Morgunblaðið - 18.12.2007, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 345. TBL. 95. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 18. DESEMBER 2007 LANDSPRENT EHF. mbl.is
BEST Í BOLTANUM
MARGRÉT LÁRA OG HERMANN KNATT-
SPYRNUMENN ÁRSINS >> ÍÞRÓTTIR
FRÉTTASKÝRING
Eftir Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Í KJÖLFAR samkomulagsins sem
náðist á Balí um ferli viðræðna um
aðgerðir í loftslagsmálum beinist at-
hyglin hér innanlands enn á ný að
því ósamkomulagi sem er á milli rík-
isstjórnarflokkanna um séríslenska
ákvæðið svokallaða, þ.e. undanþágu
til losunar koltvíoxíðs umfram það
sem almennt yrði heimilað. Skv.
heimildum líta sjálfstæðismenn svo
á að Þórunn Sveinbjarnardóttir um-
hverfisráðherra hafi gengið of langt
í ummælum sínum á Umhverfis-
þinginu í haust um að Íslendingar
eigi ekki að sækja um undanþágur
fyrir Ísland frá takmörkun á losun.
Sjálfstæðismenn segja að samnings-
markmið Íslands verði ekki búin til í
umhverfisráðuneytinu, heldur
ákvörðuð og samþykkt af ríkis-
stjórninni í heild sinni. Nýleg grein
Össurar Skarphéðinssonar iðn-
aðarráðherra „Tíu liðir ríkisstjórnar
um minni losun“ er samstarfs-
flokknum meira að skapi, en þar
segir Össur m.a. að ríkisstjórnin vilji
„halda fram gildi sveigjanleika-
ákvæða, einsog giltu í Kýótó-
samkomulaginu“.
Ágreiningurinn fór ekki á milli
mála þegar Geir H. Haarde for-
sætisráðherra sagði í svari á Alþingi
7. nóvember sl.: „Mín skoðun er sú
að við eigum að freista þess að fá aft-
ur samþykkt íslenskt ákvæði að lok-
inni næstu samningalotu um tak-
markanir við losun gróðurhúsa-
lofttegunda á grundvelli okkar
sérstöðu sem viðurkennd var árið
2001 og halda þannig öllum þeim
sveigjanleika sem við getum og tak-
marka ekki möguleika okkar fyrir-
fram,“ sagði hann.
Koma úr gjörólíkum áttum
Enginn vill spá fyrir um hvort lík-
ur séu á að samkomulag náist um ís-
lenska ákvæðið á næstunni. „Flokk-
arnir tveir koma úr gjörólíkum
áttum í þessu,“ segir viðmælandi.
Innan Samfylkingar er bent á að
Kýótó-bókunin fellur úr gildi 2012.
Viðfangsefnin fram að þeim tíma séu
svo gríðarstór að umfangi, m.a. um
álitamál varðandi gjaldtöku fyrir
losunarheimildir, að íslenska ákvæð-
ið verði að hreinu aukaatriði í því
samhengi. Umhverfisráðherra benti
á það í gær að menn ættu ekki að
útiloka þann möguleika að þurfa að
greiða fyrir allar losunarheimildir
eftir 2012, hvort sem um álver eða
aðra stórtæka losendur er að ræða.
Morgunblaðið/Ómar
Áform Minnka á losun gróðurhúsa-
lofttegunda um 50-75% fyrir 2050.
Ágrein-
ingur enn
óleystur
EKKI SÉR enn til lands í öldu-
rótinu sem er og hefur verið á fjár-
mála- og hlutabréfamörkuðum á
undanförnum vikum og mánuðum.
Skellurinn á hlutabréfamarkaðinum
hér á Íslandi hefur verið mjög harð-
ur og er öll hækkun ársins horfin og
raunar gott betur en það; nú er svo
komið að fara þarf meira en eitt ár
aftur í tímann eða til 5. desember í
fyrra til þess að finna lægra gildi á
úrvalsvísitölu OMX á Íslandi en hún
stendur nú í 6.316 stigum eftir um
2,3% lækkun í gær. Það táknar að
úrvalsvísitalan hefur lækkað um
1,5% frá áramótum og um 30% frá
því hún var sem hæst í júlí í sumar.
Fjármálafyrirtækin vega ákaflega
þungt í íslensku úrvalsvísitölunni og
það eru einmitt þau sem hafa orðið
harðast úti á hlutabréfamörkuðum.
Greint hefur verið frá því að
nokkuð hafi verið um svokölluð veð-
köll að undanförnu, þ.e. bankar hafa
farið fram á sölu hlutabréfa eða
auknar tryggingar fyrir lánum
vegna hlutabréfakaupa, og ljóst er
að þróunin á markaðinum undan-
farna viðskiptadaga mun væntan-
lega auka enn á vandræði skuld-
settra fjárfesta.
Allar helstu hlutabréfavísitölur í
Evrópu og Bandaríkjunum féllu í
gær.
Gengi hlutabréfa heldur
enn áfram að falla
Fara þarf meira en ár aftur í tímann til að finna lægra gildi
Viðskipti | 14
Á morgun er
síðasti öruggi
skiladagur
fyrir jólapakka
innanlands
www.postur.is
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
0
7
-
1
5
3
5
Hvað
það
verður
veit nú
enginn
Leikhúsin í landinu
Gefðu góða
leikhúsferð >> 44
GEIR H.
Haarde forsætis-
ráðherra segir
ekkert at-
hugavert við
stofnun nýs dótt-
urfélags Lands-
virkjunar,
Landsvirkjun
Power, en þing-
flokkur VG varar
á hinn bóginn við þeim áformum
sem uppi eru.
Geir H. Haarde bendir á að
Landsvirkjun sé ríkisfyrirtæki sem
skipuleggur sig í samræmi við
markmið sín á hverjum tíma og
hefur verið með verkefni erlendis í
mörg ár. „Nú er fyrirtækið að
koma þeim verkefnum fyrir í þessu
nýja fyrirtæki, Landsvirkjun Pow-
er, jafnframt því að fela því fyrir-
tæki verkefni á sviði framkvæmda
hér innanlands,“ segir hann.
Kolbrún Halldórsdóttir, VG, seg-
ir þörf á að ræða málið mjög opið.
„Ég sé ekki betur en verið sé að
fara með 8 milljarða úr úr Lands-
virkjun inn í einkahlutafélag sem
hvorki heyrir undir upplýsinga- né
stjórnsýslulög og því höfum við
engin tæki til að fylgjast með því
sem þar verður gert,“ segir hún.
Ekkert at-
hugavert við
LV Power
Geir H. Haarde
Eftir Guðna Einarsson
gudni@mbl.is
STÓR aurskriða féll á veginn nálægt Kvíabryggju á
Eyrarhlíð, milli Ísafjarðar og Hnífsdals, í gærkvöldi.
Fólksbíll með fjögur ungmenni innanborðs lenti í skrið-
unni en engan sakaði.
Þá var mikið vatnsveður og hvassviðri á þessum slóð-
um og stóð veðrið beint upp á hlíðina ofan við veginn.
Vegna hættu á frekari skriðuföllum var ákveðið að loka
veginum og voru björgunarsveitir kallaðar út.
Viktoría Guðmundsdóttir, 17 ára stúlka úr Hnífsdal,
var á leið inn á Ísafjörð ásamt fjórtán ára bróður sínum
og tveimur jafnöldrum hans í Volkswagen Golf-fólksbíl.
„Það var lítið grjóthrun á veginum aðeins á undan
þannig að ég hélt bara áfram. Allt í einu kom annað
grjóthrun og bíllinn festist í því,“ sagði Vikoría. Hún
kvaðst hafa séð hvernig skriðan ruddist undir bílinn og
umhverfis hann þangað til hann sat gikkfastur. „Spurn-
ingin var hvort skriðan myndi koma öll yfir okkur eða
stoppa einhvers staðar,“ sagði Viktoría.
Þau sem í bílnum voru ákváðu að yfirgefa hann og
hlupu yfir aurflóðið að bíl sem hafði stöðvað hinum
megin við skriðuna og fengu að setjast inn í hann.
„Ég er drullug upp fyrir haus,“ sagði Viktoría. „Það
er fyndið að ég var einmitt að velta því fyrir mér í dag
hvernig ég myndi bregðast við ef ég lenti í einhverju
svona löguðu.“
En hvernig leið henni eftir þessa lífsreynslu?
„Það er smá sjokk – svona þegar maður er nýkominn
með bílpróf. Ég fékk prófið á mánudaginn var.“
Mikið efni kom niður
Geir Sigurðsson, rekstrarstjóri Vegagerðarinnar á
Ísafirði, sagði aurskriðuna hafa fallið fram á miðjan
veginn sem er breiður á þessum stað. Hún hefði verið
töluvert mikil, um 50 metra breið og a.m.k. 2 metra há
við efri brún vegarins. Þegar var byrjað að ryðja aurn-
um af sjálfum veginum í gærkvöldi og sagði Geir að
hægt væri að fara þar um í neyðartilvikum. Hann taldi
að vegurinn yrði lokaður fram eftir nóttu meðan mesta
vatnsveðrið gengi yfir.
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson
Skriða Aurskriðan var um einn metri á þykkt. Mikið vatnsveður gekk yfir Vestfirði í gær og var hitinn um 11 stig.
„Hrunið kom allt í einu“
Fólksbíll með fjórum ungmennum lenti í aurskriðu
sem féll á veginn milli Ísafjarðar og Hnífsdals í gærkvöldi