Morgunblaðið - 18.12.2007, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. DESEMBER 2007 21
SUÐURNES
Garður | Byrjað er á gatnagerð í
nýju íbúðarhverfi í Garði. Hverfið
er fyrir ofan dvalar- og hjúkrunar-
heimilið Garðvang og verða tæp-
lega 200 íbúðir í fullbyggðu hverfi.
Sveitarfélagið hefur ekki haft
lóðir til úthlutunar allt þetta ár og
segir Oddný Harðardóttir bæjar-
stjóri að margir séu að bíða eftir
lóðum í þessu hverfi. Í upphafi
verður úthlutað 21 einbýlishúsalóð
við göturnar Brimklöpp og Fjöru-
klöpp og svæðið stækkað ef eft-
irspurn verður meiri. Þá verður út-
hlutað 12 parhúsalóðum við Berja-
teig og Háteig.
Einbýlishúsalóðirnar verða 900
fermetrar að stærð og endalóðirnar
stærri. Gatnagerðargjöld eru um
2,4 milljónir fyrir 900 fermetra lóð.
Samkvæmt upplýsingum bæjar-
stjórans er gert ráð fyrir leiksvæði
í hverfinu miðju og opnu svæði til
útivistar. Oddný segir að hverfið sé
vel staðsett í bænum, í nálægð við
skóla, íþróttasvæði og þjónustu-
kjarna bæjarins.
Með fyrstu skóflustungunni sem
Oddný Harðardóttir tók eru hafnar
framkvæmdir við gatnagerð í
hverfinu. Lóðirnar verða síðan aug-
lýstar á næstu dögum.
Ljósmynd/Víkurfréttir
Skóflustunga Oddný Harðardóttir bæjarstjóri notaði stóra gröfu til að
hefja framkvæmdir við gatnagerð í nýju íbúðarhverfi.
Gatnagerð hafin í
nýju íbúðarhverfi
Reykjanesbær | „Ég legg áherslu
á að blaðið endurspegli það sem
Hitaveitan er að gera hverju
sinni og starfsmenn hennar,“ seg-
ir Víðir Sveins Jónsson, ritstjóri
Fréttaveitunnar, fréttabréfs Hita-
veitu Suðurnesja. Fréttaveitan er
efnismikið fréttabréf sem dreift
er til fjölda áskrifenda, auk
starfsmanna.
Fréttaveitan hefur verið gefin
út í tuttugu ár og fagnaði tíma-
mótunum við athöfn sl. föstudag.
Þá var Birni Stefánssyni, sem rit-
stýrði blaðinu og sá um alla
vinnslu þess í átján ár, afhent
sérstakt afmælisrit Fréttaveit-
unnar en það telst 221. tölublað
þess. Hitaveitan hefur látið binda
inn blaðið frá árunum 1987 til
2004 og afhent bókasöfnum og
fleiri stofnunum. Á afmælishátíð-
inni afhenti Björn háskólafélag-
inu Keili á Keflavíkurflugvelli
bók með blaðinu þessi ár.
Í tilefni afmælisins var efnt til
ljósmyndasamkeppni þar sem
verkefnið var að mynda starfs-
stöðvar eða starfsemi fyrirtæk-
isins. Sjötíu myndir bárust, marg-
ar góðar að sögn Víðis. Veitt
voru verðlaun fyrir þrjú efstu
sætin. Skarphéðinn Þráinsson
sigraði og átti auk þess myndina
sem varð í þriðja sæti. Mynd Eyj-
ólfs Vilbergssonar varð í öðru
sæti.
Verðlaunamyndirnar og nokkr-
ar fleiri eru til sýnis á skrif-
stofum HS á Brekkustíg 36 í
Njarðvík.
Víðir hefur reynt að birta
helstu fréttir af starfsemi fyr-
irtækisins, eftir því sem hægt er,
í riti sem kemur út annan hvern
mánuð. Af nógu hefur verið að
taka á þessu ári; hræringar
vegna breytingar á eignarhaldi
og bygging nýs orkuvers í
Svartsengi svo dæmi séu tekin.
Opin upplýsingaveita
Við þetta tækifæri var opnuð
formlega upplýsingaveita á slóð-
inni hver.is. Þar hefur verið safn-
að saman á einn stað öllum til-
tækum fréttum og greinum sem
birst hafa og tengjast starfsemi
Hitaveitu Suðurnesja, ljós-
myndum og kvikmyndum.
Ljósmyndir Skarphéðinn Þráinsson (t.v.) sigraði í ljósmyndasamkeppni
Hitaveitu Suðurnesja, Eyjólfur Vilbergsson varð í öðru sæti.
Segir frá því sem
Hitaveitan er að gera
Egilsstaðir | Hjörtur Magnason hér-
aðsdýralæknir rekur dýraspítala á
Egilsstöðum og hefur gert síðan árið
2000. Áður starfaði hann sem dýra-
læknir í Svíþjóð í 25 ár, frá ysta suðri
til ysta norðurs, eða á svæðinu frá
Skáni og upp í Lappland.
„Það var gott að vera Íslendingur í
Lapplandi,“ segir Hjörtur, þar sem
hann stumrar yfir afríska mjóhund-
inum Canis sem hefur rifið af sér kló.
„Lapparnir eru ekki í miklu sam-
bandi við Svíana enda mikil leiðindi
og rígur þar á milli. Sem Íslendingur
er maður eins og einn af þeim. Stefán
Magnússon, hreindýrabóndi á Græn-
landi, er eini útlendingur jarðarinnar
sem hefur fengið að fara í skóla hjá
Löppunum. Það líkist helst hernaðar-
leyndarmáli sem þeir gera þar. Stef-
án lærði þarna allt um hreindýr áður
en hann fór til Grænlands og að
smíða veiðihnífa, grafa í hreindýra-
horn o.fl.“
Sinnir öllu særðu og veiku
Hjört langaði alltaf heim en þurfti
að koma börnunum sínum sex á legg í
Svíþjóð áður en heim var snúið og
rétt tækifæri bauðst.
„Ég er með svæðið frá Bakkafirði í
Skriðdal sem héraðsdýralæknir. Það
eru mest kúabændur sem kalla í
heimsóknir þannig að ferðir eru ekk-
ert óskaplega margar. Svo eru nátt-
úrlega hrossin, ég geldi t.d. á Vopna-
firði en þar er nú prýðisdýralæknir
fyrir sem sinnir flestu. Ég er því mik-
ið hér á stofunni og hjá kúabændun-
um í kring.“
Hjörtur sinnir stórum sem smáum
dýrum, hefur þó sérhæft sig í hross-
um gegnum tíðina en segir ekki
skipta máli hvort sjúklingarnir eru
páfagaukar, mýs eða tíu milljóna
króna hestar. Hann segir fólk al-
mennt hugsa vel um skepnur sínar.
Dýravernd sé á uppleið þótt alltaf séu
til undantekningar. „Ljótast finnst
mér með bandhundana. Það er bann-
að með lögum að hafa hund bundinn
allan daginn en það kemur enn fyrir.
Hér áður fyrr voru kýrnar okkar nú
bundnar inni allt sitt líf. Það er réttur
skepna að fá að ganga úti tvo mánuði
á ári. Forsætisráðherra Svíþjóðar
gaf Astrid Lindgren þá reglugerð í
afmælisgjöf.“
Hjörtur er veiðimaður af lífi og sál,
bæði í fiski, fugli, ref og hreindýrum.
Hann segir tófunni fjölga. „Hún tek-
ur ægilegan skerf í náttúrunni, sér-
staklega rjúpu og gæs. Minkurinn er
líka erfiður. Hann er samt kominn
með eyðniveiru sem minnkar frjó-
semi og getur hjálpað til við að halda
stofninum niðri. Eyðniveiran er kom-
in í 20-30% af stofninum og styttir
lífslengdina hjá læðunum um u.þ.b.
tvö ár og frjósemi minnkar frá 6-8
hvolpum niður í 3-4 hvolpa. Minka-
búin eru skíthrædd við að villimink-
urinn smiti í þau fáu bú sem eru eft-
ir.“ Hjörtur segir veiruna ekki geta
farið í aðrar dýrategundir og hafi
komið til landsins með föruminkum.
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Aðgerð Hjörtur Magnason stumrar yfir afríska mjóhundinum Canis, rhod-
esian ridgeback-veiði- og leitarhundi í eigu Þorsteins Ragnarssonar.
Skvaldur á spítalanum
hjá Hirti héraðsdýralækni
Eftir Steinunni Ásmundsdóttur
steinunn@mbl.is
AUSTURLAND