar því ekki að trúarleg tónlist standi henni nærri. „Mér finnst oftast kirkjuleg tónlist vera fal- legust,“ segir hún. „Það hvílir svo sérstakur blær yfir henni. Svo ég hef samið mikið af trúarlegum verkum.“ „Hún kemst heldur ekki hjá því að þekkja mikið til kirkjutónlistar,“ segir Marteinn. „En hún fékk líka skýrar línur frá mér um það hvernig verk hún ætti að semja. Ég hef alltaf beðið tónskáldin að hafa það í huga að það eigi að flytja verkið í kirkju. Þá þarf að finna texta sem passar. Svo fékk Þóra líka ósk um að hafa verkið þess eðlis að það væri þægilegt að flytja það oftar án þess að þurfa að hafa mikið við. Og mér finnst þetta hafa tekist mjög vel. Þetta eru stuttir kaflar, ekki endilega auðveldir í flutningi en þeir eru mjög fjölbreytilegir og að- gengilegir og því þægilegt að hlusta á þá. Það eru laglínur og fjölbreytni í því: þarna er við- kvæmni, styrkleiki, hátíðlegheit og líka fjör! Það skiptir líka máli.“ Stoltur faðir „Ég sem bara eitthvað sem mér finnst fal- legt,“ segir Þóra. „En ég sem mjög lagrænt, það er alveg rétt. En það skiptir líka miklu máli að það sé skemmtilegt að syngja verkið. Ég þekki það sjálf af þátttöku í kórstarfi að það er ekkert gaman að fá verk sem er leiðinlegt að syngja þótt það hljómi kannski fallega. Ég held líka að flutningurinn verði meira lifandi ef flytj- endunum finnst gaman. Marteinn Hunger játar því að það sé æði sér- stætt að stjórna nú verki eftir dóttur sína. „Það er náttúrlega ógurlega gaman og ég er mjög stoltur af að eiga barn sem getur gert þetta svona glæsilega. Ég vona að ég tárfelli nú ekki en svona inni í mér þá snertir það mig mjög.“ Dómkórinn frumflytur verkið Missa brevis eftir Þóru Marteinsdóttur á Tónlistardögum Dómkirkjunnar í dag kl. 16. Alin upp í kór Dómkórinn frumflytur í dag nýtt kórverk eftir Þóru Marteinsdóttur Morgunblaðið/Brynjar Gauti Feðginin Stór stund er í uppsiglingu hjá Þóru Marteinsdóttur tónskáldi og Marteini Hunger Friðrikssyni dómorganista.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.