Morgunblaðið - 27.10.2007, Side 58
58 LAUGARDAGUR 27. OKTÓBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
- Kauptu bíómiðann á netinu -
Miðasala í Smárabíó og Regnbogann Prentaðu sjálf(ur) út bíómiðann - Engar biðraðir
Þriðji hlutinn í fram-
tíðartryllinum með Millu
Jovovich í toppformi!
Dark is Rising kl. 1:30 - 3:45 - 5:50 - 8 - 10:15 B.i. 7 ára
Heartbreak Kid kl. 3 - 5:30 - 8 - 10:30 B.i. 12 ára
Heartbreak Kid kl. 3 - 5:30 - 8 - 10:30 LÚXUS
Good Luck Chuck kl. 5:50 - 8 - 10:10 B.i. 14 ára
Resident Evil kl. 8 - 10:10 B.i. 16 ára
Superbad kl. 3 - 5:30 B.i. 12 ára
Hákarlabeita m/ísl. tali kl. 1:30 - 4
The Simpsons m/ísl. tali kl. 1:30 (300 kr.)
Eastern Promises kl. 8 - 10:10 B.i. 16 ára
Resident Evil kl. 10:10-KRAFTSÝNING B.i. 16 ára
Heartbreak Kid kl. 6 - 8 B.i. 12 ára
Good Luck Chuck kl. 4 (450 kr.) - 6 B.i. 14 ára
Hákarlabeitan kl. 4 (450 kr.)
Sími 564 0000Sími 462 3500
Dark is Rising kl. 3 - 5:50 - 8 - 10:10 B.i. 7 ára
4 Months Enskur texti kl. 3 - 5:40 - 8 B.i. 12 ára
The Edge of Heaven Enskur texti kl. 3 - 5:40 B.i. 12 ára
Halloween kl. 10:20 B.i. 16 ára
Superbad kl. 3 - 5:30 - 8 - 10:30 B.i. 12 ára
Good Luck Chuck kl. 8 - 10:20 B.i. 14 ára
Sími
551 9000
Brjálæðislega fyndin mynd!! Frá gaurnum sem færði okkur
The 40 Year Old Virgin og Knocked Up
- Dóri DNA, DV- T.S.K., Blaðið - H.J., MBL
- J.I.S., FILM.IS- LIB, Topp5.is
DÓMSDAGURDJÖFULSINS!
FRÁ MEISTARA ROB ZOMBIE KEMUR
EIN SVAKALEGASTA MYND ÁRSINS!
eee
Dóri DNA - DV
STRANGLEGA BÖNNUÐ INNAN 16 ÁRA
SÍ
ÐU
ST
U
SÝ
N.
Ver
ð aðeins
300 kr.
HANN BEIÐ ALLT SITT LÍF EFTIR
ÞEIRRI RÉTTU... VERST AÐ HANN
BEIÐ EKKI VIKU LENGUR
FRÁBÆR GRÍNMYND FRÁ LEIKSTJÓRUM
"THERE´S SOMETHING ABOUT MARY"
TOPPMYN
DIN
Á ÍSLANDI
Í DAG
Las Vegas er
HORFIN...
Jörðin er
næst!
ATH: EKKERT HLÉ OG MIÐASÖLU
LÝKUR ÞEGAR SÝNING MYNDAR HEFST
eeeee
- Sæbjörn Valdimarsson, Mbl.
eeeee
- Sæbjörn Valdimarsson, Mbl.
FRÁ LEIKSTJÓRANUM
DAVID CRONEBERG
Hann þarf að finna
sex falda töfragripi á
aðeins fimm dögum...
til að bjarga heiminum
frá tortímingu!
Stórkostleg
ævintýramynd í anda
Eragon.
* Gildir á allar sýningar merktar með rauðu
450 KR. Í BÍÓ*
* Gildir á allar s
ýningar merkta
r með rauðu450 KR. Í BÍÓ
*
Krafist er uppsagnar Þrastar Helga-sonar, ritstjórnarfulltrúa LesbókarMorgunblaðsins. Krafan birtist hér:
„Verandi löggiltur bókmenntafræðingur
staðhæfi ég að þetta er ekki kvæði fyrir
fimm aura. Þetta er viðbjóðslegt klám; ekki
einu sinni hormónagelgja af verstu sort
gæti klambrað svona ógeði saman, ekki
heldur þær sem teikna typpi með tússi í
undirgöngum borgar óttans! […] Mér finnst
að það ætti að segja ritstjóranum um-
svifalaust upp út af þessari kvæðisbirtingu,
ekkert síður en Mogginn lét flórgyðjuna
Ellý loka sínu bloggi þegar hún var farin
að róa á sömu mið og þetta svokallaða
danska skáld.“ Þessi texti er tekinn af
bloggi Hörpu Hreinsdóttur (harpa.blogg.is)
og vísar til birtingar Lesbókarinnar á ljóð-
inu „Lestu mig! Ég er með stór brjóst“ eft-
ir danska ljóðskáldið Lars Skinnebach.
Ljóðið fjallar um samlíf karls og konu og
erfitt er að lesa út úr því annað en að bæði
séu lögráða og hvorugt virðist þvingað til
verksins, eins er erfitt að sjá sérstaka
kven- eða karlfyrirlitningu í ljóðinu. Í
fljótu bragði sé ég aðeins eitt að þessu ann-
ars prýðilega ljóði, það eru fáein ansi ljót
orð í því.
Sérstaklega orðin tussa og typpi. Ég veitekki alveg af hverju mér finnst orðin
ljót en mig grunar þó tvennt. Annars vegar
að þessi fagurfræði mín sé upprunin frá
leikskólanum þar sem ég heyrði orðin fyrst
og annar helmingur krakkahópsins hló og
hinum helmingnum fannst þetta vera oj-
bjakk (orð sem áðurnefnd Harpa kallar ljóð
Skinnebach einmitt) og við fengum öll aula-
hroll hvert yfir öðru. Hin er sú að þessi orð
hafi hreinlega verið valin af siðavöndum
púrítönum af þeirri ástæðu helstri að þau
væru ljót.
Ef saga siðmenningarinnar er skoðuð
lauslega þá er áberandi hversu algengt er
að holdleg ást sé rökkuð niður bæði af and-
legu og veraldlegu yfirvaldi á sama tíma
og stríð er iðulega upphafið. Bókmennt-
irnar hafa ekki verið sæmilega frjálsar
nema brot af sinni sögu, langt fram á síð-
ustu öld (og sums staðar enn) voru bók-
menntir sem snertu af alvöru á klámi eða
erótík neðanjarðar á meðan bókmenntir
um stríð og ofbeldi (sem margar upphófu
viðfangsefnið) þöktu veggi sérhvers heim-
ilis þar sem á annað borð voru bækur.
Þannig höfum við aldagamla hefð fyrir því
að skrifa áhrifaríkar bækur um stríð og of-
beldi en erum flest hvert öðru klaufalegra
þegar við ætlum að klambra saman ein-
hverjum smátexta um kynlíf. Því orðin
enda ýmist á því að vera; a) hjákátleg, hall-
ærisleg eða ljót, b) tepruleg eða c) klínísk
og köld.
Prófum bara:„Hann hjó menn í herðar niður.“ Er
þetta ekki nokkuð falleg setning, ljóðræn
jafnvel? En lokaðu augunum örskotsstund
og hugsaðu aðeins um merkinguna. Sjáðu
þetta fyrir þér, settu þig jafnvel í spor
fórnarlambsins sem hugsanlega missir saur
á síðustu augnablikum jarðlífsins. Og
skyndilega hættir setningin að vera falleg.
Fegurðin klofin í herðar niður.
En prófum annað. „Hann stakk typpinu
inn í píkuna á henni.“ Þetta er hins vegar
forljót setning, ojbjakk! En lokaðu aug-
unum örskotsstund og hugsaðu aðeins um
merkinguna. Þetta gæti verið hápunktur
bestu stunda lífs þeirra. Þarna verður jafn-
vel til fjölskylda, þetta gæti jafnvel verið
staðurinn þar sem þau finna sjálfa ham-
ingjuna. Ljótleikinn klofinn í herðar niður.
En það er eitthvað í tungumálinu, menn-
ingunni, sem stendur í vegi fyrir þessari
hamingju. Það er eitthvað í tungumálinu
sem vill frekar að við förum í stríð, sem
vill frekar að við rífumst, vill frekar að við
séum vond hvert við annað. Þannig að við
þurfum að losna við aulahrollinn og end-
urheimta tungumálið. Ein leið gæti verið
sú að birta meira ojbjakk í Lesbókinni.
Að höggva mann og konu
Ljósmynd/Søren Solkær Starbird
Ojbjakk „Myndin sýnir höfund ojbjakksins,
Lars Skinnebach.“ Myndatexti við mynd af
Skinnebach á bloggi Hörpu Hreinsdóttur.
AF LISTUM
Ásgeir H. Ingólfsson
asgeirhi@mbl.is