Vikublaðið - 07.04.1997, Side 2
U30L£HD(KD
7. aprfl 1997
BH Útgefandi Tilsjá ehf. Ritstjóri og ábm.: Friðrik Þór Guðmundsson
Blaðamenn: Arndís Þorgeirsdóttir, Björgvin G. Sigurðsson og Róbert Marshall. Hönnun og umbrot: Ólafur Þórðarson Auglýsingar: Helena Jónsdóttir
Prófork: Arndís Þorgeirsdóttir Prentvinnsla: ísafoldarprentsmiðja.
1 ■ m Ritstjórn, afgreiðsla og auglýsingar. Laugavegur 3 (4. hæð), 101 Reykjavík. Sími: 552-8655. Fax: 551-7599
Netfang: vikubl@tv.is
Lappað upp á LIN
Frumvarp til breytinga á hinum illræmdu lögum um Lánasjóð ís-
lenskra námsmanna frá 1992 er loks komið. Beðið hefur verið eftir
frumvarpinu með eftirvæntingu, enda um helsta þrætuepli stjórnar-
flokkanna að ræða.
Framsóknarflokkurinn hefur ekki riðið feitum hesti frá stjórnarsam-
starfinu við Sjálfstæðisflokkinn og það var því ekki síst beðið eftir því
að sjá hvort Sjálfstæðisflokkurinn hefði Framsóknarflokkinn undir í
þessu máli. Frumvarp kom eftir tveggja ára meðgöngu og stendur
þar upp úr að það á að lækka endurgreiðsluhlutfall námslána úr 7% í
4,75% af tekjum og taka upp samtímagreiðslur námslána í gegnum
bankakerfið.
Það er jákvætt að það eigi að lækka endurgreiðsluhlutfallið, en það
er bara ekki gengið nægilega langt í þeim efnum. Ungt fólk mun eftir
sem áður þurfa að velja á milli þess að afla sér menntunar eða fjár-
festa í húsnæði, því 4,75% endurgreiðsluhlutfall samsvarar 8-9% af
ráðstöfunartekjum fólks. Það er einfaldlega of mikið.
Ef til vill er það sérkennilegast við frumvarpið hvernig meðferðin er á
fé skattborgara. í stað þess að ríkið taki lán á 5% vöxtum og láni
námsmönnum fyrir framfærslu þá þurfa námsmenn að taka fram-
færslulán í bönkum með 10% vöxtum sem ríkið greiðir. Ríkið er
þannig ekki að nýta sér þau forréttindi að geta fengið lán á 5% vöxt-
um sökum góðs lántrausts, heldur tekur það yfirdráttarlán hjá bönk-
um á 10% vöxtum í gegnum námsmenn. Þetta hlýtur að teljast all
sérstök hagstjórn hjá hægri flokkunum tveimur í ríkisstjórninni.
Þá er líka athyglisverð tilraunin til að einkavæða námsmenn. Pening-
ar skattgreiðenda eru notaðir til að borga með námsmönnum svo að
bankarnir, sem á að fara að einkavæða, geti yfirtekið námsmennina.
í raun er ekki um að ræða samtímagreiðslur námslána í gegnum
bankakerfið heldur ríkisstyrkta einkavæðingu á íslenskum náms-
mönnum.
Hvað veldur þessu er vont að sjá, en eitt er víst að ársreikningar
bankanna benda ekki til þess að þeir þurfi á þessari himnasendingu
að halda.
Flokkur í sókn
Allt frá því Margrét Frímannsdóttir tók við formennsku í Alþýðu-
bandalaginu, hafa skoðanakannanir sýnt að flokkurinn nýtur stöðugt
meira fylgis. Fyrir aðalfund miðstjórnar dagana 24. - 26. febrúar var
flokkurinn með 16% fylgi í könnun DV. í könnun sem var gerð strax
að fundinum loknum naut Alþýðubandalagið fylgis 19,7% í könnun
DV og í nýrri könnun Gallup fær flokkurinn 21% fylgi, eða 6,7%
meira en í kosningunum vorið 1995.
Ekkert eitt atriði skýrir aukið fylgi við Alþýðubandalagið. Eftir að
Margrét tók við forystu í flokknum áttu sér hins vegar stað ákveðnar
áherslubreytingar í málflutningi flokksins hvað varðar kjaramál, stöðu
fjölskyldunnar og þeirra sem minnst mega sín í þjóðfélaginu. Ljóst er
að málflutningur flokksins hefur höfðað til stöðugt vaxandi fjölda
ungs fólks og kvenna.
Á sama tíma og fylgi Alþýðubandalagsins eykst minnkar fylgi
Kvennalistans. Það er eðlilegt að vinstriþenkjandi konur sem veitt
hafa Kvennalistanum brautargengi horfi til Alþýðubandalagsins með
Margréti í formannssæti. Með kjöri hennar sýndi Alþýðubandalags-
fólk að því er alvara í jafnréttismálum um leið að það styður róttæka
umbótastefnu í velferðar- og verkalýðsmálum.
Friðrik Þór
Guðmundsson
Fyrir Alþingi liggur nú frum-
varp í 65 greinum um stöðu
þjóðkirkjunnar, sem er hið ev-
angelísk-lútherska trúfélag á
Islandi. Trúfélag þetta nýtur
stjómarskrárbundinnar vernd-
ar íslenska ríkisins, þrátt fyr-
ir ákvæði sömu stjómarskrár
um trúfrelsi. í lagafrum-
varpinu er að stofni til leit-
ast við að auka sjálfstæði
þjóðkirkjunnar, en um leið
festa í sessi árleg ríkisút-
gjöld til hennar upp á
mörg hundmð milljónir
króna (og eru sóknar-
og kirkjugarðsgjöldin
þá ekki talin með). Við
yfirlestur á fmmvarp-
inu kemur glöggt
fram að það eru sjálf-
ir kirkjunnar menn
sem sáu um að
smíða frumvarpið.
Og það sem meira er; í
frumvarpinu er að finna einstætt
ákvæði, sem felur í sér óskiljanlegt
valdaafsal Alþingis.
22. grein fmmvarpsins segir eftir-
farandi: „Kirkjuþing getur haft frum-
kvæði að frumvörpum til laga um
kirkjuleg málefni og beint þeim til-
mælum til ráðherra að þau verði flutt
á Alþingi. Ráðherra leitar umsagnar
og tillagna kirkjuþings um lagafrum-
vörp um kirkjuleg málefni er hann
hyggst flytja á Alþingi.”
Hér er ekki um að ræða umsögn
eftir að frumvarp hefur verið lagt
fram, eins og öðmm er boðið upp á,
heldur á ráðherra að bera málin undir
kirkjuþing áður en til kasta Alþingis
kemur! Geta menn ímyndað sér að
sett verði í lög ákvæði um að ASI
geti haft fmmkvæði að lagasetningu
og beint því til félagsmálaráðherra að
flytja óskamál sín? Eða að ráðherra
sé með lögum gert að bera undir ASÍ
öll mál sem hann hyggst flytja áður
en hann gerir það?
Alþingi sem af-
greiðslustofnun
Nefndir sem undirbjuggu frum-
varpið vom að meirihluta til skipaðar
kirkjunnar mönnum - og langt frá því
sjálfgefið að svo eigi að vera. Síðan
þurfti
frumvarpið að
leggjast fyrir og fá blessun
kirkjuþings til að það yrði framlagn-
ingarhæft hjá löggjafarsamkundunni
Alþingi. Nefndirnar og kirkjuþingið
gerðu ýmsar breytingar á fmmvarp-
inu, verk sem í öðmm tilfellum heyrir
undir Alþingi. f öllu ferlinu eru
kirkjumálaráðherra og starfsmenn
hans algjörar aukapersónur. Og Al-
þingi skal gjöra svo vel að vera af-
greiðslustofnun.
Það má út af fyrir sig fagna því að
þjóðkirkjan eigi að vera sjálfstæðari
en verið hefur. En að hún eigi að vera
svo sjálfstæð að Alþingi og ríkis-
stjóm séu í hjáverkum er annað mál.
Braskað með
rándýrar jarðir
Umdeilanlegasti kafli framvarpsins
fjallar um afsal þjóðkirkjunnar á jörð-
um gegn greiðslu ríkisins á launum
presta og fleiri. Þessi afgreiðsla
byggir á gjörð sem átti sér stað árið
1907, þar sem ríkið tók á sig launa-
greiðslur og fékk jarðir á móti.
Fyrir það fyrsta þá er ríkið búið að
greiða þennan launakostnað í 90 ár
og hefur efnt til mikilla útgjalda
vegna t.d. byggingafram-
kvæmda og viðhalds. Kirkju-
jarðirnar hafa því margfald-
lega verið greiddar.
I öðm lagi er tilkall evangel-
ísk-lútherska trúfélagsins til
umræddra jarða umdeilanlegt.
Kaþólska kirkjan fékk þessar
jarðir að stórum hluta til fyrir
siðaskipti, en síðan hrifsaði
evangelísk-lútherska kirkjan þær
til sín með valdi. Kaþólska kirkjan
fékk jarðimar gjaman með því að
biskupar dæmdu þær til sín frá
sóknarbömum sem áttu að hafa brot-
ið guðslög. Eða þá að sóknarbörn af-
söluðu jörðum til kirkjunnar í von um
himnaríkisvist. Öllum meðulum var
beitt, auður biskupanna hlóðst upp og
síðan kom evangelísk-lútherska kirkj-
an og hirti góssið með hálshöggvun-
um og öðm ofbeldi.
Aðskilnaðar-
sinnar
afgreiddir
Ut á þetta er Alþingi gert að sam-
þykkja launagreiðslur til biskups ís-
lands, vígslubiskupa, 138 starfandi
presta og prófasta og 18 starfsmanna
biskupsstofu. Það skal gert óendan-
lega og skal framlagið hækka ef
sóknarbörnum fjölgar. Þannig er
þjóðkirkjunni tryggðar mörg hundmð
milljónir króna árlega - í nafni vafa-
samra jarðakaupa.
Sá sem þetta ritar telur að skera
eigi á tengsl ríkis og kirkju. í athuga-
semdum með frumvarpinu segir að
umræða um þessi tengsl hafi orðið
allnokkur á undanfömum ámm, með-
al annars á kirkjuþingi, en síðan seg-
ir: „... aðrir aðilar hafa einnig látið til
sín heyra þótt eigi fari sérlega hátt,
m.a. í þá vem að slíta beri öll tengsl
milli ríkis og kirkju. Eigi verður þó
talið að nú um stundir eigi svo rót-
tækar hugmyndir fylgi að fagna með-
al alls þorra íslendinga og miðast efni
þessa frumvarps m.a. við þá ætlan
nefndarinnar.”
ítrekaðar kannanir Gallups sýna að
55 til 65 prósent þeirra sem afstöðu
taka eru hlynntir aðskilnaði ríkis og
kirkju. Það segir allt sem segja þarf
um hugarheim þeirra nefndarmanna
sem önnuðust fmmvarpssmíðina.
Boðorðin
65
KLIPPT...
Skattlaus fjölmiðlarisi
Hvað sem annars má segja um fjölmiðla-
veldi Jóns Ólafssonar þá er víst að Skattmann
fær ekki gull og græna skóga úr þeirri átt. Við
skoðun á skattskrá 1996 (vegna 1995) kom í
ljós að flest fyrirtækin í kringum Jón skiluðu
engum tekju- eða eignaskatti. Þetta á við um
fyrirtækin Jón Ólafsson & co. og Skífuna,
sem Jón á sjálfur og þetta á við um félög eins
og íslenska útvarpsfélagið hf., Fjölmiðlun hf.,
Sýn hf., Viðskiptablaðið (Þekking hf.) og
Ftjálsa fjölmiðlun hf. (DV). Félagið Útherji
hf., sem á aðild að Stöð 2, greiddi 764 þúsund
í tekjuskatt og félagið Fjórmenningar sf.
greiddi 62 þúsund í eignaskatt en ekkert í
tekjuskatt. Jón sjálfur greiddi 1,3 milljónir
króna í tekjuskatt og 743 þúsund í eignaskatt
(og kona hans annað eins). Útgáfugélagið
Fróði, sem enn gefur út nær öll tímarit lands-
ins, greiddi heldur engan tekju- eða eigna-
skatt. Mogginn (Árvakur hf.) greiddi hins
vegar 7,2 milljónir í tekjuskatt og 3,4 milljón-
ir í eignaskatt.
Klippt og skotið
Fréttastofa Stöðvar tvö fjallaði mikið um
meðmæli Björns Halldórssonar með byssu-
leyfi til handa Franklín Steiner og í góðu lagi
með það. Fréttastofan fjallaði líka mikið um
skotvopnasölu lögreglunnar. Þegar fréttastof-
an tók viðtal við fulltrúa lögreglunnar vegna
þess máls tók sá skýrt fram að umrædd sala
hefði átt sér stað árið 1991 - en ekki nýverið -
og að fréttastofa RÚV hefði greint frá málinu
árið 1993. Þessi málflutningur fulltrúans var
klipptur út úr frétt Stöðvar tvö og látið líta svo
út sem um nýlegan atburð væri að ræða. Til-
raun lögreglunnar til að fá leiðréttingu á þessu
bar engan árangur. Lögreglan brá á það ráð að
senda fjölmiðlum (reyndar ekki Vikublaðinu)
fréttatilkynningu vegna málsins, en hún fékkst
hvergi birt. Samtrygging?
Trúleysingjasjóður dafnar
Sóknargjöld einstaklinga sem em utan trú-
félaga renna í svonefndan Háskólasjóð, sem
stofnaður var 1974. Nýlega svaraði Björn
Bjarnason menntamálaráðherra fyrirspurn
Marðar Ámasonar um sjóð þennan og kom í
ljós að hann dafnar vel. Arið 1988 runnu
sóknargjöld upp á rúmar níu milljónir í sjóð-
inn, en það er á núvirði 15,5 milljóna króna.
Árið 1996 var upphæðin komin í 24 milljónir
króna. Framlagið hefur því vaxið um 56% að
raunvirði á átta árum. Styrkir úr sjóðnum
renna mestmegnis til starfsmanna eða félaga
Háskólans, en yfírleitt er ekki öllu framlaginu
deilt út. Þannig hafa tekjur umfram gjöld ver-
ið sem nemur 15 til 25 prósent af tekjum á
undanfömum ámm. Hæstu styrkina árið 1996
(tvær til þrjár milljónir) fengu Kynningar-
nefnd HI, Kennsluvarp HI, Styrktarsjóðir HÍ,
Hollvinasamtök HÍ og Kennslumálasjóður HÍ,
en af öðrum má nefna að Siðfræðistofnun
fékk 1,2 milljónir, Stúdentaleikhúsið 400 þús-
und og Háskólakórinn 350 þúsund. Einnig má
nefna að laganemar fengu 75 þúsund til að
skreppa á þing laganema í Róm.
Sameiginlegt 1. maí kaffi
Stórtíðindi munu eiga sér stað 1. maí næst-
komandi, á hátíðisdegi verkalýðsins. Gömlu
Reykjavíkurfélögin hjá Alþýðubandalaginu
og Alþýðuflokknum, ÁBR og Alþýðuflokks-
félag Reykjavíkur, hafa samþykkt að halda
sameiginlegt 1. maí kaffi, að hldndum á Hótel
Borg. I næsta mánuði er fyrirhugað að halda
sameiginlegan miðstjómar/flokksstjómarfund
flokkanna og em það tíðindi út af fyrir sig, en
jafnast líkast til ekki á við sameiginlegt sam-
komuhald á hátíðsdegi verkalýðsins. Ekki síst
er þetta athyglisvert fyrir þá sök að þetta em
ekki þau félög flokkanna í borginni sem mest
hafa talað um sameiningarmálin. Er ástæða til
að óska formönnum félaganna til hamingju,
þeim Gesti Ásólfssyni og Rúnari Geirmunds-
syni.
Til stuðnings Tony Blair
í lok mánaðarins hyggjast nokkrir ungliðar
af vinstrikantinum fara til Bretlands og ráða
Tony Blair og Verkamannaflokknum heilt í
yfirstandandi kosningabaráttu. Þau hyggjast
dvelja þar fram yfir kosningar og fagna sigri
með breskum vinstrimönnum á kjördag, 1.
maí. Meðal þeirra sem fara eru Verðandi
forsprakkinn Erla Ingvarsdóttir, kratamærin
snaggaralega Þóra Amórsdóttir, félagsráðgjaf-
inn góðhjartaði Hreinn Hreinsson og fram-
kvæmdastýra Grósku Jóhanna Þórdórsdóttir.
Lesendur Vikublaðsins munu fá að vita allt
um ferð þessa síðar þar sem Vikublaðið sendir
að sjálfsögðu fulltrúa sinn til að fylgjast með
uppgangi breskra vinstrimanna.
...0GSK0RIÐ
i