Vikublaðið - 07.04.1997, Page 4
DiíliUJD
7. apríl 1997
ÚR ALFARAŒIÐ
Ekki strax heim
Hvað ætlast þú fyrir í framtíð-
inni? JÉg flyt sennilega ásamt unn-
usta mínum til Danmerkur eftir tvö
ár að læra blómaskreytingar. Eftir
það er allt óráðið. Það er ekkert víst
hvort við komum strax heim. En
fyrst ætla ég að klára stúdentinn.”
- Sigríður Einarsdóttir, 19 ára
fegurðardrottning Suðurlands
1997 og þátttakandi í Ungfrú is-
land í vor, í Sunnlenska frétta-
blaðinu.
Hagræðingin og
landsbyggðin
„Að undanfömu hefur fyrirhug-
uð hagræðing í heilbrigðiskerfmu
verið mjög til umræðu og hefur
fólki á landsbyggðinni hryllt við
þeim hugmyndum sem þar hafa
verið uppi hvað varðar niðurskurð
á fjárlögum til landsbyggðarsjúkra-
húsa. Eins hafa forsvarsmenn stóru
sjúkrahúsanna í Reykjavík bent á
alvarlegar afleiðingar niðurskurðar.
Á suðvesturhominu er ef til vill
mögulegt að spara í rekstri heil-
brigðisstofnana, jafnvel með því að
loka deildum eins og skurðdeildum
smærri sjúkrahúsanna. Uti á landi
háttar hins vegar svo til að einungis
eitt sjúkrahús á tilteknum lands-
svæðum veitir bráðaþjónustu og
þegar deild eins og skurðdeild er
lokað þá er verið að leggja niður þá
þjónustu í heilum landshluta.”
- Smári Geirsson í Austurlandi.
Græðgi
„En eitt hið mesta böl mannsins
er skortur á nægjusemi, græðgi.
Menn ásælast það sem aðrir eiga og
þrá. En þegar dyggðin er ekki ráð-
andi þáttur í lífi manna, miðast allt
við eiginhagsmuni. Menn keppa
eftir virðingu og völdum. Og áður
en varir er hagsmunabaráttan kom-
in í algleyming og miður heiðvirð-
um meðulum er beitt til þess að ná
yfirhöndinni. Hin andlegu verð-
mæti eru fótum troðin, dyggðin er
talin veikleiki og allt er gert til þess
að tendra bál haturs og hefnigimi
meðal þjóða og einstaklinga. En
þegar dyggðin er horfm úr lífi
manna em stríðshestar aldir á slétt-
unum.”
- Jón á Gjábakka í Fréttum, Vest-
mannaeyjum.
Sólarlanda
haffæraskírteini
„Mörg flutningaskip sem koma
hingað til Siglufjarðar hafa ekkert
út í vetrarbrælur Norður-Atlants-
hafsins að gera, þó svo að þau séu
með fullgild sólarlanda haffæra-
skírteini, það treysti ég mér til að
fullyrða. Þetta skyldi þó aldrei vera
bein eða óbein afleiðing af ein-
hverju sem kallað er hagræðing.
Einhvern veginn hefur maður það á
tilfinningunni að skipin geti ekki
fullnægt þeim kröfum sem gerðar
em til þeirra og það sé ekki í mann-
legu valdi að fylgja áætlunum. Þeir
sem stjóma hlutabréfasjónhverf-
ingum verðbréfafyrirtækjanna
þurfa ekki að hafa áhyggjur þó eitt
og eitt skip farist. Ég tala nú ekki
um ef á þeim era menn sem láta sér
nægja kaup sem jaðrar við að vera
bara frítt fæði og húsnæði.”
- Sigurður Helgi Sigurðsson,
hafnarvörður, f Hellunni, Siglu-
firði.
Skyldi Eimskip rukka þýsku
útgerðina um björgunarlaun
fyrir að „bjarga” áhöfn Vikar-
tinds úr landi?
AUSTRI
Agi og festa
Fyrir skömmu var haldið Iðnþing
og á borðum „þingmanna” lá myndar-
leg skýrsla sem þrír vitringar í starfs-
hóp höfðu tekið saman. f skýrslunni er
mikil viska eftir heilmikla vinnu við
að meta hvort AGA og
ÁBYRGÐ skorti í atvinnulífinu
á íslandi.
Vitringamir þrír í starfshópn-
um heita Jón, Birgir og Guðni
og koma frá Samtökum iðnað-
arins, VSÍ og Verslunarráðinu.
Þrír galvaskir ungir menn; til-
tölulega nýskriðnir úr útungun-
arvélum Valhallar og Garða-
strætis hf. Það mátti sjá alvöra-
þunga færast yfir andlit „þing-
manna” þegar þeir renndu aug-
um yfir skýrsluna. Hvað var þar að
lesa?
Vitringamir þrír rituðu að þeir
„voni að ábendingar okkar verði fyrir-
tækjum, stjómsýslu og þingmönnum
að gagni við að bæta aga og festu í at-
vinnulífmu”. Hvorki meira né minna.
Forstjórar einkaframtaksins, yfirmenn
hins opinbera og þingmenn þjóðarinn-
ar (hvers eiga ráðherrar að gjalda?)
eiga að gjöra svo vel að tileinka sér
boðskap vitringanna þriggja um AGA
og FESTU. Nú er nóg komið af laus-
ung og ævintýramennsku, nú er kom-
ið að LAW AND ORDER í atvinnu-
lífinu á fslandi.
Hvemig á að koma böndum á ævin-
týra- og vanskilamenn? Með NJOSN-
UM OG UPPLJÓSTRUNUM er svar
vitringanna þriggja. Fyrirtækjum er að
þeirra mati gert of erfitt fyrir „að afla
upplýsinga um fjárhagslega greiðslu-
Karl Karlsson er glórulaust
kennitölutígrisdýr. Einar Ein-
arsson er forfallin fyllibytta
sem skuldar Flugleiðum tvær
ferðir til útlanda. Stefán Stef-
ánsson lemur konuna sína og
er ekki búinn að borga reikn-
inginn sinn í Húsasmiðjunni.
Enter.
getu viðskiptamanna sinna”, segja
þeir. Svarti listinn er ekki nóg. Þeir
leggja því til að „tölvulögum verði
breytt þannig að unnt verði að miðla
upplýsingum um rekstraraðila sem
eru í vanskilum vegna viðskipta sinna.
Þá verði samtökum fyrirtækja heimilt
að halda saman upplýsingum um van-
skil viðskiptamanna sinna”. Lagt er til
að settar verði skýrar reglur sem úti-
loki síbrotaaðila á sviði vanskila og
skattamála frá þátttöku í öllum opin-
beram útboðum.
Við frásögn af skýrslu vitringanna
þriggja kemst tíðindamaður viðskipta-
kálfs Morgunblaðsins (KjM - Kjartan
Magnússon?) virkilega á flug. „Heið-
arlegum fyrirtækjum virðast vera
flestar bjargir bannaðar við að miðla
kerfisbundið á milli sín upplýsingum
um skussa, sleða og jafnvel svindlara í
viðskiptalífinu. Auðvitað er sífellt
verið að miðla slíkum upplýsing-
um á milli manna og fyrirtækja í
einkasamtölum en slíkt er
ómarkvisst og seinvirkt’’.
Sjá menn ekki fyrir sér nýja
deild á skrifstofu VSÍ við Garða-
stræti; AGA- OG FESTU-
DEILD, með fullkominn tölvu-
útbúnað í höndum forstöðu-
manns miðstýrðrar upplýsinga-
þjónustu. Þar sem upplýsingum
er miðlað; Jón Jónsson er aga-
laus sleði, Sigurður Sigurðsson
er festulaus skussi, Guðmundur Guð-
mundsson er ábyrgðarlaus svindlari,
Karl Karlsson er glóralaust kennitölu-
tígrisdýr. Einar Einarsson er forfallin
fyllibytta sem skuldar Flugleiðum
tvær ferðir til útlanda. Stefán Stefáns-
son lemur konuna sína og er ekki bú-
inn að borga reikninginn sinn í Húsa-
smiðjunni. Enter.
1 \í 7 p r— => 7 1 3— i o T~" 2
w ; 5 ) S- 1 I < y i T ( iu zb O S i
)°> : S 10 W i 21 ‘ ’i i / T )h \2 V É2 )T
22 )S $2 ii 23 , 12 ’i )¥ ty? ’lT IT ra— 2?—I
)é> iö 18 5 W~ T 25— m—“ n— 15 1
)Z sa ÍO 2.0 21 )T 3 3 )ÍL s? 10 1
25 W ETF M ii '22 T s k W~ iy )o W
y /V )°> 5~ )0 )5 3 JO TT~ V ISÁ
2°) /9 3 w~ S? 5 22 II H H S? 28 1
C> 2$ 30 11 27- jr~ 14- 19 V J 2 2-F W~ ÍT~
3 2H- L> 22. 24 2ó > 23 T~ 3 ’m— 19 S- I
2& TT- 3 .$£ )W~ IT )lo lb IT IT "3—
lO TS~ H 2U- k )b II IO k ií¥— 32 1
&— ■g— H '3 io ’5 10 1 1 HJARTAGÁTAN
FJÖLMIÐLAR
Meiðyrði og
guðlast
Nokkrar kærar vegna íjölmiðla-
efnis hafa litið dagsins ljós að und-
anfömu. Meðal annars hafa eigend-
ur Dags-Tímans (sem eins og allir
víta era fóstbræðumir í DV og Stöð
2) kært gamlan fréttamola í Helgar-
póstinum (frá því áður en núverandi
eigendur tóku við), þar sem greint
var ffá erfiðleikum í rekstri DT. Þá
hefur Hreggviður Jónsson á Stöð 2
kært sama blað vegna skrifa þess um
hlutabréfabrask sitt. Og blessaður
biskupinn hefur komið af stað rann-
sókn á því hvort Spaugstofumenn
hafi í RÚV-sjónvarpinu 29. mars
HELGARPÓSTURINN
farið yfir velsæmismörk og ástundað
guðlast.
Um kæra DT er lítið að segja ann-
að en að aðstandendur DT ættu að
skammast sín og draga málið til
baka. Það vita allir sem vita vilja að
það er búið að vera bölvað basl hjá
DT að markaðssetja sig - sérstaklega
fyrir norðan. Það vita áreiðanlega
allir í „Heita pottinum” sem sjá DT
fyrir sögum. Lánadrottnar hafa
áreiðanlega ekki kippt sér svo mikið
upp við einhvem mola í Helgarpóst-
inum. DT er í eigu DV sem er ná-
tengt Stöð 2 og á þ eim bæjum hefur
verið ákveðið að sparka í HP. Svo
einfalt er það.
Guðlastsmálið er öllu athyglis-
verðara og feitara. Víst er að grín-
þáttur Spaugstofumanna hefur farið
verulega fyrir brjóstið á guðhræddu
fólki. An efa getur ríkiskirkjan feng-
ið dómara til að fella sektardóm í
málinu, rétt eins og í Spegilsmálinu
forðum. En var þetta svona agalega
slæmt? Er það kannski fyrst og
fremst framsetningin og tímapunkt-
urinn sem fékk hina guðhræddu til
að roðna af vandlætingu? Er ekki
hægt að fyrirgefa svona tiltölulega
meinlaust grín?
í útvarpsviðtali nefndi Þórir
Stephensen dæmi um guðlast:
Brandarann um að blindir fái
„Sýri’.Var þetta þó einna skásti
brandarinn í þættinum og sá þeirra
sem sfst gæti flokkast sem guðlast.
Nærtækara dæmi hefði verið svið-
setningin á síðustu kvöldmáltíðinni.
Þórir Stephensen þekkir sjálfur til
meiðyrðalöggjafarinnar. Fyrir
nokkram áram fékk hann Hall
Magnússon blaðamann dæmdan
vegna skrifa um sig sem staðarhald-
ara og frímúrara. Hallur var dæmdur
í háar sektargreiðslur og var mál
hans efst á baugi þegar málfrelsis-
sjóður var stofnaður í kjölfarið.
Reyndar hafa fáir menn stundað
eins mikið guðlast á síðustu tímum
og sjálfir forsvarsmenn ríkiskirkj-
unnar. Öll deilumálin hafa verið
með þeim endemum að guð hefur
áreiðanlega sjálfur íhugað að leggja
fram kæru. Ófáir dauðlegir menn
kærðu með því að ganga úr hinni
evangelísk-Iúthersku þjóðkirkju.
Enda eykst fjárstreymið í Háskóla-
sjóð, en þangað fara sóknargjöld
þeirra sem era utan trúfélaga.
Setjið rétta stafi í
reitina neðan við
krossgátuna. Þeir
mynda þá örnefni.
Lausnarorð kross-
gátunar í síðasta
blaði er:
Bjarghús