Morgunblaðið - 27.10.2007, Page 55
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. OKTÓBER 2007 55
GESTIR í spurningaleiknum Orð
skulu standa í dag eru Svanborg
Sigmarsdóttir og Þóra Guðmunds-
dóttir. Á milli þess sem þær velta
fyrir sér m.a. orðunum „flakasúð“ og
„skotaskuld“ botna þær þennan
fyrripart:
Að ganga í heilagt hjónaband
hommum leyfist ekki.
Um síðustu helgi var fyrripart-
urinn þessi um forsetann:
Erfitt verður öflugan
eftirmann að finna.
Í þættinum botnaði Davíð Þór
Jónsson fyrst:
Mér finnst að ennþá ætti hann
embættinu að sinna.
En fann svo tvo frambjóðendur ef
á þyrfti að halda:
Í djobbið aðeins duga kann
Dalla eða Tinna.
Guðmundur Guðlaugsson botnaði
líka tvisvar:
Greindan, iðinn, geðugan
grænan friðarsinna.
Ykist nokkuð ánægjan
ef hann væri kvinna.
Hlustendur spöruðu ekki sitt
fremur en endranær, m.a. Jónas
Frímannsson:
Enginn svipað Ólafi kann
okkar þjóð að vinna.
Önundur Páll Ragnarsson:
Þar til Framsókn Fredda kann
í framboðið að kynna.
Guðni Þ.T. Sigurðsson var á svip-
uðum slóðum:
Samfylking mun sómamann
úr sínum röðum kynna.
Sigríður Guðmundsdóttir m.a.:
Kjósa ætlum konu í rann,
karlveldi skal linna.
Óskar Jónsson fann aðra lausn:
Leigt við gætum lettneskan,
þeim leiðist ekki vinna.
Magnús Halldórsson á Hvolsvelli
m.a.:
Kappsaman og kröftugan,
Kínverjum að sinna.
Anna Sigurðardóttir:
Hann þarf að geyma góðan mann
og göfug verk að vinna.
Auðunn Bragi Sveinsson:
Forsetana fimm ég man;
fæsta þarf að kynna.
Sumum nægðu, svo ég man,
sextán ár – ei minna.
Ingólfur Ármannsson tók undir
þetta:
Áfram skora á öðling þann
embættinu að sinna.
Sömuleiðis Halldór Hallgrímsson
á Akranesi:
Óli vel til verka kann
sem vandi er að sinna.
En Páll Tryggvason mundi eftir
manni á lausu:
Villa tel ég verðugan,
vil ég á það minna.
Orð skulu standa
Hjónaband homma
Morgunblaðið/G.Rúnar
Biskup Íslands Eldfimt kirkjuþing
verður eflaust mörgum hagyrð-
ingnum mikill innblástur.
Hlustendur geta sent sína botna í
netfangið ord@ruv.is eða bréfleið-
is til Orð skulu standa, Rík-
isútvarpinu, Efstaleiti 1, 150
Reykjavík.